Þjóðviljinn - 25.06.1975, Qupperneq 1
uowiuinn
Miðvikudagur 25. iúní 1975 — 40. árg. 139. tbl.
Hooley til
Svíþjóðar
Sænskt knattspyrnufélag mun
hafa gert Joe Hooley fyrrum
þjálfara tBK þaö gott tilboð að
hann gerði allt sem hann gat til
að losna frá ÍBK án þess að
þurfa að nota 2ja mánaða upp-
sagnarfrestinn sem tilnefndur
var f samningi hans við ÍBK. Sjá
nánar á 8. siðu.
Joe Hooley.
Togaradeilan á
lokastigi
★ 80 dagar í súginn
★ Gífurlegt verðmœtatap
★ Mikið atvinnuleysi
Nú þegar togaradeilan hefur
staðið I 80 daga virðist loks farið
að hilla undir samkomul. i gær-
kvöldi voru samningamenn von-
góðir um að sú hreyfingsem verið
hefur á samningunum að undan-
förnu myndi ekki stöðvast og þótt
ósamið væri enn um fjölda
hliðaratriða myndi ágreiningur
um þau ekki koma I veg fyrir
heildarsamninga. i gærkvöldi var
gert ráð fyrir að fundur myndi
dragast fram á nótt og var alls
óvist hvort samningar tækjust
fyrir morguninn.
t fyrrinótt, en þá stóð fundur til
kl. 8 um morguninn, tókst að ná
samkomulagi um fastakaup yfir-
manna á togurunum. Sérstök
sáttanefnd semur við yfirmenn-
ina. Enn hafði ekki tekist endan-
legt samkomulag um fastakaup
undirmanna. í gærdag kl. 17
komu sáttanefndir undirmanna
og yfirmanna ásamt undirmönn-
um, og yfirmönnum og fulltrúum
útgerðarmanna, saman i Toll-
stöðvarhúsinu. 1 ^ærkvöldi var
einkum rætt um sérkröfur yfir-
manna og virtist stefnt að þvi að
ná fyrst samkomulagi við þá en
kröfur þeirra hafa verið stöðugt
til umræðu siðustu viku. Fyrstu
vikur verkfallsins var hins vegar
ekkert við þá rætt.
Verkfallið á stóru togurunum
hefur nú valdið gifurlegu tjóni, og
er vart ofætlað að sé allt tekið
með i dæmið sé það á annan mil-
jarð. Fjöldi verkakvenna og
verkamanna hefur verið atvinnu-
laus vegna stöðvunar fisk-
verkunarhúsa i landi meðan á
deilunni hefur staðið, og verða
það enn hálfan mánuð. til þrjár
vikur, þótt deila leysist, eða þar
til togararnir 22 koma aftur úr
fyrstu veiðiferðinni.
Stöðumælamálið:
Tillagna til
úrbóta að
vænta
í haust
Eins og skýrt var frá i Þjóð-
viljanum i gær, ríkir algert öng-
þveiti i innheimtu stöðumæla-
sekta hjá þeim sem skirrast við
að greiða sektir til lögreglu-
stjóraembættisins, sem er fyrsti
liður i innheimtu stöðumæla-
sekta. Ljóst má vera, að svona
getur þetta ekki gengið lengur.
Ekki bara að menn greiði ekki
sektir, heldur hlýtur það að slæva
virðingu manna fyrir lögum og
rétti ef hægt cr að komast upp
með það að greiða ekki sektir sem
menn fá fyrir afbrot, þótt kannski
sé ekki hægt að flokka stöðu-
mælasekt undir afbrot, það er eigi
að siður brot á lögum að leggja
við stöðumæli án þess að greiða
fyrir það.
Við snerum okkur i gær til
Baldurs Möllers, ráðuneytis-
stjóra f dómsmálaráðuneytinu og
spurðum hann hvort ekki stæði til
að gera eitthvað i þessu máli.
Baldur sagði að stjórnskipuð
nefnd, sem vinnur að endurskoð-
un alls réttarkerfisins, réttar-
farsnefnd svo kölluð, væri með
þetta mál i rannsókn eins og mörg
fleiri varðandi dómsmálin hér á
landi. Þess er að vænta að nefndin
leggi fram tillögur sinar i haust
en þá er úrvinnsla og lagasetning
eftir og þvi alls óvist hvenær þessi
mál verði komin i viðunandi horf.
