Þjóðviljinn - 25.06.1975, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 25.06.1975, Qupperneq 9
Miövikudagur 25. jiini 1975. ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 9 Rœtt við tvo ráðstefnugesti af Kvennaársfundinum Rannveig Jónsdóttir og Aðalheiöur Bjarnfreösdóttir: „Þrátt fyrir ólik sjónarmiö tókst ráö- stefnugestum aö ná saman”. Konur eiga margt sameiginlegt Meðal annars að vera láglaunahópur Kvennaársráðstefnan, sem haldin var að Hótel Loftleiðum i siðustu viku, þótti takast mjög vel. Þjóðviljinn fékk þær Aðal- heiði Bjarnfreðsdóttur, Sóknar- starfsstúlku og Rannveigu Jónsdóttur Ur Rauösokkahreyf- ingunni til að ræða við okkur um ráöstefnuna. Ráðstefnugestir voru á þriðja hundrað talsins, en karlmenn voru aðeins sex. Haldin voru framsöguerindi, unnið í starfs- hópum og ályktanir ræddar og samþykktar. Félögin sem stóðu að ráð- stefnunni voru sex talsins, óllk- innbyrðis, sum hafa aldrei verið orðuð við réttindabaráttu af neinu tagi og okkur lék for- vitni á að vita, hvernig róttækir rauðsokkargátu lynt á fundum við konur úr ihaldssömum fé- lögum. Aðalheiður svaraði fyrst, en hún hélt framsöguerindi á ráð- stefnunni sem nefndist „Verka- konur fyrr og nú”. Aðalheiður: Ég vil nú fyrst taka fram, að ég tel að ráðstefn- an hafi fyrst og fremst tekist svona vel vegna þess hve vel hún var skipulögð. Undirbún- ingsstarfið var vel unnið. Og svo var hitt, að ég held að við höfum almennt gert okkur grein fyrir þvi, konurnar, að sjónarmið okkar voru ólik. Við vildum hinsvegar undantekningarlaust láta ráðstefnuna takast vel. Ég held, að þrátt fyrir ólik sjónar- mið hafi okkur tekist að ná sam- an. Rannveig: Já, ég held lika að samkoma fólks úr svo mörgum og ólikum þjóðfélagshópum hljóti að auka skilning manna á meðal. Konur sem heild, eru láglaunahópur. Það er gagnlegt að sem flestar konur geri sér það ljóst. Aðstaða útivinnandi mæðra er alls staðar hin sama að þvi leyti þær vinna tvöfaldan vinnudag. Aðalheiður: Það er nefnilega ekki af áhugaleysi sem konur taka litinn þátt I félagsmálum, heldur þetta tvöfalda vinnuálag. Rannveig: Mér fannst at- hyglisvert hve þátttakan I störf- um ráðstefnunnar vár góð og al- menn. Ég held að hver einasta kona sem ráðstefnuna sat, hafi starfað i starfshóp. Það var rikjandi mikill áhugi á málefn- um. Aðalheiður: Ég vil leggja á- herslu á, að ég held að starfs- hópar gætu hleypt nýju lifi i starfsemi verkalýðsfélaganna. Mér finnst að verkalýðsforystan sé orðin svo einangruð — það er jafnvel svo, að maður hefur það á tilfinningunni að hún óttist þessa tilraun varðandi félags- starfið. — Hvernig valdist fólk á þessa ráðstefnu? Rannveig: Hún var öllum op- in. Aðildarfélögin sem að henni stóbu, sendu félögum sinum bréf. Einnig var fjölmörgum verkalýðsfélögunum sent boð um þátttöku og svo var ráð- stefnan auglýst i blöðum. Urðuð þið fyrir vonbrigðum með þátttöku karla? Rannveig: Já. Það kom t.d. enginn karlmaður úr verkalýðs- hreyfingunni. Þeir sex sem komu voru allir menntamann, við hefðum gjarna viljað sjá þama fleiri karla. Nú hefur komið fram, að þið urðuð fyrir vonbrigðum með undirtektir stjórnvalda varö- andi ráðstefnuna? Rannveig: Já, okkur finnst að stjórnvöld hafi sýnt þessu held- ur litinn áhuga. Við sóttum um 700 þúsund króna fjárstyrk til að halda ráðstefnuna, en fengum 350 