Þjóðviljinn - 22.03.1975, Síða 8

Þjóðviljinn - 22.03.1975, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. marz 1975. Laugardagur 22. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Mikill afli Góðar sölur Hvers vegna á þá að skerða kjör launafólks? Þorskafli íslendinga varö rúmlega 11 þúsund tonnum meiri fyrstu tvo mánuði þessa árs, en fyrstu tvo mánuði liðins árs. Rækjuaflinn í ár er og nokkru meiri fyrstu tvo mánuðina en var í fyrra. Loðnuvertíðinni er ekki lokið þegar þetta er skrif- að, og er hún þó orðin. þriðja besta loðnuvertíð, hvað aflamagn snertir, sem sögur fara af. Markaður fyrir frystan þorsk er stöðugur og held- ur líflegri nú en siöari hluta árs í fyrra. Saltfiskur er góð sölu- vara, og búið er að gera sölusamninga um mikið magn af honum á hag- stæðu verði. Skreiðarmarkaður, sem lokaður hefur verið að mestu leyti undanfarin ár, hef ur nú opnast að nýju, og Búiö er að gera marga góða sölusamninga á þorskfiski, bæði söltuðum og unnum I skreið. Freðfiskurinn er heldur ekki á svo lágu verði sem látið hefur verið f veðri vaka. 4 kr. minna fyrir blokk I sjónvarpsþætti á dögunum var haft eftir framkvæmda- stjóra Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna, að verðfall það sem talaö hefði verið um á fiskafurðum okkar á Banda- rikjamarkaði væri alls ekki slikt, sem látið hefur verið að liggja. Verðfallið hefur aðallega verið skýrt með ógnarlegu falli á þorskblokk, sem þó er ekki nema hluti af þeirri fisk- framleiðslu, sem við seljum i Bandarikjunum. Að visu fór verðið á biokkinni mjög hátt, reyndar óeðlilega hátt, fyrstu mánuði liðinsárs, en það verð sem nú er selt á, er langan veg frá þvi að vera lágt verð miðað við það, sem það hefur orðið lægst. Þannig var verðið á blokkinni 84 sent pundið i janúar ’74, eða 72,58 kr. islenskar, en er nú 58 sent pundið, samkvæmt upplýs- ingum Ólafs Jónssonar hjá Sjávarafurðardeild SIS, en það er jafnviröi 68,64 kr. islenskra. ólafur sagði að salan væri treg, en þó væri sifelld hreyfing á þessari vörutegund. Hærra verö fyrir þorskflök Eining sú, sem þorskflök eru seld i, lbs, fór i janúar i fyrra fyrir 92 sent, cða 79,49 krónur islenskar. Nú selst hver eining á 87 sent, eða 102,96 krónur. Það fist þvi rúmlega tuttugu og tveim 22 — krónum meira fyrir hvert Ibs. nú cn fyrstu mánuöina i fyrra. mjög gott verð fæst fyrir skreiðina. Rækjan selst vel: hægt er að selja eins mikið magn af frystri loðnu til Japans og við getum framleitt, og loðnumjölsverð á eftir að stórhækka ef að líkum læt- ur, því allt útlit er fyrir að ansjósuveiði perúmanna bregðist þetta árið, en veitt magn af ansjósu hefur oft- ast ráðið verðinu á mjöl- markaðnum. Þegar á allar þessar björtu hliðar er litið vakn- ar óumf lýjanlega sú spurning, hvers vegna þarf að stórskerða kjör launa- fólks? Svarið hlýtur að vera tengt þeirri staðreynd að núverandi ríkisstjórn er ekki i fyrirsvari fyrir al- þýðu fólks, heldur fyrir fá- mennan hóp gróðahyggju- manna. En litum nánar á afla- brögðin og söluhorfurnar. 