Þjóðviljinn - 06.07.1975, Síða 21
Sunnudagur 6. júli 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
Hvaö á sá skilið
sem selur vatns-
blandað kaffi?
Það er almannarómur að
kaffi sé oft á tíðum ekki
sem bestá veitingastöðum,
en yfirleitt taka yfirvöldin
þóekki svo duglega í taum-
ana eins og gerðist hér um
daginn í smábæ í Banda-
ríkjunum.
Fógeti keypti bolla af
kaffi, sem honum smakk-
aðist ekki, af götusala í
Nauppauge, New York-
fylki, og lét hann hand-
járna manninn og færa á
skrifstof u sína svo að hann
gæti komið kvörtunum á
framfæri, að því er götu-
salinn hermir. ,,Þetta var
afskaplega niðurlægjandi,
mér fannst ég vera saka-
maður", sagði Thomas
Zarcone 35 ára. Zarcone
hefur nú kært atvikið til
mannréttindanefndar bæj-
arins.
Heimildir á bæjarskrifstofun-
um segja a5 kæra Zarcones
styðjist viö opinbert afrit úr
gerðabók þar sem William Perry
fógeti skipar aðstoðarlögreglu-
stjóra bæjarins að losa um hand-
járn Zarcones, siðan ásaki fóget-
inn götusalann um að hann vatns-
blandi kaffið og hótar honum þvi
að söluleyfið verði tekið af hon-
um.
„Ég get alls ekki farið að jagast
við götusala á torgum úti”, sagir
Perry fógeti, ,,Og ég get ekki séð
að ég hafi misbeitt valdi”. Að
öðru leyti vildi hann ekki ræða
kæru Zarcones.
Zarcone ber að hann hafi selt
James Windsor, aðstoðarlög-
reglustjóra, einn eða tvo bolla af
kaffi. Stundarfjórðungi siðar hafi
aðstoðarlögreglustjórinn komið
aftur að kaffivagninum og nú með
þrjá borgaralega klædda menn
með sér.
„Hann^ tjáði mér að Perry
fógeti kveddi mig á sinn fund út af
kaffinu, það hefði verið svo of-
boðslegt”, heldur Zarcone áfram
i kæruskjali sinu. „Ég svaraði og
sagði að hann hlyti að vera að
grinast”.
„Windsor aðstoðarlögreglu-
stjóri lýsti þvi yfir að fógetinn
ætlaðist til þess að hann hand-
járnaði mig. Ég sagði aðstoðar-
lögreglustjóranum að það væri
óþarfi þvi að ég mundi ekki sýna
neinn mótþróa. Hann sagði að það
væri sama, ég skyldi handjárnað-
ur”.
Zarcone skýrir svo frá að hann
hafi verið leiddur inn á skrifstofu
Perrys þar sem hann mátti hand-
járnaður þola hörðustu ávitur út
af kaffinu.
Zarcone segir að „Perry fógeti
hafi öskrað á sig og fullyrt að ég
spillti kaffinu með vatnssulli.
Hann hótaði þvi að ég mundi
missa götusöluleyfið fyrir sitt til-
stilli”.
Intern. Her. Tribune
Þau mál
sem
eftir eru
Þegar dómur hefur nú gengið
fyrir héraðsdómi i tveimur VL-
málunum eru 12 málanna eftir.
Er gert ráð fyrir að niðurstaða
dómanna tveggja sé visbending
um það sem verður I hinum mál-
unum 12. Má búast við að dómur
verði uppkveðinn I þessum mál-
um á næsta vetri. Hafa borgar-
dómarar skipt máiunum með sér,
en þau eru gegn eftirtöldum aðil-
um:
Helga Sæmundssyni fyrir ræðu
er hann flutti á fundi i Háskóla-
biói og birt var i dagblöðum.
Garðari Viborg fyrir skrif i
„Nýtt land”.
Sigurði A. Magnússyni fyrir
skrif i Þjóðviljann.
Einari Braga Sigurðssyni (tvö'
mál) fyrir skrif i Þjóðviljann.
Hjalta Kristgeirssyni blaða-
manni fyrir skrif i Þjóðviljann.
