Þjóðviljinn - 03.04.1975, Side 3
Fimmtudagur 3. april 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Niður með
mötuneytin!
— segja veitinga- og gistihúsaeigendur,
sem telja sig í ójafnri samkeppni
við mötuneyti ríkisstofnana
Veitinga- og gistihúsaeigendur
hafa sent frá sér ályktun almenns
fundar félags þeirra, þar sem
mötuneytarekstur rikisins er
harölega gagnrýndur. Segja veit-
inga- og gistihúsaeigendur, aö
mötuneyti hins opinbera séu öll-
um opin, þau reki frjálsa þjónustu
og veiti veitingahúsum þannig
óviöunandi samkeppni. Mötu-
neytin eru undanþegin söluskatti,
og starfsmenn stofnana, þar sem
mötuneyti eru, fá keyptan mat á
þvi veröi sem hráefniö til hans
kostar. t ályktun Sambands veit-
inga- og gistihúsaeigenda segir:
Almennur fundur Sambands
veitinga- og gistihúsaeigenda,
haldinn i Reykjavik, 21 mars 1975,
lýsir megnri óánægju sinni yfir
hinum ört vaxandi mötuneyta-
rekstri rikis og bæjarfélaga.
Bendir fundurinn á, að mötu-
neyti hins opinbera eru með þvi
fyrirkomulagi sem er á rekstri
þeirra i dag, bein ógnun við tilvist
almennra veitingastaöa i landinu.
Þannig tiökast það i vaxandi
mæli, aö óviðkomandi fólk, fær
afgreiðslu i téðum mötuneytum,
eins og um almennan veitinga-
stað sé að ræða. Starfsfólk mötu-
neytanna hefir leyfi til þess aö
nota aðstöðu þá, sem mötuneytið
skapar, til þess að taka að sér
meiri háttar veislur og matar-
sölu, i beinni samkeppni við veit-
ingahúsin, en eru á hinn bóginn
undanþegin greiðslu söluskatts.
Það er þvi augljóst, að með
slfellt hækkandi söluskatti, sem i
dag er 20%, og stórfelldum niður-
greiöslum á fæði starfsmanna, er
rekstur þessara mötuneyta bein
ógnun við veitingareksturinn i
landinu.
Skorar þvi fundurinn á rikis-
stjórn, að taka rekstur þessara
mötuneyta, sem munu á þessu
ári, ksta rikissjóð um 350 miljónir
króna, til gagngerðrar endur-
skoöunar, svo að rikissjóður kom-
ist hjá þvi i framtiðinni, að verja
sivaxandi f járhæðum i skattfrjáls
fæðishlunnindi fyrir opinbera
starfsmenn sina.
Verði almennum veitngarekstri
I landinu að öðrum kosti veitt
sama rekstursaðstaða og mötu-
neytum, sem aðeins greiða sölu-
skatt af innkaupum sinum.
Vígaferli í Angóla
LISSABON 1/4 — Aö minnsta
kosti 200 manns voru drepnir 1
bardögum milli liösmanna
tveggja sjálfstæðishreyfinga I
Angólu i siöustu viku, aö sögn
Agostinhos Netos, forseta Al-
þýöuhreyfingarinnar til freisunar
Angólu (MPLA). Bardagar þessir
uröu milli MPLA og Þjóöfyiking-
arinnar tii freisunar Angólu
(FNLA), og sakar Neto FNLA um
aö hafa stofnaö til hrannmoröa á
borgurum i Luanda, höfuöborg
Angólu.
MPLA er marxisk hreyfing, en
hugmyndafræði FNLA mun vera
öllu óljósari. Þar þykir kenna
nokkurrar kynþáttahyggju, auk
þess sem FNLA nýtur fyrst og
fremst stuðnings fólks af einum
þjóðflokka landsins, Bakongó,
sem býr i norðurhlutanum. FNLA
hefur einnig stuðning Mobutos,
forseta I Zaire.
Þetta var útsýni samningamanna i kjarasamningum ASÍ og atvinnu-
rekenda upp Hverfisgötuna frá Tollstöövarhúsinu daginn, sem samn-
ingarnir voru undirritaöir.
um efnisnám
Yörubílstjórar stofna
Fyrirtœki
til að bœta úr þörf og
til að auka atvinnuna
Vörubifreiðastjórar á
Þrótti hafa ákveðið að
stofna með sér fyrirtæki
um efnistöku í Hrísbrúar-
landi í Mosfellsdal. Er
Enn rekur hlustunarduf I
af erlendum toga á f jörur
íslands.