þúsund, sem hrekkur hvergi nærri til að greiða kostnað. Samt vann fjöldi sjálfboðaliða mikið starf við undirbúning ráð- stefnunnar. Hver verður nú eftirleikur ráðstefnunnar — þarf ekki að færa umræðuefni hennar inn I verkalýðsfélögin? Aðalheiður: Auðvitað. Það þarf að gera það, en ég held að verkalýðsforystan hafi siðustu árin komist i þá aðstöðu, að hún liggur undir værðarvoð og þar hjalar hver við annan. Forystan er sambandslaus við félagana. Ég tel að nú þurfi nýja vakn- ingu, þar sem hinn óbreytti fé- lagsmaður fái möguleika á meiri áhrifum á samningagerð. Nú era samningár gerðir þann- ig, að ýmiss konar sérfræðingar semja þá, sérfræðingar sem standa utan ASl. Þess' vegna verða samningarnir svo flóknir, að það er erfitt fyrir óbreytt verkafólk að skilja um hvað er verið að semja. En verður fólk ekki að koma á fundi, ef það vill hafa áhrif? Aðalheiður: Þeir eru nú ekki skemmtilegir fundirnir. Og svo stendur hið mikla vinnuálag, sá þrældómur sem verkafólkið verður að gangast undir til að sjá sér farborða i vegi fyrir öllu félagsstarfi. Fólkið hefur ein- faldlega ekki þrek til að sinna félagsstörfum. Hvað tekur nú við eftir ráð- stefnuna? Rannveig: Við hvetjum konur til að láta nú ekki staðar numið heldur halda áfram að vinna saman. Aðalheiður: Já, ráðstefnan sýndi að konur eiga margt sam- eiginlegt — það var enn eitt sem athygli vakti, hve litið bar á kynslóðabilinu. Ráðstefnuna sóttu allir aldursflokkar, yngri konur reyndar fleiri, en ekkert bar á kynslóðabilinu. —GG Frá Kvennaársfundinum m i »rBp Metaðsókn að Þj óðleikhúsinu Leikárinu lauk á ísafirði Leikári Þjóðleikhússins lauk núna um helgina á isafiröi meö sýningum á leikriti Jökuls Jakobssonar Herbergi 213. Það hófst einnig á isafiröi 14. septem- ber ineö sýningum á Brúðuheim- ili Ibsens. Sýningar hófust i Reykjavik sama dag, en lauk 15. júní með siðustu sýningu á Þjóð- níðingi. Sýningar urðu samtals 390 en áhorfendafjöldi 119.363. Leikferöir innan- lands og utan Sýningar skiptast sem hér seg- ir: Sýningar á stóra sviðinu voru samtals 219, á litla sviðinu i Leik- húskjallaranum 76, aðrar sýning- ar i Reykjavik og nágrenni 30, sýningar annars staðar innan- lands 26 og sýningar erlendis 39. Leikhúsið hélt upp á 25 ára af- mæli sitt i vor með margvislegum hætti, en annars hafa leikferðir sett svip sinn á þetta leikár öðr- um fremur. I fyrsta lagi var ó- venjumikið um leikferðir innan- lands, enda leikhúsið leitast við að mæta óskum landsbyggðar- innar i þeim efnum. 1 öðru lagi voru farnar tvær leikferðir til út- landa á árinu með Inúk. Hin fyrri var i febrúar um öll Norðurlönd, hin siðari i mai og júni, fyrst á al- til að sinna eftirspurn. Annars var nokkuð jöfn aðsókn að flest- um leikritunum. Tvö verkefni stóra sviðsins verða tekin upp aft- ur i haust, Silfurtúnglið og Þjóð- niðingur, sem bæði komu upp seint á leikárinu, en voru sýnd við góða aðsókn. Þjóðniðingur var sýndur 8 sinnumi vor, en Silfur- túnglið 13 sinnum. Tala áhorf- enda hefur aðeins mjög sjaldan áður komist upp fyrir eitt hundr- að þúsund á einu leikári. Þó voru 102.613 áhorfendur leikárið 1950—51, rúmlega 100 þúsund næsta leikár þar á eftir og 109.605 leikhúsgestir 1952—3 og hefur það verið met til þessa. 