Þjóðviljinn - 19.07.1975, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. júli. 1975.
Fjögur neita að
taka sæti í frjáls-
íþróttalandsliðinu
A sama tlma og íslenska landsliöiö i frjálsum tekur þátt i Karlott-
keppninni er Ungmennafélag tsiands meö hóp íþróttafólks I Dan-
mörku og hafa fjórir ungmennafélagar neitað aö taka sæti i Isienska
landsliöinu, en fara þess I stað meö UMFÍ.
Þetta eru þau Karl West, Hafdis Ingimarsdóttir, bæöi úr UMSK,
Ingbjörg Guömundsdóttir úr HSK og Sigurbjörg Karlsdóttir.
Að vonum voru forráðamenn FHt mjög óánægöir mcö þessa
afstööu fjórmenninganna og hefur mikiö veriö fundaö um málið hjá
FRl. Hefur heyrst aö til greina hafi komiö að setja þau I keppnis-
bann en frá þvi hefur verið horfiö.
— Við teljum rétt að gera ekkert frekar i málinu úr þvi sem kom-
ið er, þótt við séum auövitað óanægðir og raunar meira en það,
sagði örn Eiðsson formaður FRII gær, — En þar sem við eigum fólk
sem er mjög svipaö að styrkleika þá leysum við málið á friðsam-
legan hátt að þessu sinni, bætti hann við.
En hvers vegna neita f jórmenningarnir aö taka sæti I landsliðinu:
Annarsstaöar hér á iþróttasiöunni er viötal viö Karl West þar sem
hann skýrir afstööu sina til málsins. —Sdór.
Landsliðið fyrir
Karlottkeppnina
hefur verið valið
Um næstu helgi fer fram i
Tromsö i Noregi landskeppni i
frjálsíþróttum milli tslands, Dan-
merkur, N-Noregs, N-Sviþjóöar
og N-Finnlands. tslenska lands-
liöið sem tekur þátt i keppninni
hefur nú verið valiö og veröur þaö
þannig skipað:
Elías Sveinsson, hástökk,
stangarstökk og spjótkast.
Jón S. Þórðarson, 400 m
grindahlaup.
Friðrik Þór Óskarsson langstökk
og þristökk
ÍÞRÓTTIR
VIKUNNI
Laugardagur 19. jiilf.
2. deild Armannsvöllur: Armann-Vik 0 kl. 16.00
2. deild Selfossvöllur: Selfoss-Völsungur kl. 16.00
2. deild Arskögsvöllur: Reynir A-Þróttur kl. 16.00
3. deild A Þorlákshöfn: Þór Þ-Reynir kl. 16.00
3. deild B Varmárvöllur: Afturelding-USVS kl. 16.00
3. deild C Bolungarvlk: Bolungarvfk-Grundarfj.
