Þjóðviljinn - 30.01.1975, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 30.01.1975, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 30. janúar 1975. Lyfjafræðingur eða aðstoðarlyfjafræðingur óskast til að starfa fyrir lyfjaverðlags- nefnd og lyfjaeftirlit rikisins. Umsóknir sendist fyrir 25. febrúar 1975 til ráðuneytisins, sem veitir frekari upplýs- ingar. HEILBRIGÐIS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ 28. janúar 1975. TILKYNNING frá Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins Kaupum tómar flöskur merktar ÁTVR i glerið. Verð: heilflöskur og hálfflöskur kr. 20.00 pr. stk. Ennfremur glös undan bök- unardropum framleiddum af ÁTVR. Verð kr. 5.00 pr. stk. Móttaka Skúlagötu 82, mánudaga til föstudaga frá kl. 9-12 og 13-18. Laugardaga frá kl. 9-12. Ennfremur i útsölum vorum úti á landi. ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERSLUN RÍKISINS Kópavogur Tómstundaráð tilkynnir NÁMSKEIÐ i GAGNFRÆÐASKÓLUM Senn hef jast eftirtalin námskeið: Ijósmyndun, radíóvinna, skák, leðurvinna og mótorvinna (bílvélar). Kennt er eitt kvöld í viku og stend- ur hvert námskeið í 8 vikur. Þátttökugjald er kr. 500.- Sjá nánari auglýsingar á gagnfræða- skólunum. HÆFILEIKAKEPPNI Keppni þessi fer f ram í mars þriðja árið í röð í bíósal félagsheimilisins. Rétt til þátttöku hafa þeir unglingar, sem vilja koma fram með ýmis konar lista og skemmtiefni, t.d. söng, dans, upplestur, tónlist, leikþátt, svo eitthvað sé nefnt. Þrenn verðlaun verða veitt, sem öll eru hin veglegustu. Þátttökutilkynningar ber- ist fyrir 20. febrúar. SKOTLANDSFERÐ Um miðjan júlí nk. fer 14 manna hópur ung- linga úr Kópavogi ásamt 2 fararstjórum í tveggja vikna kynnisferð til Skotlands. Ung- lingar á aldrinum 15—18 ára eru gjaldgengir í ferð þessa, gegn ákveðnum skilyrðum. Þeir, sem áhuga kynnu að hafa, láti skrá sig fyrir 20. febrúar. SKIÐAFERÐIR Tómstundaráð og skíðadeild Breiðabliks, standa fyrir skíðaferðum í Bláfjöll eða Hveradali á laugardögum og sunnudögum, og er öllum heimil þátttaka. Skíðakennari verður á staðnum. Lagt er af stað frá Kársnesskóla með viðkomu við Víghólaskóla og Verslunina Vörðufell. Brottfarartími frá Kársnesskóla er kl. 13.30 á laugardögum og kl. 11 á sunnudags- morgnum. Fargjald er kr. 300.-, en börn 12 ára og yngri greiða kr. 225.-. Allar nánari upplýs- ingar um áðurnefnda þætti gefur íþrótta- og æskulýðsf ulltrúi í síma 41570 og 41866. Skrán- ing fer fram í sama síma. TÓMSTUNDARÁÐ KÓPAVOGS. qóf laupnum Með þessum hœtti bar banaslysin að árið 974 1 skýrslu frá Slysavarnafélagi Islands sáum viö þessar töflur yfir það með hverjum hætti banaslys bar að höndum á is- lensku fólki árin 1974 og 1973. Sjóslys og drukknanir 1974 — 1973 Meb skipum, sem fórust 7 16 Falliö útbyrðis 7 3 t höfnum hérlendis við land 5 8 1 höfnum erlendis 1 2 támogvötnum 7 6 t sundlaug 0 1 1 brunni 1 0 28 36 Umferðarslys: 1974 — 1973 Ekið á vegfarandur 6 10 Við árekstur bifreiða 4 5 Við bifreiðaveltu 3 -6 Varð fyrir bifreið ábifhjóli 2 1 Dráttarvéla- og vinnuvélaslys 2 1 Á reiöh jóli f. bifreið 1 1 Umferðarslys erlendis 1 2 Við útafakstur 1 0 20 27 Flugslys 4 9 Sveitar- stjórnarmál Sveitarstjórnarmál, nýút- komið tölublaö, er helgað 10. landsþingi Sambands islenskra sveitarfélaga, sem haldið var i septembermánuði, sagt er frá störfum þingsins og birt skýrsla um starfsemi sambandsins sið- astliðin fjögur ár, sem lögð var fram á þinginu. Birt eru minn- ingarorð um Jón Ben Asmunds- son, forseta bæjarstjórnar á tsafiröi, sem kosinn hafði verið i stjórn sambandsins á lands- þinginu, og loks eru i þessu tölu- blaði kynntir nokkrir nýráðnir bæjar- og sveitarstjórar. Þorstlát ertu þjóðin min Rannsóknarlögreglan virðist nú vera búin að finna viðhlitandi skýringu á spirasmyglinu. Smyglararnir hafa útdeilt til vina og kunningja 3.300 litrum af spira, gróft reiknað 15-16 þús- und flöskum af áfengi, á stutt- um tima. Þorstlát ertu þjóðin min, sagði kallinn. Laupurinn óskar rannsóknarlögreglunni til hamingju með niðurstöðuna. Nú vitum við að enginn smygl- hringur eða dreifingaraðili hér heima var fyrir hendi. Sérlokar