Þjóðviljinn - 11.03.1975, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 11.03.1975, Qupperneq 16
DJOÐVUJÍNN Þriðjudagur 11. marz. 1975. Reyndu að ná ísleifi á flot Trygg>ngafdlag isleifs VE, Tryggingarmiðstööin, hefur nú látið reyna að ná Isleifi á flot af strandstaönum viö Ingóflshöfða, en árangurslaust tii þessa. 1 fyrstunni var ætlunin að Goð- inn einn sæi um útdráttinn, en hann reyndist ekki hafa kraft til þess. t gær fengu menn til liðs varð- skip og átti að reyna að ná skipinu á flot á háflæði um fimmleytið i gær. Ekki tókst það þó, þar sem algjör ládeyða var á þessum slóð- um þvi háþrýstisvæði er kyrr- stætt þar. Var ætlunin að reyna næst á flóðinu nú i morgun. —úþ Renault í basli Paris 10/2 reuter — Stærstu bilaverksmiðjur F’rakklands, Renault, styttu i dag vinnutima sex þáund starfsmanna um helming. Var þessi ákvörðun svar við verkfallsaðgerðum sem starfsmennirnir hafa haldið uppi að undanförnu. Verkamennirnir krefjast al- mennrar launahækkunar um 250 franka á mánuði. Einnig krefjast þeir þess að endur- ráðnir verði 17 manns, sem reknir voru á þeim forsendum að þeir „röskuðu vinnu- friðnum”. Alls vinna 25 þúsund af 92 þúsund verkamönnum hjá Renault stuttan vinnudag og tvær verksmiðjur voru alveg lokaðar i dag. Almenningur og stjórnvöld fylgjast alltaf náið með gangi Renault vegna þess að „þegar „Renault fær kvef hnerrar allt Frakkland” eins og sagt er. Sumir telja að þessar verkfailsaðgerðir séu fyrsti visirinn að vorsókn þeirri sem verkafýðssamtökin hafa boðað. Newry 10/3reuter — Tólf fangar struku i dag úr dómshúsi i Newry rétt áður en leiða átti þá fyrir rétt ákærða um tiiraun til að flyja úr fangelsi. Tólfmenn- ingarnir eru allir taldir vera féiagar i IRA. Póst- menn fylktu liði Póstmenn gengu fylktu liði til fundar BSRB í Háskólabíói i gær. Þessa mynd tók Ari Kárason er póstmenn gengu yfir Austurvöll. Fremstur er formaður Póstmanna- félagsins, Reynir Ármannsson. Phnom Penh: rignir yfír Eldflaugum flugvöllmn Phnom Penh, Saigon 10/3 ntb reuter — Hersveitir, Rauðra khmera i Kambodju létu eld- flaugunum rigna yfir Pochentong flugvöllinn utan við Phnom Penh. Hæfðu þeir eina af birgðaflutn- ingavélum Randarikjanna en þó tókst að halda fluginu áfram. Skýrt var frá þvi i dag að til- raunir stjórnarhersins til að hrekja þjóðfrelsishermenn af svæðinu norðan við flugvöllinn hefði engan árangur borið. Var ma. kennt um skorti á skotfærum og matvælum. Breska sendiráðið hefur hvatt alla breska borgara til að flýja höfuðborgina og á morgun er á- ætlað að senda stóra flutningavél til borgarinnar til að flytja brott breta, ástrali, ný-sjálendinga og fleiri. Einnig geysuðu bardagar á nokkrum stöðum niður eftir Mekongánni og norðan við borg- ina kvaðst stjórnarherinn hafa hrundið sókn þjóðfrelsishersins. Sú sókn var þó aðeins talin fyrir- boði stórsóknar úr norðri en þjóð- frelsisherinn er i aðeins 10 km fjarlægð frá miðborginni til norð- urs. Frá Suður-Vietnam greina fréttir frá hörðum bardögum i bænum Ban Me Thuot á háslétt- unni i miðhluta landsins. Er bar- ist á götum bæjarins og segir i •fréttum að hanh hafi mikla hern- aðarlega þýðingu ekki aðeins hvað snertir jafnvægið milli striðsaðila heldur fyrir allan striðsrekstur Saigonhersins. bjóðfrelsisherinn lagði mikla á- herslu á að ná flugvelli borgar- innar og vegum að henni á sitt vald og hermdu fréttir að honum vegnaði betur i bardögunum. ALLT AÐ 67% HÆKKUN á landbúnaðarvörum á rúmL 6 mánaða valdatíma ríkisstjórnarinnar Rikisstjórnin hefur hækkað verðlag á landbúnaðarvörum um allt að 67,28% á