Þjóðviljinn - 19.07.1975, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.07.1975, Blaðsíða 1
Laugardagur 19. júlí 1975 — 40. árg. —160. tbl. S j álf stæðisf lokkurinn fær yfir 10 miljónir! Af þeim 32 milj. kr., sem stundum eru kallaðar — vegna misskiln- ings — rlkisstyrkur, fær Sjálfstæðisflokkurinn i sinn hlut liðlega 10 milj. kr. Þar af renna um 7,3 milj. kr. til dagblaða flokksins, Morg- unblaðsins og VIsis, vegna kaupa rikisins á ákveðnu magni þessara dagblaða eins og annarra blaða. Um þetta mál er fjallað I þættinum „Klippt og skorið” á 4. síðu Þjóðviljans I dag. Vörugjaldið er olía á verðbólgubálið Kauphækkunin frá í júní að hverfa 10% hœkkun á vísitölu framfœrslukostnaðar fram til 1. ágúst. Kauphœkkunin við samninga var 10 - 12% Sú svivirðilega aðför að kjörum vörugjaldsins hefur vakið mikla launafólks sem felst i álagningu reiði meðal almennings. Er bent Landskemmdir i Þingeyjarsýslu: Margur verð- ur illa settur með haustbeit sagði Starri í Garði í viðtali við Þjóðviljann um þessar einkennilegu landskemmdir — Það er dapurlegt að horfa á heiðarnar hér vestan við Mý- vatnssveit, milli Bárðardals og Mývatnssvcitar. Þær eru svartar yfir að lita á stóru svæði, sagði Starri I Garði er við ræddum við hann i gær. Þetta nær einnig norður fyrir Mývatnsheiðina. Þarna er mjög stórt svæði af grónu landi, þar sem skiptast á ásar og mýrar. Asarnir eru allir vaxnir kvisti, fjalldrapa og fleiri viðartegundum, og þessi sýki, sem þarna hefur komið I gróður- inn, virðist vera I viðnum. — Hér hafa verið sérfræðingar að rannsaka þetta og gerðu þarna frumrannsókn, sem sjálfsagt verður unnið frekar úr, og það sem ég hef frétt um orsökina er að þarna muni vera maðkur. En þó munu þeir ekki hafa fundið neinn maðk. — Þetta hefur mjög alvarlegar afleiðingar fyrir þá bændur sem- þarna beita fé sinu. Menn hafa notað þetta svæði fyrir haustbeit eftiraðfékemur af afrétti og það verður sjálfsagt margur illa sett- ur með haustbeit vegna þessa. Einnig gengur eitthvað af fé á þessu landi yfir sumarið og það er spurning sem enn er ósvarað hvaða afleiðingar þetta hefur fyrir það. I fyrra bar einnig á dauða i viði á svipuðum slóðum, en ekki i eins stórum stil og nú. Maður veit ekki hvort orsökin er sú sama. Menn voru að gera þvi skóna, að það hafi stafað af frosti sem kom i byrjun júni. En hvað sem það hef- ur verið, þá virðist gróður alveg hafa náð sér nú, þannig að maður veit ekki hvort þessi svæði gróa upp aftur eða hvort kvisturinn er dauður fyrir fullt og allt. Það kemur ekki i ljós fyrr en á næsta ári, sagði Starri aðlokum. —S.dór á að með þessari hækkun sé kaup- hækkunin frá i júnimánuði — 11—12% — svotil uppétin og fyrir þá hækkun eiga engar bætur að koma fyrr en I lok ársins. Það er með öðrum orðum ætlun og á- setningur rikisstjórnarinnar að stela af launafólki allri kaup- hækkuninni i hálft ár og þetta kemur fram þegar aðeins örfáar vikur eru liðnar frá þvi að gengið var frá kjarasamningunum. 1 mai sl. var visitala fram- færslukostnaðar 426 stig. 1 kjara- samningunum var gert ráð fyrir að framfærsluvisitalan yrði kom- in upp undir 455 stig i lok þessa mánaðar, en yrði hún komin fram yfir 477 stig 1. nóvember yrði það sem umfram er bætt með visi- tölubótum á kaupið. Eftir álagn- ingu vörugjaldsins er hins vegar ljóst, að visitala framfærslu- kostnaðar verður komin langleið- ina uppundir 477 stig, „rauða strikið”, strax 1. ágúst, þegar visitala framfærslukostnaðar verður næst reiknað út. Þær hækkanir sem hafa orðið frá gerð kjarasamninganna eru margháttaðar sem kunnugt er og nálgast visitalan sjálfsagt um 460 stig um næstu mánaðamót fyrir utan afleiðingarnar af hækkun vörugjaldsins. Þegar það bætist við er þar fráleitt um minna en 