1 fyrra var fjöldi leikhúsgesta tæplega 105 þúsund, en til samanburðar má geta þess, að leikárið 1969—70 voru leikhúsgestir tæplega 75 þúsundir, en veturinn 1966—7 komust þeir niður i rúmlega 60 þúsund. Starfsmenn á 3. hundrað Á 25 ára afmælisdegi leikhúss- ins var stofnað Starfsmannafélag leikhússins og eiga þátt að þvi fé- lagi hátt á annað hundrað manns, sem fasta vinnu hafa i leikhúsinu, leikarar, dansarar, tæknimenn, Myndin er úr „Þjóönföingi” Ibsens, sem tekinn veröur aftur tii sýningar I Þjóöleikhúsinu I haust. þjóðaleiklistarhátiðina i Nancy, og siðan um Þýskaland, Frakk- land og Sviss. Verkefni á leikárinu Samtals voru verkefnin á stóra sviðinu 12, þar af voru 4 tekin upp frá fyrra leikári, Þrymskviða, Klukkustrengir, Ég vil auðga mitt land og ballettkvöld. Ný verkefni voru þessi: Hvað varstu að gera i nótt? Kardemommu- bærinn, Kaupmaður i Feneyjum, Hvernig er heilsan? Coppelia, Silfurtúnglið og Þjóðniðingur. Auk þess var Inúk sýndur tviveg- is á stóra sviðinu og Afmælis- syrpa, brot úr verkefnum liðinna ára sett saman i tilefni 25 ára af- mælisins, nokkrum sinnum. Nemendasýning listdansskólans og tslenska dansflokksins var tvi- vegis. A litla sviðinu voru sýningar á Herbergi 213 og Lúkasi, svo og Litlu flugunni og Ertu nú ánægð, kerling? sem tekið var upp frá fyrra leikári. Þá var og á afmæl- inu dagskrá i kjallaranum, sem nefndist Ung skáld og æskuljóð, svo og Kvöldstund með danska leikaranum Ebbe Rode. ínúk var annars sýnt i skólum og viðar, en Brúðuheimili i leikför. Þannig voru samtals 21 verkefni, sem á- horfendum gafst kostur á að sjá á • þessu leikári. sem mun vera hæsta sambærileg tala frá upphafi leikhússins. Metaösókn Aðsókn var i heild mjög góð. Sýningar urðu flestar á Karde- mommubæ eða samtals 58 og fjöldi áhorfenda 33.340. Sýningum var hætt fyrir fullu húsi og verða nokkrar sýningar i viðbót i haust fólk við skrifstofu og önnur þjón- ustustörf við leikhúsgesti, svo og Þjóðleikhúskórinn. Annars eru að meðaltali hátt á þriðja hundrað manns á launalista i leikhúsinu á mánuði hverjum, auk ofantal- inna, t.d. söngvarar og hljóm- listamenn, aukaleikarar, að- stoðarfólk að ógleymdum höf- undunum. 11 leikstjórar störf- uðu á vegum hússins á leikárinu og einn dansasmiður, en leik- myndateiknarar voru 8. A A, B og D-samningi voru 29 leikarar, en á C-samningi (ráðnir i einstök hlut- verk) 34.1 islenska dansflokknum eru nú 7 dansarar. Næstu verkefni Æfingar standa nú yfir á þrem- ur verkefnum fyrir haustið. A stóra sviðinu verður fyrst frum- sýnt hið fræa leikrit Tennesse Williams, A Streetcar Named Desire, sem ekki hefur verið gefið endanlegt heiti á islensku. örnólf- ur Árnason þýddi leikinn, en leik- stjóri verður Gisli Alfreðsson og leikmynd gerir Birgir Engilberts. I aðalhlutverkunum: Þóra Frið- riksdóttir, Erlingur Gislason, Margrét Guðmundsdóttir og Ró- bert Arnfinnsson. Þá standa yfir æfingar á Carmen, eins og áður hefur komið fram. Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson, þýðingin er eftir Þorstein Valdimarsson, leik- myndir teiknar Baltasar og hljómsveitarstjóri verður Bohdan Wodiczko. Sigriður E. Magnús- dóttir syngur Carmen, Magnús Jónsson Don José og Ingveldur Hjaltested Michaelu. Frumsýn- ing er áætluð 25. október. Þá standa yfir æfingar i leikhúskjall- aranum á óperugamninu Ringulreið eftir Flosa Ólafsson Frh. á bls. 10.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.