Þjóðviljinn - 19.07.1975, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. júll. 1975.
Elsku Magga mín
Þórðarson!
Þakka þér fyrir sendi-
bréfið i Velvakanda í dag
þriðjudaginn 15. júlí.
Hvernig líður frúnni í
dag? Er ekki allt í lagi
með eiginmanninn,
elskuna hann Nató?
Heyrðu, segðu mér
hefurðu frétt nokkuð um
nýju skattskrána?
Heldurðu hún verði ekki
alveg voðaleg í ár?
Verður ekki eiginlega
tekið bara allt af ykkur?
Ja, þessi ríkisstjórn
okkar! Nú ætlar hann
AAatti okkar að fara að
skattleggja ykkur
ambassadoraf rúrnar —
ætli hann endi ekki með
að skattleggja elskuna
þína hann Nató, ens og
hann er mikið krútt! En
mikið þótti mér gaman að
bréfinu þínu um rúss-
neska traktorinn og hann
Sverri! Heldurðu hann
haf i nokkurn tíma borgað
af honum toll og
útflutningsgjald? Gaman
væri að vita, kannski
Dæturnar viti eitthvað?
Ha?
Bless, elsku AAagga
mín,
þín gamla Sverrína.
Bóksala stúdenta
Okkur vantar duglegan starfsmann (kyn
skiptir ekki máli) frá u.þ.b. 15. ágúst.
Vinnutimi kl. 10—18.
Áhugi á bókum og nokkur tungumála-
kunnátta nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist Bók-
sölu stúdenta, Félagsheimili stúdenta
v/Hringbraut, fyrir 27. júli.
Blómabúðin MÍRA
Suðurveri, Stigahlið 45-47, simi 82430
Blóm og gjafavörur í úrvali.
Opið alla daga og um helgar.
Blikkiðjan Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468
FgpBA .
SONGBOKIN
Ómissandi í
ferðalagið
- MELTAWAY ■— AKATHERN —
snjóbræðslukerfi frárennsliskerfi
úr PEX plaströrum úr PEH plaströrum.
Nýlagnir Viðgerðir
Hitaveitutengingar Stilling hitakerfa
Pípulagnir sf.
Auðbrekku 59 — Kópa vogi S. 43840 & 40506.
innlend
Heldur
fjölgar
lands-
mönnum
Heldur fjölgar islendingum á
jarðarkringlunni. Þann 1. des.
1974 voru þeir orönir 216.628 og
fjölgaði þvi um 3.129 á einu ári,
frá 1. des. 1973. Kópavogur, Akur-
eyri og Hafnarfjörður voru þrjár
fjölmennustu byggöirnar að
slepptrihöfuðborginni, sem 1. des
’74 taldi 84.772 manneskjur.
Heilaribúatölur fyrir landið og
kaupstaðina lita þannig út:
Allt landið
Tónleikaferð
um
V-Þýskaland
Hinn 17. júli leggja 5 ungir
hljóðfæraleikarar af stað i 6 vikna
tónleikaför til V-Þýskalands. Þeir
munu koma fram undir nafninu
„Reykjavik Ensemble”.
Þrir hljóðfæraleikaranna eru
islenskir, Guðný Guðmunds-
dóttir, konsertmeistari, Ásdis
Þorsteinsdóttir fiðluleikari og
Halldór Haraidsson pianóleikari.
Fjölmennasta sýslan er Árnes-.
sýsla. Ibúar hennar eru 9.226.
Konur voru þar 4.383, en karlar
4.843. Næst-fjölmennust sýsla er
Kjósarsýsla, Ibúar 6.170, og
þriðja fjölmennasta sýslan er
Snæfellsnessýsla, ibúar 4.464.
Ellefu hreppsfélög telja fleiri
en þúsund ibúa. Fjölmennast
þeirra er Garðahreppur, Ibúar
3.990, þá kemur Selfoss, ibúar
2.834, þriðja fjölmennasta
hreppsfélag er Njarðvikur, ibúar
1.714.
38 hreppsfélög telja færri en
hundrað ibúa. Fámennasta
hreppsfélagiö er Múlahreppur i
A-Barðastrandarsýslu, en þar
teljast Ibúar vera 22. Tveir aðrir
hreppar eru með færri en 30 Ibúa,
Selvogshreppur i Arnessýslu, en
þar eru íbúar 25, og Fjallahrepp-
ur I N-Þingeyjarsýslu, Ibúar 25.
