Þjóðviljinn - 09.03.1975, Page 6

Þjóðviljinn - 09.03.1975, Page 6
6 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 9. mars 1975 KJARTAN ÓLAFSSON: Lífskjör verkafólks og viðskiptakjör þjóöarinnar KAUPMÁTTUR VERKAMANNA TAFLA Kaupm. miÖaÖ viö vísit.framf.kostn. Kaupm.miöaÖ viÖ vísit.v.og bión. .tímak. í dagv meÖaltk. án hd. tímak. í dagv. meÖaltk. án hd. 1. 2. 3. 4. 1963 74,8 78,5 79,7 83,7 1964 79,7 82,6 84,8 87,9 1965 88,4 91,9 93,8 97,5 1966 96,0 98,8 100,0 102,9 1967 98,5 100,0 102,6 104,2 1968 '90,3 91,7 93,9 95,3 1969 86,3 85,4 88,0 87,1 1970 93,1 92,7 93,9 93,6 1971 1. ársfj. 99,3 96,9 99,6 97,2 2. " 98,3 100,8 98,5 101,0 3. » 100,1 101,1 100,0 101,0 4. 102,3 101,2 101,9 100,8 Arsmeöaltal 100,0 100,0 100,0 100,0 1972 1. ársfj. 113,2 113,1 109,2 109,1 2. " 113,3 118,2 109,7 114,4 3. " 120,0 120,4 116,1 116,5 4. " 122,9 124,2 118,0 119,3 Arsmeöaltal 117,4 119,0 113,3 114,8 1973 1. ársfj. 117,3 117,5 111,5 111,7 2. " 119,7 125,5 112,3 117,7 3. " 120,8 125,0 113,8 117,7 4. " 120,5 125,4 114,5 119,1 Arsmeöaltal 119,6 123,4 113,0 116,6 1974 1. ársfj. 130,4 132,2 123,0 124,8 2. 134,4 141,7 127,4 134,3 3. " 127,3 130,3 122,4 125,3 begar þessi orð eru skrifuð um miðja viku, er enn ekki séð hver verða viðbrögð rikisstjórnarinnar við niðurstöðum kjaramálaráð- stefnu Alþýðusambandsins. Það var samdóma álit þeirra fjölmörgu fulltrúa verkalýðs- félaganna viðs vegar að af landinu sem sátu ráðstefnu Al- þýðusambandsins nú i vikunni, að óhjákvæmilegt væri að stjórnir félaganna öfluðu sér nú þegar verkfallsheimilda, svo að takast megi að sameina alla verkalýðs- hreyfinguna til allsherjarátaks i þvi skyni að rétta hlut láglauna- stéttanna. Vist er um það, að hvorki forystumenn verkalýðsfélag- anna, né verkafólkið almennt hafa hug á að efna til verkfalla, svo fremi að rikisstjórnin loki ekki öllum öðrum leiðum til að bæta á ný þá gifurlegu kjara- skerðingu hjá lágtekjufólki, sem stjórnvöld hafa knúið fram með valdboði á seinustu mánuðum. En til þessa dags hefur rikis- stjórn Geirs Hallgrimssonar neitað gjörsamlega öllu öðru en að halda sitt strik og gera varan- lega þá stórkostlegu tilfærslu fjármuna frá verkafólki til fjárplógsmanna, sem hún hefur sett sér að höfuðmarkmiði. Þær hundsbætur, sem fram hafa verið boðnar til þessa og eru innan við 4000,- krónur á mánuði, og ekkert á yfirvinnu, eru svo hraksmánar- legar að þær tekur vart að nefna. Kaupránið nemur a.m.k. 30-40% 1 ályktun ráðstefnu Alþýðu- sambandsins segir orðrétt: „Skerðing kaupmáttar, ef ekki er að gert, yrði 1. mai n.k. 30-40% og þyrfti kaupgjald þá að hækka um 50-60% til þess að náð yrði þeim kaupmætti, sem samið var um i febrúar 1974.” Þegar verkalýðsfélögin halda þvi fram með óvévengjanlegum rökum, að kaup láglaunafólks þyrfti að hækka um full 50% til að ná þeim kaupmætti, sem samið var um i fyrra, þá býður rikis- stjórnin, hvorki 30% né 20% hækkun, heldur upphæð sem samsvarar 6-9% i bætur. Allt hitt skal standa eftir sem varanlegt rán. Rikisstjórn afætustéttanna, — ráðherrar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks setja frelsi fjármagnsins ofar frelsi fólksins undan fátæktarfjötrum og hóta verkalýðnum atvinnuleysi og enn frekari kjaraskerðingu, ef menn hreyfi litla fingur til að rfsa gegn svo taumlausu ranglæti. Þetta heitir að sýna sitt rétta andlit. Það er rikisstjórnin sem með verkum sinum stefnir sjáandi eða blindandi að þvi að neyða verka- fólkið á Islandi út i harðvituga varnarbaráttu, út i verkfallsátök til að tryggja almenningi laun, sem einfaldlega hrökkvi fyrir brýnustu nauðþurftum. Hennar er ábyrgðin, ef hún hopar ekki frá fyrri óbilgirni áður en á hólminn kemur. 