100% hærra verð fyrir saltfiskinn Þá hefur og verið haft eftir einhverjum framkvæmdastjóra sölusamtaka, Tómasi Þorvalds- syni hjá SIF, að samið hafi verið um sölu á allt að 24 þúsund tonnum af saltfiski til Portúgal og Spánar, og er það meira magn en þangað var selt á sl. ári eftir sömu heimild. Enn er eftir að semja við Grikkland og Italiu um kaup á saltfiski, en þangað er ár- lega selt umtalsvert magn. Það verður þvi ekki annað sagt en söluhorfur á saltfiski séu góðar, og svo enn sé vitnað til sömu heimildar, Tómasar Þorvalds- sonar, þá lét hann þau orð falla. að „miðað við verð á siðasta ári eru þessir sölusamningar hag- stæðir”. Ekki fékkst Tómas til þess að gefa upp verð á hverju kg. af salt- fiski, og gaf I skyn að það væri mikið leyndarmál. Hins vegar er hægt að upplýsa það hér, að verð á saltfisktonni i janúar i fyrra var 122.688 krónur, en i febrúar i ár var það komið upp i 246.180 krónur, og varla hefur leyndarverðið, sem Tómas samdi um við portúgali og spán- verja verið lægra en það, sem gilti i febrúar. Grásleppuhrognin eru seld á rokverði, eða rúmlega 33 þús- und krónur tunnan með 105 kg. Verðið er miðaö við hrognin komin i erlenda höfn. Rokverð á grá- sleppu- hrognum Nú er grásleppuvertiðin hafin norðanlands og austan i það minnsta. Feiknalega gott verð er á hrognunum, enda mun láta nærri að islendingar séu einir um hrognamark- aðinn, og þvi hreinlega glap- ræði að sclja hrognin sem hrá- efni úr landi, en nægar vinnslustöðvar eru til i landinu að fuilvinna hrognin i neyt- endapakkningar. En hvað um það. Hrognin eru seld úr landinu, og sam- kvæmt upplýsingum ólafs Jónssonar hjá sjávarafurða- deild StS fást hvorki meira né minna en 225 dollarar fyrir tunnuna komna i erlenda höfn. LATA MUN NÆRRI AÐ ÞAÐ SAMSVARI 33,750 „KRÓNUM FYRIR ÞAU 105 KG SEM t TUNNUNNI ERU, en þar skakkar nokkrum krónum frá, þvi hér var reiknað með að hver doliari kostaði 150 krónur i staö 149,60 kr. Nær tólf þúsund tonnum meira af þorskfiski í ár Þorskaflinn i janúar og febrúar varð 52.731 lest i ár, en sömu mánuði i fyrra varð aflinn 41.625 lestir. Afiaaukningin er þvi vel á 12. þúsundasta tonnið. Bátaaflinn varð 700 lestum meiri fyrstu tvo mánuðina i ár en var i sömu tvo mánuði i fyrra. Hinir fordæmdu togarar vinstri stjórnarinnar, skuttogararnir, hafa þó gert mestan mun hér á, þvi togaraaflinn fyrstu tvo mánuðina i ár varð 11.100 tonnum meiri en sama tima i fyrra. Af rækju veiddust 370 lestum meira fyrstu tvo mánuði þessa árs, en fyrstu tvo mánuðina 1974. Ljóst er að loðnuaflinn verður litlu minni en i fyrra, en þá veidd- ust 460 þúsund tonn, en um siðustu helgi var heildaraflinn kominn i 406 þúsund tonn sam- kvæmttölum loðnunefndar. Þó að enn sé nokkuð eftir af loðnuver- tiðinni er hún þegar orðin sú þriðja besta i veiðisögunni. En hverjar eru þá söluhorf- Á hvaöa veröi er loðnu- mjölið selt? óvissan er mest I sölu loönuaf- urða. Þó liggur fyrir að japanir vilji kaupa af okkur allt það magn, sem við getum fryst af loðnunni, og allar likur benda til að heimsmarkaðsverð á loðnu- mjöli muni hækka á næstunni. Hitt er svo önnur saga og ósögð hvert hið raunverulega