Þjóðviljinn - 19.07.1975, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 19.07.1975, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. júli. 1975. DJOÐVIUINN táÁLGAGN SÖSlALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsblaði: Árni Bergmann Ilitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Simi 17500 (5 Iinur) Prentun: Blaðaprent h.f. FELAGSLEGAR ÞARFIR OG EYMD HINS OPINBERA Siðustu tvær aðgerðir rikisstjórnarinn- ar, niðurskurður framkvæmda hins opin- bera og bráðabirgðalögin um 12% vöru- gjald, sýna vel innræti þeirra stjórnar- - herra er fara með völdin og hverra hags- muni þeir bera fyrir brjósti. Þeir láta það boð út ganga, að nú eigi að spara og það er aðeins rikið sjálft sem á að spara, — draga verður úr rikisútgjöld- unum. Siðan birta þeir tillögur um tveggja miljarða niðurskurð á fjárlögum. Og hvar er hnifnum beitt.Hvergierhreyft við sjálfu skriffinnskubákninu. Augu niðurskurðar- mannanna beinast annað. Að þeirra dómi má fresta þvi að sinna hinum samfélags- legu þörfum, enda gefur fjárfesting i skól- um, sjúkrahúsum og menningarstofnun- um ekki af sér beinharðan arð. Þær al- mannaþarfir sem einkaframtakið sér ekki gróða i að uppfylla, eru eftirlátnar rikinu i nútima borgarsamfélagi og fulltrúar. gróðaaflanna sem hafa sterk tök i valda- kerfinu hafa litinn áhuga á að afla rikinu tekna til að sinna þessum brýnu félags- legu þörfum þegnanna. Þessi andfélags- legi niðurskurður þýðir i reynd: færri skólastofur, færri sjúkrarúm, ófullgerðar hafnir, lélegri vegi og fleiri menningar- stofnanir sem eru ófærar um að gegna hlutverki sinu. En alvarlegastur er niður- skurðurinn á framlögum er flokkast undir samhjálp i islensku þjóðfélagi. Skorið er á sjúkratryggingar með þvi að hækka lyf, lækkuð eru framlög til stofnana er sinna sjúkum og öldruðum og greiðslum til aldraðra og öryrkja skotið á frest. Og ekki er allur niðurskurðurinn kominn enn, þvi leiðarahöfundur Timans boðar i gær endurskoðun tryggingakerfisins með það fyrir augum að draga úr útgjöldum til samhjálpar. Niðurskurðarmennirnir sem ráða ferðinni hafa nú sýnt ljóslega, að ná- ungakærleikurinn ristir grunnt, hann nær aðeins til þeirra umbjóðenda gróðamann- anna i viðskiptalifinu, hvort sem þeir nefnast heildsalar eða SlS-klikan. Þeir hafa sýnt að vilji þeirra til sparnaðar nær aðeins til að draga úr þeirri fjárfestingu, sem miðar fyrst og fremst að þvi áð þroska það sem mannlegast býr i hverjum einstaklingi. En valdhafarnir i samstjórn ihalds og framsóknar sýna kærleik sinn i verki við kaupmannastéttina og skuldakónga. I kjölfar niðurskurðarins er sett á 12 % vörugjald. Ofan á það bætist verslunará- lagning sem skilar kaupmannastéttinni meiri gróða, samhliða þvi sem hún getur skellt á almennri hækkun á vörur og af- sakað allar hækkanir með 12% gjaldinu. Rikisstjórnin semur við verkalýðshreyf- inguna umöáð hún dragi úr kaupkröfum gegn þvi að hamlað sé gegn verðbólguþró- un. Samið er um skattalækkun, verðstöðv- un á landbúnaðarvörum og rautt strik á verðhækkanir. Allir virtust sammála um að reyna að hamla gegn þeirri miklu verð- bólguþróunsem rikisstjórnin bar sig aum- lega yfir i vor. Mánuði eftir samninga ýtir riiusstjórnin verðbólguvagninum á nær fulla ferð með 12% vörugjaldi. Hún virðist hafa hug á sem mestri verðbólgu og gerir sitt til að ná sem fyrst rauða strikinu. Þessi ákvörðun er samningsrof við verka- lýðshreyfinguna en um leið silfurpeningar á fati fyrir skuldakónga og kaupmenn. Ráðstafanir rikisstjórnarinnar miða að aukinni verðbólgu, ofþenslu viðskipta- geirans, en samdrætti i samfélagslegum framkvæmdum. Þessi verðbólguhvetjandi