Þjóðviljinn - 19.06.1975, Blaðsíða 1
UOaVIUINN
O , _■_••
Fimmtudagur 19. júni 1975 —40. árg. —134. tbl.
Dropinn
30% dýrari
Sígarettur
á kr. 190.
Áfengi og tóbak hækkar um
þrjátiu prósent i dag samkvæmt
ákvörðun stjórnvalda.
tslenskt brennivin kostar i dag
2170 kr.flaskan, tindavodki 2730,
pólskur vodki 3060, rússneskur og
ameriskur vodki 3200, whisky af
algengustu tegund 3400, og rauð-
vinsflöskur frá 720 krónum og
uppúr.
Pakkinn af sigarettum kostar i
dag kr.190 og gildir þar einu hvort
um filter-sigarettur er að ræða
eða ekki. Þetta mun vera ein
mesta hækkun sem orðið hefur i
einu á áfengi og tóbaki.
Bandarískt flotaskip leggur streng í Lónsbugt:
Truflar yeiðar á fengsælum miðum
Síldarvinnslan h.f. í Neskaupsstað krefst rannsóknar
Frá fréttaritara Þjóðviljans,
Neskaupstað.
Þegar skuttogarinn Bjartur
NK-121 kom á miðin við Lónsbugt
og hóf þar veiðar þriðjudaginn 10.
júni urðu skipverjar varir við tor-
kennilegt skip á miðunum þar.
Þoka var á þessum slóðum og
sást þvi skipið ekki vel, en þarna
virtist vera um einhverskonar
rannsóknarskip eða kapallagn-
ingarskip að ræða. Skipið var á
sama svæði i um það bil sólar-
hring og voru nokkur skip á veið-
um á þessum sióðum.
14.júni festi Bjartur vörpuna i
botni á þeim stað þar sem skipið
hafði verið.Staðurinn er nánar til-
tekið 12 sjómilur réttvisandi 103
gráður frá Stokksnesi.Samkvæmt
upplýsingum Magna Kristjáns-
sonar, skipstjóra, var trollið mjög
fast, en við illan leik tókst þó að
ná upp hlerunum.Kom þá i ljós að
i öðrum hleranum var einhvers-
konar kapall, cirka 6 til 7 tommur
að þvermáli. Ekki tókst að losa
kapalinn, þrátt fyrir itrekaðar til-
raunir i þá átt. Þvi reyndist nauð-
synlegt til þess að ná veiðarfær-
unum að höggva á kapalinn.
Þegar kapallinn fór i sundur
kom i ljós að rafstraumur var i
honum.Bjartur kom i land með
bút af kaplinum og fóru sjópróf
fram hjá bæjarfógetanum i Nes-
kaupstað i dag.
Magni Kristjánsson, skipstjóri,
tilkynnti Landhelgisgæslunni um
þennan atburð og spurðist fyrir
um áðurgreint skip.Taldi gæslan
að um bandariskt flotaskip hefði
verið að ræða.Magni tjáði frétta-
ritara að á þessum stað hefði ver-
ið togað i fjölda ára og ekki vitað
til þess að nokkurntimann hefðu
þar tapast veiðarfæri, þar til fyrir
fjórum vikum siðan að Bjartur
Stórsigur
yinstri afla
á Ítalíu
Sjá baksíðu
tapaði þarna trolli.Nú velta menn
þvi fyrir sér hvort það veiðar-
færatjón hafi einnig verið af völd-
um flota bandariska heimsveldis-
Magni Kjartansson, skipstjóri,
sagði i viðtali við fréttaritara orð-
rétt: „Þessi kapall, sem augljós-
iega var nýkominn i sjó, er á
fiskisælli slóð og hætt við þvi að
hann eigi eftir að valda fleirum
tjóni en okkur”.
Ef veður hefði ekki verið jafn-
gott og það var þegar atburðurinn
átti sér stað, má öruggt telja, að
veiðarfæriö hefði tapast. Útgerð
Sildarvinnslunnar hf, sem gerir
út Bjart, hefur i hyggju að krefj-
ast rannsóknar á máli þessu.
SG.
Tillaga Alþýðubandalagsins á borgarstjórnarfundi í dag
Borgarstjórn tryggi
Mynd þessi var tekin af kröfugöngunni 1. mai siðastliðinn. A borðanum.
er ein þeirra spurninga, sem konur krefjast svars við nú. Og þær
krefjast ekki einungis svara 19. júni heldur einnig aðgerða, sem stuðla
að bættum hag kvenna og meiri jöfnuði milli manna.
Borgarstjórnarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins leggja I dag
fram tillögu i borgarstjórn sem
felur i sér að jafnrétti kynja til
starfa og launa sé tryggt innan
borgarstofnana. Þótti tilhlýðilegt
að veija daginn I dag, I9.júni, til
þess að leggja fram þessa tillögu.
