Þjóðviljinn - 25.06.1975, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJóÐVILJINNMiövikudagur 25. júni 1975.
Alþýðubandalagið
Sumarferð Alþýðubandalagsins á
Vestfjörðum 28. og 29. júni 1975
Farinn verður vestfirski hringvegurinn.
Isafjörður — Bildudalur — Patreksfjörður
— Reykhólasveit — um Djúpveg til Isa-
fjarðar og þaðan allt til Patreksfjarðar.
Farið verður frá Isafirði kl. 9 að morgni
laugardaginn 28. júni. Gist verður i Reyk-
hólasveit. Þátttaka tilkynnist fyrir 24. júni
i sima 3385 ísafirði, þar sem veittar eru
nánari upplýsingar.
Fargjald 3000—3.500 kr.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
Vestfjörðum
Alþýðubandalagið heldur stuðn-
ingsmannafund i Egilsbúð (fund-
arsal) miðvikudagskvöld 25. júni
kl. 20.30. Rætt verður um stjórn-
málaviðhorfið. Framsögu hafa al-
þingismennirnir Helgi Seljan og
Lúðvik Jósepsson. Allt stuðnings-
fólk velkomið.
Stjórnin.
Frá aðalfundi
Samvinnutrygginga
Aöalfundur Samvinnutrygg-
inga, Liftryggingafélagsins And-
vöku og Endurtryggingafélags
Samvinnutrygginga h.f. var hald-
inn aö Hótel Sögu föstudaginn 13.
júní. Fundinn sátu 18 fulltrúar
viðs vegar af landinu auk stjórnar
félaganna og framkvæmdar-
stjóra.
Erlendur Einarsson, forstjóri,
flutti skýrslu stjórnarinnar, en
Hallgrimur Sigurðsson, fram-
kvæmdarstjóri, skýrði reikninga
Samvinnutrygginga og Jón Rafn
Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri, reikninga Liftryggingafé-
lagsins Andvöku og Endurtrygg-
ingafélags Samvinnutrygginga
h.f. Iögjaldatekjur allra félag-
anna námu samtals á árinu 1974
kr. 1.230.1 milj. á móti kr. 894.9
milj. árið 1973, og höfðu aukist um
kr. 335.2 milj. eða rösk 37%.
Heildartjón Samvinnutrygginga
árið 1974, greidd og áætluð
ógreidd, námu samtals kr. 824.0
milj. og varð tjónaprósentan
90,08% á móti 76,54% árið 1973.
Rekstrarafkoma félagsins árið
1973reyndist 48 milj. kr. lakari en
rekstraruppgjör sýndi. Skekkjan
stafaði af vanmati á ógreiddum
tjónum.
Raunveruleg rekstrarafkoma
ársins 1974 er halli að upphæð kr.
33,8 milj., en þar sem töp beggja
áranna koma á sama árinu, 1974,
Þjóðleikhúsið
Framhald af bls. 9.
(texti) og Magnús Ingimarsson
(tónlist). Flosi er leikstjóri og
hefur sér til aðstoðar Sigriði Þor-
valdsdóttur; Björn Björnsson
teiknar leikmyndina og Elin
Edda Árnadóttir stendur fyrir
dansatriðum. t aðalhlutverkun-
um: Sigriður Þorvaldsdóttir,
Árni Tryggvason, Guðrún
Stephensen, Randver Þorláksson
og Ingunn Jensdóttir.
Loks standa svo yfir æfingar á
dagskrá, sem hópur frá Þjóðleik-
húsinu mun flytja á 100 ára af-
mælishátið Islendingabyggða i
Kanada i sumar. 1 dagskránni
verður brugðið upp myndum úr
sögu tslands, einkum eins og hún
birtist i þeim islensku leikverk-
um, sem vinsælust hafa orðið.
Gunnar Eyjólfsson er leikstjóri
þessarar sýningar, sem tekur um
2 klukkustundir i flutningi, en
flytjendur eru 13 leikarar og
Þjóðleikhúskórinn.
(Fréttatilkynning frá Þjóðleik-
húsinu.)
auk áætlaðra skatta, sem álagðir
verða á árinu 1975, reyndist
rekstrarhalli alls kr. 93.6 milj.
Rekstrarhallinn stafar fyrst og
fremst af þátttöku félagsins i
fiskiskipa og ábyrgðarsamsteyp-
um, en þar hafa tjón félagsins
umfram iðgjöld orðið kr. 85.7
milj. á siðastliðnum tveim árum.
Haíli á bifreiðatryggingum varð
kr. 30.9 milj.
Eigin sjóðir Samvinnutrygg-
inga að viðbættum iðgjalda- og
tjónasjóðum námu i árslok 1974
kr. 679.3 milj. á móti kr. 545.6
milj. árið áður og höfðu þvi aukist
um kr. 133.7 milj. á árinu.
Fjöldi mála voru rædd og af-
greidd á fundinum. Meðal annars
kom sú hugmynd fram að koma á
fót starfi umboðsmanna viö-
skiptavina samvinnutryggingafé-
laganna að sænskri fyrirmynd.
Starf hans felst i þvi að gæta
hagsmuna viðskiptavinanna
gagnvart samvinnutryggingafé-
lögunum.
