Þjóðviljinn - 25.06.1975, Page 6
6 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINNMiðvikudagur 25. júni 1975.
Tap á að
slægja
aflann
Skuttogarinn Runólfur frá Grundarfiröi landaði tvisvar sinnum á Suðureyri I maf, samtals 213 tn.
Súgandafirði 15. júni.
Það má vist með tiðindum telja
að i maimánuði landaði hér skut-
togarinn Runólfur frá Grundar-
firði tvisvar sinnum. í fyrri túrn-
um 20. mai 118.9 tonn. og i siðari
30. mai 92.4 tonnum, eða samtals
213.3 tonn.
M.S. Ólafur Friðbertsson hélt
áfram róðrum eftir lokin. 1 14
róðrum fiskaði hann 66.4 tonn.
Allur mai afli hans varð þvi 84.7
tonn i 19 róðrum. M.S. Sigurvon
fór 5 róðra fyrir lokin og 4 eftir
þau. Afli hennar varð 32.7 tonn i 9
róðrum.
Tveir mótorbátar, annar 5
lestir. Tjaldur, einn maður á
handfærum, og Smári, átta lestir,
nýkeyptur frá Bolungarvik, eig-
andi og formaður Gestur Krist-
finnsson, fyrrverandi skipstjóri,
öfluðu 3.9 tonn i 12 róðrum og 4.9
tonn i 10 róðrum.
Linubáturinn Jón Guðmunds-
son, sem er átta lestir, aflaði 13.9
tonn í 11 róðrum. Aðrir bátar voru
ekki við veiðar hér i mai. M.S.
Kristján Guðmundsson, sem ég
gat um i fréttabréfi 3. júni, að
væri seldur, er hér enn.
Hann átti að seljast til Noregs.
Einhver öfugsnúður hefur komist
á samningana.
Hætt var að taka á móti fiski
hér eftir mánudagsmorguninn 9.
júni. Verkfall haföi verið boðað að
kvöldi 12. júni. M.s. Trausti
landaði þó hér 10. júni 110.9 tonn-
um. Um 8 tonn af þvi fóru til Flat-
eyrar. Tjaldur og Smári lönduðu
þar lika tvo daga hvor, 10. og 11.
júni.
Föstudaginn 13. júni kl. 16.00
var fundur settur i kaffisal
félagsheimilisins. Fundarefni:
samningarnir. 24 voru mættir.
Ekki höfðu allir atkvæðisrétt.
Samþykkt var með átta at-
kvæðum — ekkert mótatkvæði
kom fram, — að taka tveim hönd-
um þeim kostakjörum, sem ASl
samdi um. Verkfallinu var
þarmeð aflýst.
M.S. Ólafur Friðbertsson er nú
hættur róðrum i bili. Hann hætti 9.
júni. Sigurvon er ein eftir með
linu. Átta trillur, smábátar, eru
nú byrjaðar á miðunum, flestar
verða þær að likindum tiu.
Fjöldinn allur er nú hér af að-
komufólki sem vinnur við eða i
frystihúsinu. Mikill hluti þess er
ungviði. 1 mötuneyti Fiskiðjunnar
eta nú um og yfir 60 manns, ef vel
heimtist.
Eitt hlutafélagið enn, Hlaðsvik
h.f. var stofnað hér 8. mars 1975.
Stofnendur eru Einar ólafsson,
Bragi Ólafsson, Páll Friðberts-
son, Óskar Kristjánsso og
Friöbert Pálsson, Hlutafjárupp-
hæðin er aðeins 20 miljónir.
Fimm miljónir voru greiddar
þegar á stofndegi. Restina má að
likindum sækja siðar.
Slægingarverkfaliið
á Flateyri.
Eins og komið hefur fram i
fréttum vilja sjómenn á linubát-
um á Flateyri fá greiðslu fyrir
það að slægja fiskinn á sjónum.
Ekki hafa þeir farið á sjó siðan i
mailok. Og enn i dag, 15. júni,
þegar þetta er skrifað, situr við
það sama. Linubátasjómenn á
Flateyri fengu slæginguna
greidda i fyrrasumar. Otgerðin
borgaði þeim þá.
Slægingartaxtinn er nú svo-
hljóðandi: Steinbitur kr. 853,-
þorskur kr. 826,- ýsa kr. 1148,—
hvert tonn. Að auki er svo orlof
greitt á þessar upphæðir. Að
sjálfsögðu ætti verðlagsráð
sjávarútvegsins að taka til athug-
unar verðmismun á slægðum og
óslægðum fiski, þannig að sjó-
menn fengju fyrir vinnu sina.
Fiskifélagið breytir jafnan
slægðum fiski i óslægðan þegar
það skýrir frá afla skipa til dag-
blaðanna, þannig að 1000 kg. eru
gerð að 1200 kg. 20% er bætt við
hinn slægða fisk. Samkvæmt
þessu þá er slógið 16.66%. Þetta
getur vel staðist ef reiknað er
með hrognum og lifur t.d. i
vertiðarfiski. En hvað um það.
En til gaman og raunar til fróð-
leiks lika, hvernigkemur þetta út
þegar um linufisk er að ræða:
Verð á slægðum fiski yfir 75sm.
veiddum á linu er kr. 38.00 plús
kr. 1.60 uppbót á kg. Það verður
39.60 hvert kg. Sama fiskstærð
óslægð er nú kr. 31.70 plús 1.60 eða
33.30 kilóið.
