Þjóðviljinn - 30.07.1975, Side 3

Þjóðviljinn - 30.07.1975, Side 3
Miðvikudagur 30. júli 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Frásögn af útvarpsþætti um landhelgismálið — Taismenn þess að samið vcrði við útlendinga um veiðar innaii landhelginnar hafa eink- um nefnt þrjú atriði sem mæli með þvi að slikir samningar verði gerðir. i fyrsta lagi scgja þeir að semja eigi af viðskipta- legum ástæðum vegna tolla- mála og fleira. En við islending- ar hiifuni alltaf I landhelgismál- inu lagt áherslu á að viðskipta- máluin og landhelgismálinu megi ekki blanda saman: við seljum ekki okkar landhelgi. i öðru lagi er sagt að við verðum, að semja vegna vináttu við aðrar þjóðir. En i landhelgis- málinu höfum við alltaf gert okkur grcin fyrir þvi að við yrð- um að berjast fyrir rétti okkar og jafnvel að standa I slag við aðrar þjóðir. Undan þvi verður stæð búseta sem væri talin for- senda þess af mörgum aðilum að viðkomandi eyland ætti rétt á þvi að miðlinusjónarmiðið væri virt. Aðrir þátttakendur I umræð- unum töldu flestir að hér væri um tæknilegt vandamál að ræða, sem þyrfti sérfræðinga til að leysa fram úr. Kvaðst Bene- dikt Gröndal helst ekki vilja viðurkenna Jan Mayen við notk- un miðlinu. Hvað þá um Kol- beinsey, spurði hann. Annars taldi Benedikt almennt að hér væri um að ræða eðlilega máls- meðferð íslands á þessu stigi málsins. Karvel Pálmason kvaðst heldur hafa kosið að til- kynnt yrði að við viðurkenndum ekki miðlinuna við Jan Mayen. Einar Agústsson lýsti samþykki Andskotinn, enn einn þorskurinn frá tslandi. Teikning eftir blaðinu „Westfalische Rundschau”. Vonandi tekur þjóðin i taumana Lúðvik Jósepsson kvað það aðalatriði þessa máls hvort við eigum að veita útlendingum veiðiheimildir innan landhelg- innar eftir 13.11. eða ekki. Stjórnarflokkarnir ætla að semja um veiðar innan land- helginnar. 1 þessu sambandi rakti Lúðvik röksemdafærslu undansláttarmanna og eru ummæli hans um rökin birt i upphafi þessarar frásagnar af útvarpsþættinum. Vonandi tekur þjóðin i taum- ana áður en gerðir verða samningar um veiðar i land- helginni á vegum útlendinga. Kvaðst Lúðvik vonast til þess að Vonandi tekur þjóðin í taumana og stöðvar undansláttarmennina ekki vikist. t þriðja lagi er nú sagt að við verðum að semja við útlendinga vegna þess að við þurfum að tryggja okkur veiði- aðstöðu við strendur annarra rikja. Einnig þetta er fráleitt og I rauninni algert yfirklór og ekkert annað. Við höfum auðvit- að alltaf vitað — áður en nú er fært út í 200 mílur — að sllk vandamál geti komið upp á, þegar og þá fyrst er aðrar þjóðir liafa einnig fært landhelgi sina út i 200 sjómilur. Þegar land- lielgin við Grænland eða Bret- land verður komin út i 200 sjó- milur er hægt að athuga málið, en það er fráleitt að ætla að gera slikt áður en til útfærslu kemur hjá þeim. — Eitthvað á þessa leið mælt- ist Lúðvik Jósepssyni, fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra, i útvarpsþætti um landhelgis- málið i fyrrakvöld. Þátttakend- ur i þættinum voru fimm, einn frá hverjum þingflokkanna. Auk Lúðviks voru það Benedikt Gröndal, (A) Einar Agústsson (F), Karvel Pálmason (SFV) og Matthias Bjarnason, sjávarút- vegsráðherra. Þátturinn var undir stjórn Árna Gunnarsson- ar, fréttamanns. Þátturinn tók um eina klukku- stund og var rætt um land- helgismálið almennt en þó sér- staklega um það hvort veita ætti útlendingum undanþágur til veiða innan islensku fiskveiði- landhelginnar. Jan Mayen 1 þættinum kom fram að allir þátttakendur voru sammála um útfærslu i 200 sjómilur 15. októ- ber. Minnti sjávarútvegsráð- herra á að útfærsla þessi væri byggð á samþykkt alþingis frá 15.2. 