Þjóðviljinn - 19.07.1975, Page 3
Laugardagur 19. júli. 1975. WÓÐVILJINN — StÐA 3
Slátturinn
með allra
seinasta móti
— hefst almennt í
,,Það hefur ekki verið byrjað
svona seint aö slá svo lengi sem
ég man eftir” sagði Halldór Páls-
son búnaðarmálastjóri er við
ræddum við hann um sprettuna
og sláttinn, en ennþá er sáralitið
byrjað að slá á flestum stöðum á
landinu. Gerter ráð fyrir að slátt-
ur hefjist almennt um og uppúr
þessari helgi. Sprettan hefur ver-
ið mjög slæm viðast hvar, en hef-
ur þó heldur betur ræst úr i þess-
um mánuði.
Sagði Halldór að ekki væri um
mikinn landshlutamun að ræða
hvað grassprettu snertir, en best
hefði þó sprottið i Mýrdalnum,
undir Eyjafjöllum og i innanverð-
um Eyjafirði, enda oftast hlýjast
á þessum stöðum. Kuldarnir i
kringum helgina
júni töfðu mjög fyrir allri sprettu,
en viða hefur verið góð tið I júli og
þvi ræst nokkuð úr, t.d. á útskög-
um á Norðurlandi. Einhverjar
skemmdir munu vera af kali, en
þó ekki á stórum svæðum.
Nokkur tún, t.d. i Strandasýslu,
eru þó töluvert skemmd. Ekki
taldi Halldór að hafisinn hefði
haft teljandi áhrif á sprettuna
ennþá, en gæti gert það ef hann
snerist upp I norðanátt.
„Það verður fyrirsjáanlega lit-
ið eða ekkert um seinni slátt i ár,
en venjulega er slátturinn hálfn-
aður um þetta leyti. Við gerum
ráð fyrir að slátturinn standi al-
mennt frá 20. júli til 20. ágúst i
sumar,” sagði Halldór ennfrem-
ur. þs.
Gras hefur brunnið á
túnum norðanlands
útlit fyrir minni heyfeng þar vegna þessa
Að sögn Starra i Garði i Mý-
vatnssveit hafa þrálátir þurrkar
og sterkjuhiti gengið yfir fyrir
norðan að undanförnu eða alveg
þar til í gær (föstudag) að fór að
rigna. Sagði Starri að viða I Mý-
vatnssveit hefði gras drepist
vegna þurrkanna og hitanna að
undanförnu.
— Viða hér eru tún mjög sendin
og eftir ; langvarandi þurrka
kom sterkt sólskin sem staðið
hefur i um það bil viku eða 10
daga og það var meira en grasið
þoldi. Segja má að viða séu tún
gul yfir að lita vegna þessa.
Grasið sem átti að fara að slá er
orðið að sinu vegna hitans, sagði
Starri.
— Það gefur þvi auga leið að
viða horfir illa með heyfeng hjá
bændum hér vegna þessa.
Nokkrir eru farnir að slá en
spretta hefur verið litil, fyrst
vegna vorkulda en siðan tók við
stanslaus þurrkur. Ég þori ekki
að segja og það er kannski ekki
hægt á þessu stigi málsins, hve
margir hektarar af túni hafa
eyðilagst en þeir eru margir sagði
Starri að lokum. —S.dór
Björn Guðmundsson framkvæmdastjóri og Guðgeir Þórarinsson sölu-
stjóri Sportvers sjást hér með hluta þeirrar fatasendingar sem flytja á
út. Fötin eru flutt hangandi á herðatrjám alla ieiðina til áfangastaðar
og þarf kaupandi ekkert annað að gera en stilla þeim upp i búðargiugg-
ann.
Nýmæli í útflutn-
ingi karlmannafata
Nú er i fyrsta sinn gerð tilraun
með að flytja út islensk karl-
mannaföt i einhverjum mæli. Fyr.
irtækið Sportver flytur út 1000
karlmannafatasett til Danmerk-
ur. Það er danska fyrirtækið G.
