Þjóðviljinn - 22.03.1975, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 22.03.1975, Blaðsíða 13
Laugardagur 22. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 anlegur viBsemjandi seldi hvorki hráefni til verksmiðjunnar né keypti framleiBslu hennar. Þetta var það pólitíska vega- nesti, sem ég gaf viBræðunefnd- inni um orkufrekan iBnað. Þvi hefur verið haldið fram, ekki sist i Morgunblaðinu, að hér hafi verið tekin upp gamla viðreisnarstefn- an. En að minu mati er hér um að ræða algerlega andstæða stefnu. Með viðreisnarstefnunni var ver- ið að setja islendinga á stig ný- lendu eða hálfnýlendu að þvi er varðar iðnþróun á þessu sviði. Okkar hlutskipti var það eitt að selja hráorku á sama hátt og ým- is önnur riki selja hráefni, en eins og menn vita, þá er iðnaði okkar tima þannig háttað, að arðurinn kemur fram i sambandi við full- vinnsluna en bæði orka og hráefni hafa verið verðlögð ákaflega lágt. Með þessum reglum, sem ég nefndi áðan, taldi ég mig vera að setja grundvallarreglur um is- lenska iðnþróun, um iðnþróun, sem islendingar sjálfir réðu yfir og gætu hagað i samræmi við hagsmuni sina og i samræmi við rétt sinn. Þetta eru reglur, sem allar nýfrjálsar þjóðir, sem hafa tekið upp iðnþróun i löndum sin- um, hafa beitt, ef þeim hefur ver- ið annt um efnahagslegt sjálf stæði sitt. Hættur sem ber að varast Að sjálfsögðu er samvinna eins og þarna var áformuð við erlend- an auðhring ákaflega mikið vandamál. Við vitum, að orku- frekur iðnaður i heiminum er annars vegar i höndum alþjóð- legra auðhringa eða hins vegar rikisfyrirtækja i sósialisku lönd- unum. Þessir aðilar einoka bæöi framleiðsluna og markaðinn, og takmark einokunarhringa er æv- inlega hámarksgróði en engin mannleg sjónarmið. Þess vegna er mikill vandi og mikil áhætta að semja við slika aðila. Ég skil tor- tryggni manna á þvi sviði mjög vel, enda á ég hana i mjög rikum mæli sjálfur. En ég er þeirrar skoðunar, að við komumst ekki hjá þvi að takast á við þennan vanda og reyna að leysa hann á þann hátt, að okkur sé tryggt há- marksöryggi og hámarkssjálf- stæði á sviði efnahagsmála, að við veröum að glima við vanda- málin, eins og heimurinn er, en ekki eins og við kunnum að óska, að hann væri. Þess vegna taldi ég og tel það enn grundvallaratriði, ef unnt væri að ná samstöðu um stefnumörkun af þessu tagi, ef hægt væri að tryggja samstöðu meirihluta Alþingis og meiri hluta þjóðarinnar um það að hér yrði aldrei hleypt inn erlendum fyrirtækjum framar, að islend- ingar tryggðu sér sivaxandi efna- hagslegt sjálfstæði i sambandi við slika iðnþróun. Ég ætla ekki að rekja störf nefndar um orkufrekan iðnað. Hún ræddi við ákaflega marga aöila og það, sem hún vann, var ævinlega könnunarstarf. Þess var vandlega gætt að binda hendur okkar ekki á neinu stigi málsins. Ég minntist áðan á mengun i þessu sambandi; hana hefur borið mjög á góma og ég vil gjarnan fara um það mál nokkrum orðum. Þar lét ég mér ekki nægja að setja nefndinni einhverjar al- mennar reglur, heldur fól ég sér- fróðum mönnum að semja sér- staka reglugerð um varnir gegn mengun af voldum eiturefna og hættulegra efna og var hún gefin út 15. júni 1972. Þar er heilbrigðis- eftirliti rikisins og heilbrigðis- ráðuneytinu falin óskoruð völd að þvi er varðar þetta atriði. Samkvæmt regiugeröinni á að meta þessi vandamál einvörð- ungu frá heilsuverndar-, hrein- lætis- og náttúruverndarsjónar- miöum, en hvorki frá sjónarmiö- um iðnþróunar, arðsemi eða öör- um hagfræðilegum eöa fjármála- legum viðhorfum. Ég