Þjóðviljinn - 25.06.1975, Síða 8

Þjóðviljinn - 25.06.1975, Síða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINNMiðvikudagur 25. júni 1975. Hooley fékk tilboð sænsku félagi og vann markvisst aö því að losna frá keflvíkingum fyrirvaralaust. — Flaug beinustu leiö til Svíþjóöar í gærmorgun Þjóðviljinn hefur fregnað eftir nokkuð áreiðanlegum heimildum að brottför Joe Hooley frá keflvíkingum hafi átt sér mun lengri aðdraganda en menn hafa haldið til þessa. Sannleikurinn mun vera sá að fyrir töluverðum tíma hafi Hooley fengið tilboð frá sænsku félagsliði, —tilboð sem var mun hagstæðara því sem keflvíking- ar buðu. Eftir að það tilboð barst breyttist Hooley mjög. Á æfingum virtist hann vinna markvisstað því að rífa niður, mórailinn var steindrepinn og megn óánægja kom upp meðal leikmanna. Allt virðist þetta hafa verið gert til þess að Hooley fengi lausn frá störfum um leið og hann óskaði eftir því, — uppsagnarfresturinn var ekki með í dæminu, og það var það sem Hooley vildi. Að þvi er heimildamaður okk- ar segir fékk Hooley þetta tilboð fyrir u.þ.b. einum mánuði siðan. Mun Hooley hafa haft orð á þessu við einn eða fleiri forráða- manna keflvikinga. Er skemmst frá þvi að segja að Hooley virtist hafa minni áhuga á keflvikingunum eftir þetta. Þegar siðan atburðirnir eru skoðaðir i ljósi þess, sem hér hefur verið sagt, er ekki fráleitt að ætla að áhugaleysi þjálfar- ans hafi stafað af þvi einu að hann vann markvisst að þvi að verða svo gott sem rekinn i burtu, til þess að hann þyrfti ekki að segja upp með .tilskyld- um fyrirvara. A æfingum tók Hooley upp þá aðferð að halda sig við ein- hverja af fjórum markstöngum vallarins og hreyfa sig ekki það- an á meðan æfingin stóð yfir. Gaf hann þá gjarnan fyrirmæli I gegnum milligöngumann milli hans og leikmanna. Æfingar voru einfaldar, hlaupa e.t.v. 10 hringi kringum völlinn og siðan spilað á litil mörk þvert á völl- inn eða stór mörk til hátiða- brigða. bað mátti litið útaf bera á æf- ingum til þess að enski miljóna- þjálfarinn stykki upp á nef sér og fleygði flautunni frá sér. Hafði hann þá þann háttinn á oftast að reiðast einum leik- manni á hverri æfingu, rifast við hann um stund, fleygja siðan flautunni frá sér og skunda jafn- vel heim til sin með það sama. Áætlun Hooley virðist hafa tekist fullkomlega. Leikmenn voru hundóánægðir og þegar Hooley baðst lausnar frá störf- um var ekki minnst á hinn um- samda uppsagnarfrest. Allir voru trúlega fegnir og Hooley væntanlega þó manna kátastur. Hann hélt ekki af landi brott vegna þess að hann þyldi ekki að sjá keflvikingana i erfiðleik- um. Nei, tilfinningar hans til liðsins virðast ekki hafa verið svo sterkar að hann ætti bágt með sig vegna erfiðleika ÍBK. Hann virðist samkvæmt þessu hafa haft hugann við sig einan og séu heimildir Þjóðviljans réttar hikaði hann ekki við að leggja eitt sterkasta félagslið okkar i rúst til þess eins að þjóna sinum einkahagsmunum. Hooley lagði allt i sölurnar til þess að losna og komast burt i stærri peningafúlgur en þær sem hér lágu á borðum. Ráðning þessa skapmikla Joe Hooley — séu heimildir Þjóðviljans réttar er hætt við að lltilt áhugi verði meðal islendinga á að fá hann til starfa á næstunni. enska þjálfara var mjög um- deild i Keflavik i vor. Margir voru á móti þessum ráðahag en stuðningsmenn Hooley höfðu þó sitt i gegn og fengu Hooley til starfa gegn riflegri þóknun. Ekki er nema rúm vika siðan Hooley var útveguð fyrsta flokks ókeypis ibúð i Keflavik en hann kunni litt að meta greið- viknina og lét sig hverfa af vett- vangi. Vissulega kemur þetta sér illa fyrir keflviska liðið