í stjórn félaganna voru endur-
kjörnir þeir Jakob Frimannsson,
Akureyri, Karvel ögmundsson,
Ytri-Njarðvik. Aðrir i stjórn eru
Erlendur Einarsson, forstjóri,
Ingólfur ólafsson, Kópavogi og
Ragnar Guðleifsson Keflavik.
Þrátt fyrir fyrrgreindan rekstr-
arhalla ársins 1974 gætti bjartsýni
meðal fundarmanna um rekstur-
inn á árinu 1975.
Skrifstofu Samvinnutrygginga
og Liftryggingafélagsins And-
vöku eru til húsa að Ármúla 3,
Reykjavik en umboðsskrifstofur
eru reknar um allt land.
Prentaraverkfall
í Frakklandi
Paris 24/6 reuter — Landssamtök
prentara i Frakklandi sem eru
deild i verkalýðssambandinu
CGT sem iýtur forystu
kommúnista boðuðu sólarhrings
verkfall á morgun, miðvikudag.
Er þetta þriðja verkfallið á þeim
sex vikum sem liðnar eru siðan
deilur hófust milli prentara og út-
gefenda biaðsins Parisien Libere.
Þá fóru prentarar blaðsins i verk-
fall og yfirtóku prentsmiðjuna til
að mótmæla áætlunum útgefand-
ans, Emilien Amaury, um að
fækka starfsmönnum og gera
aðrar hagræðingar i rekstri
blaðsins sem þrengdu kost prent-
ara.
ÍSLENZKUR TEXTI
lll« ULLMAWW,
TECHNICOLOR
C0LUM8IA PICTURES presents FWE.JD\N A KURT
Sfmi 18936
Jóhanna páfi
Viðfræg og vel leikin ný ame-
risk úrvalskvikmynd i litum
og Cinema Scope.
Leikstjóri: Michael Anderson.
Með úrvalsleikurunum: Liv
Ullman, Franco Nero, Maxi-
milian Schell, Trevor Howard.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Simi 41985
The Godfather
Hin heimsfræga mynd með
Marlon Brando og Al Pacino.
Sýnd kl. lo.aðeins örfáa daga.
Síðasti dalurinn
með Michael Caine og Omar
Shariff.
Isl. texti.
Sýnd kl. 8.
Bönnuð innan 16 ára.
Mafíuforinginn
Haustið 1971 átti Don Angelo
DiMorra ástarævintýri við
fallega stúlku; það kom af
stað blóðugustu átökum og
morðum i sögu bandariskra
sakamála.
Leikstjóri: Richard Fleischer.
Aðalhlutverk: Anthony Quinn,
Frederic Forrest, Robert
Forster.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Flótti frá lífinu
Running scared
Magnþrungin og spennandi,
ensk litmynd. Leikstjóri:
David Hemmings.
tSLENSKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
Sfðasta sinn.
Atvinna óskast
17 ára piltur óskar eftir að komast á
samning i húsasmiði. Er búinn með tvo
bekki i iðnskóla. Uppl. i sima 19638.
Vinningsnúmer í happdrætti
Krabbameinsfélagsins
Dregið var þann 17. júni 1975.
Dodge bifreið kom á miða nr. 35552,
Cortina bifreið kom á miða nr. 83877.
Vinninga má vitja i skrifstofu félagsins að
Suðurgötu 22-24.
Krabbameinsfélagið.
Blikkiðjan
Ásgarði 7,
Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
Sumarferð
Alþýðubandalagsins
Allar frekari upplýsingar hjá
Alþýðubandalaginu,
Grettisgötu 3, sími 28655
LEIKFMIAG
REYKJAVÍKUR
Leikvika landsbyggðarinnar
Leikfélag Dalvikur
HART í BAK
eftir Jökul Jakobsson
Sýning i kvöld kl. 20.30
Fimmtudag kl. 20.30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi: 16620.
Sfmi 11544
Gordon og
eiturlyf jahringurinn
20ltl CENTURY-FOX Presenls A RALOMAR PICTURE
RAUL WINFIELD
in • .*
Æsispennandi og viðburða-
hröð ný bandarisk sakamála-
mynd i litum.
Leikstjóri: Ossie Davis.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Moto-Cross
On any sunday
MOTO
-HVBRS0NDAG
MALCOLM SMITH
MERT UWWIU
STEVE McQUEEN
DRBNSPÆNDENDE
0G NERVEPIRRENDE
ARTFILM!
Moto-Cross er bandarisk
heimildakvikmynd um kapp-
akstra á vélhjólum. 1 þessari
kvikmynd koma fram ýmsar
frægar vélhjólahetjur eins og'
Malcolm Smith, Mert Lawwill
og siðast en ekki sist hinn
frægi kvikmyndaleikari Steve
McQueen sem er mikill
áhugamaður um vélhjólaakst-
ur.
Danskur texti.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slðasti sýningardagur.
Slmi 16444
ÍTRUCKTURNERI
ISAACHAYES
Hörkuspennandi ný bandarisk
litmynd, um miskunnarlaus
átök i undirheimum stór-
borgarinnar, þar sem engu er
hlift. Aðalhlutverkið leikur
hinn kraftalegi og vinsæli
lagasmiður Isaac Hayes.
ISLENZKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.