Þjóðviljinn - 26.07.1975, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. júll 1975.
Úr skýrslu Iðnþróunarnefndar
Roöfléttivél þessi kemur sér vel I islenskum fiskiönaöi.
Viðfangsefni
tækniþróunar
á íslandi
í skýrslu iðnþróunarnefndar
um eflingu iðnaðar á íslandi er
m.a. vikið að viðfangsefnum
tækniþróunar á Islandi, þar er þvi
haldið fram að þróun iðnaðar hafi
verið nokkrum tilviljunum háð.
Tækniframfarir hafa lika verið
seiýna á ferðinni hér á landi en i
nágrannalöndum okkar. Starfs-
svið fyrirtækja og smæð hefur
valdið þvi, að ýmsar tækninýj-
ungar nútimans hafa ekki notið
sin sem skyldi, og tæknilegt þró-
unarstig þvi ekki ráðið úrslitum
um samkeppnishæfni.
Sú tækniþróun sem orðið hefur
hér á landi hefur þvi ekki beinst
að notkun rafeindatækni, leysi-
geisla, sjálfstýringa, sjálfvirkni
né tölvutækni við rekstur fyrir-
tækja og stjórnun framleiðslu
heldur að fullkomnara húsnæði og
vélakosti með aukningu afkasta
og nýtingu takmarkaðs mannafla
i huga.
Þá segir einnig i skýrslunni, að
ýmsar greinar iðnaðar á tslandi
einkennist mjög af handverks-
hefðum og þjónustustarfsemi, þó
að nú sé farið að verða vart þró-
unar i átt til vöruframleiðsluvið-
horfa með meiri verkaskiptingu
innan fyrirtækja og vaxandi þörf
fyrir sérþjálfað verkafólk til að
annast afkastamikil atvinnutæki.
Þá vaxi lika þörfin fyrir ýmis
konar stjórntæki innan fyrirtækj-
anna til að ráða við flóknari
rekstur og til að halda fram-
leiðslukostnaði og gæðum innan
marka samkeppnishæfni.
Nefndin telur, að þróun i þessa
átt verði örari næstu árin og hlut-
ar framleiðsluiðnaðarins eigi eft-
ir að vaxa að umfangi og mikil-
vægi. Samhliða þvi verði tækni-
þróun örari og auknar körfur þvi
gerðar til þeirra aðila sem þátt
eigi i þeirri þróun.
Er siðan vikið nokkuð að þeim
viðfangsefnum, sem möguleikar
eru á að hægt sé að fást við og þau
rædd nánar, en það tekið fram að
hér sé enganveginn um tæmandi
upptalningu að ræða og að skipt-
ing viðfangsefnanna gæti jafn-
framt verið með öðrum hætti.
Nýting jarðefna
Helstu viðfangsefnin eru: nýt-
ing jarðefna til bygginga og ann-
Togvindan er framleidd af Islenskum aöilum.
ars framleiðsluiðnaðar og er i þvi
sambandi bent á þau efni sem ís-
land er auðugt af, s.s. ýmis gos-
efni, en þá er átt við perlustein,
vikur og gjall svo eitthvað sé
nefnt. Þá er þess getið að störf
gosefnanefndar iðnaðarráðuneyt-
isins hafi leitt i ljós að nokkur
verkefnigætuleitttil nýrrar fram-
leiðslu innan tiltölulega skamms
tima.
Lífefnavinnsla
Þá er einnig minnst á lifefna-
vinnslu, sem sé ört vaxandi fram-
leiðslugrein um allan heim og
mjög hraðfara þróun sé i notkun
ýmissa örvera og lifhvata
(enzyma). Segir í skýrslunni að
nefnd, sem starfað hafi á vegum
iðnaðarráðuneytisins til að kanna
forsendúr lyfja- og lifefnavinnslu
hafi bent á að ýmis efni, sem til
eru á islandi henti vel til lifefna-
iðnaðar og eru þar nefnd dæmi
eins og fiskúrgangur, affall frá
sláturhúsum, hvalvinnsla o.fl.
Rafeindatækni
Nefndin bendir einnig á, að Is-
land hafi á seinni árum eignast
marga ágæta hugvitsmenn á sviði
rafeindatækni og hafi margvisleg
tæki til ýmissa sérnota verið
smiðuð hér á landi, s.s. segul-
sviðsmælar, fiskteljarar, gjald-
mælar i leigubifreiöar, geisla-
mælar og ýmis sérsmiðuð raf-
eindatæki til visindarannsókna.
