Þjóðviljinn - 19.07.1975, Side 12

Þjóðviljinn - 19.07.1975, Side 12
DJOÐVIUINN Portúgal: Laugardagur 19. júli. 1975. LSD reynt á her- mönnum Washington 18/7: Bandariski herinn og háskólinn i Mary- land hafa prófaö LSD á hundr- uðum hermanna, heldur blað- ið Washington Post fram i dag. Margir af hermönnunum vissu ekki að verið væri að nota þá sem tilraunadýr. Þessi furðulega visindarann- sókn var gerð i þvi skyni að komast að þvi hvort hægt væri að nota LSD seift árásarvopn í striði. Þrír skæru- liðar drepnir í Israel Tel Avis 18/7: Samkvæmt uppiýsingum frá talsmanni israelshers i Tel Aviv, drápu israelskir hermenn 3 palestinuskæruiiða i morgun, sem komið höfðu yfir landa- mærin frá Libanon. Einn isra- elskur hermaður særðist litil- lega. Áreksturinn átti sér stað i nágrenni bæjarins Metullah i Norður-lsrael. Eftir uppiýs- ingum talsmannsins höfðu skæruliðarnir með sér vopn og sprengjur, þá áttu þeir einnig að dreifa bæklingum þar sem krafist er að arabiskir skæru- liðar, sem sitja i fangelsum i ísrael, verði látnir lausir. Sumarferð Alþýðu- bandalags- ins í Hin árlega sumarferð Al- þýðubandalagsins i Kópavogi verður farin helgina 16.-17. ágúst. Að þessu sinni verður farið i Landmannalaugar og Eldgjá. Allar upplýsingar um ferðina eru veittar í sima 41279. Nánar verður auglýst um leiðina og fleira siðar. Sjálf- boðaliðar! Unnið verður i sjáifboðavinnu við fyrstu hæð Þjóðviljahúss- ins að Siðumúla 6 i dag, laug- ardag, frá kl. 8 f.h. Júgó- slavar unnu 1 gærkvöld léku júgóslavar og islendingar landsleik i handknattleik i Júgóslaviu. Þetta var 1. leikur i svonefnd- um „Júgóslaviuleikum”, en auk júgóslava og islendinga taka rússar og pólverjar þátt i þeim. 1 hálfJeik var staðan 14:6 júgóslövum i hag og lauk með sigri þeirra 26:20. Loft er lævi blandið Lissabon 18/7. Herinn i Portúgal var beðinn að vera tilbúinn að taka i taumana ef til átaka kæmi milli stjórnmálaflokkanna i norð- urhluta landsins, þar sem boðað hefur verið til mótmælafunda I dag. Sósialistar, alþýðudemókrat- ar og kommúnistar hafa allir boð- að miklar aðgerðir og fundi i næststærstu borg landsins, Oporto. t gær for verkamanna- sambandið i Portúgal, sem stjórnað er af kommúnistum, fram á það við meðlimi sina, að þeir hættu snemma að vinna i dag og lokuðu veginum til Oporto til þess að fulltrúar sósialista kæm- ust ekki til borgarinnar. Þá voru allir stuðningsmenn kommúnista beðnir að gefa sig fram við flokksskrifstofurnar i landinu til að þeir gætu verið til taks. Mun það vera ætlun kommúnista að hleypa upp fundum andstæðing- anna i borginni. 1 Oporto unnu sósialistar og al- þýðudemókratar ýiirburðasigur i kosningunum i april, fengu sam- tals 36 fulltrúa en kommúnistar aðeins 1. Sósialistar virðast ekki ætla að láta sinn hlut fyrir kommúnistum og aflýsa fundin- um og er þvi búist við að til tið- inda geti dregið i kvöld. t dag var ráðist á skrifstofur kommúnista i tveim bæjum 60 km norður af Lissabon, i Lourihna og Cadaval. Voru bækur og pappirar brenndir og rúður brotnar. Borgar- stj órn er farin í frí Borgarstjórn fer nú i fri. Munu fundir hennar liggja niðri um tveggja mánaða skeið. Hefjast þeir næst i október, og verður næsti fund- ur þvl fimmtudaginn 2. október. Hinar ýmsu nefndir borgar- innar munu þó halda áfram að starfa, svo og borgarráð, sem kemur reglulega saman einu sinni til tvisvar I viku hverri. Amin alltaf jafn herskár Kampala 18/7 — Idi Amin forseti Uganda sagði á fundi Einingar- samtaka Afriku I dag, að þau skyldu vera tilbúin að berjast til siðasta manns f Suður-Afriku, og lýsti detente-stefnu Pretoriu- stjórnarinnar sem banvænu eitri. Amin var að ávarpa fulltrúa á 25. ráðherrafundi einingarsam- takanna, sem er haldinn til undir- búnings 12. fundi einingarsam- takanna, sem verður i Kampala i Uganda eftir 10 daga. Ugandaforseti, sem talaði I klukkustund sagði: Áframhald- andi apartheid-stefna kallar á strið við alla hina frjálsu Afrfku og við verðum að vera