stefna, sam- fara andfélagslegum og andmenningar- legum aðgerðum i niðurskurðarmálum sýnir eðli þessarar rikisstjórnar. Við blasa hinar skörpu andstæður sem takast á i islenskum stjórnmálum. Annars vegar eru hin andfélagslegu öfl einkagróðans er ráða ferðinni i núverandi stjórnarflokk- um. Annar flokkurinn,Framsóknarflokk- urinn,sem i siðustu kosningum skýrskot- aði til félagshyggjufólks, hefur sýnt sitt innsta eðli. Hins vegar er róttækt félags- hyggjufólk, undir forystu Alþýðubanda- lagsins, sem krefst félagslegra aðgerða rikis, sveitarfélaga og félagasamtaka^er miði að lausn hinna fjölmörgu félagslegu viðfangsefna er biða úrlausnar i islensku samfélagi. óre KLIPPT Mest til Sjálfstœðis- flokksins Siöustu dagana hefur veriö i gangi metingur milli ihalds- blaöanna um það hvort þeirra fái minna af þvi sem þessi blöð kalla „rikisstyrk” til dagblað- anna. Þessi metingur milli blað- anna er kostulegur, en hverjar eru staðreyndir þessa máls? Við skulum fara aðeins yfir þær. Samkvæmt töflu sem Visir birtir i fyrradag eiga rikisút- gjöld til flokkanna að skiptast sem hér segir á yfirstandandi ári: Alþýðuflokkur á að fá alls 5.133.822. Þar af hefur flokkur- inn þegar fengið 4.658.383 en á þvi eftir samkvæmt fyrri áætlun 475.439 kr. Alþýðubandalagið fær 5.600.409 kr., en hefur þegar tek- ið þar af 2.440.000 kr. og á þvi eftir 3.160.409 kr. Framsóknarflokkurinn fær 6.066.996 kr., hefur þegar tekið þar af 2.350.000 kr. og á þvi eftir 3.716.996 kr. Samtök frjálslyndra og vinstri manna fá 2.020.529 kr., hafa þegar fengið 1.510.000 kr. og eiga samkvæmt þvi eftir að fá 510.529 kr. Sjálfstæðisflokkur fær alls á þessu ári skv. áætlun 10.334.111 kr. — yfir tiu miljónir króna — en hefur þegar fengið af þvi 3.588.773 og á samkvæmt þvi eftir að fá 6.745.338 kr. Sjálfstæðisflokkurinn hirðir þvi mest allra flokka i sinn hlut. Skipt til helminga Astæðan til þess að Sjálf- stæðisflokkurinn hirðir þannig þriðjung rikisframlags vegna ■ ■ ■ dagblaða I sinn hlut er sú að flokkurinn hefur á sinum snær- um tvö dagblöð, Morgunblaðið og Visi. Er upphæðinni skipt til helminga milli blaðanna, segir Sigurður Hafstein fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins i viðtali sem Morgun- blaðiö birtir vfð hann i gær. V Enginn ríkisstyrkur Hitt ber að leggja áherslu á fyrir hönd blaðanna I heild, að verulegur hluti af þvi sem i- haldsblöðin kalla rikisstyrki eru i rauninni greiöslur fyrir á- skriftir að dagblöðunum. Siðan fer ákveðin upphæð til svokall- aðra „landsmálablaða” stjórn- málaflokkanna og loks fær hver flokkur ákveðna upphæð fyrir hvern þingmann og rennur sú upphæð samkvæmt bókunum fjármálaráðuneytisins til þing- flokkanna hvernig svo sem þingflokkarnir nota upphæð þessa. En samkvæmt þessum reglum verður niðurstaðan sú, að þeim mun stærri sem flokkurinn er þeim mun meira fjármagn fær hann og gefi flokkurinn út tvö dagblöð fær hann tvisvar sinnum meira fé I sinn hlut en aðrir flokkar. Af þeim 32 milj. kr. sem renna til flokkanna fara 18,1 milj. kr. til kaupa á dagblöðunum. Þá fara 5,5 milj. til svokallaðra „landsmálablaða”, en 8,4 milj ■. kr. til þingflokkanna. Sjálf- stæðisflokkurinn hirðir einnig stærsta hlutann af þessari sið- astnefndu upphæð eða nærri 2 milj. kr., Alþýðuflokkurinn fær um 390 þús., Alþýðubandalagið um 860 þús. Framsóknarflokk- urinn um 1.3 milj. kr. og Sam- tökin um 156 þús. kr. Af þessum tölum og upplýs- ingum er ljóst að ckki er um að ræða neinn rikisstyrk til dag- blaðanna nema ef telja skyldi Aðeins Vísir er óháður styrhi .tytkut Ú89' *** Ú r Visij og Morgunblaðinu þá upphæð af 32 miljónunum rikisstyrk sem