löðnu- mjölsverð er. Gætum selt allt sem hægt væri aö frysta „Japanir hafa sagt, að þeir myndu kaupa allt það magn af frystri loðnu, sem við gætum framleitt”, hafði Þjóðviljinn eftir Bjarna Magnússyni, fram- kvæmdastjóra útflutnings- miðstöðvarinnar fyrir skömmu. Þvi miður hefur frystingin ekki gengið nógu rösklega, en þetta svar gefur þó visbendingu um að tæpt er að trúa fullyröingum ioðnufrystenda og annarra, sem haldið hafa því fram, að næsta ógjörlegt væri að selja loðnu til Japans að þessu sinni. 23% hækkun á skreið Saltfiskurinn hefur hækkað meir en 100% milli ára 1974—'75, og nú hef- ur þegar verið samiö við portúgali og spánverja um að þeir kaupi af okkur 24 þúsund tonn af saltfiski. Nýverið hafði Þjóðviljinn eftir framkvæmdastjóra Samlags skreiðarframleiðenda, Braga Eirikssyni, að verð á hverju kilói af skreið, sem selt verður til Nigeriu, en þar eru nú aftur að opnast góðir og nærri óseðjandi markaðir, væri 360 kr. fyrir hvert eitt kiló af þorsk og keilu, 340 krónur fyrir kilóið af Pólarþorski, en ýsu- og ufsakiló er selt þangað fyrir 250 krónur. Er þetta 23% hækkun á skreiðarverðinu, þeas. þeim teg- undum, sem fyrst voru hér upp taldar, en það skiptir höfuð máli, þvi mestur hluti skreiðarinnar er þorskur. óvissast mun vera meö þaö/ á hvaöa verði loðnu- mjölið verður selt úr land- inu, og meira að segja á hvaða verði það hefur þegar verið selt. Oddviti loðnumjöls- seljenda, Sveinn Bene- diktsson, hefur þó ruðst fram á ritvöllinn og sagt að verðið væri einkar lágt, lægra en oftast áður. Það er vísbending um það að loðnuverðið sé næsta bæri- legt, eftir fyrri skrifum þessa oddvita og raunveru- leikanum. Það er lika verðið á loðnu- mjölinu, sem skiptir verulegu máli þegar reiknað er út hversu mikið eigi að skerða hlut launa- fólks i þjóðartekjunum. Þvi er það aldeilis óverjandi, að þær upplýsingar sem byggt er á séu fengnar með þvi einu, að ráðu- neytið, sem viðskiptamálum stýrir , skuli spyrja mjölselj- endur um það hvað þeir fái fyrir loðnumjölið i stað þess að gera könnun á þvi erlendis. Hér gætu verkalýðsforingjarnir gengið fram fyrir skjöldu og heimtað skýlaus svör um það hvert sé hið raunverulega loönuverð. En hvort sem það er rétt sem sjómenn segja, að verðið sé 7 dollarar á próteineininguna, eða það sem oddviti mjölseljenda segir, að það sé ekki nema 4,25 dollarar fyrir sömu einingu, þá er útlitið alls ekki eins slæmt og haldið hefur verið til þessa, þvi enn er eins dauði annars brauð. Nú hefur nefnilega frést að ansjósuveiði perúmanna kunni að bregðast þetta árið. Það hefur ráðið hvað mestu um heims- markaðsverð á mjöli hvernig Perúmönnum hefur gengið að veiða ansjósuna, og ef það gengur illa, þá hækkar mjölverð, og þar með loðnumjölsverð. Nú þarf þvi aðeins að hinkra við örskotsstund, og sjá hvernig gengur i Perú, en ekki selja i bráðræði. Og svo þarf að sjálfsögðu að fá upp hið rétta loðnuverð. 