Fámennasta sýslan er Dala-
sýsla, en þar búa 1.171 mann-
eskja, þá Strandasýsla með 1.179
Ibúa og V-Skaftafellssýsla er sú
þriðja fámennasta, Ibúar 1.368
talsins. —úþ
Einnig verða með i förinni
Deborah Davis cellóleikari frá
Bandarikjunum og Guillermo
Figueroa frá Puerto Rico.
Wolfang Stross hefur undirbúið
og skipulagt þessa ferð sem er
styrktaf Menntamálaráði íslands
og verður hann jafnframt
fararstjóri.
Haldnir verða 15 tónleikar viðs-
vegar um Þýskaland og verða
flutt lög ýmissa höfunda m.a.
Islensk þjóðlög i útsetningu Jóns
Ásgeirssonar sem hann gerði sér-
staklega fyrir þessa ferð.
Eftir heimkomuna halda svo
listamennirnir hljómleika hér á
landi.
Islenskar
listsýningar
Tvær íslenskar listsýningar
voru opnaðar i vor i Norrbottens
Museum i Norður-Sviþjóð og voru
þær opnar i hálfan mánuð. önnur
sýningin var frá Norræna húsinu
og er myndlistasýning, þar sem
sýndar voru m.a. oliumyndir,
vatnslitamyndir, grafik og högg-
myndir. A hinni sýningunni var
vefnaðarlist og batik eftir Sig-
rúnu Jónsdóttur.
1 blaðinu Norrbottens-Kurien er
grein um sýningarnar þar sem
farið er mjög lofsamlegum orðum
um islensku listamennina. Er
sérstaklega getið um Jóhannes
Geir Jónsson, Ágúst F. Petersen,
Hring Jóhannesson, Hafstein
Austmann, örlyg Sigurðsson og
Hallsteinn Sigurðsson. Sérstakt
loft hljóta einnig verk Sigrúnar
Jónsdóttur, og segir að mikil
verkleg þekking sameinist þar
góðu listrænu auga. Segir að lok-
um I greininni að hin islensku
listaverk séu mjög áhugaverð og
sannarlega þess virði að skoða
þau þs
Kona í stjórn
Verkstjóra-
sambandsins
Verkstjórasamband tslands
hélt landsþing sitt á Hrafnagili i
Eyjafirði, dagana 5. og 6. júli sl.
Mörg mál voru á dagskrá ,
þeirra á meðal breytingar á lög-
um sambandsins, skipuleg upp-
bygging þess, kjaramál og trygg-
ingar, sem samþykktar voru á-
lyktanir um. Rædd voru ýms sér-
mál verkstjóra, svo sem um
fræðslumál og starfsréttindi.
Verkstjórasambandið hefur nú
innan sinna vébanda 15 verk-
stjórafélög, sem svo eru starfandi
á helstu athafnastöðum landsins.
1 stjórn sambandsins til næstu
tveggja ára voru kosin: Adolf
J.E. Petersen forseti, Kristján
Jónsson varaforseti. Meðstjórn
endur: Málfriður E. Lorange,
Páll Guðmundsson, Bergsveinn
Sigurðsson, Óskar Mar og Arni V.
Arnason.
Þetta er I fyrsta sinn i sögu
sambandsins að kona er kosin i
stjórn þess. Konur hafa á seinni
áratugum gerst verkstjórar á
ýmsum vinnustöðum, og eru nú
talsvert fjölmennar i verkstjóra-
stéttinni.
Næsta þing Verkstjórasam-
bandsins verður haldið á Austur-
landi að tveim árum liðnum.
Karlar Konur Alls
109.506 107.122 216.628
Reykjavik 41.301 43.471 84.772
Kaupstaðir-^Rvik 35.520 34.686 70.206
Sýslur alls 32.685 28.965 61.650
Kópavogur 6.162 5.928 12.090
Seltjarnarnes 1.275 1.219 2.494
Hafnarfjörður 5.688 5.684 11.372
Grindavik 817 781 1.598
Keflavik 3.098 3.015 6.113
Akranes 2.278 2.236 4.514
Bolungarvik 558 469 1.027
ísafjörður 1.584 1.470 3.054
Sauðárkrókur 881 886 1.767
Siglufjörður 1.055 1.025 2.080
ólafsfjörður 559 564 1.123
Dalvik 597 562 1.159
Akureyri 5.726 5.963 11.689
Húsavik 1.116 1.054 2.170
Seyðisfjörður 472 466 938
Neskaupstaður 870 783 1.653
Eskif jörður 501 468 969
Vestmannaeyjar 2.283 2.113 4.396
SHÍ vill endurskoðun námslána
Þann 10. júli s.l. samþykkti
Stúdentaráð H.I. eftirfarandi
ályktun:
1 nokkur ár hefur staðið yfir,
með hléum, endurskoðun á
lögum um námslán og náms-
styrki, þ.e. á kerfi opinberrar
námsaðstoðar. Stúdentaráð
itrekar meginsjónarmið sin
gagnvart téðri endurskoðun, en
þau eru að hverjum og einum
skuli gert f járhagslega kleift að
stunda nám. Til þess dugir ekki
minna en fullnægjandi náms-
aðstoð af hálfu hins opinbera, og
hana ber að lögbinda þegar I
stað.