k 1.16 00
3. deild C Stykkishólmur: Snefell-Skallagrlmur
kl. 16.00
3. deild C lsafjaröarvöllur: IBl-HVÍ kl. 16.00
3. deild DSauöárkrókur: UMSS-Efling kl. 16.00
3. deild D Olafsfjöröur: Leiftur-KA kl. 16.00
3. deild D Hornafjöröur: Sindri-Huginn kl. 16.00
2. n. B Gróttuvöllur: Grótta-KS kl. 16.00
3. fl. A Vestmannaeyjar: ÍBV-IA kl. 15.00
3. fl. D Akureyri: KA-Völsungur kl. 16 10
4. fl. E Akureyri: KA-Völsungur kl. 15.00
5. fl. E Akureyri: KA-Völsungur kl. 14.00
5. íl. D Þingeyri: HVMBl kl. 15.00
3. n. C lsafjöröur: IBI-HVI kl. 14.00
Konur A Akranes: ÍA-Grindavlk kl. 14.00
Sunnudagur 20. júll
1. deild Kaplakrikavöllur: FH-IBV kl. 14.00
l.deild Akranesvöllur: lA-VIkingur kl. 16.00
1. deild Keflavlkurvöllur: ÍBK-Fram kl. 20.00
3. n. D Sauöárkrókur: Tindastóll-Þór kl. 16.10
4. n. E Sauöárkrókur: Tindastóll-Þór kl. 15.00
5. fl. E Sauöárkrókur: Tindastóll-Þór kl. 14.00
3. n. DSiglufjöröur: KS-Leiftur kl. 16.10
4. n. E Siglufjöröur: KS-Leiftur kl. 15.00
5 n. E Siglufjöröur: KS-Leiftur kl. 14.00
3 n. E Eskifjöröur: Austri-Einherji kl. 16.00
3. n. E Héraösvöllur: Höttur-Huginn kl. 16.00
5. n. F Héraösvöllur: Höttur-Huginn kl. 15.00
4. n. F Neskaupstaöur: Þróttur-Valur kl. 16100
5. n. F Neskaupstaöur: Þróttur-Valur kl. 15.00
4. n. F Fáskrúösfj.: Leiknir-Sindri kl. 16.00
4. n. D lsafjöröur: IBI-HVI kl. 16.00
4. fl. A Þróttarvöllur: Þróttur-IBV kl. 14.00
5. n. A Kópavogsvöllur: UBK-IBV kl. 14.00
2. n. B Hvaleyrarholt: Haukar- KS kl. 16.00
Mánudagur 21. júlf
1 deild Laugardalsvöllur: Valur-KR kl. 20.00
2. deild Kópavogsvöllur: UBK-Haukar kl. 19.00
3. deild B Melavöllur: IR-Stjarnan kl. 20.00
5. n. A Hvaleyrarholt: FH-Valur kl. 20.00
Golf
19. júli: G.R. Max Factor. Flokkakeppni 18 h.
Konur/unglingar.
20. iúll: G.R. Max Factor Flokkakeppni 18h.
Karlar.
19.—20. júll: G.A. Jaöarsmót. 36 holur meö og án
forgjafar.
Frjálsar iþróttir
Föstud. 18. júlf tslandsmót dr., st., sv. og meyja,
Selfossi, f. dagur
Laugard. 19. júll Evrópubikarkeppni I tugþraut,
Barcelona, fyrri dagur (Belgla, Irland, A.-Þýska-
land, Bretíand, Island. Spánn, Sviss)
Innanfélagsmót FH, Kaplakrikavöllur (19. og 20.
júll)
Unglingamót HSÞ, Laugum lslandsmót 15—18 ára,
Selfossi slöari dagur.
Sunnud. 20. júll: Evrópubikarkeppni I tugþraut,
Barcelona, slöari dagur. Tvær fyrstu þjóöirnar íara
I úrslit I Varsjá 6.-7. september.
Agúst Asgeirsson 800 m hlaup og
3000 m hindrunarhlaup
Sigfús Jónsson 5000 og 10000 m
hlaup.
Július Hjörleifsson 1500 m hlaup.
Stefán Hallgrimsson 400 og 110 m
grindahlaup og 400 m hlaup.
Bjarni Stefánsson 100,200, og 400
m hlaup.
Valbjörn Þorláksson 110 m
grindahlaup og stangarstökk.
Sigurður Sigmundsson 5000 m
hlaup og 3000 m hindrunarhlaup.
Erlendur Valdimarsson kringlu-
kast og sleggjukast.
Sigurður Sigurösson 100 og 200 m
hlaup.
Hreinn Halldórsson kúluvarp og
kringlukast.
Pétur Pétursson þristökk .
Jón Diðriksson 800 og 1500 m
hlaup.
Sigurður Jónsson langstökk.
Jón H. Sigurösson 10.000 m hlaup.
Guöni Halldórsson sleggjukast
Gunnar Páll Jóakimsson
varamaöur
Hafsteinn Jóhannsson hástökk.