1 tonn af óslægðum fiski er þvi á
33.300,00 en sé reiknað með
16.66% rýrnun við slægingu
verður niðurstaðan 833.4 kg. sinn-
um 39.60 eða 33.002.64. Sjómaður-
inn tapar þvi 297.36 kr. á slæging-
unni.
Þá er það millifiskur. Verð á
honum slægðum er kr. 32.00 plús
1.60 eða kr. 33.60, en óslægðum kr.
26.70 plús 1.60 eða 28.30.
Eitt tonn af óslægðum fiski er
þvi á 28.300.00, en 1 tonn minus
16.66% verður 833.4 sinnum 33.60
eða kr. 28.002.24. Hér missir sjó-
maðurinn kr. 297.76 með þvi að
slægja fiskinn.
Siðasta dæmið er steinbiturinn.
Verð á honum slægðum er kr.
21.00 plús uppbót kr. 1.60 eða kr.
22.20 pr. kg. Óslægður er hann á
kr. 18.60 plús uppbót kr. 1.60 eða
20.20. 1 tonn af óslægðum steinbit
er þvi á kr. 20.200.00. 1 tonn
óslægt verður 833.4 kiló slægt
sinnum 22.60 eðá 18.834.84 kr. Sjó-
maðurinn tapar því 1365 krónum
á tonn við að slægja steinbitinn.
Ef það eru rétt hlutföll, sem
notuð hafa verið hér. að þá tel ég
að framanskráður reikningur
minn sé réttur. Alla tið sem ég
man aftur i timann hefur verið
talið, að 1200 pund af fiski úr
sjóróðri séu 1000 pund slægt, 800
pd. hausað og slægt, 720 pd. flatt i
salt, 500pd fullstaðið i salti og að
lokum 320 pd (eitt skippund)
verkað i þurrfisk.
Nú hlýtur að draga að þvi að
hærra fiskverð verði ákveðið og
væri ekki óeðlilegt að þeir sem
telja sig vera að vinna fyrir sjó-
menn — seljendur — tækju til at-
hugunar þetta misræmi milli
slægðs og óslægð fisks. Gisli
Ferðir um hálendið
Ástand fjall-
vega verra
en í fyrra
Samkvæmt almanakinu er nú
komið sumar hér á tslandi, en
sá timi ársins er best fallinn til
aö skoða landið. t tilefni af þvl
snerum við okkur til þriggja
ferðaskrifstofa sem sjá um
ferðir inn á hálendið. Þó þetta
séu nefndar hálendisferðir er
einnig komið við á stöðum sem
lægra liggja. Venjulega er þess-
um ferðum þannig háttað, að
farið er yfir hálendi tslands á
tveim stöðum og komið við á
helstu stöðum sunnanlands og
norðan I leiðinni. Farin er nokk-
urskonar innri-hringleið.
Ástand fjallvega nú er mun
verra en á sama tima i fyrra, og
fæstir fjallveganna orðnir færir.
Samt sem áður búast ferðaskrif-
stofurnar við að geta haldið á-
ætlun á áður auglýstum ferðum,
ef til vill með smávægilegum
breytingum i fyrstu ferðunum.
Guðmundur lagður af
stað i fyrstu ferðina
Hjá Guðmundi Jónassyni
fengum viö þær upplýsingar að
lagt hefði verið af staö I fyrstu
ferðina I gær. Þeir sjá um ferðir
fram i lok ágúst. Þetta eru 11
daga ferðir og þátttakendum
séð fyrir mat og svefnskjóli.
Það eru aðallega útlendingar
sem ferðast með þeim og virð-
astlandsmenn hafa litinn áhuga
á þessum ferðum. Liggja til
þess tvær aðalorsakir, sú fyrri
er bifreiðaeign þeirra sjálfra og
sú seinni aö þeir virðast hafa
meiri áhuga á útlandinu. Verð
er þó lágt ef miðað er við utan-
landsferðir.
Ástand fjallvega er nú mun verra en I fyrra og þvl hætt við að ýmsum reynist erfitt að ná yfir á hinn
bakkann.
Nær fullbókað
hjá Úlfari
Feröaskrifstofa úlfars
Jakobssonar er með skipulagð-
ar hálendisferðir á sumrin. Það
eru tvenns konar ferðir. önnur
heitir Highland Safari þar sem
helstu fjallvegirnir eru farnir.
Hin heitir South East Highland
Safari sem var tekin upp eftir að
hringvegurinn kom.
Fyrstu ferðirnar verða farnar
6. júlí og siðan vikulega fram til
24. ágúst. Þessar ferðir eru nær
eingöngu ætlaðar útlendingum
og er næstum þvi fullbókað í
þær. Innifalið i ferðinni er mat-
ur og svefnpláss.
Yfir 200 ferðir á
vegum Ferðafélagsins
Ferðafélag Islands er einnig
með skipulagðar ferðir innan-
lands á sumrin. Yfir 200 ferðir
eru áætlaðar á þessu sumri.
Lengsta ferðin er 12 dagar en
þær stystu taka hluta úr degi.
Fyrsta ferðin verður 5. júli.
Þátttakendur verða að hafa
með sér mat og tjöld en sums
staðar er hægt að gista I skálum
ferðafélagsins. Þessar ferðir
standa öllum opnar en mest eru
það íslendingar sem notfæra sér
þær.
Allar þessar ferðaskrifstofur
hafa gefið út bæklinga þar sem
skýrt er nákvæmlega frá fyrir-
huguðum ferðum.
Feröaskrifstofurnar neyðast til aö breyta áætlunum