Síðast fundu menn tvö
dufl rekin i Ingólfsfirði á
Ströndum og enn eitt duf I í
firði nokkru norðar í
Strandasýslu.
Landhelgisgæslan stefn-
ir vestur í dag að sækja
duflin á Ströndunum og
einnig mun hún nú senda
bíl eftir dufli sem fannst
nýlega rekið nærri bænum
Fossi á Síðu.
þetta gert vegna þess að
mikill skortur hefur verið
á hverskonar uppfyll-
ingarefni hjá húsbyggj-
endum eftir að borgin
„Það er erfitt að ná þessu upp á
bil þarna i sandinum”, sagöi
Pétur Sigurösson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, „þvi að þessi
dufl eru mjög þung”.
Utanrikisráðuneytið sendi i gær
frá sér fréttatilkynningu varð-
andi duflarek hér við landið, og
segir þar m.a.: „Nokkur af þess-
um duflum hafa veriö tekin til at-
hugunar og rannsökuö af innlend-
um sérfræðingum og hafa þeir
skilaö ráðuneytinu skýrslum um
athuganir sínar. Ennþá er samt
vitað um þrjú dufl liggjandi á
fjörum og hafa þau ekki veriö
rannsökuð enn. Mun Landhelgis-
hætti að sjá um að útvega
mönnum slíkt uppfylling-
arefni og eins gera bif-
reiðastjórar þetta til að
auka atvinnuna, sem er
mjög lítil hjá þeim eins og
er.
Vörubifreiðastjðrar höfðu
samning við Hrisbrúar-menn,
sem nú hefur verið endurnýjaður
og inni hann bætt þvi ákvæði að
gæslan sækja þau strax og færi
gefst.
Sérfræðingar eru sammála um
að öll þessi dufl séu rekin mjög
langt að og að þau séu gerð til að
liggja á miklu dýpi. Enginn sér-
stakur eigandi hefur gefið sig
fram að þeim duflum, sem fund-
ist hafa.
Háskólinn fær
gefins dufl.
Utanrikisráðuneytið hefur nú
ákveðið að gefa Raunvisinda-
stofnun Háskóla Islands eitt af
þeim hlustunarduflum, sem rekið
hefur. Er þar um að ræða dufl það
sem á sinum tima rak á fjörur á
heimilt er að nota efnið einnig til
ofaníburðar. En aðalástæðan
fyrir félagsstofnuninni hjá þeim
Þróttarmönnum mun vera sú að
nokkuð þarf af vélum og tækjum
til þessa starfa og er meiningin að
mynda félag um þessa vélaeign.
Ekki er enn fullgengið frá þess-
ari félagsstofnun en vörubifreiöa-
stjórar héldu fund um máliö um
pálskana og er það komið vel á
veg. —S.dór
varnarsvæðinu við Stokksnes, en
það er heillegast af þeim duflum
sem fundist hafa. Mun Raunvis-
indastofnunin geta hagnýtt sér
þetta dufl til smiöa á rannsóknar-
tækjum...”
Raunvisindastofnunin mun
ætla að nota tækin eða eftirmynd-
ir þeirra til að hlusta eftir jarð-
skjálftum neðansjávar.
Siðast i fréttatilkynningu utan-
rikisráðuneytisins segir: „Þau
dufl, sem fundist hafa, viröast i
upphafi ætluð til mismunandi
nota. Tvö þeirra eru dufl, sem
notuð eru við björgun kafbáta, er
kann að hafa hlekkst á neöan-
sjávar. önnur dufl virðast eiga að
þjóna þeim tilgangi, að taka á
móti hljóðbylgjum á miklu
sjávardýpi. Eitt þeirra er hins-
vegar kafbátsloftnet, og er það
framleitt i Bretlandi. Margt
bendir hins vegar til að hin duflin
séu af sovéskum uppruna”.
Sérfræðingar þeir sem ráðu-
neytið nefnir i fréttatilkynningu
sinni hafa ekki tilgreint hvað það
er sem fær þá til að álykta duflin
sovésk. Kannski eiga sérfræðing-
arnir við áletranir utan á duflun-
um skráðar á rússnesku, en hæpið
verður að telja, að sovétmenn
merki vandlega tæki þau sem
þeir ætla til njósna. —GG.
