Þjóðviljinn - 31.05.1975, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN' Laugardagur 31. mai 1975
r £7 £ D Fj< 5rði 0[°) 0:C ) lei r CJ D iku °Xítf)@5fl[P f rinn
KR og Valur komin með 2 stig hvort án þess að hafa skorað mark
Eftir 5 leiki i 1. deildar-
keppni íslandsmótsins í
knattspyrnu blasir sú
hreikalega staöreynd við
aö aöeins eitt mark hefur
verið skorað, f jórum leikj-
um hefur lokið með
markalausu jafntefli. Sá
fjórði í röðinni var leikur
KR og Vals i fyrrakvöld.
Það fer ekki lengur á milli
mála, aðensku þjálfararn-
ir leggja enga, alls enga,
áherslu á sóknarleikinn og
sem dæmi um þetta má
nefna að ekki eitt einasta
skot var á mörk KR og
Vals í síðari hálfleik leiks
þessara liða í fyrrakvöld.
Hvorki Magnús né Sigurð-
ur Dagsson þurftu að verja
eitt einasta skot. i fyrri
hálfleik fóru nokkur skot
gróft framhjá, og voru þau
nær öll af löngu færi. Hins-
vegar áttu bæði liðin sæmi-
leg færi inní markteig, en
að menn sjái prðið glæsileg
skot að marki, það er ekki
til í dæminu. Og það er
ekki sterkt til orða tekið að
kalla þetta alvarlega þró-
un.
>*■ ♦
Fyrri hálfleikur þessa leiks var
i daufara lagi. Ef eitthvað var,
áttu KR-ingar heldur meira i hon-
um en marktækifæri þeirra voru
ekki mjög hættuleg, en þeir sóttu
meira. í siðari hálfleik snérist
þetta við, þá voru það Valsmenn
sem sóttu mun meira og áttu
nokkur stórhættuleg marktæki-
færi en sóknarleikur þeirra eins
og raunar flestra liða er fálm-
kenndur, nær algerlega skipu-
lagslaus og greinilegt að öll
áhersla er lögð á vörnina.
- '
Hér skall hurð nærri hælum við Valsmarkið, Jóhann Torfason rak hnéið I boltann og hann rétt sleikti stöngina utanveröa. Siguröur Dags-
son gerir góða tilraun til varnar.
Ofan á þetta allt bætist svo að
flest liðin leika 5-3-2 leikaðferð,
þannig að oftast eru bara tveir
sóknarmenn að kljást við 5
varnarmenn. Þetta getur ekki
endað á annan veg en þann að
vörnin hafi betur.
Að þessu sinni, eins og raunar i
öðrum leikjum 1. deildarinnar i
vor, bar mest á miðvörðunum.
Þeir Dýri Guðmundsson og
Magnús Bergs áttu báðir góðan
leik i Vals-liðinu, svo og Atli Eð-
valdsson sem hefur tekið miklum
framförum i vor. Kristinn
Björnsson sem gæti verið einn
okkar besti sóknarmaður, eyði-
leggur bæði fyrir sér og félögum
sinum með sifeldum einleik svo
að engu tali tekur.
Hjá KR voru það þeir Otto Guð-
mundsson, Ólafur Ólafsson og
hinn bráðefnilegi bakvörður
Stefán Sigurðsson sem báru af.
Baldvin Eliasson átti einnig
þokkalegan leik.
Dómari var Rafn Hjaltalin og
sá hann ekki frekar en Valur Ben.
á dögunum við atvinnumanna-
brotunum sem Tony Knapp hefur
kennt sinum mönnum, að halda
mönnum, hrinda þeim rétt áður
en þeir taka við boltanum og
fleira af sliku tagi sem ekki ber
mikið á en er ólöglegt. — S. dór
Heil umferö
í 2. deild
um helgina
Heil umferð fer fram nú um
helgina i 2. deild. t gærkveidi léku
Breiðablik. og Ilaukar,og fór leik-
urinn fram i Hafnarfirði.
