Þjóðviljinn - 19.07.1975, Page 7
Laugardagur 19. júli. 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Síðan i fyrrahaust hefur verð á áfengi
og tóbaki hækkað þrivegis og nú sið-
ast um 30%. Þessar miklu hækkanir
hafa kveikt nokkra umræðu um verð-
lagsmál og áfengisneyslu. Einkum
hafa menn velt fyrir sér, hvort eðli-
legt væri að hækka allt áfengi jafn
mikið og hvort svo miklar hækkanir
skili sér i rikiskassann.
Af þessu tilefni sneri Þjóðviljinn sér
til forstjóra Áfengis- og tóbaksversl-
unar rikisins, Jóns Kjartanssonar, til
að spyrja hann um ýmis atriði varð-
andi þróun þessara mála.
„Léttu vínin eiga ekki
aö sitja við sama
verðhækkunarborð”
Nú er áætlað eftir 30% hækk-
un á áfengi og tóbaki að hún gefi
I rikiskassann um 1,5 miljarð
króna á ársgrundvelli. Heldurðu
að þessi áætlun standist, eða
leiðir þetta mikil hækkun til
minni viðskipta?
Ef litið er á fyrstu vikurnar
eftir hækkun, þá seldist i
Reykjavik fyrir lægri upphæð
en i siðustu viku fyrir hækkun,
en yfirleitt hafa hækkanir alltaf
skilað sér, þá hafa þær að visu
verið vægari. Vikuna fyrir
hækkun þ.e. 9.-14. júni seldist á-
fengi I Reykjavik fyrir 60
miljónir króna. Fyrstu heilu
vikuna eftir hækkun 23.-28. júni
seldist fyrir 54,5 miljónir og
næstu viku á eftir fyrir 58,6
miljónir. Það er fyrst i vikunni
6.-12. júli sem áfengissalan nær i
krónutölu vikunni fyrir hækkun
þ.e. 63,5 miljónum króna. En
auðvitað er salan ekki búin að
ná fyrri sölu i magni, þvi þá yrði
salan að nema ca 78 miljónum
króna. Það sýnir sig aftur á
móti. að þær hækkanir sem orð-
ið hafa síðasta hálfa árið hafa
skilað miklum hagnaði. Nettó-
hagnaður ÁTVR fyrstu sex
mánuði ársins 1975 er rúmlega 2
miljarðar, en var á sama tima I
fyrra 1,4 miljarðar króna.
Gripa fjármálayfirvöld ekki
mjög gjarnan tii þess ráðs að
hækka þessar vörur, ef tóma-
hljóð er i rikiskassanum — er
ekki hægt að gnaga of iangt?
Það hefur sýnt sig eftir hækk-
anir siðustu ára, að áætlanir um
auknar tekjur af ATVR hafa
ekki brugðist. Yfirvöld hafa þvi
i handraðanum, að þarna sé
tekjustofn sem treysta má á. En
þvi er ekki að leyna, að mér hef-
ur oft áður fundist of skammt
milli hækkana. Nú hafa verið
hækkanir með skömmu millibili
I desember, mars og siöast 19.
júnl um 30%. Ef við litum á
siðasta ár, 1974 þá voru tekjur
ATVR með tollum og söluskatti
um 4 miljarðar, en árið áður
1973 skilaði ATVR ríkinu 2,744
miljörðum. Með sama áfram-
haldi förum við að nálgast 6
miljarða króna sem ÁTVR skil-
ar i tekjum til rikissjóðs. Þetta
er stór tekjuliður fyrir rikið og
mikilvægur.
Er það ekki dálltið einhliða
aðgerð að skella sömu hækkun á
allar vörur ÁTVR? Væri ekki
mögulegt að hafa áhrif á
neysiuvenjur með mismunandi
verðhækkunum?
Ég hef i mörg ár haldið fram
þeirri skoðun, að það væri rangt
að hækka allt áfengi jafn mikið.
Léttu vinin eiga ekki að sitja við
sama verðhækkunarborð. En á-
kvörðun i þessu efni er ekki tek-
in hjá þessari stofnun, það er
rikisstjórnarinnar að ákveða
þetta. Ég vil aftur á móti benda
á að sænska áfengisverslunin
eyðir á þessu ári ca. 100 miljón-
um Isl. króna i áróður, þar sem
skorað er á svia að drekka létt
vin en ekki sterka drykki.
Afengislöggjöfin heimilar okkur
hins vegar ekki slikan áróður.