Rikisvaldiö hefur látið I ljósi
áhuga á að Lánasjóði islenskra
Stjórn Lánasjóðs islenskra
námsmanna hefur nýlega sent
frá sér fjárlagatillögur sinar.
Helstu efnisatriði þeirra eru:
I fyrsta lagi að ekki komi til
greina að veita námsmönnum
lakari lánakjör en þau sem
verið hafa I gildi sl. tvö ár.
I öðru lagi að námsaðstoð
skuli aukin og reglur um hana
endurbættar. Þannig er lagt til
að námsaðstoð nái nú loks hinu
langþráða marki, 100%
umframfjárþarfar. Jafnframt
að kostnaðarmat verði leiðrétt i
samræmi við könnun sem fram
fór á vegum Lánasjóðsins
haustið 1973 og unnið var úr árið
námsmanna verði tryggðir
aðrir tekjustofnar en einvörð-
ungu framlög af fjárlögum
rikisins. Hafa þá aðallega
komið til tals hertar endur-
greiðslur af hálfu lánþega, en
eins og kunnugt er, hafa skuldir
þeirra rýrnað mjög i óðaverð-
bólgu undanfarinna ára.
Stúdentaráð hefur viljað koma
til móts við þessar hugmyndir,
en með þvi ófrávikjanlega
skilyrði, aö greiðslugeta hafi
áhrif á eindurgreiðslur, þannig
að þeir sem einungis hafa nauð-
þurftartekjur greiði ekkert, en
hátekjumenn greiði hins vegar
lán sin I fullu raungildi, þ.e. að
þjóðfélagsleg jafnréttissjónar-
1974. Ennfremur að úthlutunar-
reglum verði breytt á þann veg,
sem gerir námsmönnum með
fjölskyldur frekar kleift að
stunda framhaldsnám.
t þriöja lagi leggur stjórn Lin
til, að veitt verði full fjárveiting
til haustlána 1976 og starfsaö-
staða sjóðsins bætt á ýmsan
annan hátt.
Stúdentaráð Háskóla tslands,
sem er heildarsamtök stúdenta
við Háskólann, lýsir yfir stuön-
ingi sinum við þessi aðalatriði
fjárlagatillagna stjórnar Lána-
sjóðsins. Þó vill Stúdentaráð
benda á, að leiðrétting kostn-
mið verði ofan á. Þannig beinast
tillögur Stúdentaráðs að þvi að
tryggja Lánasjóðnum nýja
tekjustofna, en jafnframt að þvi
að vernda iágtekjumenn I hópi
menntamanna frá álögum
vegna námsskulda.
Stúdentaráð lýsir þvi yfir að
ráðið telur endurskoðun lána-
kerfisins aðeins raunhæfa, sé
hún gerð á grundvelli tillagna
ráðsins. Stúdentaráð mun beita
sér harkalega gegn hvers konar
endurskoðun lánamálanna, sem
felur i sér lakari kjör náms-
manna og lágtekjumennta-
manna en tillögur ráðsins gera
ráð fyrir.
Lánasjóðs
aðarmats i samræmi við könnun
Lánasjóðsins hlýtur að teljast til
þess hluta fjárlagatillagnanna
sem ekki er hægt að gera
ágreining um. Hér er um að
ræða leiðréttingu á vanmati
kostnaðar, sem hefur safnast
fyrir undanfarin ár, og sú leið-
rétting er gerð með vandaðri
úrvinnslu á itarlegri könnun á
framfærslukostnaði náms-
manna. Það hefur sem sé komið
i ljós að lán hafa verið veitt á
grundvelli kostnaðarmats, sem
stenst ekki veruleikaprófun,
enda þarf ekki að segja það
neinum námsmanni, sem sann-
reynt hefur þessa hluti.
SHI styður fjárbeiðni