Þjóðviljinn - 03.11.1974, Síða 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 3. nóvember 1974.
RÍRISSPÍTALARNIR
lausar stöður
KLEPPSSPÍTALINN:
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til
starfa i 12 mánaða stöðu frá 15.
desember nk. Umsóknarfrestur er
til 30. nóvember nk. Nánari upplýs-
ingar veitir yfirlæknir spitalans.
HJÚKRUNARKONA óskast til
starfa á göngudeild nú þegar, eða
eftir samkomulagi. Upplýsingar
veitir forstöðukonan, simi 38160.
RITARAR óskast til starfa við
spitalann. Ritari á skrifstofu for-
stöðukonu óskast hálfan daginn, eft-
ir hádegi, nú þegar. Læknaritari
óskast i fullt starf frá 1. desember
nk. Umsóknarfrestur um þá stöðu er
til 12, nóvember nk. Upplýsingar
veitir starfsmannastjóri.
Umsóknir er greini aldur, menntun
og fyrri störf, ber að senda skrif-
stofu rikisspitalanna.
Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á
sama stað.
Reykjavik, 1. nóvember, 1974.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5.SÍM111765
Félag íslenskra
bifreiðaeigenda
F.í.B. vill vekja athygli allra ökumanna á
þvi að útrunninn er frestur til að láta stilla
ökuljós bifreiða. Samt sem áður geta fé-
lagsmeun fengið stillingu á ljósum bif-
reiða sinna
meö 25% afslætti
hjá Áhaldahúsi Kópavogs, Kársnesbraut
68, Kópavogi.
ATH. AFSLÁTTUR ÞESSI GILDIR AÐ-
EINS TIL 15. NÓV. n.k.
bw Húseignir til
sölu á Akureyri
Kauptilboð óskast i Gróðararstöðvarhúsið
við Eyjafjarðarbraut, ásamt leigulóð.
Lágmarkssöluverð hefur verið ákveðið af
seljanda, skv. 9. grein laga no. 27/1968, kr.
3.800.000.00.
Ennfremur óskast kauptilboð i verkfæra-
skemmu Tilraunastöðvarinnar við Eyja-
fjarðarbraut, ásamt leigulóð. Lágmarks-
söluverð kr. 5.300.000,00.
Húsin verða til sýnis væntanlegum bjóð-
endum fimmtudaginn 7. nóvember 1974,
kl. 1—4 e.h. og verða þar afhent tilboðs-
eyðublöð.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu
vorri fyrir kl. 11:30 f.h., mánudaginn 18.
nóv. 74.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
INRÉTTINGAR — FATAHENGI ÚR
JÁRNI.
Tilboð óskast I innréttingar i kennara-, kennslu- og smíða-
stofur og ennfremur fatahengi úr járni, allt fyrir Æfinga-
skóla Kennaraskóla tslands. (Jtboðsgögn eru afhent á
skrifstofu vorri gegn kr. 5.000.- skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Konur
Framhald af bls. 2.
— Meðfara þróun þjóðfélagsins
eru þessir siðir óðum að breytast
og þær takmarkanir sem ný-
lenduþjóðfélagið hefur sett okkur
hverfa þegar konur fara sjálfar
að berjast fyrir frelsi sinu.
— Getið þið nefnt dæmi þessa?
— Aður var það venja að stúlk-
ur giftust á aldrinum 10—12 ára
og greiðsla fyrir brúðirnar gengi
til foreldranna. Nú sjá foreldrar
fram á amk. töf á þessari borgun
eða að þeir fái hana alls ekki.
Mæðurnar hér, sem hættir til að
vera afturhaldssamar rétt eins og
mæður ykkar, vilja að dætur
þeirra giftist einsog þær geröu
sjálfar. En andstaða gegn þessu
er að magnast. Td. gerðist það I
einu þorpinu að barnakennarinn
setti sig upp á móti þvi aö skóla-
stúlkurnar giftust ungar, Málið
kom fyrir þorpsnefndina sem aft-
ur lagði það fyrir þorpsfund, sem
haldinn er á hálfsmánaðarfresti,
svo að allir þorpsbúar fengju
tækifæri til að finna lausn á
vandamálinu.
— Eru konur meðal forystu-
manna MPLA?
— Það eru engar konur i for-
ystu hersins, en hinsvegar eru
konur meðal pólitiskra forystu-
manna. Sumar eru i fram-
kvæmdanefndinni. Þar átti td.
sæti félagi Deolinda, sem var
drepin af portúgölum þegar hún
var að koma frá þvi að skipu-
leggja vinnu á einu hernaðar-
svæðanna. Hún var allt frá 1962
félagi i framkvæmdanefnd OMA
og MPLA og starfaði einnig með
samtökunum i Kinshasa, sem
hjálpuðu flóttamönnum frá
Angóla.
— Að hvaða leyti taka konur
þátt i striðinu?