Ég teldi það spor i rétta átt að
beina neyslunni fremur að létt-
um vinum.
Rætt viö
Jón
Kjartansson
forstjóra
ÁTVR
En hefur sala iéttra vina auk-
ist?
Já, ég tel að marka megi til-
hneigingu i þá átt. Kannski eru
auknar suðurlandaferðir Islend-
inga ein orsökin.
Arið 1964 seldi ATVR 135 þús-
und litra af léttum vinum og
borðvinum, en 813 þúsund af
sterkum. t fyrra eða 10 árum
siðar seldi ATVR 547 þúsund
litra af léttum en 1.350 þúsund
litra af sterkum drykkjum.
Þarna er hlutfallslega mun
meiri aukning á léttu vinunum.
En ef við litum enn lengra aftur,
eða til þess tima er áfengis-
verslunin hófst 1935, þá seldi
ATVR 45 þúsund litra af léttum
vinum en 233 þúsund litra af
sterkum. Annars hefur neyslan
á mann aukist geigvænlega. Ar-
ið 1935 var neyslan 0,898 1 en allt
frá striðslokum verið um 2,0 1.
Árið 1964 var hún 1,97 en i fyrra
var hún komin upp i 3,04 1.
Hefurðu einhvern samanburð
á verðlagi áfengis og annarra
vörutegunda?
Ekki hef ég það nákvæmlega.
En það segir nokkoð um þróun-
ina að lambsskrokkurinn (kjöt
og gærur) lagði sig árið 1932 á
um 8-10 krónur, en var árið 1935
um 15-17 krónur. Þá var brenni-
vinsflaskan á 7 krónur. 1 dag er
flaskan komin i 2.170 krónur en
lambsskrokkurinn er kominn i
5.000 krónur. Þannig hefur hlut-
fallið tiltölulega litið breyst,
hvað þessar vörur snertir.
Hvernig er með tóbakssöluna,
hefur hún eitthvaö dregist sam-
an við áróðurinn gegn
vindlingareykingum ?
Ég tel að vindlingasalan hafi
minnkað á þessu ári og það er
eflaust áhrif frá áróðrinum
gegn reykingum sem sam-
starfsnefndin skipulagði I vetur.
Tóbakssalan var i fyrra 37,7%
af sölu ÁTVR, en var árið 1973
39,2%. Þá seldum við tóbak fyfir
1.212 miljarða, en árið 1974 fyrir
1,664 miljarða króna. Þá hefur
alþingi samþykkt viljayfirlýs-
ingu um að hafa skuli smá-
vindla ódýrari og höfum við
fylgt þvi á þann hátt að leggja
mun minna á þá. A þeim er að-
eins hálf álagning miðað við
vindlinga. Þá er reyktóbak fyrir
pipureykingamenn tiltölulega
ódýrt miðað við nágrannalönd-
in. Þannig gerum við okkar til
að beina með verðlagningu
neyslunni inn á þær brautir,
sem ekki eru eins óhollar.
Hvernig er það, Jón, hefur
starfsfólki fjöigað mikið hér hjá
ÁTVR, eins og verða vili hjá
mörgum rikisstofnunum?
Nei, starfsmannafjöldinn hjá
ÁTVR hefur að mestu verið ó-
breyttur og frekar fækkað, ef
eitthvað er.vegna meiri hagræð-
ingar i rekstri.
Að iokum — hvað tökum við
islendingar mikið i nefið á ári?
Hún hefur farið mikið minnk-
andi hin siðari ár. Arið 1971 tóku
islendingar hvorki meira né
minna en 30 tonn I nefið, en i
fyrra fóru aðeins 20 tonn i nös-
ina! Munntóbaksnotkun hefur
einnig dregist saman.
óre.
Útfœrsla fiskveiðilögsögunnar:
Stuðningur frá
Skoska þjóð-
ernisflokknum
Blaðinu hefur borist afrit af bréfi, sem deild
Skoska þjóðarflokksins á íslandi hefur sent Harold
Wilson, forsætisráðherra Bretlands, og lýsir flokks-
deildin þar fullum stuðningi við útfærslu islensku
fiskveiðilögsögunnar i 200 milur. Bréfið hijóðar svo:
„Skoski þjóðarflokkurinn á Is-
landi tilkynnir yður hér með að
hann styður fullkomlega þá
ákvörðun islensku rikisstjórnar-
innarað færa fiskveiðilögsögu Is-
lands út i 200 milur 15. október
1975. Skoski þjóðarflokkurinn á
Islandi lýsir yfir fullum stuðningi
við hverja þá aðgerð, sem islensk
yfirvöld kunna að gripa til i þvi
skyni að framfylgja þessari sögu-
legu ákvörðun.