1972. Nokkur var rætt um tilhögun útfærslunnar og minnti Lúðvik Jósepsson þar á þær ábendingarsem hann hefði látið koma fram i landhelgisnefnd varðandi það að Hvalbakur yrði grunnlinupunktur og linur dregnar frá honum i Gerpi og Eystra-Horn. Við þetta hefðu grunnlinur breyst við Suðaust- urland okkur í vil gagnvart miðlinu vegna Færeyja. Þá taldi Lúðvik að réttara hefði verið að færa i 200 milur að Jan Mayen þar sem þar væri ekki hugsanleg efnahagslega sjálf- sinu við útfærsluna, en Matthias Bjarnason minnti á að hér væri um að ræða fiskveiðilögsögu en ekki „efnahagslögsögu”, og við afsöluðum okkur engum rétti þótt fyrst um sinn gilti miðlina gagnvart Jan Mayen. Óviturlegt fyrirfram Næsta umfæðuefni þáttarins var það hvort semja ætti við út- lendinga um veiðar innan land- helginnar. Matthias Bjarnason sagði fyrst, að Sjálfstæðisflokk- urinn teldi skylt að hlusta á þá sem óska að ræða við islendinga og rikisstjórnin hefði tekið þá afstöðu að samþykkja viðræður ef eftir þeim yrði leitað, en engin afstaða hefði verið ákveðin um það hvernig skyldi samið, slikt væri óviturlegt fyrirfram. Hann kvað nauðsyn- legt að semja við aðrar þjóðir um fiskveiðar um þeirra strendur. Það gæti þvi haft alvarleg áhrif ef við neituðum að ræða við aðrar þjóðir. Ef samið yrði, væri þó fráleitt að ganga inn á svipaðan aflakvóta og 1972, samningur nú yrði að fela i sér meiri aflatakmörkun og hann yrði að vera til mjög skamms tima. Við þurfum að hafa samningsaðstöðu vegna fiskimiða við Grænland, Bret- land og Nýfundnaland, sagði sjávarútvegsráðherrann. Ekki að semja Lúðvik Jósepsson lagði megináherslu á að 13. nóvember næstkomandi væri liðinn sá um- þóttunartimi sem við gætum gefið erlendum þjóðum. Við höf- um heldur ekki um neitt að semja við útlendinga, það er ekkert til skiptanna. Við getum fullnýtt þorskstofninn sjálfir, en það er nauðsynlegt að haga veiðunum þannig að þorskstofn- inn aukist frá þvi sem nú er. Það er auðheyrt, að Matthias Bjarnason vill semja við útlend- inga. Það er auðvitað sjálfsagt að tala við þá, en það er ekki hægt að semja við þá. Þvi er haldið fram að það gæti haft alvarleg áhrif á hafréttarráð- stefnuna ef við neitum að semja við aðra vegna 200 milnanna. Þessi er auðvitað alveg öfugt farið, en það gæti nefnilega haft alvarleg áhrif ef við semdum áður og gæfum þannig tóninn við lok ráðstefnunnar. ,,Ég er eins og asni” Benedikt Gröndal var spurður að þvi hvort hann tæki fremur afstöðu með Lúðvik eða Matthiasi. ,,Ég er eins og asni milli tveggja heysáta, og vil þvi ekki taka afstöðu með öðrum fremur en hinum. En i grund- vallaratriðum er Alþýðuflokk- urinn andvigur undanþágum handa útlendingum og flokkur- inn hefur lýst þvi yfir að við þurfum einir að nýta landhelg- ina. En við munum náttúrlega hlusta á það sem fram kemur og taka afstöðu til þess. Undansláttur i bigerð Karvel Pálmason kvaðst algerlega andvigur samningum við útlendinga um veiðar innan landhelginnar. Lagði hann þar sérstaka áherslu á svæðið innan 50 milnanna. Hann kvað aug- ljóst að Matthias Bjarnason væri nú að undirbúa undanslátt i landhelgismálinu á svipuðum grundvelli og fólst i samkomulagsdrögunum við vestur-þjóðverja, sem stjórnin þorði ekki að keyra áfram sl. vetur. 30 milur i nefnd Einar Agústsson kvað það stefnu Framsóknarflokksins að tryggja bæði sem fyrst full yfir- ráð yfir 200 milunum og þó alveg sérstaklega svæðinu innan 50 milnanna. Hann kvað framsókn hafa samþykkt að eðlilegt væri að hefja viðræður um undanþágur á svæðinu milli 50 og 200 sjm. Hins vegar hefði verið sett nefnd i það á vegum flokksins að kanna málið að öðru leyti. Sú nefnd myndi skila áliti um það leyti er hann kæmi úr leiðangrinum til vesturheims og þá yrði tekin afstaða til máls- ins i heild innan þingflokks framsóknar. Við eigum að hlusta á óskir annarra sagði Einar Agústsson, en samningar falla út gildi 13. nóvember um veiðar innan 50 mílnanna. Þá er allt laust og óbundið. Það stendur alls ekki til að fram- kvæma samningsdrögin sem gerð voru við vestur-þjóðverja. A þeim verður mikil breyting að eiga sér stað ef við þá á að semja. Hann minnti á að sá texti, sem komið hefði út úr hafréttarráð- stefnunni væri aðeins álit for- seta ráðstefnunnar. Varla yrði lokatextinn okkur hagstæðari. Hættan væri sú að reynt yrði að miðla málum meðal annars þannig að svæðasamtök fengju meiri heimildir til ákvörðunar afla en nú er. Það gæti verið slæmt fyrir málstað Islands, ekki sist ef hægt væri að sýna fram á að