Þjóðviljinn - 19.04.1975, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.04.1975, Blaðsíða 3
Laugardagur 19. aprfl 1975. ÞJÓDVILJINN — StÐA 3 Yfirlýsing Rauðsokka vegna grófra ásakana Guðmundar Jóhannessonar, læknis: Lágkúra °g rógburður Rauðsokkahreyfingin hefur sent frá sér harðorða mótmæla- yfirlýsingu vegna óvenjugrófra aðdróttana sem komu fram i máli Guðmundar Jóhannessonar, kvensjúkdómalæknis i sjónvarps- viðtali á miðvikudaginn. Þar sagði Guðmundur orðrétt: „...mér finnst það vera svolitill tviskinnungur i málflutningi Rauðsokkahreyfingarinnar. Eg veit, ég hef vitneskju um það, að þær hafa beinlinis hvatt ungar stúlkur og konur til að fara til Bretlands til að fá fóstureyðingu án þess að það væri reynt á það, hvort þær gætu fengið þessa að- gerð hérna heima. Og ég get ekki séð, að tilgangurinn hafi verið annar heldur en með þvi að sýna fram á mikinn fjölda af þessum fóstureyðingum á islenskum kon- um i Bretlandi, að þá væri mein- ingarlaust fyrir okkur að vera með hindranir hérna, og þetta finnst mér vera óheiðarlega unnið að þvi hérna að brjóta lög til þess að byggja upp lög.” 1 fréttayfirlýsingu Rauðsokka- hreyfingarinnar segir að ummæli læknisins lýsi „ótrúlegum mis- skilningi á starfsemi hreyfingar- innar og enn ótrúlegri vanþekk- ingu á þvi, hvernig meðferð mál margra þeirra kvenna hljóta, sem æskja fóstureyðingar á ts- landi.” 1 frétt rauðsokkanna eru þessi mál rakin nokkru nánar og verður yfirlýsing þeirra birt i heild i blaðinu á morgun, en i lok yfirlýsingarinnar segir: „Við visum á bug þeim raka- lausa og grófa áburði, að Rauð- sokkahreyfingin hafi hvatt einn eða neinn til að leita sér fóstureyðingar hérlendis eða erlendis. Við höfum einungis reynt að leysa vanda þeirra, sem til okkar hafa eitað. Lágkúru- 'legur þykir okkur málflutningur þess, sem i rökþroti gripur til rógburðar, og litt sæmandi manni, sem i umræðum um þessi mál hefur hvað eftir annað hampað heiðri og siðgæðisvitund læknastéttarinnar.” Nýtt Þjóðviljahús I gær var lokið við að steypa grunninn að nýju húsi f yrir Þjóðviljann, og myndin sem hér fylgir tekin af þvi tilefni. Hús Þjóðviljans mun rísa að Síðumúla 6 í næsta nágrenni Blaðaprents, en þar er blaðið prentað. Að því er stefnt, að ÞjóðviIjahúsið nýja verði fokhelt fyrir haustið. ÁlandseyjaTÍkan 19. - 27. apríl í Norræna húsinu Fornminjar á Álandi Fyrsti f yrirlestur Álandseyjaviku Norræna hússins verður sunnudag- inn 20. apríl kl. 15:00, sögu- legur fyriríestur um Álandseyjar, sem prófessor Matts Dreijer, fyrrverandi þjóðminja- vörður Álandseyja, heldur. Álandseyjar eru mjög rikar að fornminjum og prófessor Dreijer hefur skrifað mikið um þau efni. t fyrirlestri sinum ræðir hann einn- ig þætti úr sjálfstæðisbaráttu Alandseyja, en þær hafa lotið svi- um, rússum og finnum, en hafa i rúm 50 ár haft sjálfsstjórn, „sjalvstyrelse”, á ýmsum svið- um. Mánudagskvöld 21. april, held- ur prófessor Nils Edelman frá Ábo-háskóla, jarðfræðilegan fyrirlestur um berggrunn Álands- eyja, og er sá fyrirlestur á vegum Háskóla tslands, en haldinn i fundarsal Norræna hússins. Með fyrirlestrinum verða sýndar lit- skyggnur. Játningar Alberts Guðmundssonar, borgarfulltrúa