1 dag leika Vikingur ól. og Ar-
mann I Ólafsvik, og á Húsavik
mætast Völsungar og Selfoss. Á
morgun leika svo Reynir Á. og
Þróttur og fer sá leikur fram fyrir
norðan.
Keppnin i 2. deild virðistætla aö
verða jöfn og skemmtileg og þar
eru skoruð mörk, ems og einu
sinni var gert i 1. deild,en virðist
nú vera liðin tið.
Sigurstranglegustu liðin i deild-
inni virðast vera Þróttur, Haukar
og Breiðablok og verður eflaust
mikill slagur hjá þessum liðum
um 2 efstu sætin i deildinni, en
liðið sem verður i 2. sæti fær úr-
slitaleik gegn liðinu sem verður i
neðsta sæti i 1. deild um hvort
þeirra leikur i 1. deild næsta ár.
Islandsmótiö 1. deild um helgina:
Víkingar fara uppá
Akranes en FH
til Vestmannaeyja
Fram leikur svo gegn ÍBK í Keflavík á mánudag
Tveir leikir fara fram í
1. deildarkeppninni í knatt-
spyrnu i dag. Víkingar sem
áttu að leika á Laugardals-
velli gegn IA fara þess í
stað uppá Akranes og leika
þar gegn ÍA, þar sem
Laugardalsvöllurinn er
lokaður. Og FH fer til Eyja
og leikur þar gegn heima-
mönnum, en það var sam-
kvæmt leikjaskrá. Á
mánudaginn kemur átti
IBK að leika gegn Fram í
Laugardal, en þeim leik
hefur einnig verið breytt,
þannig að Fram fer til
Keflavíkur og leikur.þar
gegn IBK.
Það má vist ganga útfrá þvi
sem visu að ekki verði skoruð
mörg mörk I þessum leikjum ef
tekið er mið af þeim 5 leikjum
sem þegar hafa farið fram i mót-
inu.
Þar sem leikur tA og Vikings
fer fram á grasvellinum á Akra-
nesi verður að telja skagamenn
sigurstranglegri, nema Vikingur
taki sama ráð upp og KR á dögun-
um og leiki með 10 menn i vörn
gegn 2-3 sóknarmönnum 1A, þá
sjá allir hver úrslitin hljóta að
verða.
FH er með breskan þjálfara,
þannig að gera má fastlega ráð
fyrir þvi að FH leiki algeran
varnarleik i Eyjum. Hvort tBV
tekst að skora skal þvf ósagt iátið
en heimamenn eru sigurstrang-
legri ef leikurinn fer eðliiega
fram.
A mánudaginn leika svo ÍBK og
Fram, og það verður að segjast
eins og er, að menn hafa almennt
ekki mikla trú á Frarmliðinu eftir
þann mikla missi sem það hefur
orðið fyrir i vor og ættu þvi
heimamenn að vinna þar auð-
veldan sigur. —S.dór
Mót þeirra yngstu
Næstkomandi þriðjudag og miðvikudag fer fram á Melaveliinum
sveina,meyja, drengja og telpnamót Reykjavíkur og frjáisiþróttum.
Þaö er frjálslþróttadeild Ármanns sem sér um mótiö.og þurfa þeir sem
ætla að vera með aö tilkynna það til Stefáns Jóhannssonar I sima 19171
fyrir mánudagskvöld.
Þarna verður samankominn mikill fjöldi af hinu unga og efnilega
frjálslþróttafólki sem nú æfir, en mjög vaxandi áhugi virðist vera fyrir
frjálslþróttum hjá yngri kynslóöinni.
IGolf-Golf-Golf
Opið
kvenna-
mót hjá
Keili
A morgun, sunnudag, fer
fram opið kvennamót I golfi
hjá Golfkiúbbnum Keili i
Hafnarfirði,og verður þar um
að ræða 18 holu keppni.