Þjóðviljinn - 03.04.1975, Page 8
Tony Knapp:
Ekki ráðinn sem
landsliðsþjálfari
Tony Knapp þjálfari KK er
kominn til landsins og byrjaö-
ur að þjálfa KR-liðið. Talað
hefur verið um að hann væri
ráðinn sem landsliðsþjálfari i
sumar og mun þegar búið aö
setja hann i landsliðsnefnd hjá
KSÍ, en sjálfur segir hann að
hann sé ekki ráðinn sem
landsliösþjálfari, ekki hafi
verið gengið frá neinum
samningum við sig um það
mál, aðeins lauslega rætt við
sig um það fyrr í vetur. Og það
sem meira er, hann segist
hafa takmarkaðan áhuga.
Okkur túkst ekki að ná i
Ellert Schram formann KSl I
gær, hann var ekki i bænum,
til þess að spyrjast fyrir um
þetta mál en Páll Bjarnason
einn af stjérnarmönnum KSl
sagðist ekki vita betur en frá
þessu máli hefði verið gengið.
Hér er greiniiega um ein-
hvcrja handvömm hjá stjórn
KSl að ræða og alveg furðu-
legt að ekki skuli enn búið að
ganga frá málunum þar sem
ekki er nema rúmur mánuður Tony Knapp
1 fyrsta landsleikinn.
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. april 1975.
Agnar10
sinnum ís-
landsmeistari
- Símon besta
vítaskyttan -
Jón Sig. stiga-
hæstur
Agnar Friðriksson leikmað-
ur tR i körfuknattleik fékk
sérstaka viðurkenningu frá
KKt vegna þess aö hann var
islandsmeistari með liði sinu
tR I 10. sinn aö þessu sinni.
Þetta er mikið og giæsilegt
afrek en þó ekki einsdæmi hér
á landi, þeir Hermann
Hermannsson og Frimann
Helgason urðu báðir 10 sinn-
um meistarar með Val í knatt-
spyrnu og Hjalti Einarsson og
Birgir Björnsson hafa báðir
oftar orðið tslandsmeistarar
með FH I handknattieik.
Stigahæsti leikmaður
tslandsmótsins i körfu að
þessu sinni varð Jón Sigurðs-
son Ármann með 306 stig en
Kolbeinn Pálsson, sem ekki
gat leikið siðasta ieikinn með
KR var með 299 stig.
Simon Ólafsson Ármanni
var með bestu nýtnina I vita-
skotum eða 54 stig úr 74 til-
raunum sem gerir 72,9% en
Kolbeinn Páisson var með 59
stig úr 81 tilraun eða 72,8%;
minni gat munurinn alls ekki
verið.
Kristinn
leikmaður
mótsins
Kristinn Jörundsson hinn
snjalli leikmaður tR i körfu-
knattleik var af leikmönnum
1. deildar liðanna kjörinn
körfuknattleiksmaður mótsins
sl. þriðjudagskvöld. Það hefur
verið siður f körfuknattleikn-
um að leikmenn velji mann
mótsins og það kemur alls
ekki á óvart að Kristinn skuli
hijóta þennan titil nú, hann
hefur verið potturinn og pann-
an I leik IR-liðsins í vetur, liðs-
ins sem fáir bjuggust við
miklu af en var sfðan íslands-
meistari.
íslandsmótið í júdó - opinn flokkur:
Svavar Carlsen
er sá sterkasti
hinn 17 ára gamli júdómaður Viðar Guðjohnsen
vekur æ meiri athygli
Kristinn Jörundsson
a
CJ
u
u
of *
o
o
D
D
/
Islandsmeistararnir
unnu síðasta
leikinn glæsilega
ÍR-ingar sigruðu í körfuknattleiksmótinu með yfirburðum
Tveir síðustu leikirnir í 1.
dei Idarkeppni islands-
mótsins í handknattleik
fóru fram í fyrrakvöld. Þá
sigraði Armann KR 80:72
og íR-ingar, sem þegar
voru orðnir islandsmeist-
arar. luku mótinu með ein-
stökum glæsibrag, sigruðu
Val 105:89. Aeftirtóku þeir
svo við sigurlaununum í
mótinu en þetta mun vera í
10. sinn sem IR verður Is-
landsmeistari í körfu-
knattleik.