Framhald á bls. 10
Breytingar
á leikdögum
Miklar breytingar á leikdögum
i knattspyrnunni munu verða um
þessa helgi. í 1. deildinni verða
leikirnir þannig:
Laugardv. Víkingur-IA kl. 20.00
á sunnudag.
Kaplakrikav. FH.-tBV kl. 14.00 á
laugardag.
Laugardv. Valur-KR kl. 20. á
mánudag.
Laugardv. Fram-IBK kl. 20 á
þriðjud.
1 2. deild verða leikir þannig:
Melav. Armann-Vik Ö. kl. 16.00 á
laugardag
Selfossv. Selfoss-Völsungur kl.
14.00 á laugardag
Þróttarv. Þróttur-Reynir A kl.
14.00 á laugard.
Kópav. Breiðablik-Haukar kl.
19.00 á mánudag.
1 næstu viku fara fram úrslita-
leikir i bikarkeppni l.og2. flokks.
Báðir fara fram á miðvikudags-
kvöld kl. 20.00 . Á Melafelli leika i
2. fl. Breiðablik og 1A en það eru
sömu lið og léku til úrslita i fyrra.
A Kaplakrikavelli leika i 1. flokki
Vikingur og IBK en Vikingur
vann i fyrra i þessu móti.
Leikurinn Víkingur og Selfoss,
sem frestað var í siðustu umferð
2. deildar fer fram nk. miðviku-
dagskvöld á heimavelli þeirra
fyrrnefndu og hefst kl. 20.00.
Karl West reynir ekki viö 1.98 I sumar eins og þegar þessi mynd var tekin. Astæöan er slys I vor,
sem hefur haldiö honum frá æfingum. Þaö æfingaleysi hyggst hann bæta sér upp meö 10 daga ferö
til Danmerkur, en sú ferö fékk litinn hljómgrunn hjá FRl.
„Eitt styggðaryrði
í viðbót og þá er
ég farinn á togara”
segir Karl West og er reiður
út í FRÍ vegna landsliðsmála
/,Maður er orðinn svo
langþreyttur á þessu
nuddi út af landsliðinu að
það er alveg á mörkunum
að maður haldi þessu
áfram," sagði Karl West,
landsliðsmaður í frjáls-
um iþróttum í samtali við
Þjóðviljann. „Maður
fórnar bókstaflega öllu
fyrir íþróttirnar, sleppir
atvinnutilboðum, neitar
aukavinnu o.s.frv. en síð-
an er komið fram við
mann eins og maður sé til
einskis nýtur nema að
nota skrokkinn i þágu
FRÍ."
Tilefni þess aö hringt var i
Karl var það að hann er einn
fjögurra manna sem valdir voru
i landsliðið til utanfarar síðar i
þessum mánuði, en neitaði að
fara.
— Það eru búin að vera mikil
átök út af þessari ferð, sagði
Karl. Okkur var hótað keppnis-
banni með landsliðinu og jafn-
vel á stórmótum hér heima, ef
við færum ekki út, og það hlaut
að koma að þvi að landsliðsfólk
setti hnefann i borðið. Maður
lætur ekki endalaust bjóða sér
upp á framkomu á borð við
þessa.
— Hvenær var landsliðsvalið
tilkynnt?
— Það átti að gera það á
landsmótinu um siðustu helgi,
en einhverra hluta vegna var
það nú ekki gert. Hins vegar
gengu FRÍ-menn þó um þarna
upp frá og hótuðu hverjum þeim
sem sýndi mótþróa keppnis-
banni i refsingarskyni. Þeir sem
frekar vildu fara með UMFI til
Danmerkur áttu að vera dauða-
dæmdir menn a.m.k. i sumar.
Það er svo margt sem virðist
ekki vcra á hreinu i sambandi
við landsliðið i frjálsum að mað-
ur er að gefast upp á að standa i
þessu. T.d. hafa oft verið valdir
menn til utanfarar sem ekki
hafa eins góðan árangur i ein-
stakri grein og aðrir. Þeir eru
þá valdir af sparnaðarástæðum,
vegna þess að þeir geta keppt i
öðrum greinum lika.