hefði aldrei léð máls á þvi, að mengunarvarn- ir eða náttúruvernd yrðu eitt- hvert samningsatriöi við erient fyrirtæki. Þvi var viöræðunefnd um orkufrekan iðnað, sem skipuð var mönnum, sem sérfróðir voru um peningamál, að sjálfsögðu ekki falið að semja um eitt eða neitt annað en að tilkynna, að is- lenskar reglur yrðu algildar. Það er einhliða á valdi heilbrigöiseft- irlits rikisins að kveða á um þess- ar reglur i samræmi við þær for- sendur, sem ég minntist á áðan, og vissulega er heilbrigðiseftirlit- inu þar ákaflega mikill vandi á höndum. Okkur skortir að sjálf- sögðu reynslu á þessu sviði, okk- ur skortir nægan mannafla, þessi stofnun er ekki nægilega öflug, eins og hún er o.s.frv. Þess vegna hef ég komið inn á fjárlög i all- mörg ár sérstakri upphæð til ráð- stafana i sambandi við þessa reglugerð um iðjumengun og hún var þannig hugsuð, að heil- brigðiseftirlit rikisins gæti orðið sérúti um óháða erlenda sérfræð- inga sér til halds og trausts i sam- bandi við slik mál. Mengunarvandamál af þessu tagi er hægt að leysa. Þar er hins vegar um peninga að tefla, það er um að tefla þekkingu og það meg- inatriði, að heilbrigðis- og nátt- úruverndarsjónarmið verði rikj- andi, en ekki arðsemissjónarmið. Forsendur ger- breyttust 1973 Þegar ég setti viðræðunefnd um orkufrekan iðnað þær reglur, sem ég minntist áðan, töldu margir þeir, sem rætt höfðu við erlenda aðila, að þær væru fráleitar. Þær jafngiltu þvi, að slikir samningar væru útilokaðir með öllu, enda drógu ýmsir aðilar, sem hafið höfðu viðræður, sig i hlé, þegar þeirkynntustþessariafstöðu, þ. á m. bandaríski auðhringurinn Union Carbide, en hann taldi 51% eignaraðild af sinni hálfu algert skilyrði. Það var ekki fyrr en 1973 i ársbyrjun, sem Union Carbide tilkynnti, að fyrirtækið væri reiðubúið til að fallast á pólitisk skilyrði rikisstjórnarinnar. Siðan var unnið að samningsgerð á þessum forsendum og um haustið lágu fyrir drög, sem ég taldi full- nægja þessum pólitisku hug- myndum minum, á þeim forsend- um þó, sem ég gat um áðan, að við sætum uppi með verulegt orkumagn, sem ekki væri unnt að koma i verö án þess að til kæmi orkufrekur iðnaður. En þessar forsendur, sem allt starfið hafði byggst á, gerbreyttust einmitt haustið 1973. Þá snarhækkaði verð á oliu, ferfaldaðist eða fimmfaldaðist á skömmum tima og um leið gerbreyttust allar hug- myndir um það, hvenær húshit- unarmarkaðurinn kæmist I gagn- ið. Það varð ljóst, aö þaö var ekki aðeins þjóðhagslega hagkvæmt, heldur sparnaður fyrir einstakl- inga að taka sem fyrst upp rafhit- un i staö oliukyndingar. Ég fól þá þegar verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens i samvinnu við Orkustofnun, Framkvæmda- stofnun rikisins, Hitaveitu Reykjavikur og aðra opinbera að- ila að framkvæma könnun á þvi, hvernig unnt væri með sem skjót- ustum hætti að nýta innlenda orkugjafa i stað oliu til húshitun- ar og annarra þarfa. Jafnframt fór ég þess á leit við Seðlabank- ann, að hann hæfi gerð fjármögn- unaráætlunar I sama tilgangi. Daglegar þarfir gangi fyrir Fyrir svo sem ári lagoi ég svo fram hér á þingi framvindu- skýrslu um nýtingu innlendra orkugjafa i stað oliu frá verk- fræðiskrifstofu Sigurðar Thor- oddsens og frá Seðlabankanum. Ég mun ekki rekja efni þeirrar skýrslu hér i einstökum atriðum, eldri þingmenn þekkja hana og nýjum þingmönnum vil ég benda á að kynna sér hana. Hún var þingskjal 562 i Sameinuðu þingi i fyrra. Þar var rakið á ótviræðan hátt hversu stórlega hagkvæmt það væri, bæði fyrir einstaklinga og