— I herstöðvunum innan
Angóla eru skæruliðar, konur og
börn. Þegar ráðist er á stöð eru
það karlmennirnir og barnlausar
konursem verja hana. Einnig eru
konur mikið i hergagnaflutning-
um við undirbúning hernaðarað-
gerða. En konurnar, sem gæta
barnanna fara meö þau i skjól
meðan barist er.
— Við upphaf freisisstriðsins I
Angola voru 99% landsmanna
ólæsir og óskrifandi. Stór hluti
kvenna I OMA hlýtur þvi að vera
ólæs. Hvað hafa samtökin gert I
þvi máli?
— Hvarsem saman eru staddir
fimm baráttufélagar OMA verða
þær að mynda OMA deild með
formanni, ritara o.s.frv. Og þær
eru skyldar til að skipuleggja
lestrarkennslu, svo venjulega eru
reknir skólar þar sem nokkrir
OMA félagar dveljast. UNESCO
hefur veitt OMA Nadedja Krup-
skayja verðlaunin fyrir starf sitt
að þessum málum.
Skólar OMA ná aðeins til 1. og 2.
bekkjar. Flestar kvennanna og
karlanna kunna hvorki að lesa né
skrifa og eru á sama stigi og
börnin að þvl leyti. En kennsluaö-
ferðirnar eru mismunandi, svo
kennsla fullorðinna er ekki sam-
einuð skólagöngu barnanna. Um
leiö og fullorðna fólkið lærir að
lesa fær það pólitlska fræðslu og
þjálfun.
Vietnam
Framhald af 5. siðu.
einmitt að þvi liggja, að hin borg-
aralega andstaða við spillingar-
stjórn Thieus, tengi vonir sinár
ekki hvað sist við slika ihlutun.
,,CIA er réttu megin núna” er
haft eftir éinum af talsmönnum
kaþólskra.
Enginn lifir af
nema......
En það er erfitt að sjá hvernig
slik mannaskipti I efstu tröppum
mannvirðinga i Saigon eiga að
geta bjargað við stjórnkerfi sem
svo mjög var skapað af banda-
riskri nærveru, bandariskum
vopnum og peningum. Hefð-
bundið samfélag og atvinnukerfi
var lagt i rúst i striðinu og borg-
irnar drógu fram lifið á eyðslu
bandariska hersins. Nú er hann
farinn, þótt „sérfræðingar og
ráðunautar” séu margir enn I
Suður-Vietnam. Og siðan er
Saigonstjórnkerfið i stöðugri
kreppu. Þar er meira atvinnu-
leysi og verðbólga en dæmi eru til
i Asiu — sjöundi hver maður sem
Thieu telst stjórna hefur ekkert
að starfa. Talið er að þeir sem
vinna, hafi að meðaltali sem
svarar 2400 krónum á mánuði —
það þýðir að sama og ekkert er
eftir þegar keypt hafa verið hris-
grjón handa fjölskyldunni og
nokkrir litrar af kjötseyði.
„Enginn kemst af nema rikis-
menn og mútuþegar” er niður-
staða blaðsins Far East Econom-
ic Rewiew, sem kemur út i Hong-
kong.
Það blað getur þá ekki um það
fólk sem býr á frelsuðu svæðun-
um, þar sem i fullum gangi er
uppbyggingarstarf sem hefur
vakið mikla aðdáun sjónarvotta
sem þangað hafa komist.
A.B. tók saman.
Venjuleg vika
Framhald af 18. siðu.
eldstæði, hús ókunnugra, en samt
sem áður skjól þeirra nú. Þau tvö
ein með nótt, hafi og kyrrð.
A morgnana hlupu þau niður
einstigið, borðuðu i kaffihúsi og
ráfuðu svo um. Þau klifuðu i
bröttum klettum, vermdu sig i
sólinni eins og eðlur, horfðu á ólg-
andi sjóinn fyrir neðan, sem sendi
þeim kaldar gusur. Engin mann-
eskja nálæg, allt hreint og
kyrrt . . . Hún smeygði sér úr
kjólnum, fór i sundbol og sýndi
honum fimleika. Hann sá hve
fimlega hún stóð á höndum og
gekk i brú, hve hátt hún gat
stokkið og bað um meira......
Þau fóru stundum i sjóinn þeg-
ar lygndi. Kuldinn beit, þau tóku
andköf, syntu dálitið og lágu lengi
á eftir I sólunni. Þegar þau voru
gegnheit orðin af brennandi
sólargeislum gengu þau undir
skuggann af trjánum i Vorontsof-
garðinum, þar sem loftið var fullt
af kvaki fugla og sögðu hvort öðru
frá bernsku, foreldrum, skóla, og
vinum. . .
Þau foru oft upp i fjöllin. Furu-
trén stóðu og vögguðu greinum
sinum letilega, sólheitir stofnar
þeirra önguðu af trjákvoðu. Það-
an sýndi hafið fjólublátt og risa
eins og veggur.
Þau lágu i hlíðinni sem var þak-
in heitum, þurrum furunálum og
horfðu á þeyttan skýjarjómann.