700.000 kr. fyrir tonnið af rækju „Við erum búnir að selja 55 tonn af lausfrystri rækju til Svi- þjóðar”, sagði framkvæmda- stjóri útflutningsfyrirtækisins UNEX i viðtali við Þjóðviljann nú ivikunni. Hvert tonn hefur UNEX selt fyrir 700 ÞÚSUND KRÓNUR. UNEX telur sig hafa markað fyrir 400 tonn af lausfrystri rækju I Svlþjóð, en sviar sjá um að dreifa rækjunni á markaði I Evrópu. Þá hefur fyrirtæki þetta aflað sér markaða fyrir töluvert magn af reyktum laxi. Framkvæmdastjórinn sagði að vissulega ættu þeir i samkeppni á rækjumarkaðinum aðallega við Alaskarækju, en hann taldi að gæði islensku rækjunnar væru mun meiri en þeirrar frá Alaska: það þyrfti ekki nema góða sölumennsku til að selja þá islensku. Og þar sem Unex er aðeins litið fyrirtæki i samanburði við ýmsa þá sem selja rækju úr landi, eins og til dæmis SIS, hlýtur það að vera nokkuð eðlileg ályktun, að ekki selji Sambandið á lægra verði en UNEX og enn siður minna magn. Svartsýni i sölu- málum á rækju er þvi aldeilis óþörf. Af hverju kjara- skeröingu? Eftir þennan lestur hljóta menn að spyrja hversvegna rikisstjórnin og atvinnurekendur vilja nú skerða kjör launafólks. Það sem rakið hefur verið hér á undan virðist alls ekki réttlæta bölsýni stjórnvalda á efnahagshorfurnar og þvi siður stórfellda kjaraskerðingu. —úþ. 100konur mótmæla Hundrað konur hafa fest nöfn sin á blað og sent alþingismönnum mótmæli sín við breytingum þeim sem gerðar hafa verið á fóstureyðingaf rumvarp- inu. Forsvarsmenn þessarar undirskriftasöf nunar héldu blaðamannafund á miðvikudag, og birti Þjóð- viljinn frásögn af þeim f undi í fyrradag, en hér fer á eftir listi með nöfnum kvennanna hundrað. Við undirritaðar mótmælum breytingum, sem fram hafa kom- ið við endurskoðun frumvarps til laga frá 1973 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlif og barn- eignir, og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Sérsaklcga lýsum við yfir andstöðu okkar gegn þvi vantrausti, sem konum er sýnt, með þvi að fella niður 9. grein frumvarpsins, þar sem kveðið er á um.'að fóstureyðing skuli heimiluð, ef kona æskir þess, sé aðgerðin framkvæmd fyrir lok 12. viku meðgöngu og engar læknisfræðilegar ástæður mæla gegn þvi. Við krefjumst þess, að sjálfsákvörðunarréttur kvenna verði virtur og skorum á hæstvirt Alþingi að taka upp og samþykkja óbreytt efni 9. grein- arinnar. Anna Kristjánsdóttir, menntaskólakennari, Asdis Skúladóttir, leikari, Ása Þ. Ottesen, félagsmála- fulltrúi, Asa Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarkona, Ásta Hallgrimsdóttir, læknaritari, Agla Marta Marteinsdóttir, húsmóðir, Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðingur, Anna Sigurðardóttir, c/o Kvennasögusafn Islands, Anna Skúladóttir, fóstra. Álfheiður ólafsdóttir, hjúkrunarkona. Ástriður Karlsdóttir Tynes, heilsuverndarhjúkrunarkona. Ásta Björt Thoroddsen, tannlæknir. Auður Þorbergsdóttir, borgardómari. Asdis Þórhallsdóttir, húsmóðir. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, verkakona. Björg Sveinbjörnsdóttir, aflesari. Bergþóra Gisladóttir, sérkennari. Björg Einarsdóttir, skrifstofumaður. Bergljót Halldórsdóttir, meinatæknir. Ellen Júliusdóttir, félagsráðgjafi. Eva J. Júliusdóttir, sálfræðingur. Edda Svavarsdóttir, bankamaður. Erna Þorleifsdóttir, læknaritari. Edda Völva Eiriksdóttir, hárgreiðslumaður. Elisabet Þorsteinsdóttir, meinatæknir. Eygló Halla Ingvarsdóttir, húsmóðir. Erna Ragnarsdóttir, innanhússarkitekt. Guðbjörg Þórðardóttir, félagsmálafulltrúi. Guðrún Svava Svavarsdóttir, myndlistarmaður. Guðriður Þ. Schröder, yfirhjúkrunarkona. Guðlaug Konráðsdóttir, meinatæknir. Guðrún Helgadóttir, deildarstjóri. Guðmunda Helgadóttir, formaður Sóknar. Guðrún Gisladóttir, bókasafnsfræðingur. Guðrún Jónsdóttir, félagsráðgjafi. Guðrún Kristinsdóttir, félagsráðgjafi. Guðrún Hallgrimsdóttir, verkfræðingur. Guðrún Erlendsdóttir, hrl. Guðný Danielsdóttir, læknir. Helga Jónsdóttir, leikari. Heba Júliusdóttir, þýðandi. Helga Eysteinsdóttir, húsmóðir. Hólmfriður Gunnarsdóttir, félagsmálafulltrúi Helga M. Nielsdóttir, ljósmóðir. Helga Hannesdóttir, læknir. Hlédis Guðmundsdóttir, læknir. Harpa Jósefsdóttir Amin, kennari. Halla Malmquist, sjúkraþjálfari. Hrefna Kristmannsdóttir, jarðfræðingur. Hallveig Einarsdóttir, afgreiðslustúlka. Helga Sigurjónsdóttir, kennari. Hildigunnur ólafsdóttir, afbrotafræðingur. Hjördis Hákonardóttir, dómarafulltrúi. Ingibjörg Einarsdóttir, bóksali. Ingibjörg P. Jónsdóttir, félagsmálafulltrúi. Ingibjörg Helgadóttir, hjúkrunarkona. Inga Birna Jónsdóttir kennari. Ingibjörg Guðmundsdóttir, sjúkraliði. Jóhanna Kristjánsdóttir, kennari Kristjana Jónsdóttir, lögfræðingur. Kristin Gunnarsdóttir, húsmóðir. Kolbrún Ágústsdóttir, heilsuverndarh júkrunarkona. Kristin Bjarnadóttir, meinatæknir. Lilja ólafsdóttir, fulltrúi. Margrét Guðnadóttir, prófessor. Margrét Sæmundsdóttir, hjúkrunarstjóri. Margrét Margeirsdóttir, félagsráðgjafi. Maria Þorsteinsdóttir, húsmóðir. Málhildur Angantýsdóttir, sjúkraliði. Nanna Jónasdóttir, deildarh júkrunarkona. Ólöf Stefánsdóttir, sjúkraþjálfari. Ragnheiður Torfadóttir, menntaskólakennari. Sigrún Júliusdóttir, félagsráðgjafi. Svava Stefánsdóttir, félagsráðgjafi. Sigurlaug Jóhannesdóttir, vefnaðarkennari. Soffia Jakobsdóttir, leikari. Sefania Mekkin Sigurðardóttir, læknaritari. Sunna Karlsdóttir, bókari. Silja Sjöfn Eiriksdóttir, húsmóðir, Steinunn H. Hafstað, háskólanemi. Sólveig ólafsdóttir, form K.R.F.I. Sigurlina Ásbergsdóttir, fréttamaður. Steinunn Jóhannesdóttir, leikari. Svala Thorlacius, fréttamaður. Sigriður Hjartar, lyfjafræðingur. Svandis Skúladóttir, fóstra. Sigrún Karlsdóttir, félagsráðgjafi. Steinunn Harðardóttir, kennari. Stella Stefánsdóttir. verkakona. Sigriður Kristinsdóttir, sjúkraliði. Sylvia Guðmundsdóttir, kennari. Soffia Sigurjónsdóttir, hjúkrunarkona. Unnur V. Ingólfsdóttir, félagsmálafulltrúi. Unnur Guttormsdóttir. siúkraþjálfari. Unnur Halldórs. Einkaritari. Valbort Bentsdóttir, skrifstofustjóri. Vilborg Harðardóttir, blaðamaður. Þórunn Pálsdóttir. forstöðukona. Þórunn Sigurðardóttir. leikkona. Þorgerður Benediktsdóttir. lögfræðingur. Þórdis H. Olafsdóttir, simavörður. Þorbjörg Guðmundsdóttir, skrifstofustúlka. Þórunn Klemenzdóttir, hagfræðingur. Þórunn Valdimarsdóttir. formaður Verkakvennafélagsins Framsóknar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.