Þjóðviljinn - 30.07.1975, Page 9
Miðvikudagur 30. júli 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Miklir erfiöleikar meö mannskap landsliösins
Jón og Örn forfölluðust
skyndilega án skýringa!
og þrír aðrir úr 22ja manna
hópnum höfðu áður boðað forföll
Þegar við heimsóttum islenska landsliðið í æfingabúð-
irnar á Laugarvatni í gær kom í Ijós að tvo menn, sem
valdir voru í 16 manna hópinn vantaði. Það voru þeir Jón
Alfreðsson og örn óskarsson, sem báðir höfðu þó á
hádegi í fyrradag lýst sig fúsa til þess að leika með
landsliðinu þennan leik. Báðir gáfu þá skýringu að þeir
væru meiddir, sem óneitanlega er þó erfitt að taka fylli-
lega trúanlegt. Að vísu hefur Jón átt við meiðsli að
stríða i hné að undanförnu en hann hefur þó leikið þrátt
fyrir það. Munu forráðamenn IA hafa beðið hann að
leika ekki með landsliðinu þennan leik ef hann teldi sig
ekki 100% i lagi. Landsliðsnefndinni mun, að því er
heimildarmaður Þjóðviljans sagði okkur, ekki hafa
tekist á ná í örn óskarsson til þess að afla sér frekari
skýringa á hans meiðslum þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Þetta er mikið áfall fyrir landsliðið sem leikur gegn
rússum í kvöld, ekki hvað síst vegna þess að þrír aðrir úr
22ja manna hópnum eru meiddir.
Rétt er að taka það fram að
þessar heimildir okkar um
ástæður forfallanna og allt málið
þar á bak við eru e.t.v. ekki alveg
„pottþéttar” en hitt er þó vist aö
þeir Jón og Orn voru ekki i
æfingabúöunum og munu ekki
leika með f kvöld.
Landsliösnefndin hafði sam-
band við Einar Gunnarsson i IBK,
sem ekki hefur gefið kost á sér i
landsliðið til þessa og bað hann,
vegna þessara óvæntu forfalla, að
koma inn i liðið i þessum leik.
Einar taldi sig hins vegar ekki
geta endurskoöaö afstöðu sina
vegna landsliðsins og gaf þvi ekki
kost á sér. 1 stað þeirra Arnar og
Jóns komu þeir Janus Guö-
laugsson og Hörður Hilmarsson
inn i hópinn.
Jóhannes Eðvaldsson kom til
landsins meö skurð á enni eftir
siöasta leik sinn úti og er þvi ekki
heill heilsu þótt hann muni verða
með i leiknum.
Tony Knapp er
samt brattur
„Þetta eru vissulega miklir
erfiðleikar sem við eigum i”
sagði Tony Knapp, landsliðs-
þjálfari þegar við spurðum hann
út i þessi forföll. „Það er erfitt að
fá þetta fyrir jafn erfiðan leik og
þann sem er fyrir höndum. Hins
vegar höfum við átt hérna i
æfingabúðunum stórkostlegan
dag og mórallinn i liðinu er hreint
út sagt frábær. Þetta er þvi alls
ekki rothögg á liðið og við ætlum
að standa okkur á morgun. Stuðn-
ingur áhorfenda verður að vera
látlaus og þá látum viö ekki okkar
eftir liggja.
Þetta eru mestu erfiðleikar
sem ég hef lent i með landsliöið”
sagði Knapp. „Það var óvænt aö
missa þá Jón og örn og skýring-
arnar sem gefnar eru, eru að
minu mati ekki fullnægjandi. Við
höfum gert itrekaðartilraunir til
þess að ná i örn Óskarsson þar eð
hann tilkynnti forföllin eingöngu
til framkvæmdastjóra KSI en það
er sama hve mikiö er reynt, við
náum ekki sambandi við hann.”
—- Reynduðþiöekkiaðfá Einar
Gunnarsson?
— Jú, það er rétt.við leituðum
til hans en hann sagöist ekki geta
endurskoðað afstöðu sina.
— En þið ætlið að leika til vinn-
ings?
Það var léttyfir strákunum og mórallinn að þvi er virtist frábær. Ilér
hafðiTony Knapp tekið fyrirliða landsliðsins, Jóhanncs Eðvaldsson og
lagt hann á islensku klofbragði.
T m
ilipt.
Það var sólskin og hiti á Laugarvatni þegar við hittum landsliðsstrákana og þeir stilltu sér fúslega upp i
myndatöku með Tony Knapp og landsiiðsnefndarmönnunum Jens Sumarliöasyni og Arna
Þorgrimssyni. Myndir: gsp
sannarlega ætlum við að skora þau sem þeir skora. Við ætlum aö
mörk hjá rússunum og hérna vinna þennan leik.
heima verða þau vonandi fleiri en — gsp
— Já, já, við erum i miklum
ham hérna og ég er mjög
ánægður með liðsandann. Svo
Matthias.
— Við erum ckki undir eins
mikilli pressu nú og fyrir leikinn
gegn norðmönnum. Eg held að
áhorfendur geri ekki beinlinis
þær kröfur að við vinnum leik-
inn heldur fyrst og fremst að við
gerum okkar besta. Við erum
þvi undir minni pressu núna og
liðiö virkar miklu afslappaðra
og léttara þótt vissulega sé
erfiður leikur framundan.
Þessar ferðir okkar i æfinga-
búðirnar eru alveg ómetanlegar
maður kemur miklu friskari i
leiki eftir samverustundir á
borð við þessar sem við eigum
hérna saman.
—Ilafið þið kynnt ykkur rúss-
ana nokkuö?
— Nei, við förum út i óvissuna
þegar við hlaupum inn á
Laugardalsvöll. Hér hafa þcir
varla veriö nefndir á nafn, þaö
veit enginn neitt um liöiö sem
þeir tefla hér fram.
Jóhannes
— Þetta er nú ekki mikill
skurður — sagði Jóhannes Eð-
valdsson þegar hann lyfti hár-
inu frá og sýndi okkur sárið. —
Ég verð með I leiknum og þetta
mun ekki hindra mig á nokkurn
hátt i skallaboltunum. Við ætl-
um að gera stóra hluti I leikn-
um, hann á að verða eftirminni-
legur. Það veröur kannski erfitt
að ná stigum af rússum en við
erum taplausir á heimavelli i
sumar og margt ótrúlegt hefur
skeö á Laugardalsvellinum á
þessu keppnistimabili. Hver
veit nema við komum á óvart
einnig i þessum leik, — sagöi
fyrirliði íslenska landsliðsins.
Arni
— Ég hef aldrei vitað lands-
liðiö svona samstillt og fyrir
þennan leik. Mórallinn er alveg
i toppi og Tony Knapp þjálfari
hefur verið fremstur i flokki
með að hressa okkur upp. Hann
er búinn aö vera frábær hérna
upp frá.
— Er Ol-draumurinn úti?
— Nei, ég er ekki viss um það.
Það ræðst i leiknum við rússa
hérna heima og fyrir þann leik
er ég ekki reiðubúinn til þess að
skrifa undir að við séunt útilok-
aðir eftir tapið gegn norðntönn-
um. Viö ræddum I gærkvöldi unt
mistökin úti, þau voru tekin i
gegn eitt af öðru og konta von-
andi ekki fyrir aftur. Hér eru
allir staðráðnir i að gera sitt
allra besta.
—gsp