þjóðarheildina, að nýta inn- lenda orkugjafa og hversu mikið átak þyrfti til þess að fram- kvæma þau umskipti á skömmum tima. Það kom fram, að til þess að koma á rafhitun i stað oliu, þar sem hitaveitur væru ekki tiltæk- ar, þyrfti 800 gigawattstundir umfram það, sem nú er notað. öll framleiðsla Sigölduvirkjunar til almennra þarfa og til húshitunar nemur 700 gigawattstundum á ári. Hún nægir sem sé ekki til að fullnægja húshitunarmarkaðnum á Islandi. Þannig reyndust að fullu brostnar þær forsendur, sem upphaflega var miðað viö, að við hefðum verulegt magn af orku, sem við gætum ekki komið i verð um nokkurt árabil. Kaflar úr ræðu Magnúsar Kjartanssonar við fyrstu umræðu um málmblendi- verksmiðju í neðri deild alþingis Eg gerði rikisstjórninni grein fyrir þessum gerbreyttu viðhorf- um fyrir ári eða svo og benti á, að forsendur fyrir stofnun járn- blendiverksmiðju væru þær og þær einar, að þegar yrði ráðist I nýja virkjun vegna verksmiðj- unnar. Ég teldi, að almenni markaðurinn og húshitunar- markaðurinn ættu að hafa alger- an forgang og þar mætti ekki koma til neinna árekstra. Vinstri stjórnin reyndist sammála um það, að hraða bæri nýtingu inn- lendra orkugjafa og beita til þess öllum tiltækum ráðum og þar af leiðandi var mér falið að leggja fyrir siðasta þing ályktunartil- lögu þess efnis að ljúka hitaveitu- framkvæmdum öllum á árinu 1976 og tryggja öðrum rafhitun að fullu 1981. Ætíun min var sú, að áætlun ai þessu tagi lægi fyrir sem fullfrá- genginn kostur á þinginu nú. Menn gætu siðan borið saman á hlutlægan hátt, hvort þeir vildu heldur nýta orkuna til húshitunar og annarra þarfa eða til þess að reisa járnblendiverksmiðju — eða meta, hvort þjóðin hefði fjár- hagslegt bolmagn, mannafla og getu til þess að bæta nýrri virkjun við i kjölfar Sigölduvirkjunar og gera hvort tveggja i senn. Sjálfur komst ég að þeirri niðurstöðu, að við hefðum ekki bolmagn til þess að gera hvort tveggja i senn og þá yrði almenni markaðurinn að ganga fyrir. Þvi hefur verið haldið fram, að hér sé um að ræða stefnubreyt- ingu af minni hálfu, en sú er ekki raunin. Þetta er nákvæmlega sama stefnan og mótuð var 1971, þegar Sigölduvirkjun vár ákveðin og sú stefna mótuö að tengja saman orkuveitusvæði og full- nægja húshitunarmarkaði jafnört og hann opnaðist. Þaö eru að- stæðurnar, sem hafa breyst, en ekki skoðanir minar. Gerbreytt stefna íhaldsstjórnarinnar Ég hef hér vikið lauslega að gangi þessa máls þann tima, sem ég gegndi störfum iðnaðarráð- herra. Málið lá siðan niöri i kosn- ingabaráttunni i fyrra og i stjórn- armyndunarviðræðunum, en með myndun nýrrar rikisstj. urðu skjót umskipti. Gunnar Thorodd- sen lét það verða sitt fyrsta verk að stöðva öll störf að gerð áætlun- ar um nýtingu innlendra orku- gjafa. Þeir aðilar, sem ég nefndi áðan, hafa ekki verið látnir halda áfram störfum sinum og engin á- ætlun verður lögð fyrir þetta þing. Iðnaðarráðherra hefur tafið um hálft ár lagningu stofnlinu milli Suðurlands og Norðurlands, og þaö er nú ljóst, að sú lina getur ekki flutt fullt magn af raforku norður um leið og Sigalda kemur I gagnið. Ekkert er enn unnið aö undirbúningi stofnlinu frá Kröflu til Austurlands eða stofnlinu til Vestfjarða og allir, sem leita til ráðherra um fyrirgreiðslu i sam- bandi við nýtingu innlendra orku- gjafa, hvort sem um er að ræða hitaveitu eða raforku, kvarta undan hiki, óvissu og loðnum svörum. Ljóst er að iðnaðarráðherra og núverandi rikisstjórn hafa alger- lega falliö frá stefnu fyrri rikis- stjórnar um nýtingu