Skoski þjóðarflokkurinn á Is-
landi treystir þvi að stjórn yðar
muni ekki endurtaka þau mjög
alvarlegu mistök, sem fyrri rikis-
stjórn Hins sameinaða konungs-
rikis gerði sig seka um og hafði
þær afleiðingar að öll skip is-
lensku landhelgisgæslunnar voru
löskuð i árásum og að yfirmaður i
Islensku landhelgisgæslunni beið
bana eftir árás, sem gerð var inn-
an tólf milna landhelginnar, er
nýtur alþjóðlegrar viðurkenning-
ar.
Skoski þjóðarflokkurinn á Is-
landi fagnar þvi hugrekki, sem is-
lenska þjóðin sýnir með þvi að
ryðja brautina á þessum vett-
vangi. Málstaður islensku þjóðar-
innar er réttlátur og helgur, þar
eð hún leitast við að varðveita
lifsbjargarmöguleika sina og
fæðustofna handa mannkyninu til
frambúðar.”
Bréfið er undirritað af fulltrúa
Skoska þjóðarflokksins á Islandi,
William McDougall.
Erfiðleikarí frystihúsa rekstri á Skagaströnd
Stafa þeir af innan-
flokksátökum í
Sjálfstæöisfl.?
Mikiir erfiðleikar steðja nú að
frystihúsi Hólaness á Skaga-
strönd, en lokað hefur verið
fyrir lánafyrirgreiðslur til fyrir-
tækisins frá bankakerfinu.-Varð
sú lokun með nokkuð cinkenni-
legum hætti, og telja skag-
strendingar hana stafa af inn-
anflokksátökum sjálfstæðis-
rnanna á Skagaströnd.
Fyrir 3 vikum eða svo var
haldinn aðalfundur Hólaness
h/f, sem rekur frystihús á
Skagaströnd. Reksturinn til
þess tima hafði gengið upp og
ofan og hafði togari skagstrend-
inga, Arnar, td. þurft að landa
um þriðjungi afla sins annars
staðar en á Skagaströnd, vegna
þess hve illa hefur gengið að fá
greitt fyrir aflann hjá Hólanesi.
Á aðalfundinum var öll
stjórnin endurkjörin nema einn
maður. Sá hafði mikið vasast i
rekstri fyrirtækisins og gjarnan
fylgt framkvæmdastjóranum i
bankasláttuferðir hans suður til
Rvikur á liðnum árum. Sá er
sjálfstæðismaður og var það
annar flokksbróðir hans sem
bar hærri hlut frá borði i
kosningu til stjórnar fyrirtækis-
ins.
Tveimur dögum eftir aðal-
fund og fall fyrrgreinds sjálf-
stæðismanns kemur tilkynning
norður til Skagastrandar frá
viðskiptabanka fyrirtækisins i
Reykjavik þess efnis að frá og
með lokum simtalsins yrði lok-
að fyrir frekari lánagreiðslur til
fyrirtækisins, og af þeim sökum
fengist heldur ekki útgreitt
fjögurra miljóna króna lán sem
samþykkt hafði verið að veita
fyrirtækinu og búið var að
ganga frá veitingu á. en aðeins
eftir að greiða út.
Ástæðan var sögð sú,að hringt
hefði verið til bankans norðan
frá Skagaströnd og þær upp-
lýsingar gefnar, að fyrirtækið
vasri illa rekið og riðaði á barmi
gjaldþrots, og þvi hrein óráðsia
að lána þvi fé.
Telja skagstrendingar, að slik
upphringing, sem mark yrði
tekið á i viðskiptabanka fyrir-
tækisins, hljóti að hafa verið
gerðaf manni, sem vel þekkti til
reksturs fyrirtækisins, og vitað
væri af i bankanum að hefði
slika þekkingu til að bera. Er
þvi nú allt i óvissu með frekari
rekstur Hólanessfrystihússins.
en það er þó rekið enn og vinna
fer þar fram.
Annað af atvinnumálum
skagstrendinga er það að frétta
að togarinn Arnar hefur fiskað
mjög vel til þessa, eða hátt i tvö
þúsund tonn frá áramótum.
—úþ