Nokkrar tilraunir hafa verið
gerðar með framleiðslu slikra
tækja hér á landi, en vegna hárra
tolla hérlendis á hlutusn til tækja-
gerðar hafi framleiðsla m.a. ekki
tekist. En með leiðréttingu á toll-
skrá sem gerðar hafi verið nýlega
horfi nú vænlegar fyrir rafeinda-
iðnaði hér á landi, þó að enn þurfi
að bæta nokkuð úr i þeim efnum.
Iðnaöur i þágu
sjávarútvegs.
Þá er einnig minnst á plastiðn-
að t.d. við gerð fiskkassa, ýmis
Innlend skipasmiði hefur mikiö gildi fyrir iðnað landsmanna.
konar léttmálmsiönað i sambandi
við ál, ullar og skinnaiönað og
ýmislegt I sambandi við bygging-
ariðnað. Þá er sérstaklega getið
um iðnað i þágu sjávarútvegs og
bent á að fiskveiðar og fisk-
vinnsla séu án efa þau atvinnu-
svið, sem setji sterkastan svip á
þjóðlff og efnahagslif islendinga.
Er m.a. bent á að mörg islensk
fyrirtæki selji fyrirtækjum
sjávarútvegsins fjárfestingar- og
rekstrarvörur svo og þjónustu.
Og með þeirri tækniþekkingu,
sem þegar sé fyrir hendi i þeim
greinum hér á landi og þeirri
góðu aðstöðu sem sé við að reyna
tæki til hlitar við hérlendar að-
stæður, sé liklegt að hér mætti
efla iðnað á þessu sviði. Telur
nefndin að full ástæða sé til að
ætla að islendingar geti lagt
nokkuð af, mörkum til alþjóða-
þróunar á þessu sviði og haslað
sér völl á erlendum mörkuðum,
sem reyndir notendur og fram-
leiðendur tækja og búnaðar til
sjávarútvegs.
Siðan eru nefnd dæmi um nokk-
rar vörutegundir og eru þessar
helstar: skip og bátar, spil og
vindur i skip, handfærarúllur,
færibönd, flokkunarvélar fyrir
skelfisk, sild o.fl., sjófatnaður,
veiðarfæri og efni i þau, flotholt
og rekstrarvörur i veiðarfæri,
frystivélar og frystiplötur, fisk-
kassar, höndlunartæki fyrir skip
og fiskvinnslustöðvar, öryggis-
búnaður um borð i skipum. Þá
eru einnig nefndir ýmsir staðlaðir
hlutir, sem notaður eru sem hlut-
ar i skip og báta, svo sem kýr-
augu og vatnsþéttar hurðir og
mætti framleiða slikt i smærri
fyrirtækjum fyrir allar skipa-
smiðastöðvar i landinu og jafhvel
til útflutnings, ef gæði og verð
leyfa.
Skipasmíðastöðvar
vaxtarbroddurinn
Nefndin telur vaxtarbrodd
þessa iðnaðar vera á vissan hátt
hjá skipasmiðastöðvunum i land-
inu og hafi nú verið sett af stað
tækniþróunarverkefni með þátt-
töku þriggja stærstu stöðvanna,
Stálvik hf., Þorgeir og Ellert og
Slippstöðin hf. Er þetta verkefni
unnið af Rannsóknarstofnun iðn-
aðarins, Siglingamálastofnuninni
og Iðnþróunarstofnuninni með
aðstoð dönsku suðutæknistofnun-
arinnar Svejsecentralen og kost-
að af iðnaðarráðuneytinu að til-
hlutan Iðnþróunarnefndar.
Þá leggur nefndin einnig til að
komið verði af stað starfshópi um
þróun iðnaðar, sem tengdur er
sjávarútvegi til að byggja upp
tækniaðstoð i þágu þess iðnaðar
með rekstrarráðgjöf, hönnun ,
vöruþróun, markaðsþjónustu o.fl.
Verði i upphafi gert yfirlit um þær
vörutegundir, sem þegar eru
framleiddar eða hugsanlega
mætti framleiða á þessu sviði og
siðan mótaðar tillögur um að-
gerðir til að bæta núverandi
framleiðslu eða koma nýrri fram-
leiðslu af stað.
Það mun nú vera i ráði að þessi
starfshópur hefji störf i haust.