Að sögn Baldurs hafa komið
fram margar tillögur um
breytingar á innheimtu stöðu-
mælasekta, en allar kostuðu þær
mikla vinnu. Ein er sú að bifreið-
ar fái ekki skoðun nema stöðu-
mælasektir séu greiddar upp og
önnur sú að taka bifreiðar úr um-
ferð ef sektir eru ekki greiddar.
Sú fyrri er vond leið, eins og Bald-
ur orðaði það, en hin nokkuð
harkaleg að visu, en kæmi frekar
til greina.
Alla vega er ljóst að kerfinu
þarf að breyta, sagði Baldur
hvaða leið sem valin verður.
— S.dór.
Þjóðviljahúsi
miðar
vel
Sjálfb oðaliðar
óskast til starfa
um helgina
1 gær var lokið við að steypa
neðri hæðina af húsi Þjóðviljans
að Siðumúla 6. Eftir næstu helgi
verður byrjað að slá upp mótum
fyrir efri hæðinni. Nauðsynlegt
er þvi að losa mótin og hreinsa
timbrið um helgina.
Þess vegna fer byggingar-
nefndin þess á leit við velunnara
blaðsins að þeir gefi sig fram til
sjálfboðaliðsvinnu á laugardag
og sunnudag við þetta verk.
Vinna hefst klukkan 8 f.h. á
laugardag og kl. 13 á sunnudag.
Æskilegt er að sem flestir hafi
með sér hamar og sköfu til þess
að hreinsa timbur.
Innbrot í bæjarskrifstofurnar í Kópavogi:
Nœrri tveim milj.
króna var stolið
Einn mesti þjófnaður
sem lengi hefur verið
framinn hér á landi var
framinn i fyrrinótt þeg-
ar brotist var inn i
bæjarskrifstofumar i
Kópavogi og þaðan stol-
ið peningum að upphæð
nærri tvær miljónir
króna.
Það var kl. rúmlega 7 i gær-
Blaðamenn
og fleiri á
sáttafundum
Blaðamenn og útgefendur, og
bókagerðarmenn og fulltrúar
prentiðnaðarins sátu sáttafundi i
gærdag og fram á kvöld. Litið
miðar i þessum samningaviðræð-
um.
morgun að lögreglunni i Kópav.
var tilkynnt um að brotist hefði
verið inn i bæjarskrifstofurnar.
Þegar að var komið sást að þjóf-
urinn eða þjófarnir höfðu klifrað
upp vinnupalla utan á norðurhlið
hússins, brotið rúðu og farið inn
um gluggann.
Siðan var hurðin inn á skrifstof-
urnar brotin upp og siðan önnur
sem er að afgreiðslusalnum. Þar
er litill eldtraustur klefi sem þjóf-
1 könnun, sem gerð var á veg-
um Hafrannsóknastofnunarinnar
i lok siðustu viku, kom i ljós, að
óhemju magn af undirmálshumri
var i Breiðamerkurdýpi á dýpra
vatni en 100 föðmum. Sjávarút-
vegsráðuneytið hefur þvi, sam-
unum tókst að sprengja upp,
jn þar inni voru geymd skjöl og
peningar að upphæð nærri 2 milj.
kr. sem auðvitað voru hirtir.
1 gær hafði lögreglan i Kópa-
vogi engan mann handsamað
vegna þessa þjófnaðar, en ekki
vildu lögreglumennirnir tjá sig
um það hvort þeir hefðu einhvern
eða einhverja sérstaka grunaða
um verknaðinn.
— S.dór.
kvæmt tillögu Hafrannsókna-
stofnunarinnar, ákveðið, að
banna allar humarveiðar i
Breiðamerkurdýpi á dýpra vatni
en 100 föðmum frá og með mið-
vikudeginum 25. júni n.k.
Breiðamerkurdvpi:
Lokað fyrir
humarveiði
Suðurnesjamenn sáróánægðir með varnarmáladeild — Sjá bls. 3