Þjóðviljinn - 03.04.1975, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN F'immtudagur 3. aprll 1975.
Aðalfundur
Alþýðu-
bankans h.f.
verður laugardaginn 12. april 1975 i Súlna-
sal Hótel Sögu i Reykjavik og hefst kl.
14.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykkt-
um bankans.
Aðgöngumiðar að aðalfundinum ásamt
atkvæðaseðlum, verða afhentir hluthöfum
og umboðsmönnum þeirra i bankanum að
Laugavegi 31, dagana 10. og 11. april n.k.
Reykjavik 1. april 1975.
Bankaráð Alþýðubankans h.f.
Hermann Guðmundsson
form.
Björn Þórhallsson,
ritari.
V eðurathugunarmenn
á Hveravöllum
Veðurstofa íslands óskar að ráða tvo ein-
staklinga, hjón eða einhleypinga, til
veðurathugana á Hveravöllum á Kili.
Starfsmennirnir verða ráðnir til árs-
dvalar, sem væntanlega hefst fyrri hluta
ágústmánaðar 1975.
Umsækjendur þurfa aö vera heilsuhraustir, og æskilegt
er, aö a.m.k. annar þeirra kunni nokkur skil á meöferö
dieselvéla. Tekiö skal fram, aö starfiö krefst góörar at-
hyglisgáfu, nákvæmni og samviskusemi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aidur, heilsufar,
menntun, fyrri störf og meömælum, ef fyrir hendi eru,
skulu hafa borist Veöurstofunni fyrir 20. april n.k.
Allar nánari upplýsingar gefur deildarstjóri áhalda-
deildar Veðurstofunnar Bústaöavegi 9, Reykjavlk.
Félag
járniðnaðarmanna
F élagsf undur
verður haldinn laugardaginn 5. april 1975
kl. 13.30 e.h. i Domus Medica v/Egilsgötu.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Samningarnir
3. Önnur mál
Mætið vel og stundvislega
Stjórn Félags járniðnaðarmanna
Y erkamannafélagið
Dagsbrún
F élagsf undur
verður i dag, fimmtudaginn 3.
april, kl. 9 e.h. i Lindarbæ.
Dagskrá:
Samningarnir.
Stjórnin
DB Finn H.332, breski togarinn
sem strandaði fimm milur austan
viö Hjörleifshöfða þann 21. mars
s.l. kom til Reykjavikur á mánu-
daginn. Varöskipiö Ægir náöi tog-
aranum af strandstaö, en áöur
haföi hiö nýja varðskip, Týr,
reynt aö ná honum út.
Skipsbrotsmennirnir, 21 aö
tölu, voru allir komnir til slns
heima fyrir páska. Þaö er Boston
Deepsea Fisheries, sem gerir
Finn út, og hefur hann einu sinni
áöur strandaö hér viö land. Aö
lokinni botnsskoöun verður
togarinn dreginn til Bretlands.
Siglufjörður:
Góð rauðmagaveiði
Rauömagaveiöi hefur veriö
þokkaleg á Siglufiröi. Þar
nyrðra fengu menn fyrst
rauðmaga i net þann 20. janúar I
vetur, og siöan hefur hann sótt
talsvert I net.
Mest af rauðmaganum er selt
á Siglufirði, ma. i reyk, og mun
fyrirtæki Egils Stefánssonar
kaupa mikið af rauðmaga, sem
siðan er frystur og reyktur eftir
þvi sem þarf.
Aöeins tveir trillukarlar á
Siglufiði eru einvörðungu með
rauðmaganet, en margir aðrir
eru með grásleppunet, en fá
aðallega rauðmaga i þau.
Eitthvað af þeim norðlenska
rauðmaga hefur ratað hingað
suður, en nú er rauðmagatörn
trilluka’rlanna hér að hefjast, og
þá er hætt við að taki fyrir þann
„útflutning” norðlendinganna.
—GG
Fjölskylda Vldalin, tris (Marla Axfjörö), Eirikur (Kristján Ells Jónas-
son), Rakel (Árnina Dúadóttir).
Leikfélag Húsavikur til Danmerkur
Til Danmerkur
með „Eg vil
auðga mitt land”
Nýir
stjórar
hjá
pósti og
síma
Samgönguráöherra hefur nú
skipaö menn I tvær nýjar stöður
hjá pósti og sima. Það eru stöður
umdæmisstjóra pósts og síma I
umdæmi 1 og simstjórans I
Reykjavlk.
Aðalsteinn Norberg var
skipaður umdæmisstjóri, en hann
var áður ritsimastjóri. Undir
umdæmisstjórann heyrir nú öll
starfsemi pósts-, sima- og radió-
stöðva stofnunarinnar á Suður- og
Vesturlandi, þar með talin póst-
stofan i Reykjavik og simstöðin I
Reykjavik.
Hafsteinn Þorsteinsson var
skipaður simstjóri i Reykjavik,
en hann var áður skrifstofustjóri
Bæjarsimans. Staða simstjórans
kemur i stað stöðu bæjarsima-
stjóra og ritsimastjóra i Reykja-
vik, þannig að rekstur bæjarsim-
ans, ritsimans og talsimastöðvar-
innar I Reykjavik veröur nú undir
stjórn simstjórans.
Þessar stöðuveitingar koma i
kjölfar setningu nýju reglu-
gerðarinnar um breytingu á
stjórn og skipulagi pósts og sima'
frá þvi um s.l. áramót. Eins og
menn rekur minni til, mótmælti
Póstmannafélagið þessum
breytingum kröftuglega, taldi
m.a. að með þessum breytingum,
væri hlutur póstsins gróflega fyr-
ir borð borinn, og ekkert tillit
hefði verið tekið til óska og til-
lagna póstmanna við breyting-
una. —GG
Leikfélag Húsavlkur hefur
fengið styrk úr Norræna menn-
ingarsjóönum til þess aö fara meö
islenska leikritiö, Ég vil auöga
mitt land, til Danmerkur, þar
sem verkiö verður sýnt á samnor-
rænni leikhúsviku áhugamanna.
Leikritið, Ég vil auöga mitt
land, er eftir Þórð Breiðfjörð og
var sýnt við mikla aðsókn I Þjóð-
leikhúsinu s.l. ár eða alls 34 sinn-
um. Leikstjóri var þá Brynja
Benediktsdóttir og tónlist við
verkið gerði Atli Heimir Sveins-
son tónskáld.
Leikstjóri á Húsavik er Sig-
uröur Hallmarsson, en tékkneska
tónskáldiö Ladislvav Vojta samdi
nýja tónlist við söngva verksins,
Vojta hefur verið aðaldriffjöður
tónlistarlifs þeirra húsvikinga
siðustu árin. Með aðalhlutverkin
fara: Kristján Elis Jónasson,
Árnina Dúadóttir, Maria Axfjörð,
Þorkell Björnsson, Einar Njáls-
son, Sigurjón Pálsson og Ingi-
mundur Jónsson. Formaður
Leikfélagsins er Grimur Leifs-
son.