IR vann þetta mót með miklum
yfirburðum, mun meiri yfirburð-
um en verið hefur hjá Islands-
meisturum undanfarin ár. 1R
hlaut 26 stig, KR 20, Armann 18,
1S 16, UMFN 16, Valur 10, Snæfell
4 og HSK 2.
1 haust þegar mótið byrjaði
spáðu flestir KR eða Ármanni
sigri en flestir voru vantrúaðir á
að 1R myndi blanda sér i toppbar-
áttuna. En svona er það oft i
iþróttum. Það liðið sem fáir spá
sigri kemur á óvart með góðri
frammistöðu. Menn þekkja þetta
úr öllum flokkaiþróttum.
íslandsmótið í fim-
leikum fer fram
5. og 6. apríl nk.
Islandsmótið i fimleikum karla
og kvenna verður háð um næstu
helgi, laugardaginn 5. og sunnu-
daginn 6. april nk. i iþróttahúsi
kennaraháskólans.
Keppnin er einstaklingskeppni i
aldursfiokkum og verður keppt
eftir fimleikastiganum nýja.
Fyrri daginn verður keppt i
skyldugreinum en þann siðari i
frjálsum æfingum.
Nú er orðið nokkuð langt um
liðið siðan íslandsmót var haldið i
fimleikum en þessi fagra iþrótta-
grein hefur átt mjög vaxandi fylgi
að fagna undanfarið enda ötul-
lega verið að uppbyggingu henn-
ar unnið af hinu unga Fimleika-
sambandi Islands.
Vonandi tekst þetta tslandsmót
vel eins og bikarkeppni FSl á
dögunum, en þar kom vel i ljós að
við eigum mikinn efnivið i fim-
leikum sem aðeins þarf að hlúa að
og vinna úr til þess að við eign-
umst afreksfólk i þessari iþrótta-
grein.
lslandsmeistarar ÍR I körfuknattleik 1975 (mynd Einar).
islenskir júdómenn sýndu mik-
ið bardagaskap og harðfylgi á ís-
landsmótinu I opnum flokki (án
þyngdartakmarkana) sem háð
var á þriðjudagskvöidið. Er ekki
annað að sjá en að þeir séu fylli-
lega frambærilegir á Norður-
landamótið sem haldið verður hér
i Reykjavik siðar i mánuðinum.
Flestir virtust i góðri þjálfun, og
sennilega höfum við aldrei átt svo
marga jafngóða júdómenn og nú.
Til úrslita kepptu þeir Svavar
Carlsen og Viðar Guðjohnsen, og
stóð viðureignin fulla úrslitalotu-
lengd eða 10 minútur. Svavar
sigraði með nokkru öryggi en
tókst ekki að ná fullum sigri yfir
Viðari sem er aðeins 17 ára gam-
all. Viðar er geysiharður keppnis-
maður og hefur náð miklum
krafti og furðulegri leikni miðað
við hans lága aldur. Hann sigraði
þá Sigurjón Kristjánsson og Gisla
Þorsteinsson i mjög jöfnum við-
ureignum. Sigurjón, Gisli og
Halldór Guðnason áttu allir mjög
góðar viðureignir og sýndur góð-
an keppnisvilja.
Keppendur voru alls 15, sumir
úr léttari flokkum en þeir sem
nefndir hafa verið, og veittu hin-
um þyngri þó harða keppni.
Keppt var i þriðja sinn um Dat-
sun-bikarinn sem gefinn er af
Ingvari Helgasyni. Fjórir efstu
menn i keppninni urðu þessir:
1. Svavar Carlsen, JFR
2. Viðar Guðjohnsen, A
3. Sigurjón Kristjánsson, JFR
4. Halldór Guðnason, JFR.
Þá var einnig keppt i opnum
flokki kvenna. Úrslit urðu þessi:
1. Sigurveig Pétursdóttir, Á
2. Þóra Þórisdóttir, A
3. Magnes Einarsdóttir, Á
4. Anna Lára Friðriksd., A
5. Rósa Össurardóttir, Gerplu
Sigurveig vann til eignar bikar
þann sem um var keppt i þessum
flokki.
Svavar
CJ
CJ
A
o
D
/