innlendra orkugjafa i stað oliu. Þeir hafa á- kveðið að ráðstafa raforkunni frá Sigölduvirkjun til járnblendi- framleiðslu, en láta þarfir al- mennings i öllum landshlutum sitja á hakanum. Einnig þörf þjóðarheildarinnar á gjaldeyris- sparnaði og auknu sjálfstæði á sviði orkumála. Allt er þetta þeim mun fróðlegra sem frumvarpið gerir ráð fyrir þvi að verksmiðj- an taki ekki til starfa fyrr en hálfu öðru ári eftir að Sigölduvirkjun kemur i gagnið. Þannig stenst ekki einu sinni sú röksemd, að verksmiðjan eigi að brúa bilið, þegar stökk kemur i orkufram- leiðslu og erfiðleikar verða á markaði. Engar skyringar hafa heyrst frá rikisstjórn eða iðnað- arráðherra um það, hvernig eigi að brúa þetta bil, sem að mati rikisstj. verður hálft annað ár. Ég tal þetta alranga stefnu i orkumál um, hvort sem á hana er litið frá sjónarmiði efnahagsmála eða fé- lagsmála. Út af fyrir sig nægir þetta til þess, að ég er andvígur þessu frumvarpi og mun greiöa atkvæði gegn þvi. En fleira kem- ur vissulega til. 4.306.000 dollarar á silfurbakka Þau drög, sem unnin voru með- an ég gegndi störfum ráðherra eru nú gerbreytt, þar stendur ekki steinn yfir steini. Þetta staf- ar að verulegu leyti af óviðráðan- legum ytri breytingum, en einnig af breytingum, sem iðnaðarráð- herra hefur beitt sér fyrir og ég tel vera okkur mjög i óhag. Frá fyrri drögum hefur stofnkostn- aður verksmiðjunnar hækkað úr um 30 milj. dollara eða 2600 milj. kr. miðað við þáv. gengi i 68 milj. dollara eða 10800 milj. kr. miðað við núv. gengi. Stofnkostn aður hefur þannig meira en tvö- faldast i dollurum og fjórfaldast reiknað i islenskum krónum. Þvi þarf að sjálfsögðu að meta allar hugmyndir um fjárhagsgetu okk- ar á nýjan leik, einnig i saman- burði við fjármagnsþörf okkar á fleiri sviðum. A móti kemur svo hitt, að meðalarðsemi hefur sam- kv. skýrslum sérfræðinga rikis- stjórnarinnar nærri tvöfaldast, hækkað úr 10.3% i liðlega 20%, og er þá átt við arðsemi af fjárfest- ingu fyrir skatta. Fyrirtækið er sem sé orðið mjög arðbært, eins og nú horfir og það ætti að sjálf- sögðu að gera okkur auðveldara að afla fjármagns til þess. Viðbrögð Gunnars Thoroddsens við þessum breytingum hafa orð- ið þau, að hann hefur lagt að Union Carbide að auka eignar- hluta sinn i þessu arðbæra fyrir- tæki úr 35% eins og áður hafði verið fallist á, i 45%. Þetta jafn- gildir aukningu á hlutafé Union Carbide um 2,4 milj. kr. og iðn- aðarráðherra ber fram þá rök- semd, að fjármögnunarvandinn sé orðinn stærri og hann sé nú aö tryggja það, að hann leggist ekki á okkur islendinga á jafnþung- bæran hátt og ella hefði orðið. En iðnaðarráðherra féllst á fleiri breytingar. Tækniþekking, einkaleyfi og önnur slik þekking er innifalið i hlutafjárframlagi Union Carbide og var i fyrri drög- um verðlagt á 2.3 milj. dollara. Nú er þessi upphæð hækkuð með einu pennastriki i 3.2 milj. dollara án nokkurs rökstuðnings — um 900.000 dollara. En það eru fleiri breytingar, sem gerðar hafa verið. önnur breyting, sem iðnaðarráöherra hefur gert, er að hækka söluþókn- un úr 3%, eins og áður var gert ráð fyrir i 3.9% að meðaltali, og þessi hækkun er samþykkt, enda þótt framleiðsla verksmiðjunnar, kisiljárniö, hafi hækkað um 150% og þar með söluþóknunin i dollur- um. Þessi hækkun til Union Car- bide frá fyrri drögum nemur 783 þús. dollurum á ári. Tækniþjón- usta Union Carbide er 3% af sölu- verði og hefur hækkað frá fyrri drögum um 521 þús. dollara á ári. Árlegur arður Union Carbide vegna aukinnar arðsemi og auk- innareignaraðildar