Þjóðviljinn - 26.07.1975, Side 3
Laugardagur 26. jlill 1975. WOÐVILJINN — StÐA 3
Nýjung í íslenskri skipasmíði:
Skuttogari
og nótaveiði-
skip í senn
Tveir slíkir togarar í smíðum
í Slippstöðinni á Akureyri
Tarnús
sýnir að
Kjarvals-
stöðum
A laugardaginn kl. 14 opnar
málverkasýningu að Kjarvals-
stöðum málarinn Grétar Magnús
Guðmundsson. sem nefnir sig
listamannsnafninu Tarnús.
Þetta er fyrsta einkasýning
Tarnúsar, en áður hefur hann
tekið þátt i haustsýningu árið
1973. Að þessu sinni sýnir hann 35
málverk, og eru þau gerð á ellefu
ára timabili, hið elsta frá 1964, en
langflest eru þó frá siðasta ári og
þessu. Tarnús hóf nám við
Handiða- og myndlistaskólann
1968, en lauk kennaraprófi þaðan
1971. Auk þess hefur hann einnig
fengist við tónlist.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 14 til 22 og stendur hún til 4.
ágúst. Einhvern tima i næstu viku
kann að vera að popp-hljómsveit
liti þar inn og spil eina kvöld-
stund, en það er enn óráðið og
verður tilkynnt nánar siðar.
Flestar myndirnar eru til sölu.
Fyrsti íslenski togarinn
sem bæði er skuttogari og
nótaveiðiskip er nú í smíð-
um i Slippstöðinni á Akur-
eyri og er verið að byrja á
öðrum eins. Talið er að
smíði þessara skipa muni
geta valdið straumhvörf-
um fyrir þá staði á land-
inu, sem þurfa á að halda
skipúm, sem hægt er að
nýta allt árið við mismun-
andi veiðar.
Ingólfur Sverrisson hjá Slipp-
stöðinni sagði að margir hefðu
lagst á eitt við að hanna þennan
togara og væri þessi samvinna
mjög athyglisverð, en útgerðar-
menn hafa m.a. verið með i ráð-
um um gerð hans. Fyrsti togarinn
af þessu tagi sem langt er kominn
er smiðaður fyrir Rafn h.f. i
Sandgerði. Gert er ráð fyrir að
hann komist á flot i nóvember og
verði siðan afhentur um mánaða-
mótin febrúar-marz. Siðari tog-
arinn af þessari tegund, sem á-
kveðið er að smiða, verður af-
hentur i janúar 1977, en það er
Þórður Óskarsson á Akranesi
sem kaupir hann. A milli þessara
Sjálfvirkur logskeri
Ný útflutningsvara
Lampar gerðir á Hvolsvelli
t júni síðastliðnum var gerður
samningur milli Jóhannesar
Pálssonar, plastframleiðanda og
uppfinningamanns og Henning
Jensen, eiganda Belysningsagen-
turet A/S i Kaupmannahöfn um
framleiðslu á nýrri gerð af hand-
lampa (vinnuljósi) sem Jóhannes
hefur hannað.
Handlampann á að framleiða
að hluta til á tslandi hjá nýstofn-
uðu fyrirtæki, sem heitir Bjalla-
plast, Hvolsvelli.og að hluta til i
Danmörku. Henning Jensen mun
sjá um sölu lampans á erlendum
mörkuðum en Jóhannes Pálsson
hér. Gert er ráð fyrir að fram-
leiða 200 þús. lampa á ári og þar
af seljist i Danmörku ca. 50.000,
en það sem þá sé eftir verði flutt
út. Væntanlega seljast 3—4000
lampar á Islandi á ári. Fram-
leiðsluverðmæti 200 þús. lampa-
hluta sem framleiddir verða á Is-
landi nema ca. 28 milj. króna og
veitir ca. 5 manns atvinnu.
Jóhannes byrjaði að hanna
lampann fyrir 2 árum og hafði þá
samband við Útflutningsmiðstöð-
ina jafnframt þvi að hann reyndi
fyrir sér i Noregi. Skriður komst
á málið fyrir 9 mánuðum er
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
náði sambandi við Henning Jen-
sen i gegnum umboðsmann Glits i
Danmörku, Agnar Samuelsson,
en Glit hefur selt þessum danska
aðila keramiklampa.
Danska rafmagnseftirlitið hefr
skoðað prototypur af lampanum
og samþykkt hann fyrir sitt leyti.
RafsuðumaOur aO starfi
Leiklistarskóli íslands:
Pétur Einars-
son skólastjóri
Pétur Einarsson hefur verið
ættur skólastjóri Leiklistarskóla
islands til fjögurra ára. Jafn-
'ramt hefur menntamálaráð-
nerra skipað Klemenz Jónsson
formann skólanefndar Leiklistar-
skólans. Aðrir i skólanefnd eru
Helga Hjörvar (Bandalag isl.
leikfélaga) Sigmundur örn Arn-
grimsson (Leikfélag Akureyrar),
Vigdis Finnbogadóttir (Leikfélag
Reykjavikur) Sveinn Einarsson
(Þjóðleikhúsið), Guðmundur
Jónsson (Rikisútvarpið) og Þor-
steinn Gunnarsson (Félag isl.
leikara). Auk þess eiga kennarar
og nemendur rétt á að skipa sinn
hvorn fulltrúann i skólanefndina
til eins árs. Skólinn tekur til
starfa i haust. þs.
Tarnús viö eina af myndum sinum á Kjarvalsstöðum.
tveggja verður svo smiðaður tog-
ari fyrir útgerðarfélag idalvik-
inga -og verður skrokkurinn
keyptur frá Noregi. Sagði Ingólf-
ur að hlutföll á milli verkhópa
slippstöðvarinnar röskuðust mjög
við smiði togaranna tveggja, þar
sem þar er mest vinna fyrir
málmiðnaðarmenn, en smiði tog-
arans fyrir dalvikinga myndi
skapa atvinnu fyrir ýmsa aðra
hópa, t.d. trésmiði, rafvirkja og
vélvirkja. Ekki er vitað hvað
verður endanlegt verð togarans
sem smiðaður er fyrir Rafn h.f.,
en hann er um 470 lestir. Sagðist
Þannig leit skrokkur skipsins út fyrir einum þremur vikum er fréttamaður Þjóöviljans leit inn i Siipp-
stöðina. Ljósm. sj.
Ingólfur vera mjög bjartsýnn
með þetta verk og þegar hefðu
fleiri aðilar sýnt áhuga á að láta
smiða slikan togara. —þs.