og alþingismanns: „Eg stóð ekki að myndiin þessarar ríkisstjórnar” „Sama hvernig kommarnir eru” „Það er ekkert launungarmál, að ég stóö ekki að myndun þess- arar rikisstjórnar. Ég fylgi henni i „góðum” málum, en hef ekki séð ástæðu til þess enn þáað setja mig upp á móti henni,” sagði Al- bert Guðmundsson, borgarfull- trúi og alþingismaður Sjálfstæð- isflokksins á borgarstjórnarfundi i fyrradag. Játningar Alberts komu fram við umræður um niðurskurð á fjárveitingum borgarsjóðs til aldraðra, en borgarfulltrúar Al- þýðubandalagsins, þau Adda Bára Sigfúsdóttir og Sigurjón Pétursson, höfðu deilthart á þann niðurskurð og brýnt Albert á þvi, að hann hefði barist fyrir þvi á siðasta ári að varið yrði sam- kvæmt fjárhagsáætlun tugum miljóna til þess að búa i haginn fyrir aldraða, en i raun hefði að- eins 15% þessa áætlaða fjár- magns verið greitt út til þessara mála, og nú ætlaði borgar- stjórnarmeirihluti Sjálfstæðis- flokksins, og Albert Guðmunds- son, að skera fjárveitingar til stofnana i þágu aldraðra niður um hvorki meira né minna en 95 miljónir. Um þennan niðurskurð sagði Albert: „Byggingar fyrir aldraða hafa forgang, eru forgangsverkefni. Ég mótmæli þvi að nokkurt skref hafi verið stigið afturábak með þeim niðurskurði á fjárveitingum til velferðarmála aldraðra, sem nú er ætlað að gera. Það eru ekki meiri verkefni, sem fyrir liggja og hægt er að vinna að en svo, að meira fé en ætlað er til þessa eftir niðurskurðinn er óþarft. Mjög gott starf hefur verið unnið vegna þess niðurskurðar sem gera þarf, og ég lýsi stuðningi minum við hann.” Og Albert er hreinskilinn mað- ur. Ræðu sina hóf hann á þessum orðum: „Ég vona, að borgarfull- trúar meirihlutans geti alltaf haldið hiifiskiidi yfir atvinnurek- endum,” og þessa yfirlýsingu er vert að hafa i huga þegar hlustaö er á fagurgala Sjálfstæðismanna um hug þeirra til alþýðu manna. Einnig má yfirlýsing þessi vera nokkur skýring á þvi hver þau eru hin „góðu” mál, sem Albert styð- ur rikisstjórnina i. En Albert hafði ekki lokið játn- ingum sinum með þessu. Framhald á 14. siðu. Verkfallið á Selfossi: ASÍ fordæmir aðfarir SÍS ASl hefur sent verkfalls- mönnum á Selfossi 100 þúsund krónur og jafnframt hefur mið- stjórn Alþýðusambandsins samþykkt fordæmingu á þvi háttalagi kaupfélagsstjórnar K.A. Selfossi, að reka Kolbein Guðnason úr starfi. 1 fréttatilkynningu frá Al- þýðusambandi Islands segir: „A fundi miðstjórnar Alþýðu- sambands íslands i dag, var til umræðu brottvikning Kolbeins Guðnasonar úr störfum hjá Kaupfélagi Árnesinga. Voru miðstjórnarmenn ein- huga i fordæmingu sinni á þeim aðförum að vikja úr starfi manni með áratuga starfsferil að baki i þjónustu fyrirtækisins fyrir það eitt að gagnrýna með bréfi breytingar, sem einhliða voru ákvarðaðar af stjórnend- um fyrirtækisins. Taldi miðstjórnin þetta mikinn álits- hnekki fyrir samvinnuhreyfing- una. Miðstjórnin samþykkti að leggja fram krónur 100.000 til stuðnings verkstæðismönnum á Selfossi”. Erlendur vildi ekki stuðningsyfirlýsingu A aðalfundi Samvinnubank- ans, sem haldinn var fyrir viku, vakti einn hluthafanna, Gunnar Gunnarsson, deildarstjóri at- hygli á deilu valdamanna og starfsmanna