Falbe Hansen i Randers sem
kaupir fötin og ætlar að koma
þeim i verslanir á Norðuriöndum.
Fötin eru að mestu unnin úr þýsk-
um ullarefnum og eru rétt fyrir
ofan meðal-verðflokk á Norður-
löndum.
Það nýmæli er tekið upp við
þessa flutninga að fötin eru flutt á
herðatrjám i plastpokum með
flugvélum frá Iscargo. Flogið er
með þau beint til Álaborgar og
þaðan eru þau flutt til Randers
með bilum. Fyrirtækið Plast-
prent hefur hannað sérstaka poka
til þessara flutninga. Þessi flutn-
insháttur hefur i för með sér
margvislegt hagræði. Mikill um-
búðakostnaður sparast, tima-
sparnaður svo nemur vikum og
kaupandi þarf ekki að pressa föt-
in við móttöku.
Sportver hefur haft samstarf
við þetta danska fyrirtæki siðan
1968 og hafa fyrirtækin meðal
annars gert sameiginleg innkaup
á fataefnum.
Fötin i þessari fyrstu sendingu
eru af mörgum stærðum.Sportver
litur á þetta sem tilraun. Hún get-
ur þvi aðeins heppnast að fram-
leiðslutækni og kunnáttusemi
starfsfólksins sé á mjög háu stigi,
þvi að samkeppnin er mjög hörð
frá öðrum löndum sem þurfa að
greiða mun minni vinnulaun og
hafa betri starfsaðstöðu en hér
tiðkast.
En ef vel gengur, þá verður
hiklaust haldið áfram á sömu
braut.
„Light nights” sjötta sumarið í röð
Ferðaleikhúsið er nú að hefja göngu sína með „Light nights” og er þetta sjötta sumarið sem það sýnir
Islenska dagskrá fyrir erlenda ferðamenn. Er lesiðúr fslenskum bókmenntum, kveðið og sungið, en Atli
Heimir Sveinsson hefur útsett tóniistina. Á myndinni sjáum við þau Guðmund H. Halldórsson, ólaf örn
Thoroddsen og Kristinu Magnús, en hún og Halidór Snorrason reka Feröaleikhúsið. Fyrsta sýningin er á
mánudagskvöld, en sýnt er fjögur kvöid I viku í ráöstefnusai Hótel Loftleiða.
Aðeins yfirklór
hjá Thoroddsen
Sveinn
Arnason
á Egilsstöðum:
— Þetta svar Valgarðs
Thoroddsen er ekkert ann-
að en aumasta yfirklór og
við fréttaritararnir hér á
Egilsstöðum ætlum að
svara þessari þvælu eftir
helgina, sagði Sveinn
Árnason fréttaritari Þjóð-
viljans er við ræddum við
hann í gær.
— Þetta auma svar Valgarðs
kom engum hér fyrir austan á
óvart. Samkvæmt þeim tölum
sem hann gefur upp, þá hlýtur
það að vera nær ógerningur fyrir
venjulegar fjölskyldur að lifa,
þegar Valgarð gefur upp að fæði
sé 1238 kr. á dag eða 37.140 kr. á
mánuði, á sama tima og fæði á
veitingahúsi hér er selt á 18.050
kr. á mánuði.
En samkvæmt tölum Valgarðs
þarf fimm manna fjölskylda
185.700 eða 2.228.400 kr. yfir árið.
Og þetta telur hann að sé fullkom-
lega eðlilegt i framkvæmdinni.