Enn rekur dufl
Mörg duflanna „sennilega sovésk”
segir utanríkisráðuneytið og
hefur gefið Háskólanum eitt duflanna
Elsku
hjartans
Iðnó mín
Eru allir að ganga af göflun-
um þarna niðri i Iðnó? Hvers
konar móðursýki er þetta i
höfuðstöðvum lýðræðisins i
landinu?
Ég skrifa grein um nauðsyn
þess að frjálsar leikgrúppur
starfi i landinu — en þið virðist
ekki sjá annað I henni en ein-
hverja aukasetningu um Iðno'.
Leikfélag Reykjavikur leikur
álika mikilvæga rullu i grein
minni „Nú er hún gamla
Grima dauð” og endurnar á
tjöminni gera á leiksýningun-
um I Iðnó. Nota ég nú viljandi
samllkingu sem þið ættuð að
geta áttað ykkur á, þvi að
grein Kjartans Ragnarssonar
i gær sýnir að vissara er að of-
bjóða ekki skilningsgetunni á
þessum vigstöðvum.
Ef þeir sem fást við að
skrifa tryðu þvi að þeir ættu
ekki skilningsbetri lesendur
en Kjartan Ragnarsson
reyndist mér núna, mundi rit-
list leggjast niður I landinu.
Otúr textanum „Ég sé
nefnilega ekki betur en að
tveir ykkar séuð einu leikar-
amir af tæplega 30 manna
hópi i 3 siðustu árgöngum leik-
listarskóla L.R. sem fengið
hafa fasta ráðningu i Iðnó” —
les Kjartan Ragnarsson lúa-
legar dylgjur, einsog hann
nefnir það, um að Jón
Hjartarson og Þorsteinn
Gunnarsson hafi ráðið sjálfa
sig á samning eftir að þeir
voru komnir i stjórn. Ekki veit
ég hvernig i ósköpunum þú
færöþessa útkomu úr svo léttu
dæmi. Orðin hlýtur þú að
skilja. Þú hlýtur þá að vera að
lesa eitthvað sem ekki stendur
þama. Þú hefur enga ástæðu
til að ætla mér illvilja i garð
Leikfélags Reykjavikur eða
kunningja minna Jóns
Hjartarsonar og Þorsteins
Gunnarssonar. Og hver er það
þá sem er með dylgjur.
Þegar ég get þess að þeir
Þorsteinn og Jón séu einu
tveir leikararnir úr þessum
stóra hópi og skora á þá að
sýna lýðræðið i verki, þegar
þeir eru i stjórninni — á ég viö
það að þeir gætu kannski
„kippt inn úr kuldanum” ein-
hverju af skólasystkinum sin-
um, sem starfa ár eftir ár fyr-
ir smánarlaun og ekkert
starfsöryggi að sýningum
L.R.
Ég segi reyndar berum orð-
um: „hefði ekki Iðnólýðræðið
getað haft pláss fyrir ein-
hverja fleiri unga leikara” —
Þetta sér Kjartan ekki, jafn-
vel þótt hann taki þetta sjálfur
uppeftir mér i grein sinni, og
kórónar það með þvi að spyrja
mig: „örnólfur, þvi hvetur þú
ekki leikhúsin til dáða i sam-
bandi við ráðningar á þeim
leikuium ungum og gömlum
sem enga samninga hafa!”
Hann virðist aðeins sjá siðari
hluta málsgreinarinnar „t.d.
einhverja þeirra úr ykkar
hópi, sem sneru baki við Iðnó-
lýðræðinu, og eru nú fastráðn-
ir við annað leikhús”, Siðan
bendir Kjartan á það að þeir
leikarar sem hér siðast um
ræöir voru ráðnir hjá Þjóö-
leikhúsinuámánuðum áður en
L.R. tók upp B-samning sinn.
Hann spyr mig: „Ertu að tala
um að L.R. hefði átt að hvetja
þessa leikara til að rifta
samningum við Þjóðleikhús-
iö?”. Svar mitt: „Nei, Kjart-
an, ég er ekki að tala um það”.
Agætu vinir i Iðnó. Það er
mér mikil ánægja að þið lesið
greinarnar minar af athygli.
En reynið samt að sjá skóginn
fyrir trjánum — greina aðal-
atriði frá aukaatriðum. Ef
mér verður stórkostlega á i
messunni, þá skuiuð þið endi-
lega leiðrétta það rækilega á
opinberum vettvangi. En ef ég
kalla saumnál tituprjón i grein
sem fjallar um skeggvöxt
Njáls á Bergþórshvoli — þá
skuluð þið bara hringja til
Framhald á 10. siðu.