Þjóðviljinn - 30.07.1975, Side 2

Þjóðviljinn - 30.07.1975, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðviku4agur 3». júli 1975. Ónæmisaðgerðir gegn mislingum Fyrir börnfæddl969. Vinsamlegast pantið tima fyrir þau börn sem ekki hafa þegar fengið mislinga. Heiisuverndarstöð Hafnarfjarðar Barnadeild, simi 50275 Ljósmæður Ljósmóðir óskast að Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja frá og með 15. ágúst nk. Nánari upplýsingar veitir forstöðukonan. Simi 98-1955. Stjórn Sjúkrahúss og Heilsugæslustöðvar Vestmannaeyja Málflutningsskrifstofa Jón Oddsson hæsta- réttarlögmaður Garðastræti 2. Lögfræðideild sími 13153 Fasteignadeild sími 13040 Magnús Daníelsson sölustjóri kvöldsími 40087 Hafnarstræti 86 Akureyri sími 23909 KVALLSÖPPET i Nordens hus torsdagen 31. juli kl. 20,00 - 23,00 Kl. 20:30 FINNS DET ETT MODERNT ISLAND? Káseri af lektor HARALDUR ÓLAFSSON Kl. 22:00 visas Magnús Jónssons film. ISLAND OCH HAVET (med norskt tal) öppet i kafeterian och biblioteket. VALKOMMEN NORRÆNA Allir velkomnir. J-n'lCHF* Alúðarþakkir fyrir samúö og vinarhug við andlát og jarðarför ÁSGEIRS GUÐMUNDSSONAR húsasmiðs Guðmunda Guðmundsdóttir og systkini. VL-menn stefna vegna ummœla i varnarrœðu: Hann ætlar að reynast langur halinn á VL-málun- um, enda stefnuglaðir menn, sem fyrir þeim standa. Eins og fram hefur komið i blaðinu hafa VL-ing- amir 12 stefnt Sigurði A. Magnússyni enn á ný, og nú fyrir ummæli i varnarræðu, og mun það vera harla óvenjulegt. Þjóðviljim birtir hér að neðan málatilbúnað stefnenda eins og hann kemur fram i stefnu þeirri, sem birt hefur verið Sigurði A. Magnússyni. „Höfðun framhaldssakar á sér tviþætt tilefni. I fyrsta lagi kemur þar til sú málsástæða stefnda i frumsök, að sýkna beri hann af refsikröfu stefnenda vegna fyrn- ingar. Er málsástæða þessi byggð á þvi, að stefnubirting hafi eigi átt sér stað i tæka tið. En i öðru lagi er tilefni framhaldssakar ummæli i greinargerð stefnda i frumsök, er stefnendur telja æru- meiðandi fyrir sig, en greinar- gerð þessi var birt i heild i þvi tölublaði dagblaðsins „Þjóðvilj- inn”, sem auðkennt er á forsíðu sem 40. árg. 48. tbl. og Ut kom fimmtudag 27. febrúar 1975. Er greinargerðin birt á bls. 6, 7 og 11. Stefnendur telja, að nefnd fyrn- ingarástæða stefnda hafi ekki við rök að styðjast, en til að taka af ummæla visast til frumstefnu á bls. 3-4, en það sýnist óþarft að ti- unda þær röksemdir aftur hér. Ummæli þau, sem ekki hefur verið stefnt út af áður, og birtust i téðri greinargerð, verða rakin hér á eftir orðrétt. Ummæli þessi eru undirstrikuð i þvi eintaki dag- blaðsins „Þjóðviljinn”, sem lagt verður fram i málinu. Eldri um- mæli verða einnig auðkennd i blaðinu en með öðrum hætti. Um- mæli þau, sem hér ræður um, verða nú rakin undir tölulið- um 1—6: 1. Kaflafyrirsögn á bls. 7: „Atferli 12 óhappamanna”. 2. ,,.... tólf óhappamanna 3. kærurnar eru tilræði við tjáningarfrelsið....” Hinir œru- kœru Til upprifjunar eru taldir hér að neðan þeir 12 ærukæru samborgarar, sem standa nú i umfangsmestu meiðyrða- málaferlum, sem um getur hér á landi. Þeir eru: Bjarni Helgason, jarðvegsfræðingur, Björn Stefánsson, skrifstofu- stjóri, Hreggviður Jónsson, framkvæmdastjóri, Jónatan Þórmundsson, prófessor, Ólafur Ingólfsson B.A.Stefán Skarphéðinsson, fram- kvæmdastjóri, Unnar Stefáns- son, viðskiptafræðingur, Þor- steinn Sæmundsson, stjarn- fræðingur, Þorvaldur Búason, eðlisfræöingur, Þór Vil- hjálmsson, prófessor, Ragnar . Ingimarsson, prófessor og Valdimar J. Magnússon, framkvæmdastjóri. „Tjna œru með málshöfðunum” allan vafa og spara málflutning um það atriði, og þar eð ákveð’n var höfðun framhaldssakar hvort eð var vegna nýrra, ærumeiðandi ummæla, þótti rétt að láta fra n- haldssökina einnig taka til þeir a ummæla, sem áður var búið að stefna útaf að því leyti, se ri sýknuástæða stefnda vegna fyrningar gat til krafna