Degi Þorleifssyni blaðamanni
fyrir skrif i Þjóðviljann.
Svavari Gestssyni, ritstjóra (3
mál) fyrir skrif i Þjóðviljann.
Gesti Guðmundssyni háskóla-
nema fyrir skrif i Stúdentablaðið.
Rúnari Armanni Arthúrssyni
fyrir skrif i Stúdentablaðiö.
Heyrnarhjálp
úti á landi
Árleg ferð félagsins Heyrnar-
hjálpar til aðstoðar heyrnar-
daufu fólki er i júli og farið
um norður- og austurland að
þessu sinni.
Byrjaðvar á Hvammstanga
2. júli og endað verður á
Höfn i Hornafirði. Aðrir staðir,
sem viðkoma verður höfð, eru
Blönduós, Sauðárkrókur, Siglu-
fjörður, Ólafsfjörður, Dalvik,
Akureyri, Húsavik, Vopna-
fjörður, Egilsstaðir, Seyðis-
fjörður, Neskaupstaður, Eski-
fjörður, Fáskrúðsfjörður og
Djúpivogur.
Einar Sindrason læknir við
Heyrnarmiðstöðina i Árósum og
starfsfólk félagsins annast
þessa þjónustu.
Leitað hefur verið til héraðs-
lækna og hafa þeir flestir tekið
að sér að rita niður viðtals-
beiðnir.
Vetnisbíll
Moskva (APN) t Moskvu eru nú
gerðar tilraunir með bifreið,
sem gengur fyrir vetni. Tilraun-
in er liður i áætlun um þróun
nýrra brennsluefna, sem menga
ekki andrúmsloftið.
ÖKUKENNSLA
Æfingatimar, ökuskólt og
prófgögn. Kenni á Volgu
1 9 7 3. Vilhjálmur
Sigurjónsson, simi 40728
Nú eru allar Sunnuferöir dagflug — flogió til nær allra staba, meö stcrstu og glæsilegustu Boeing-þotum
tslendinga. Pægindi, stundvisi og þjónusta, sem fólk kann aó meta.
Fjögurra hreyfla úthafsþotu, meö 7600 km fiugþol. (Reykjavfk—Kaupmannahöfn 2150 km). Sannkölluö
luxus sæti, og setustofa um borö. Góöar veitingar og fjölbreytt tollfrjáls verzlun I háloftunum. Dagflug,
brottför frá Keflavik kl. 10 aö morgni. Heimkomutimar frá 4—7.30 siödegis. Mallorka dagflug alla
sunnudaga, COSTA DEL SOL dagflug alla laugardaga, KAUPMANNAHÖFN dagflug alla fimmtudaga,
ÍTALtA dagflug á föstudögum, PORTtJGAL dagflug á laugardögum.
Þjónusta
Auk flugsins veitir Sunna Isienzkum farþegum sfnum erlendis þjónustu, sem engar fslenzkar feröaskrif-
stofur veita fullkomin skrifstofuþjónusta, á eigin skrifstofu Sunnu, f Kaupmannahöfn, á Mallorka og
Costa del Sol. Og aö gefnu tilefni skal þaö tekiö fram, aö starfsfólk og skrifstofur Sunnu á þessum stöö-
um, eru aöeins ætluö sem forréttinda þjónusta fyrir alla Sunnufarþega, þó öörum tslendingum á þessum
slóðum, sé heimilt aö leita þar hjálpar og skjóls f neyðartilfellum. Hjálpsamir Islenzkir fararstjórar. —
öryggi, þægindi og ánægja farþega okkar, er okkar keppikefli, og okkar bezta auglýsing. Þess vegna
velja þúsundir ánægöir viöskiptavinir, Sunnuferöir ár eftir ár
og einnig öll stærstu launþegasamtök landsins.
sunna
travel
ferðaskrifstofa lækjargötu símar 12070 16400
Skíðasamþand íslands
Flugfélag íslands og Loftleióir
gangast fyrir hópferð á vetrarolympíuleikana í Innsbruck
4.—15. febrúar 1976. Væntanlegir þátttakendur gefi sig fram á
söluskrifstofu Flugleiða í Lækjargötu 2.