10—12 stig að ræða i f-visitölu. Þannig að samtals verður f-visi- talan um mánaðamótin um eða yfir 470 stig. 1 þessum útreikningum er ekki tekið tillit til hækkananna á áfengi og tóbaki en þær hækkanir nema sjálfsagt um 7 visitölu- stigum. Vörugjaldið er olia á verð- bólgubálið sem nú magnast sifellt meira af innlendum ástæðum eins og bent var á i forustugrein Tim- ans um siðustu helgi. Stórkaupmenn vilja meiri niðurskurð Félag Islenskra stórkaup- manna sendi frá sér ályktun i gær vegna vörugjaldsins. Telja stór- kaupmenn að vörugjaldið auki enn á fjármagnsvanda innflutn- ingsverslunarinnar og átelja að ekki skyldi haft samráð við þá um lagasetninguna. Þá lýsir félagsstjórnin furðu sinni á „að rikisstjórnin skyldi hverfa frá stefnuyfirlýsingu sinni um niðurskurð fjárlaga um 3.500 milljónir, en i stað þess lagt á nýja skatta að upphæð um 2000 milljónir. Siðan segir: „Félagsstjórnin gagnrýnir þau mótsagnakenndu vinnubrögð, er lýsa sér I þvi, að rikisstjórnin leggur á skatt, sem leiðir til um 12% verðhækkunar á gjaldvörun- um, á meðan beiðnir fyrirtækja um leiðréttingar á verði vöru og þjónustu, sem hefðu i för með sér um 4—5% verðhækkanir, fást ekki afgreiddar hjá verðlagsyfir- völdum. Stjórnin treystir þvi, að lög þessi verði látin falla úr gildi um áramótin og að rikisstjórnin beiti sér fyrir raunhæfri fjárlagagerð fyrir árið 1976, i samræmi við greiðslugetu rikissjóðs og al- mennings. Þannig að komist verði hjá slikri aukaskattheimtu á miðju ári.” Blaðamenn segja fréttir úr hringflugi I Þjóðviljanum á morgun, sunnudag, birtist greinaflokkur frá þremur stöðum á Vestfjörð- um, Isafirði, Bolungarvik og Súðavik. Þetta er efni sem Gunn- ar Gunnarsson blaðamaður tók saman vestra snemma I mánuð- inum. Næstu helgar birtir Þjóð- viljinn efni frá nokkrum stöðum á Austfjörðum, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Eskifirði, Seyðis- firði, Djúpavogi og Höfn i Horna- firði. Þessa efnis aflaði Gunnar ásamt Sigurjóni Jónannssyni. Blaðamennirnir tveir hagnýttu sér hringflug Flugfélags Islands til þessarar efnisöflunar frá stöð- unum. Verða 3—4 siður i hverju helgarblaði af ýmisskonar efni auk auglýsinga og slikra upplýs- inga. Forsiður blaðanna verða helgaðar þeim stöðum sem sagt er frá i hverju blaði. Þrátt fyrir að ný varnaðarmerki séu komin á flest hættuleg efni, sem almennt eru á heimilum, er enn allt of algengt, að börn nái til þeirra. A öllum efnunum, sem reglugerðin nær til, á að standa „Geymið þar sem börn ná ekki til”. HPll \ S M í X ^ |1 j 7-800 eitrunartil felli á síðasta ári Slysatilfelli i Reykjavik vegna ýmiss konar eitrunar voru á milli 7 og 800 á siðasta ári, og er það svipuð tala og undanfarin ár, samkvæmt upplýsingum sem blaðið fékk hjá yfirlækni slysa- deildar Borgarspitalans, Hauki Kristjánssyni. Fyrir ári siðan tók gildi ný reglugerð um gerð iláta undir hættuleg efni og merk- ingu þeirra, en þrátt fyrir það er ennþá mikið um að börn nái i slik efni og setji þau ofan I sig. Mestur hluti eitrunartilfellanna, sem komu á slysadeildina, voru börn, og meiri hluti þeirra hafði sett of- „Frelsi til að tefla”? Opið bréf stór. meistarans Pach- tnans til skákvina Síða 6 an i sig einhver „kemisk” efni. Sömuleiðis er mikið um að börn borði lyf, sem þau ná til. Dauðs- föll eru mjög sjaldgæf nú orðið af þessum sökum. „Það virðist skorta mikið á að fólk geri sér grein fyrir hættunni, sem fylgir þvi að geyma hættuleg efni á glámbekk. Liklega vantar meiri áróður sagði Haukur Kristjánsson ennfremur. Þess má geta að engin reglugerð er til sem segir fyrir um að læstir skápar skuli vera i ibúðum. þs Viðtal við Ingvar Haligrímsson fiskifrœðing um 200 mílurnar Síða 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.