hefur hækkað frá fyrri drögum um hvorki meira né minna en 2 milj. 102 þús. dollara. Þessir fjórir þættir, sem ég hef nefnt, tækniþekking, söluþóknun, tækniþjónusta og arður, hafa þannig hækkað um 4 milj. 306 þús. dollara frá fyrri drögum, aðeins á fyrstu 12 mán- uðum, sem verksmiðjan starfar. Union Carbide er þvi ekki að leggja fram 2.4 milj. dollara i við- bót sem hlutafé. Við erum að leggja fram þá upphæð á silfur- bakka handa Union Carbide, með verulegri uppbót þó — vegna þess eins, hvernig iðnaðarráöherra hefurhaldið á máiinu. Mér er það gersamlega óskiljanlegt, eins og Jóni Sólnes, hvernig þarna hefur verið að verki staðið. Og ég vil minna á það, að þrir þessara þátta, þ.e.a.s söluþóknunin, tækniþjónustan og arðurinn eru árlegir þættir sem halda i sifellu áfram að hlaðast upp. Orkuverðið gat orðið tvöfalt hærra Hin upphaflegu drög um járn- blendiverksmiðju voru m.a. gagnrýnd á þeirri forsendu, að raforkuverðið væri of lágt, og mátti færa viss rök að þvi. 1 þvi sambandi ber þó að minnast þess, að um var að ræða orku, sem ekki var fyrirsjáanlegur markaður fyrir um nokkurra ára skeið, að um væri að ræða að meiri hluta til ótryggða orku, sem ekki átti að koma frá Sigölduvirkjun nema að litlum hluta, heldur er nú þegar i kerfi Landsvirkjunar án þess að unnt sé að koma henni i verð — og að um var að ræða orkusölu til is- lensks fyrirtækis, sem væri að miklum meiri hluta til i leigu is- lenska rikisins. Það var hins veg- ar ein meginafleiðing oliukrepp- unnar haustið 1973, að orkuverð snarhækkaði um ailan heim. Að sjálfsögðu bar að leggja meginá- herslu á það atriði við endurskoð- un hinna upphaflegu draga. Iðn- aðarráðherra hefur að visu samið um það, að raforkuverð hækki. Ef tekið er meöalverð fyrir for- gangsorku og afgangsorku á 8 ár- um, þá er hækkunin úr 4,2 mills á kw-stund i 5,7 mills eða um rúm- lega 35%. Orkuverðið hækkar sem sé miklu minna en allir aðrir kostnaðarliðir hinnar fyrirhug- uðu verksmiðju. Stofnkostnaður- inn hefur, eins og ég rakti áðan, hækkað um meira en helming, byggingarkostnaðurinn um 150%. Þarna virtist þó iðnaðarráðherra hafa kjörið tækifæri til þess að nalda fast á islenskum hagsmun um. I fyrri drögum hafði Union Carbide fallist á arðsemi, sem næmi 10.3%, eins og áður var rakið. Ef Gunnar Thorodd- sen hefði staðið á þessari arð- semi, 10.3%, sem búið var að samþykkja, en krafist þess, að orkuverð hækkaði i samræmi við breyttar aðstæður, hefði verið hægt að krefjast 10.4 mills fyrir kw-stund og halda samt óbreyttri arðsemi sem hlut- falli af fjárfestingu. Þeim mun meiri ástæða var til að halda fast á þessu máli, sem eignarhlutur Union Carbide i verksmiðjunni hefur verið aukinn um nærri þriðjung og þar með arður fyrir- tækisins af orkunni. En iðnaðar- ráðherra hefur lotið ákaflega lágt með þvi að sætta sig við 5.7 mills miðað við þessar gerbreyttu að- stæður, þegar 10.4 mills áttu að vera innan seilingar á rökréttan hátt miðað við þau fyrri drög um arðsemi, sem Union Carbide hafði fallist á. Fyrri samningsdrög og þau, sem nú liggja fyrir okkur, eru ekki sambærileg vegna þess, hversu mjög ytri aðstæður hafa breyst á þessum tima. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að iðnað- arráðherra hafi haldið ákaflega illa á okkar hlut miðað viö þessar breyttu aðstæður og siður en svo náð þeim árangri, sem unnt hefði verið að ná miðað við grundvall- aratriði, sem áður lágu fyrir. Ég er andvigur frumvarpinu einnig af þessari ástæðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.