vaidaferli slnum, sem þó hefur ekki varað lengur en rúma 6 mánuði! bó að hækkun sú a landbúnaðarvörum, sem kom til framkvæmda I gær, sé hvorki mikil að krónutölu né heldur f prósentum talin, þá hefur rikisstjórnin þó verið mjög iöin við að hækka vörurnar. A eftirfarandi töflu má sjá þær verðbreytingar, sem orðið hafa á valdatima rikisstjórnar þessarar: Agúst ’74 10.3. ’75 Hækkun i kr. Hækkun I %. Súpukjöt 207 kr. kg. 322 kr. kg. 115 55,56% Heil læri 363 kr. kg. 146 67,28% Hryggir 225 kr.kg. 373 kr. kg. 148 65,78% Kódelettur 257 kr. kg. 411 kr. kg. 154 59,92% Og svona mætti lengi telja. úþ Búnaðarþing um málmblendisverksmiðju: Fyrst ítarlegar rannsóknir á mengun - svo starfsleyfi Alþýðubandalagið Opið hús Opið hús að Grettisgötu 3 kl. 21 — klukkan niu — i kvöld. Að þessu sinni mun valinn hópur fólks flytja nokkur atriöi úr verkum bórbergs bórðarsonar, en bórbergur var einmitt fæddur 12. mars. Alþýðubandalagið Kópavogi briðji fræðslu- og umræðufundur Alþýöubandalagsins i Kópavogi verður I kvöld 11. mars i binghól og hefst kl. 20.30. Rætt verður um stöðu kónunnar i Islensku þjóðfélagi og er málshefjandi Helga Sigur- jónsdóttir. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um jafnréttismál. —Stjórnin. Stofnfundur 3. deildar Alþýðubandalagsins i Lang- holts- og Lauganeshverfi Fundarstaöur: Kaffiterian I Glæsibæ. Fundartimi: I kvöld kl. 20.30. Dagskrá: 1. kynning nýrrar reglugerðar fyrir félagsdeildir ABR. (bröstur Ölafsson).. 2. Inntaka nýrra félaga. 3. Kosning stjórnar. 4. Lúðvik Jósepsson reifar efnahagsmálin. — Félagar, fjölmennið og takið með ykkur nýja félaga. Búnaðarþing hefur gert eftir- farandi áiyktun vegna fyrirhug- aðrar málmbiendivcrksmiöju á Grundartanga i Hvalfirði: „Búnaðarþing beinir þvi til heilbrigðiseftirlits rikisins, að áður en til þess komi, að það veiti starfsleyfi fyrirhugaðri málmblendiverksmiðju á Grundartanga i Hvalfirði hafi það aflað sér allra fáanlegra upplýsinga um hugsanleg mengunaráhrif frá slikri verk- smiðju, bæði á landi, i lofti og sjó. Telur þingið sjálfsagt að stuðst sé i þessu efni við reynslu annarra þar á meðal norður- landabúa, sem reka sams konar verksmiðjur og hér um ræðir. í þvi skyni verði islenskir sér- fræðingar á sviði liffræði og verkfræði þegar sendir utan til þess að kynna sér af eigin raun alit það er lýtur að umhverfis- áhrifum slikrar starfsemi. bá tekur þingið undir þá ein- dregnu ósk náttúruverndarráös Búnaðarsambands Borgar- fjarðar og fleiri aðila til iönaðarráðuneytisins að gerð verði ýtarleg liffræðileg könnun i Hvalfirði og umhverfi fyrir- hugaðs verksmiðjustaðar áður en nokkrar framkvæmdir hefjast þar. Á grundvelli þeirrar könnunar verði leitast við að sjá fyrir hugsanleg áhrif verksmiðjureksturs á lifriki láðs og lagar enda er nauðsyn- legt að fyrir liggi liffræöileg úttekt á svæðinu til saman- burðar við siðari athuganir. Verði niðurstaðan af áður- nefndum athugunum sú að hætta af mengunaráhrifum frá málmblendiverksmiðju sé engin fyrir heilsu manna, né fyrir gróður og dýralif umhverfisins, og heilbrigðiseft- irlit rikisins veiti þess vegna starfsleyfi til þviliks reksturs og hann verði hafinn, gerir Búnaðarþing eindregna og ákveðna kröfu um að rækt verði stöðugt og fullkomið eftirlit með heilsufari starfsfólks og hugsanlegum breytingum á lif- riki i nágrenni verksmiðjunnar. Framhald á bls. 12. BLAÐ- BJJRÐUR Þjóðviljann vantar blað- bera í eftirtalin hverfi: Kleppsveg Skipasund Múlahverfi Vinsamlegast hafið samband við afgreiðsl- una. ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.