Þau stukku á fætur, hristu af sér
barrið og eltu hvort annað milli
trjánna með hrópum og hlátrum.
Þau renndu sér niður barrsléttar
brekkurnar eins og jökla, skriðu
yfir grjót, hlupu niður brattar
hliðarrtóku af sér ferð með þvi að
gripa i trjástofna og runna, og
þreytt, heit og hungruð flýttu þau
sér út á veg. Asfaltið leiddi þau
inn á þröngar götur Alúpku, þar
sem hvitkalkaðir húsveggir, rauð
tigulsteinaþök og jasminrunnar
studdu hvert annað.
Allt i einu var þessi hálfi mán-
uður liðinn, sem þau höfðu tint
saman með þrem löggiltum gift-
ingardögum, þrem sunnudögum
og tiu dögum sem þau höfðu
fengið i ieyfi, hann frá vinnu, hún
i háskólanum.
Siðan eru liðin fimm ár.
Til hvers er það, að ég geng hér
hugsi? Það er framorðið! Ég
hleyp niður færibandið, rekst á
fólk með fullar töskui/en get ekki
stöðvað mig.
Ég kom ekki alltof seint, en öll
gengu þau um þrjú með brauð-
bita. Dima var sakbitinn á svip,
ég sagði eitthvað en fór svo fram i
eldhús. Tiu minútum siðar stóð
maturinn á borðinu — glæsileg
eggjakaka. Ég hrópaði: Nú borð-
um við, flýtið ykkur!
Börnin komu hlaupandi. Kotja
settist á sinn stað, greip gaffal,
leit á mig og sagði:
— Pabbi komdu og sjáðu.
Mamma er strákur!
Díma kom fram i eldhús og
brosti: Þú ert ennþá ung stúlka.
Meðan við borðuðum horfði hann
oft á mig og las ekki eins og hann
er vanur. Hann hjálpaði mér við
að þvo upp og bónaði gólfið al-
einn.
— Olga, þú ert alveg eins og
fyrir fimm árum!
Þetta kvöld gleymdum við að
stilla vekjaraklukkuna.
(Framhai'd næsta sunnudag)
Fimmtugur
Framhald af bls. 4.
spyrja Hemingway allra umbeð-
inna spurninga. Meðal þeirra var
ein svohljóðandi: Er umsækjandi
a) læs, b) skrifandi? Hemingway
brá hart við og fór að telja upp
þau ritverk, sem hann hafði sent
frá sér, en skráningarstarfsmað-
urinn greip fram i fyrir honum
með næstu spurningu, um leið og
hann merkti með krossum i tvo
reiti: a) læs, b) skrifandi.
Um leið og ég þakka fyrir að
vera uppi á dögum Sigurðar Blön-
dals, læt ég i ljós, að ég er sáttur,
ef mér hefur tekist að varpa ljósi
á hann fyrir eftirkomendurna
eins og fyrrnefndur skrifstofu-
maður skráði kafla i sögu
Hemingways.
Við á Hólum sendum Guðrúnu
og börnunum bestu hamingjuósk-
ir með afmælisbarnið.
Matthias Eggertsson
Júdas
Framhald af bls. 3.
frumsömdu lögin það að verk-
um að mjög skemmtilegra er að
hlusta á hljómsveitina nú.
Það vakti nokkra athygli Klá-
súlna hve fáir voru mættir á
staðinn, alls um 100 til 200 hræð-
ur. Hér ræður eflaust mestu lé-
leg auglýsing hljómleikanna
(bara i Mogganum!) og ný-
haldnir hljómleikar i Tónabæ,
hvar fjórar hljómsveitir sem
nær eingöngu spila frumsamið
efni, leiddu saman hesta sina.
Ef kofinn hefði verið fullur af
fólki, hefði ugglaust náðst betri
stemning og hljómleikarnir orð-
ið betri. Hvað um það, Klásúlur
skemmtu sér sæmilega og
þakka aðstandendum fyrir
þeirra framlag með von um að
framhald verði á.
Gunnar fœr
aðstoð í
ráðuneytinu
Samkv. lögum nr. 73 1969
um Stjórnarráð íslands er
ráðherra heimiltað kveðja sér
til aðstoðar mann utan ráðu-
neytis.
Iðnaðarráðherra, dr. Gunn-
ar Thoroddsen, hefur ákveðið
að ráða Þorvarð Alfonsson,
hagfræðing, aðstoðarmann
sinn I iðnaðarráðuneytinu.
Þorvarður er fæddur árið
1931 I Hnifsdal. Lauk prófi i
þjóðhagsfræðifrá háskólanum
i Kiel i Þýskalandi á árinu
1959. Starfaði að námi loknu I
hagfræðideild Seðlabanka ís-
lands, þar til á árinu 1962. Var
þá ráðinn framkvæmdastjóri
Félags islenskra iðnrekenda
og gegndi þvi starfi til ársins
1970, er hann var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Iðnþróunar-
sjóðs. Hefur hann nú fengið
leyfi frá þvi starfi um óákveð-
inn tima.