1 Kjararannsóknanefnd eiga meðal annars sæti einn af al- þingismönnum Sjálfstæðisflokks- ins (Guðmundur H. Garðarsson) og einnig framkvæmdástjóri Vinnuveitendasambands tslands ásamt fulltrúum verkalýðs- hreyfingarinnar og fleiri aðilum. 1 fréttabréfi þessarar Kjararann- sóknanefndar er jafnan margvis- legan fróðleik að finna um þróun lifskjara verkafólks. t janúarheftinu, sem út kom fyrir rúmum mánuði eru með al annars birtar töflur yfir þróun raungildis, þ.e. kaupmáttar dag- vinnutimakaups verkamanna og iðnaðarmanna frá árinu 1963 og fram yfir mitt ár 1974. Þar kemur fram að sé niiðað við framfærsiu- visitölu hafði kaupmáttur dag- vinnutímakaups verkamanna á árunum 1966-1971 hækkað úr 96 stigum i 100, það er um kringum 4% á fimm árum, eða innan við 1% á ári. Þetta voru viðreisnar- árin sælu, þegar Sjálfstæðis- flokkurinn var við v-öld og atti Gylfa Þ. Gislasyni á foraðið. Samkvæmt sömu töflu Kjara- rannsóknarnefndar hækkaði hins vegar raungildi eða kaupmáttur dagvinnutimakaups verkamanna á valdatíma vinstri stjórnarinn- ar, þ.e. frá miðju ári 1971 — miðs árs 1974 úr 100,1 stigi i 134,4 stig eða um full 34% á þremur árum. Hér er reginmunur á, eins og tölur Kjararannsóknanefndar sýna. 5-10 ár aftur á bak í ályktun ráðstefnu Alþýöu- sambandsins nú i vikunni er bent á, að ef ekki verður að gert megi fastlega gera ráð fyrir að þann 1. mai n.k. (fyrirsjáanlegar verð- hækkanir teknar með! verði skerðing kaupmáttarins frá 1. mars 1974 komin upp i 30-40% á rúmu ári. Sé þetta borið saman við töflu kjararannsóknanefndar kemur i ljós, að þar með verður kaupmátturinn hjá verkamanni, sem nýtur hinna svokölluðu jafn- launabóta kominn fimm ár aftur i timann þ.e. til ársins 1970 og er þá aðeins miðað við 30% skerðingu frá 2. ársfjófrðungi 1974, eða úr 134,4 stigum þá samkvæmt töflu Kjararannsóknanefndar niður i 94.1 stig þann 1 mai n.k. Sam- kvæmt töflu Kjararannsókna- nefndar var kaupmáttur dag- vinnutimakaups verkamanna 93.1 stig (miðað við 100 1971) árið 1970 og hafði þá lækkað úr 98,5 stigum árið 1967. Þarna munar þvi aðeins einu stigi nú þann 1. maí i ár til að standa i sömu spor- um og 1970. Allur ávinningur frá tið vinstri stjórnarinnar hvað launakjör verkafóiksins varðar þurrkaður út og meira en það á aðeins hálfu ári með valdboði Geirs Hall- grimssonar og Ólafs Jóhannes- sonar. Sé tekið dæmi af iðnaðarmönn- um, sem ekki njóta hundsbóta rikisstjórnarinnar og gerður sams konar samanburður á annars vegar töflu Kjararann- sóknanefndar og hins vegar rök- studdu mati siðustu ráðstefnu Al- þýðusambandsins á kjararýrnun- inni, — þá kemur i ljós að kaup- máttur launanna hjá slikum aðil- um hefur ekki aðeins færst fimm ár aftur i timann heldur tiu ár, til ársins 1965. 