fer til pósts og sima vegna NTB og nema skal á þessu ári alls 2,8 milj. kr. Lœkkun frá viðreisnar- árunum Þetta fé til dagblaðanna sem allslagsbjálfareru að býsnast út af hefurfariðsilækkandi á und- anförnum árum. Á valdaárum viðreisnarstjórnarinnar var þetta langmest. Þá greiddu póstur og simi afnotagjöld af fjarrita norsku fréttastofunnar NTB, þá voru auk þess keypt blöð i áskrift eins og nú er og þá greiddi rikisútvarpið fyrir birt- ingu útvarps og sjónvarpsdag- skrár, en þó aðeins brotabrot af kostnaðarverði birtingarinnar. Má þvi fullyrða, þegar þessir liðir eru lagðir saman og þegar tillit er tekið til verðlagsbreyt- inga, að greiðslur vegna dag- blaðanna hafi aldrei verið hærri en á viðreisnarárunum. Nokkrir misjafnlega vitrir og misgóðgjarnir menn i vinstri- stjórninni töldu hins vegar að það væri þeirra helsta hlutverk i ráðherrastólum að skerða þess- ar greiðslur fyrir þjónustu sem dagblöðin létu i té. Þess vegna var þá farið inn á þá braut að tryggja blöðunum i staðinn nokkurt fé með beinum hætti á fjárlögum. Nú eru þær upphæðir f.Mgriokkarnir „auka- appnæBir” til ráöstöfunar til I fiölmiMa sinna. Þessar unnhæö- I enn að veröa að engu I verðbólg- unni og blöðin berjast i bökkum fjárhagslega. A að gera út af við Alþýðublaðið? Þessar hugleiðingar hljóta að minna á Alþýðublaðið, sem nú hefur hætt útkomu um mánaö- arskeið. Uggvænlegar fréttir heyrast nú um að eftir þetta mánaðarhlé eigi að draga sam- an seglin enn i útgáfu blaðsins og fækka útkomudögum þess. Þeir menn sem hafa aðallega borið hitann og þungann af út- gáfu Alþýðublaðsins bera miljónaábyrgðir, en aðrir ein- staklingar hafa hirt i eigin þágu eignir sem Alþýðuflokkurinn kom upp á slnum tima. Þegar þannig virðist flest benda til þess að eitt dagblað- anna sé að gefast upp hljóta menn að skilja nauðsyn þess að almannavaldið komi til skjal- anna og reyni aö gera ráðstaf- anir sem hjálpa til þess að koma I veg fyrir blaðadauða. Auðvitað vildi afturhaldið langhelst að hér á landi væru aðeins tvö dag- blöð eða svo sem réðu skoðana- mynduninni meðal almennings: en það má ekki gerast. Auglýsinga- skattur Undirritaður hefur áður hreyft þeirri hugmynd að lagður verði á sérstakur auglýsinga- skattur á allar auglýsingar i blöðunum. Þessi auglýsinga- skattur yrði látinn renna i sér- stakan sjóð sem notaður yrði til þess að veita dagblöðunum stuðning með einhverjum hætti. Það gæti til dæmis orðið með þvi móti — eins og tiðkast á norður- löndunum — að úr auglýsinga- sjóði yrðu greiddar ákveðnar rekstrarvörur dagblaðanna. Það gæti einnig orðiö á þann veg að auglýsingasjóði væri ætlað að standa undir sameiginlegri dreifingarmiðstöð fyrir dag- blöðin, eða sérstakri dagblaða- deild við póstþjónustuna. 1 auglýsingasjóð rynni mest fé af auglýsingum sem birtast i Morgunblaðinu. En slikt er að sjálfsögðu eðlilegt: og á það ber að minna að auglýsingakostn- aður er frádráttarbær til skatts þannig að það eru i raun og veru neytendur, almenningur, sem greiðir fyrir auglýsingarnar i Morgunblaðinu. i hærri sköttum meðal annars auk hærra neysluvöruverðs. Þetta ber að hafa hugfast. Það er þvi sjálf- sagt réttlætismál að leggja á slikan skatt. Verði hins vegar ákveðið að greiða bein framlög vegna dag- blaðanna úr þessum sjóði eða rikissjóði eiga slikar greiðslur auðvitað að ganga til blaðanna i öfugu hlutfalli við stærð þeirra og rekstrarafkomu. Þannig er þessum málum fyrirkomið i grannlöndum okkar og þykir raunar sjálfsagt þar sem menn vilja koma i veg fyrý- að fjár- magnið setjist i sæti ritskoðun- armeistarans. ... OG SKORIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.