islendingar hefðu misnotað útfærsluna. Svik eða ekki svik Matthias Bjarnason kvað það dylgjur einar hjá Karvel að gera ætti samninga eins og samningsdrögin við vesturþjóð- verja hefðu áður gert ráð fyrir. Það væri ósanngjarnt að vera að gera sér eða rikisstjórninni i heild upp einhver svik i málinu. Matthias sagði að I samn- ingunum við breta fælist engin viðurkenning á rétti okkar eftir 13.11.1975. Karvel sagði að væru það aðdróttanir um svik að nefna vestur-þýska samninginn hefði samningurinn greinilega verið svik. Hann sagði að samning- arnir við breta á sínum tima hefðu verið vandræðasamn- ingar, en hann hefði sem stuðningsmaður þáverandi stjórnar ekki átt annarra kosta völ en að styðja samningsupp- kastið eftir að forsætisráðherra stjórnarinnar hefði i raun gert samninginn við breta. Karvel minnti á að Matthias Bjarnason hefði verið á móti þeim samn- ingi, en nú væri hann manna ólmastur i að semja. Benedikt Gröndal sagði að landhelgismálið hefði alltaf verið helgasta mál þjóðarinnar, en nú væru menn farnir að hnakkrifast eins og á pólitiskum fundi i Bolungavik eða á Isa- firði. sjómenn og allir aðrir landmenn létu stjórnarflokkana finna það að almenningur væri andvigur samningum við útlendinga: að landsmenn brygðust við á svip- aðan hátt og i vetur þegar þeir hrintu af sér vestur-þýsku samningsdrögunum. Það þarf að láta Matthias bakka eins og I vetur, sagði Lúðvik. Ástæðulaust að hræða með herskipum Karvel Pálmason minnti á að. aðrar þjóðir væru vinsamlegri eftir yfirlýsinguna um útfærslu nú en oft áður. Að lokum fjallaði þátturinn um það hvort hugsanlegt væri að verja landhelgina ef til átaka kæmi hér innan 200 milna mark- anna. Benedikt Gröndal kvaðst enga trú hafa á hernaði annarra þjóða gegn okkur. Ljóst væri að aldrei hefði dregða þjóðarinnar til þess að veita undanþágu- samninga verið meiri en einmitt nú. Einar Ágústsson kvaðst ekki hafa trú á þvi að bretar færu i nýtt þorskastrið eftir þá reynslu sem þeir hafa fengið. Það er erfittverk að verja landhelgina. Matthias Bjarnason kvað það ekki takast að verja landhelgina i fjandskap við aðrar þjóðir, það hefði ekki tekist áður. Lúðvik Jósepsson sagði að aðstaða til þess að verja land- helgina nú væri betri en oft áður. Bretar eru hlynntir 200 milum og það er óliklegt að þeir sendi herskip inn fyrir islenska 200 milna landhelgi. Það er ástæðulaust að vera að reyna að hræða menn með herskipum hér. Að lokum kom það fram i þættinum, i máli utanrikisráð- herra að engar umræður væru nafnar við útlendinga um undanþágur. Framsóknarflokk- urinn væri reiðubúinn að ræða um undanþágur á svæðinu frá 50-200 niilutn, en hafi ckki gert upp hug sinn varðandi svæðið innan 50 milnanna. .En það kæmi þvi aðeins til greina að minu matii’ sagði utanrikisráð herrann, .að með þeim liætti megi ná yfirráðum yfir fisk veiðilögsögunni á skemmri tima en ella værit Þ j óðleikhúsið: Fyrsta leikförin til Vesturheims Föstudaginn 31. júli heldur héðan vcstur um haf fyrsti leik- hópur frá Þjóðleikhúsinu til sýninga I islendingabyggðum I Kanada og I Bandarikjunum. Þessi för var farin fyrir frum- kvæði Þjóðræknisfélaganna hér og vestra, cnda liður i hátiöahöld- unum i tilefni 100 ára afmælis fyrstu islendingabyggðarinnar á Nýja islaiuli. Rikisstjórn islands hefur lagt styrk til þessarar ferðar. Menntainálaráðherra Vil- hjálmur Hjálmarsson og kona hans og þjóöleikhússtjóri Sveinn Einarsson og kona hans verða með i förinni. Dagskrá sú, sem hópurinn flytur er allfjölbreytt og verður þar leitast við að rifja upp sam- eiginlegan menningararf Islend- inga báðum megin hafs, eins og leikskáldin, ljóðskáldin og tón- skáldin hafa séð hann. Þarna verða flutt brot úr nokkrum leik- ritum, sem lýsa að einhverju sögu og lifsháttum þjóðarinnar fyrr á öldum, Islandsklukku Halldórs Laxness, Jóni Arasyni og Skugga- Sveini eftir Matthias Jochums- son, Pilti og stúlku eftir þá frænd- ur Jón og Emil Thoroddsen og loks úr Gullna hliðinu eftir Davið Stefánsson. Þá verða lesin ljóð og Framhald á bls. 10

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.