stefnem'.a i frumsök tekið. Til glöggvunar verður ummsl- um þeim, sem stefnt er út af i framhaldssök, skipt i tvo þætti, sem auðkenndir verða A. og B. Undir A.koma ummæli þau, sem áður var búið að stefna útaf i frumsök, og verða auðkennd með tölustöfum frá 1-5, en undir B koma aftur á móti þau ummæli i nefndri greinargerð stefnda, sem eigi hefur áður verið stefnt út af. Samkvæmt þessu er ummæli þau, sem nú er stefnt útaf öll að finna i téðri grein, sem birtist i dagblað- inu „Þjóðviljinn”, er út kom 27. febrúar 1975. A.Ummæli úr frumsök, sem nú er stefnt útaf á nýjan leik, eru orðrétt þessi: 1. „Hér er um að ræða alvarleg- ustu atlögu við tjáningarfrelsi sem mér er kunnugt um hér- lendis...” 2. „Þeir þýlyndu og þjóðvilltu tólfmenningar, sem þykjast vera að verja æru, sem þeir hafa að dómi þjóðhollra fs- iendinga týnt, eru hér að fara inn á braut, sem gæti ekki ein- ungis reynst hættuleg tján- ingarfrelsi landsmanna, heldur sjálfu lýðræðinu i land- inu....” 3. ,,.... hrokafullu þjóðvilling- ar....” 4. ,, ....Þessir kumpánar þykjast hafa að baki sér hinn svokall- aða þögla meirihluta, en mættu gjarna minnast þess, að Adolf Hitler og hans nótar fóru sinu fram i sömu blindu trú, og allir vita hvað af þeirri trú leiddi....” 5. ,, ... heigulshætti og vald- beitingartrú þeirra tólf ný- stéttarmanna, sem standa að þessu tilræði við tjáningar- frelsi islendinga, og mun skömm þeirra uppi meðan nokkur ærleg hugsun bærist með þjóðinni”. Um röksemdir fyrir refsi- ábyrgð vegna framangreindra Krefjast fang- elsis og fjár- seklu i fram- V haldssök gegn Sigurði A. Magnússyni rithöfundi 4. afstaða þeirra til hins erlenda „varnarliðs”......ber vitni undirlægjuhætti og þræls- ótta við húsbændurna i vestri. Það er að minu mati þýlyndi af verstu tegund að vilja stofna þjóð sinni i bráða tortimingar- hættu til að þóknast vestur- heimskum ráöamönnum, jafn- vel þótt fjárhagsleg umbun komi fyrir — eða öllu heldur: Þýlyndið verður að þvi skapi fyrirlitlegra sem það á dýpri rætur í ábatavoninni....” 5. ,,.... tólfmenningarnir hafi týnt æru sinni með málfhöfðunum sinum og öllu umstangi i sam- bandi við hina illræmdu undir- skriftasöfnun og tölvuvinnslu. 6. ,,.... heigulshætti og valdbeit- ingartrú nýstéttarmannanna tólf. Ég tel það vera i senn gikkshátt og heigulshátt ... valdbeitingartrú ..” Um B. 1. Orðið óhappamaður táknar samkvæmt málvenju þann, sem framið hefur glæp eða annan verknað svivirðilegan að almenn- ingsáliti. Þegar frumkvæði stefnenda, sem um ræðir i mál- inu, er auðkennt sem „atferli 12 óhappamanna”, er þvi verið að tjá það sem slikan verknað og stefnendur sem fremjendur hans. Erþetta næsta gifuryrt ærumeið- ing og sóðaleg. Telja stefnendur ummæli þessi varða við 234., 235. og 236. gr. laga nr. 19/1940. Um B. 2. Hiðsama á við um þessi ummæli, sem hér eru endurtekin, og rakið er undir B. 1. Um B. 3. Hér er það kallað tilræði við tján- ingarfrelsið að neyta þess réttar, sem áskilinn er og berum orðum tilgreindur I 72. gr. stjórnarskrár- innar. Er þetta að sjálfsögðu frá- leit fullyrðing og ber vott um virðingarleysi fyrir lögum og rétti. Telja stefnendur ummæli þessi varða við 234. og 235. gr. laga nr. 19/1940. Um B. 4. Hér er dylgjað um annarlegar og auvirðilegar hvatir stefnenda. Þeir eru vændir um landráð og undirlægjuhátt við erlent vald og að þeir láti einskis svifast á kostnað þjóðfrelsis tslendinga sjálfum sér til fjárhagslegs á- vinnings. Dylgjur þessar eru að sama skapi fráleitar og þær eru sóðalegar. Telja stefnendur, að ummæli þessi i heild varði við 234. gr., 235. gr. og 236. gr. laga nr. 19/1940. Um B. 5. Hér er þvi umbúðalaust haldið fram, að stefnendur hafi glatað ærunni; séu ærulausir menn. Þetta er að sjálfsögðu gróf móögun, en ummlin íela einnig i sér aðdróttun um, að stefnendur Framhald á bls. 10

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.