Kaupfélags Arnes- inga. Gunnar flutti stutta ræðu um þessa deilu á Selfossi, og sagði m.a. „Ég lit svo á að ef ekki verður reynt af forystumönnum samvinnuhreyfingarinnar að koma þessu máli úr þeirri sjálf- heldu, sem það er i nú, muni það stórskaða góðan orðstýr sam- vinnuhreyfingarinnar. Okkur er hollt að minnast þess að án vel- vildar fólksins er byggir þetta land, er samvinnuhreyfingunni þröngur stakkur skorinn. An góðrar samvinnu og samstarfs viö verkalyðshreyfinguna er okkur óhætt að pakka saman...” Gunnar flutti siðan tillögu um að aðalfundur Samvinnubank- ans samþykkti að gefa 100 þús- und krónur til styrktar verk- fallsmönnum og að fundurinn samþykkti yfirlýsingu, þar sem framkoma forystumanna sam- vinnuhreyfingarinnar i þessu máli væri hörmuð. Þegar Gunnar hafði lokið ræðu sinni, fór Erlendur Einarsson, forstjóri SIS i ræðu- stól og lagði fram tillögu um að málinu væri visað frá, þar eð það væri fundi Samvinnubank- ans óviðkomandi. Frávisunar- tillaga Erlends var samþykkt með þrjátiu atkvæðum gegn tveimur. Straumur stuðningsyfirlýsinga Stöðugt berast stuðningsyfir- lýsingar frá félögum og einstak- lingum til verkfallsmannanna, og mjög margir aðilar hafa nú styrkt verkfallsmenn með peningum. Frá Trésmiðafélagi Reykja- vikur barst Þjóðviljanum i gær eftirfarandi: „Stjórnarfundur Trésmiðafélags Reykjavikur haldinn 16.4 1975 lýsir fullum stuðningi við verkstæðismenn á Selfossi, sendir þeim baráttu- kveðjur og ákveður að veita kr. 40.000,- i fjársöfnun þeim til styrktar.” Og frá Sambandi bygginga- manna eftirfarandi: „Framkvæmdastjórn Sam- bands byggingamanna lýsir fyllsta stuðningi sinum við verkstæðismenn á Selfossi og samþykkir að veita þeim fjár- hagslegan stuðning með 20 þús. króna framlagi. Jafnframt átelur fundurinn harðlega vinnubrögð stjórnenda K.A. i málinu og harmar þann álitshnekki sem samvinnu- hreyfingin verður fyrir af þeirra völdum. Fundurinn heitir á alla byggingamenn að veita verk- stæðismönnum stuðning með þvi að taka þátt i fjársöfnun þeim til styrktar. Samþykkt samhljóða”. Og þeim f jölgar stöðugt félög- unum sem senda verkstæðis- mönnum fé. Við getur nefnt nokkur af handahófi: Félag af- greiðslustúlkna i brauð og mjólkurbúðum (20.000), Járniðnaðarmenn i Héðni (36.000), Starfsmenn i Kisiliðjunni (25.000), starfs- menn á fartækja, rafmagns- og vélaverkstæðum Isal (35.000), Mjólkurfræðingafélag Isl. (15.000) KSML (10.000), KSMLb (15.440),Iðja, Akureyri (25.000). verkstæði P.Stefánsson (10.000), verkstæði á Hellu (10.000), Félag bilamálara (20.000), starfsfólk MBF (61.500), Bjarmi, Stokkseyri (50.000), Eik (16.150) Rauð verkalýðseining (10.200), Jökull, Hornafirði (25.000) og þannig getum við reyndar tint til fleiri, svo sem NN sem gaf 21.000 eða einn forystumanna rangæinga, sem gerði sér ferð til Selfoss með sinar 10.000 kr. fólkið sem hefur litið við hér á ritstjórn Þjóðviljans og gefið fjárhæðir. Við getum hér að siðustu yfir- lýsingar frá Verðandi, félagi róttækra i Háskólanum, en Verðandi hefur lýst fullum stuðningi við aðgerðir verkfalls- mannanna á Selfossi í baráttu þeirra við kaupfélagsstjórnina. —GG

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.