En annars ætla ég ekki að rekja
svar okkar frekar nú, það verður
birt i heild eftir helgina, sagði
Sveinn. —S.dór
hamlar loðnuleit
þetta vegna þess að isinn hefur sakað svæðið nákvæmlega, sagði
hamlað þvi að við gætum rann- Jakob —S.dór
Alyktun miðstjórnar
Alþýðusambands Islands:
Islendingar búi einir
að veiðiréttindunum
Hafísinn
— Við höfum verið við loönuleit
útaf Vestfjörðum og Noröurlandi
i nokkra daga til að kanna hvort
ioðnan sé i veiðanlegu ástandi hér
að sumarlagi, en vegna hafiss
höfum við ekki komist á iikleg-
ustu slóöina, hvorki út af Vest-
fjörðum né Norðuriandi. Hins-
vegar höfum við fundið nokkurt
magn af kolmunna útaf Vikuráln-
um en ekkert af loðnu, sagði
Jakob Jakobsson fiskifræðingur
um borð i Árna Friðrikssyni i
gær.
— Nú sem stendur erum við út-
af Norðurlandi og i gærkveldi
fundum við dálitið magn af loðnu
30 milur n-vestur af Kolbeinsey 1
dálitilli vik sem myndast hafði i
hafisinn. Þarna var um að ræða
nokkrar frekar smáar torfur. Við
köstuðum þarna og fengum nokk-
ur tonn og reyndist loðnan vera
sæmilega stór og góð.
— Ég tel að ef isinn væri ekki
hér mætti vel stunda loðnuveiði
að einhverju marki, en það er erf-
itt að segja nákvæmlega til um
Kínverjar
kaupa
ál
A mánudag kemur hingað til
lands yfir 15 þúsund tonna kin-
verskt skip „Hanchuan”. Skipið
kemur til Straumsvikur og tekur
þar ál, 10.000 lestir. Er þetta i
fyrsta sinn sem svo stórt skip
kemur hingað frá Kinverska al-
þýðulýðveldinu og I fyrsta sinn
sem kinverjar kaupa ál af Isal.
Á f undi sínum í gær sam-
þykkti miðstjórn Alþýðu-
sambandsins samhljóða á-
lyktun þar sem lögð er á-
hersla á að islendingar
verði að hafa fiskveiði-
landhelgina einir eigi ár-
angur að nást af útfærsl-
unni í 200 sjómílur.
„Miðstjórn Alþýðusambands
Islands lýsir fyllsta stuðningi sin-
um við þá ákvörðun rikisstjórn-
Verkalýðsf élagið Vaka
Siglufirði hefur samþykkt
eftirfarandi ályktun um
landhelgismálið einróma:
„Fundur i stjórn og trúnaðar-
mannaráði verkalýðsfélagsins
Vöku á Siglufirði, lýsir fyllsta
stuöningi sinum viö útfærslu fisk-
veiðilögsögu íslands i 200 sjó-
milur.
Fundurinn varar jafnframt,
enn á ný, við þvi, að nokkrar und-
anþágur til erlendra aðila verði
arinnar að færa fiskveiðiland-
helgina út i 200 milur frá grunn-
linum. Telur miðstjórnin þess á-
kvörðun hafa verið fullkomlega
timabæra og lifsnauðsynlega til
verndar fiskistofnunum, og þar
með efnahagslifi þjóöarinnar.
Miðstjórnin bendir jafnframt á,
að nú er svo nærri fiskistofnunum
á tslandsmiðum gengið, að út-
færslan getur ekki náð tilgangi
sinum nema Islendingar einir búi
að veiðiréttindum innan 200 milna
markanna.”
veittar, til veiða innan hinnar
nýju fiskveiðilögsögu.
Fundurinn leggur áherslu á það
álit sitt, að efnahagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar i framtiðinni á-
kvarðist mjög af þvi, hvort það
takist á næstu árum, að bæta
þann mikla skaða, sem orðinn er
á fiskistofnum umhverfis landið,
og telur þvi, að enginn timabund-
in efnahagsleg ivilnun geti rétt-
lætt það nú, aö samið verði við er,
lend riki um fiskveiðiheimildir
innan hinnar nýju lögsögu”.
Verkalýðsfélagið Vaka Siglufirði
Engar undanþágur