Það er einmitt útaf þessu sem
Hafdis gefur ekki kost á sér.
Hún var ekki boðuð til Noregs-
ferðarinnar fyrr en núna i vik-
unni en var þá búin að tilkynna
sig með UMFt. 1 fyrra átti hún
besta árangur i langstökki eins
og nú, en var ekki valin þá I
landsliðið af sparnaðarástæð-
um. Hún gat alveg eins haldið
að enn væri verið að spara og
þess vegna tilkynnt sig i ferðina
með Ungmennafélaginu.
Auðvitað verða þeir að til-
kynna fólki timanlega að það sé
i landsliðinu, spyrja það hvort
það geti farið vegna vinnu og af
fjárhagsástæðum o.s.frv., en
ekkert slikt virðist vera hugsað
út i. Þeir hins vegar ætlast til
þess að fólk skriði fyrir þeim,
þeir segja bara að þú sért i
landsliöinu og þá gerir þú bara
svona og svona og allt eins og
við segjum þér.
— Ferð þú i keppnisbann?
— Nei, þeir urðu að draga all-
ar slikar hótanir I land. Við er-
um búin að kanna þetta mál i
kjölinn og það er enginn fótur
fyrir þvi að FRI geti sett okkur i
eitt eða annað bann. Annars á-
kvað ég frekar að fara til Dan-
merkur vegna þess hve góða æf-
ingaaðstöðu ég fæ þar auk þess
sem ég er alls ekki orðinn góður
eftir meiðsli sem ég lenti i i vor.
Ég stekk ekki nema 1,92 um
þessar mundir, hef ekki náð
mér eftir æfingaleysið i vor.
Þegar ég sagði þeim af þessu i
rólegheitum svöruðu þeir með
eintómum skæting, og það er
þess vegna sem maður er svona
reiður. Það eru alltaf leiðindi ef
maður fer ekki eins og útflatt
hundsskinn eftir boðum forystu-
manna.
— Þú ert ekki að hætta er
það?
— Þetta má ekki ganga leng-
ur svona. Ég er lærður loft-
skeytamaður og get fengið úr-
valsvinnu á togurum ef ég kæri
mig um. Maður er hins vegar að
vinna hérna á þurru landi fyrir
iþróttina, sleppir aukavinnu
fyrir æfingar o.s.frv. og það er
spurning hvað maður getur
lengi leyft sér slikan munað
þegar það er ekki virt á nokkurn
hátt.
Ég hótaði þvi hins vegar að ef
ég fengi ekki að fara i friði
þarna út til Danmerkur og
vinna upp æfingatapið frá þvi i
vor, þá væri ég hættur. Slysið
sem ég lenti i var i og með vegna
aðstöðuleysis og það er einnig
farið að draga úr manni; að-
staðan virðist litiö ætla að
breytast.
— Hvernig var svo þessum
hótunum þinum tekið?
— Þeir hrukku soldið i kút og
héldu annan fund um málið. Nú
er búið að draga. allt hjal um
keppnisbann i land, þeir gátu
ekki staðið i þessu.
— Hefurðu eitthvað heyrt um
það að þeir sem ætli til Noregs
krefjist þess að þið fjögur sem
ekki farið verði sett i keppnis-
bann?
— Nei, ég hef nú ekki heyrt
það. Hins vegar veit ég að mörg
þeirra eru sár út i okkur hin sem
ekki förum.en það verður bara
að hafa það. Vissulega hundsum
við landsliðið, en ég mundi
a.m.k. ekki gera það svona
hispurslaust ef ég væri maður
upp á stökkhæðina 2,20. Eins og
er hef ég litla þýðingu fyrir
landsliðið, 1.92 m er ekki mikið
afrek og dugar litið þarna úti.
Við höfum enda annan sem
stekkur þá hæð. Maður er þarna
aftast á merinni og mikilvægi
mitt getur þvi ekki verið svona
gifurlegt. —gsp