Þjóðviljinn - 30.01.1975, Side 5
Fimmtudagur 30. janiíar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Hagsmuna- og öryggismál aldraðra og öryrkja:
Okeypis sími fyrir
tekjulægstu þegnana
Rauntekjur aldraðs fólks
og öryrkja hafa lækkað
mjög á undanförnum mán-
uðum vegna mikilla verð-
hækkana sem ekki hafa
verið bættar nema að
óverulegu leyti. M.a. hafa
afnotagjöld fyrir stma
hækkað mjög stórlega.
Hætta er á að afleiðingin
verði sú að aldrað fólk og
öryrkjar með lágar tekjur
verði að segja upp simum
sínum og bjóða heim vax-
andi einmanaleik og
öryggisskorti. Til þess að
koma í veg fyrir að sú
verði raunin f lytur Magnús
Kjartansson frumvarp um
að gefa þeim kost á
ókeypis síma sem njóta
tekjutryggingar á lífeyri.
Magnús leggur til að lög nr. 30
frá 1941 um fjarskipti breytist
þannig að aftan við 12. grein bæt-
ist: 1 reglugerð má ákveða að
þeir sem hljóta uppbót á elli- og
örorkulifeyri samkvæmt 19. grein
laga um almannatryggingar frá
1971 verði undanþegnir afnota-
gjöldum fyrir sima.
1 greinargerð með frumvarpinu
segir:
begar ný útvarpslög voru sam-
þykkt 1971 hlutaðist Alþingi til um
þá breytingu á frumvarpinu að
upp var tekin heimild til þess að
þeir, sem hljóta uppbót á elli- og
örorkulifeyri samkvæmt al-
mannatryggingalögum, væru
undanþegnir afnotagjöldum.
Þessi heimild hefur að sjálfsögðu
veriðhagnýtt, en þó að næsta tak-
mörkuðu leyti. Munu undanþágur
frá afnotagjöldum útvarps vera
bundnar við þá eina sem njóta
uppbótar á elli- og örorkulifeyri
eins og hún var skilgreind i lögum
1963. Þeirri skilgreiningu hefur
siðar verið gerbreytt með ákvæð-
um um tekjutryggingu, og er þess
að vænta að menntamálaráð-
herra breyti reglunum um undan-
þágur frá afnotagjöldum útvarps
i samræmi við almanna
tryggingalög eins og þau eru nú.
Tilgangur Alþingis með þessari
breytingu á lögunum um útvarp
var að gera öldruðu fólki og
öryrkjum með afar lágar tekjur
kost á að njóta útvarpssendinga
sér til fróðleiks og dægra-
styttingar. Hitt er ekki siður
nauðsynlegt, að aldrað fólk og
öryrkjar, sem eins er ástatt um,
eigi þess kost að hafa sima. Á
undanförnum árum hefur það
færst mjög i vöxt að aldrað fólk
búi eitt á heimilum sinum, oft
fjarri ættingjum sinum og vinum.
Það er brýnt fyrir þessa þjóð-
félagsþegna og getur stundum
verið lifsnauðsyn að hafa sima á
heimilum sinum. Eina fyrir-
Magnús Kjartansson.
greiðslan, sem Landssiminn veit-
ir á þessu sviði, mun vera sú að
öryrkjabandalagið hefur fengið
að úthluta 50 simum til öryrkja
sem búa einir og verða af heilsu-
farsástæðum að eiga þess kost að
nota sima tafarlaust.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
undanþágan verði i heimildar-
formi og framkvæmdin ákveðin
með reglugerð. Með samþykkt á
slikri heimild væri Alþingi að
sjálfsögðu að lýsa vilja sinum og
hver ráðherra mundi telja sér
skylt að hlita honum. Hins vegar
þurfa reglugerðarákvæðin að
tryggja að undanþágan verði ekki
notuð af öðrum en þeim sem
henni er ætlað að þjóna.
Um sjónvarp á Reyðarfirði
Rey ðarfj arðarstöðin
bilaði nú i desember
V. r
Rœtt viðAstu Jónsdóttur, húsmóður á Reyðarfirði
Fáskrúðsfjörður
Fáskrúðsfirðingar
Neita að greiða afnota
gjöld af sjónvarpinu
Eins og kunnugt er af fréttum
hafa aliír sjónvarpseigendur á
Reyðarfirði neitað að greiöa af-
notagjald sjónvarps á næsta
gjalddaga I mótmælaskyni viö
óhæf sjónvarpsskilyrði, raunar
allt frá upphafi, en meira en mán-
aöarskeið sást sjónvarp vart á
staðnum.
Forgöngumaður þessarar und-
irskriftasöfnunar er Ásta Jóns-
dóttir, húsmóðir á Reyðarfirði, en
hún er nú i hreppsnefnd Reyðar-
fjarðarhrepps, þar sem Helgi
Seljan er á Alþingi.
Við höfðum tal af Astu og báð-
um hana að segja frá ástæðum
þessara mótmæla.
Hvað olli þvi, að Reyðfirðingar
tóku sig saman um það, að greiða
ekki afnotagjald sjónvarps?