Iðnó, þeir Sérleyfur og Hektor, hefðu varla leyst þetta dularfulla smyglmál bet- ur. Salon Gahlin — Jæja, nú hækkar brennivinið liklega aftur, enn einu sinni. — O, það skal nú niður samt sem áður. Uppbót — Upphefð — Sárabót! Gunnar Thoroddsen gegnir störfum forsætisráðherra, með- an Geir verður i för sinni I Vesturheimi. Meðal annars stýrir Gunnar ríkisst jórnarfundum. Haukur Helgason, ritstjórnar- fulltrúi G.Th. á VIsi, 23. janúar '75. □(SSdffiKSQflt? au Gœúð ykkar á fasteignatölunnl Utsvarsafslátturinn óbreyttur Þegar menn eru sem óðast að telja fram til skatts reka margir sig á það að þeir eru ekki vissir um töluna, sem skrifa ber undir töluliðnum „I. 3 Fasteignir” þar sem skrá ber eigin ibúð. Þess vegna vill Þjóðviljinn koma þvi á framfæri að þarna á að skrifa sömu tölu og siðustu ár, þe. skv. þvi fasteignamati, sem tók gildi 1971, 31. desember. 1 töluliðnum III. 3. „reiknuð leiga af eigin hús- næði, sem eigandi notar sjálfur” skal reikna 4% af fasteignamats- veröinu og undir liðnum V.l.b. „fyrning og viðhald” skal reikna 2,5, 2,8 eða 4,0 af fasteignamats- verðinu, eftir þvi hvernig húsið er byggt, úr timbri, steinsteypu eða hlaðið steinhús. Það sem hefur einkum valdið ruglingi er það að grunnur fast- eignagjaldsins hefur hækkað um 100% frá fasteignamatinu, en sá grunnur kemur hvergi við sögu á framtalsskýrslunum. 1 annan stað er vert að taka fram að ekki hafa neinar ráðstaf- anir verið gerðar i þvi skyni að hækka frádrátt þann sem menn fá af útsvarinu. Hefur sú tala verið óbreytt i 2 ár og hún hækkar ekki samkvæmt skattvisitölu eins og tekjuskattsfrádrættirnir og tekju- skattsafslættir. HORN í SÍÐU Skilningur er vakinn Las ég grein eftir sjötugan ný- liða i blaðamannastétt, Odd A. Sigurjónsson, fyrrverandi skólastjóra i Kópavogi og Nes- kaupstað. Birtist hún i Alþýðu- blaðinu fimmtudag 22. janúar, og fjallar um tvo pistla, sem birtust i Þjóðviljanum á þriðju- daginn i þessari viku. Annar pistillinn var eftir mig, hinn eft- ir liðsmann okkar utan blaðs. Tókum við tvær ólikar hliðar á sama máli til umfjöllunar. Skrif nýliðans, Odds, skýra margt. Þar á meðal hingað til litt skiljanleg uppátæki i lffs- hlaupi hans og embættis- mennsku, þar sem skrif hans eru rangtúlkun á pistlunum tveimur, sem áður getur og hugmyndir höfunda þeirra gerðar aðrar en skrifaðar voru. Þetta eru ómerkileg skrif. En þau eru þakkarverð, þvi þau lýsa innræti þeirrar mann- gerðar, sem nokkru ræöur i Al- þýðuflokknum. — úþ Enn um kana Vesturbæingur hringdi og sagð- ist vera ánægður með athuga- semd, sem birtist á dögunum frá kópavogsbúa um kanaútvarp i leigubilum, strætisvögnum og búðum. Sagðist hann fyllilega taka und- ir meö kópavogsbúanum, og vildi bæta þvi við, að þó bílstjórarnir kynnu að njóta tónlistarinnar sem slikrar, þá virkaði hún einungis sem hávaði fyrir farþegana, sem aftar væru i bilunum en bilstjór- amir, en það væru þeir allir. Þá bendir vesturbæingur á, að hann sneiði hjá þeim verslunum, sem hafa kanaútvarp i gangi, og sagðist vita til að þannig væri um marga. Geta verslunarrekendur tekið þetta til athugunar, vilji þeir halda viðskiptum. — úþ Skákþing Hafnar- fjarðar Skákþing Hafnarfjarðar hefst nk. sunnudag kl. 8. Teflt verður á sunnudögum og föstudögum en biðskákir annan hvern miðviku- dag. Skákþingið fer fram i Sjálf- stæðishúsinu við Strandgötu. LOXEMBURG 28/1 — Kolafram- leiðsla Efnahagsbandalags Evrópu dróst saman um tiu af hundraði árið sem leið. Sam- kvæmt frétt frá hagskýrslustofn- un bandalagsins varð fram- leiðslutapið mest vegna verkfalls kolanámumanna i Bretlandi, en það orsakaði að sögn sextán mil- jón tonna framleiðslutap. Þar að auki lagðist kolanám al- gerlega niður i Hollandi á árinu. Tuttugu og þremur kolanámum var lokað i bandalagslöndunum á árinu og þýddi það ellefu miljón smálesta framleiðslutap. Munaði þar mest um lokun fjögurra kola- náma i Vestur-Þýskalandi, en af- leiðingar þess urðu að fram- leiðslan dróst saman um sex mil- jónir tonna. Kolanámumönnum fækkaði úr 362.000 i 341.000 i bandalagslöndunum á árinu 1974. Reuter

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.