en þó verður vart sagt að eftirsjá sé mikil að Hooley. Það var trú- lega öllum fyrir bestu að hann fór og vonandi verður ekki á- stæða til þess að ráða svona menn til starfa á islenskri erund i framtiðinni. — gsp Jón byrjar að lýsa um næstu helgi útvarpið byrjar 'ýsingar á 1. deildarleikjunum i knatt- spyrnu um næstu helgi og sagðist Jón Ásgeirsson i- þróttafréttamaður útvarpsins ætla þá að fara uppá Akranes og lýsa leik toppliðanna i 1. deild, ÍA og Vals, en leikurinn hefst á Akranesi kl. 14 (ath. breyttan tima) og byrjar lýs- ing Jóns kl. 15. Jón sagði að lýst yrði frá 8 leikjum alls, þannig að lýsing fellur ekki niður nema úr einni umferð það sem eftir er móts- ins. Þá er ákveðið að lýst verði frá undanúrslita og úrsiitaieik bikarkeppninnar i haust. Einnig cr ákveðið gð Jón fari utan með landsliðinu i sumar og verður lýst frá öllum lands- leikjum sumarsins. —S.dór. Siguröur endur kjörinn formaður HSÍ Sigurður Jónsson var endur- kjörinn formaður HSt á ársþingi sambandsins sem haldið var um siðustu helgi. Stjórn sambandsins var endurkjörin að öðru leyti en þvi, að Jón Erlendsson og Stefán Agústsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs og voru þeir Birgir Björnsson og Júlíus Haf- stein kjörnir i þeirra stað. betta þing HSI var mjög rólegt og fór hið besta fram gagnstætt þvi sem margir áttu von á. Helstu mál þingsins voru breytingar á aldursflokkum yngri flokkanna, þannig að þeir eru færðir nær ald- ursskiptingunni i skólunum og tveir nýir menn komu inní stjórnina - hagnaður HSÍ á síðasta ári á fjórðu miljón svo nokkrar breytingar á dóm- aramálunum. Fjárhagsleg útkoma HSI á sið- asta ári varð mjög góð og skilar sambandið hagnaði sem nemur á fjórðu miljón króna eftir að hafa greitt upp 2ja miljón kr. skuld frá árinu á undan. Jón Diðriksson nálgast íslandsmetið í 1500 m. Jón Diðriksson, hinn efnilegi langhlaupari sem dvalið hefur við æfingar i Englandi um nokkurt skeið hefur tekið miklum fram- förum að undanförnu og á iþrótta- móti i Purham i Englandi sem fram fór um síðustu helgi hljóp hann 1500 m á 3:57:6 min. sem er aðeins 10 sekúndum frá islands- meti Svayars Markússonar. Ekki er ótrúlegt að Jón nái að slá met Svavars i sumar ef hann heldur á- fram að bæta árangur sinn eins og hann hcfur gert i vor og sumar. Þeir Sigfús Jónsson og Agúst Ásgeirsson tóku einnig þátt i þessu hlaupi en voru nokkuð langt á eftir Jóni. Sigfús hljóp á 4:03,4 min. en Ágúst á 4:04,3 min. Sveitaglíma GLÍ: KR-ingar sigruðu Úrslitakeppni sveitaglimu ís- lands fór fram að Laugum i Þing- eyjarsýslu um siðustu helgi og áttust þar við sveitir KR og HSÞ. Og eins og undanfarin fjögur ár báru KR-ingar sigur úr býtum, hlutu 13,5 vinninga en þingeying- arnir 11,5. Einhverra hluta vegna virðast aðeins KR og HSÞ hafa lagt ein- hverja áherslu á sveitarglimuna siðustu árin, en sveitagliman fer vanalega fram i júni, nokkrum vikum eftir að glimumótunum lykur. Ef miðað er við glimumót sið- ustu ára fer það ekkert á milli mála að Vikverji á bestu sveitina, en vikverjarnir virðast ekki leggja neina áherslu á þetta mót, þeir eru að visu með en áhuginn virðist enginn. Hinsvegar er auðvitað komið kapp i KR-inga, þarsem þeir hafa unnið mótið 5 sinnum i röð, og munu þeir áreiðanlega leggja sig alla fram um að missa ekki af sigrinum i bráð, en þeir eiga m jög harðsnúna sveit glimumanna. I þessari úrslitakeppni bar það til tiðinda að Ingi Ingvason hlaut 5 vinninga, lagði alla KR-ingana en þeirsem með honum voru i HSÞ- sveitinni stóðu sig ekki eins vel og þvi fór sem fór. Ingi Ingvason

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.