Tillaga Alþýðubandalagsfull-
trúanna er svohljóðandi:
„Borgarstjórn ákveður að
vinna að þvi að jafna launakjör
karla og kvenna i þjónustu borg-
arinnar. í þvi skyni samþykkir
borgarstjórn að bjóða Starfs-
mannafélagi Reykjavikur að til-
nefna konu úr sinum hópi til þess
að sitja fundi starfskjaranefndar
auk þeirra fulltrúa, sem félagið á
þegar i nefndinni. Borgarráð og
stjórn Starfsmannafélagsins á-
kveði sameiginlega réttindi þessa
sérstaka fulltrúa.
Fulltrúar borgarinnar i starfs-
kjaranefnd skulu hafa jafnréttis-
sjónarmið rikt i huga við tillögu-
gerð um kjör nýrra starfsmanna
og frá sama sjónarmiði skal
endurmeta kjör einstakra starfs-
manna, sem þess óska.
1 auglýsingum á lausum stöð-
um skal koma féam, að þær séu
jafnt ætlaðar konum og körlum
nema i þeim örfáu tilvikum þar
sem aðeins annað kynið kemur til
greina.
Borgarstjórn telur nauðsynlegt
að fylgjast vel með þróun launa-
kjara karla og kvenna i þjónustu
borgarinnar og felur borgarhag-
fræðingi að leggja árlega fram
skýrslu um skipan karla og
kvenna i launaflokka og önnur at-
riði, sem máli skipta við saman-
burð á kjörum”.
-0-
Blaðamaður spurði Oddu Báru
Sigfúsdóttur, borgarfulltrúa,
hvað væri átt við þar sem segir i
tillögunni, að sum störf séu ein-
Framhald á bls. 10
Tónlistar-
viðburður
á ísafirði
Sjá síðu 7
Yiðnám gegn
verðbólgu
Viðtal við
Guðmund J.
Sjá síðu 3
19. JÚNÍ BARÁTTUDAGUR KVENNA
Enn skortir mikið á jafnan rétt
60 ár liðin síðan
konur fengu kosningarétt
t dag 19. júni eru liöin 60 ár slö-
an sú veigamikla breyting var
gerö á stjórnarskránni aö veita
konum og hjúum kosningarétt
og kjörgengi. Kosningaréttur
þeirra var þó takmarkaöur
þannig að aldurstakmarkiö var
ákveðið 40 ár, en skyldi svo
lækka um eitt ár á hverju ári
þar til þaö yröi 25 ár eins og hjá
öörum. Þessu var þó breytt 1920
og fengu konur þá fyllsta jafn-
rétti á viö karla I þessum efn-
um. Frá árinu 1882 höföu þó
„konur sem eiga meö sig sjálf-
ar” kosningarétt til sveitar-
stjórnar. En 19. júnl hefur verið
baráttudagur Islenskra kvenna I
rúma hálfa öld.
1 jafnréttisbaráttunni hafa
ýmsir áfangasigrar náðst. Áriö
1954 fengu konur og karlar i
opinberum störfum lögverndaö
launajafnrétti. Arið 1961 voru
sett lög um almennan launa-
jöfnuð karla og kvenna og skyldi
honum náð 1967. Þrem árum
siðar staðfesti alþingi samþykkt
ILO um útrýmingu á hvers kon-
ar misrétti I atvinnu eða starfi.
Árið 1973 voru sett lög um Jafn-
launaráð sem ætlað er að
tryggja framkvæmd laga um
LAUNAFLOKKAR BANKANNA
Hlutfallsleg skipting banka-
starfsfólks 1972 eftir kyni og
launaflokkum. Konur fjöl-
mennastar I lægstu launaflokk-
um en karlar fjölmennastir i
þcim hæstu.
jafnrétti kynjanna i atvinnulif-
inu.
Þrátt fyrir alla lagabálka um
jafnrétti þá er misrétti kynj-
anna mikið, ekki hvað sist i at-
vinnulifinu. í nýútkominni bók
um „Jafnrétti kynjanna, sem út
kom á vegum námsbrautar i
þjóðfélagsfræðum við H.l. er
gerð all itarleg úttekt á misrétti
kynjanna i islensku þjóðfélagi
nú á timum.
íniðurstöðum þess rits kemur
m.a. fram að „lagalegur réttur,
sami starfsaldur eða lengri, jöfn
menntun og sams konar starfs-
heiti duga konum ekki I reynd til
sömu launa og karlar. Þar eru
önnur öfl að verki.” Þegar at-
huguð er þjóðfélagsleg forysta i
islensku samfélagi þá kemst
könnuðurinn að þeirri niður-
stöðu að „allar likur bendi þvi
til að karlar verði enn um langa
hrið nær einráðir um stjórn
þjóðfélagsins. Karlar eru og
verða að öllu jöfnu enn herrar
þjóðfélagsins.”
1 bókinni er að finna greinar-
góðar töflur um skiptingu
starfsfólks i launaflokka i ýms-
um starfshópum eftir kyni. Til
að minna á það misrétti sem
enn liöst i islensku samfélagi
birtir blaðið i tilefni dagsins
eina slika töflu um hlutfallslega
skiptingu bankastarfsfólks 1972
eftir kyni og launaflokkum. Þar
misréttið berlega i ljós. Konur
fjölmennastar i lægstu flokkun-
um en karlar i þeim efri.