1 báðum tilvikum er miðað við hækkun fram- færsluvisitölu, en sem kunnugt er hafa brýnustu nauðþurftir svo sem matvæli hækkað mun meira en hækkun hennar nemur. Sá samanburður, sem hér hefur verið geröur á þróun launakjara verkafólks á þremur timabilum (5 síðustu viðreisnarárin — 3 ár vinstri stjórnarinnar — og loks stjórnartið Geirs Hallgr.), sá samanburður hann 'segir okkur óneitanlega býsna mikið um það, hvilika reginþýðingu það hefur fyrir verkafólkið hvaða stjórn- málaöfl fara með rikisstjórnar- vald i landinu. • Úu þessum samanburði má reyndar lika lesa þá staðreynd, að i þessum efnum skiptir svo sem engu máli, hvort Fram- sóknarflokkurinn á aðild að rikis- stjórn eða ekki (sama gildir um dr. Gylfa og pótintáta hans), en það skiptir öllu máli, hvort það er Alþýðubandalagiö eða Sjálf- stæðisflokkurinn sem fara með vald í stjórnarráöinu.og þá hvort Framsókn (og Alþýðuflokkur- inn) eru i samvinnu við islenska sósialista eða við braskaravaldið, sem hefur Sjálfstæðisflokkinn að sverði og skildi sinna auðstéttarhagsmuna. 3000 krónur í stað 300 Nú er það svo, að furðulega margir liggja flatir fyrir þeim áróðri Sjálfstæðisflokksins, sem Framsókn tekur nú undir, að þær breytingar i lifskjaraþróun hjá almenningi sem verða á hverjum tima ýmist jákvæðar eða neikvæðar, — þær eigi ekki fyrst og fremst rót sina að rekja til þess, hver sé faglegur og póli- tiskur styrkur verkalýðshreyfing- arinnar eða hverjir fari með stjórmálavöld i landinu, — heldur fylgi kjörin hjá almenningi þróun þjóðartekna eða viðskipta- kjara með allt að þvi sjálfvirkum hætti. Að sjálfsögðu er slikur boð- skapur viðs fjarri raunveru- leikanum, enda þótt þróun þjóðartekna og viðskiptakjara hafi vissulega veruleg áhrif á umgjörð stéttabaráttunnar á hverjum tima. Hvað er til dæmis að segja um þá kenningu talsmanna rikis- stjórnarinnar, að hin hrikalega kjaraskerðing, sem orðin er hjá almenningi sé svosem bara eðli- leg afleiðing af versnandi viðskiptakjörum og minnkandi þjóðartekjum? Samkvæmt rökstunddum niðurstöðum ráðstefnu Al- þýöusambandsins er bein kjara- skerðing hjá verkafólki a.m.k. 30- 40% þrátt fyrir hundsbætur rikis- stjórnarinnar, sem nú eru greidd- ar á lægstu iaun. Samkvæmt nýrri skýrslu frá Þjóðhagsstofn- un var lækkun þjóðartekna á siðasta ári hins vegar rétt og slétt 3%, og spádómar gera ráð fyrir álika hnignun i ár, sem er þó að sjálfsögðu allsendis óvist hvort verður nokkur. Þannig tekur rikisstjórnin jafnan 3000 krónur af hverjum láglaunamanni i staðinn fyrir hverjar 300 krónur. Hér er óliku saman að jafna, og það eru gjörsamlega blindir menn i hópi verkafólks, sem ekki láta sér skiljast, að rikisstjórnin notfærir smávægilega minnkun heildararðsins af sameiginlegu búi þjóðarinnar sem skálkaskjól til að skerða lifskjör almennings langtum harðvitugar en minnkun VÍSITALA VIÐSKIPTAKJARA 2. tafla. Verðvísitölur innflutnings og útflutnings m. v. fast gengi1) Innflutningur Breytingar Útflutningur Breytingar Viðskiptakjör Breytingar 1962=100 milli ára % 1962=100 milli ára % 1962=100 milli á 19g3 103 +3,0 103 +3,0 100 0,0 1964 103 +5,8 116 + 11,7 106 +6,0 1965 110 + 0,9 130 + 13,0 118 +11,3 1966 112 +1,8 132 + 1,5 118 0,0 1967 110 ■5-1,8 116 -4-12,1 105 •4-11,0 1968 104 -í-6,5 106 -4-8,6 102 -4-2,9 1969 103 -5* 1,0 111 +4,7 108 +5,9 1970 107 +3,9 133 + 19,8 124 + 14,8 1971 114 + 6,5 161 +21,1 141 +13,7 1972 122 + 7,0 168 +4,3 138 - -4-2,1 1973 136 +11,6 220 +31,0 162 +17,4 1974 184 +35,3 267 +21,4 145 -4-10,5 1) Þ. e. breytingar reiknaðar í erlendri mjnt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.