viðbúnir að berjast til siðasta manns eða þar til bræður okkar i Suður-Afriku eru frjálsir og sjálfstæðir. Fyrr i ræðu sinni sagði for- setinn: Það eitur, sem drepur samheldni, bræðralag og sjálf- stæði Afrikurikjanna, er nú að verða tilbúið i tilraunastofu stjórnarinnar i Suður-Afriku. Nafnið á eitrinu er detente. Þá sagði Amin, að detente- stefna Vorsters forsætisráðherra Suður-Afriku, væri tilraun til að telja Afriku trú um öryggi, sem ekki væri fyrir hendi. Hafísinn er að þokast frá landinu sagði Jóhann Pétursson vitavörður á Hornbjargsvita — Hér er blíðskaparveður I dag og raunar i gær lika og skyggni er þetta 15 til 18 km og á þvi svæði sést enginn hafls lengur, sagði Jó- hann Pétursson vitavörður á Hornbjargsvita er við ræddum við hann i gær. — Þetta hefur nú aðeins verið ishrafl hér. Það virðist sem þetta ismagn hafi losnaö frá meginisn- um og rekið upp að landinu og það þurfti þvi ekki nema smá golu af landi til að hrekja hann burt. — Ef þessi vindátt heldur eitthvað á- fram hverfur isinn alveg. — Þessum hafis fylgdi þoku- suddi öðru hverju og hitinn komst niðuri 2 til 3 gráður að nóttu til en eins og ég sagði áðan hlýnaði um miðja vikuna og hitinn hefur til að mynda i dag verið 8 stig, sem jafngildir svona um 11 stigum i Reykjavik. Það gerir rakastigið. — Er ekki annars allt gott af þér að frétta þarna i fámenninu? — Jú, allt ljómandi gott og ég bið að heilsa vinum og kunningj- um, sagði Jóltpnn að lokum. —S.dór vinavan* Js/améi Króksftraun. Svæðiskort af Auðkúluheiði og nágrenni.en Blanda er á miðri mynd- inni. 99 r Astæðulaust að eyða landi y/ stóriðju” — segir oddviti Bólstaðarhliðar- hrepps, Jón Tryggvason í Artúnum „Við teljum að engin þörf sé á að virkja Blöndu. Við höfum bent á að æskilegra væri að leggja á- herslu á virkjun Héraðsvatna. Menn hafa almennt ekki mikinn hug á stóriðju hér og teljum ekki ástæðu til að islendingar eyði landi þess vegna”, sagði Jón Tryggvason oddviti i Artúnum i Bólstaðahlíðarhreppi, en ágrein- ingur hefur risið i hreppunum i kringum Blöndu vegna fyrirhug- aðrar virkjunar. Fundir voru haldnir nú i vik- unnj beggja vegna Blöndu, þar sem fjallað var um fyrirhugaða virkjun og voru niðurstöður á þá lund, að hrepparnir austan Blöndu vilja ekki fallast á tillögur Orkustofnunar um virkjun Blöndu, en á Hreppsnefndarfundi með fulltrúum Blönduóshrepps, Svinavatnshrepps og Torfulækj- arhrepps var samþykkt méð einu mótatkvæði að mæla með áfram- haldandi rannsóknum á virkjun Blöndu og verði af framkvæmd- um komi bætur til bæja á svæðinu i formi uppgræðslu og rafmagns. Á almennum fundi i Svina- vatnshreppi var samþykkt með 31 atkvæði gegn 16 að ástæðulaust væri að halda áfram Blönduvirkj- un, en lögð áhersla á virkjun Hér- aðsvatna og Jökulsár eystri. A fundi i Torfulækjarhreppi var meirihlutinn samþykkur niður- stöðum af fundi hreppsnefnda hreppanna vestan Blöndu. Jón sagði ennfremur, að hér væri um að ræða þýðingarmikinn afrétt fyrir bændur i nágrenni Blöndu og að ekki virtist ástæða til að eyða landi, á meðan al- mennt væri rætt um að græða iandið upp. „Ég hef heyrt, að það land, sem fer undir vatn við þessa virkjun, muni verða nálægt helmingi alls þess lands,sem liggur undir vatni vegna virkjunar á landinu öllu”, sagði Jón ennfremur. Alyktanir fundanna hafa verið sendar Iðn- aðarráðuneytinu. þs Makarios f er ekki á toppfundinn í Helsingfors Nicosia 18/7 Heimildir frá Nicosiu á Kýpur herma að Makarios erkibiskup forseti grisk-kýpurska hluta eyjar- innar muni ekki taka þátt i toppfundinum i Helsingfors 30. júli n.k. en þessi fundur er lokin á öryggismálaráð- stefnu Evrópu. Makariosi hefur heldur ekki verið boðið til þessa fundar, segir i heimildunum. Tyrkir hafa þegar lagst gegn þátttöku Makariosar i þessum fundi. A öryggismálaráðstefnunni, sem nú stendur yfir i Genf hef- ur engin lausn fengist á þvi hver skuli verða fulltrúi Kýp- ur i Helsingfors.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.