Aðalforsendan fyrir þvi að
Reyðfirðingar neita að greiða
næsta afnotagjald er fyrst og
fremst sú, að ástandið i sjón-
varpsmálum okkar er fyrir neðan
allar hellur. Við erum þvi algjör-
lega búin að missa þolinmæðina
og ég álit, að ekki sé ósanngjarnt
að við neitum þessu. Við höfum
alltaf greitt okkar fulla afnota-
gjald þrátt fyrir það, að mikill
fjöldi sjónvarpsdaga hefur fallið
niður á ári hverju, oft svo tugum
skiptir. Nú um miðjan jánúar
höfðum við aðeins séð sjónvarp 4-
6 daga frá þvi um eða fyrir miðj-
an desember.
Við getum ekki séð, að neitt hafi
verið gert til úrbóta a.m.k. ekki
fyrir Reyðarfjarðarstöðina.
Hvernig er með Reyðarf jarðar-
stöðina? Hver rekur hana og
hvernig er ástand hennar?
Hún var upphaflega áhuga-
mannastöð, en reist i fullu sam-
ráði við sjónvarpið og það lagði til
allt efni i hana, en öll vinna við
hana var unnin af sjálfboðaliðum
á staðnum. Okkur var reyndar
sagt, að við værum á áætlun hjá
sjónvarpinu 1971 og þá myndi það
yfirtaka stöðina. Það hefur enn
ekki gerst.
Um ástand hennar er það að
segja, aðhúsið, sem stöðin er i, er
ekki traustara en það, að engu
munaði, að það fyki ekki út i veð-
ur og vind á dögunum, en frá þvi
gætu vegagerðarmenn á staðnum
sagtbetur. Svo er nauðsynlegt að
leggja þangað nýja rafmagns-
linu, rafmagn að henni er flutt
með simalinu. Svo held ég, að
lágmarkskrafa hljóti að vera, að
nauðsynlegustu varahlutir séu til
á staðnum.
Hvað telja Reyðfirðingar við-
unandi úrlausn, til þess að þeir
endurskoði núverandi afstöðu
sina?
Ég veit ekki hvort Reyðfirðing-
ar endurskoða nokkuð afstöðu
sina viðvikjandi afnotagjaldinu.
Þetta skjal, sem sent var sjón-
varpinu, segir það lika skýrt og
skorinort.
Ég þykist vita, að allir Reyð-
firðingar, sem skrifuðu undir
þennan mótmælalista standi við
þaö.
Auðvitað er þetta gert aðallega
i þeim tilgangi að fá einhverjar
úrbætur, en ég tel ekki til of
mikils mælst, að við fáum ein-
hverjar ivilnanir’ með afnota-
gjaldið, svo mikið erum við búin
að missa af dagskrá sjónvarpsins
frá þvi fyrsta.
Hvað viltu segja um viðtalið
við Harald Sigurðsson verkfræð-
ing á dögunum?
Ég vil nú segja það um þetta, að
ég tel Erling Garðar hafa svarað
vel fyrir okkur Austfirðinga og vil
ég þakka honum fyrir það. Þessir
gaukar hjá Landssimanum höfðu
gott af þvi.
En I þessu viðtali var nær ein-
göngu rætt um bilanir á Gagn-
heiði. Ég vildi hér koma þvi að, að
Reyðarfjarðarstöðin bilaði
snemma i desember og ekkert
sást hjá okkur á Reyðarfirði lengi
eftir að Gagnheiðarstöðin komst i
lag eftir áramót.
Það er t.d. gott að geta komið
þvi á framfæri, að Reyðfirðingar
sáu sáralitið af þvi, sem endur-
tekið var úr jóladagskrá sjón-
varpsins. Við erum orðin sannar-
lega leið á þvi hér fyrir austan að
sitja alltaf á hakanum i öllu og við
viljum minna á það, að'við erum
lika til.
Á Fáskrúðsfirði hefur gengið
undirskriftalisti þess efnis að
undirskrifendur neiti að greiða
afnotagjald af sjónvarpi siðari
hluta ársins 1974, og að sögn
Marlu Kristjánsdóttur mun mjög
almenn þátttaka hafa verið I
undirskriftunum. 142 eigendur
sjónvarpstækja skrifuðu á list-
ann.
Maria sagði að sjónvarpið hefði
ekki sést i að minnsta kosti 20
daga i röð siðast i desember og
fyrst i janúar. Þá sagði hún að
Gagnheiðastöðin færi út ef eitt-
hvað væri að veðri, svo heita
mætti að sjónvarpsleysi væri við-
loðandi þar eystra.
—úþ
Reyðarfjöröur.
Auglýsingasíminn er
17500 _________
voavium
1ÚTBOÐ
Tilboð óskast i gatnagerð og lagnir ásamt
liitaveitulögnum i Seljahverfi 7. áfanga
(Breiðholt II)
Otboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri,
Frikirkjuvegi 3, gegn 15.000.- skilatrygg-
ingu.
Útboðin verða opnuð á sama stað, þriðju-
daginn 18. febrúar 1975, kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fn‘kirkjuv*gi 3 — Sími 25800
Faðir okkar og tengdafaðir
Niels S.R. Jónsson
Seyðisfirði
andaðist föstudaginn 24. janúar
Bragi Nielsson, Sigriður Arnadóttir
Sigrún Nielsdóttir, Jón Guðjónsson
Rós Nielsdóttir, Hörður Jónsson
lljálmar Jóhann Nielsson, Anna Þorvarðardóttir