Þjóðviljinn - 30.07.1975, Síða 10

Þjóðviljinn - 30.07.1975, Síða 10
10 slÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 30. júli 1975. Atriði úr Islandsklukkunni, sem sýnt verður I Vesturheimi. Leikförin Framhald af bls. 3. Bæta sungin, úr Völuspá, Lilju og þjóð- kvæðum jafnt og verk yngri höfunda. bað er Gunnar Eyjólfs- son sem hefur tekið saman þessa dagskrá og er hann jafnframt leikstjóri og kemur fram sem þulur og flytur skýringar á ensku, sem tengja saman atriðin. Auk Gunnars koma eftirtaldir leikarar fram i þessari dagskrá: Baldvin Halldórsson, Bessi Bjarnason, Guðbjörg Þor- bjarnardóttir, Guðrún Step- hensen, Gisli Alfreðsson, Herdis Þorvaldsdóttir, Klemens Jóns- son, Margrét Guðmundsdóttir, Róbert Arnfinnsson Rúrik Har- aldsson, bóra Friðriksdóttir og Valur Gislason. Þá taka þátt i ferðinni 30 söngmenn úr Þjóðleik- húskórnum, sem flytja mikið af efni dagskrárinnar og siðan gert ráð fyrir, að kórinn komi eitthvað fram, eins og einstakir leikarar. Orðað hefur verið við hópinn, að hann verði viðstaddur, þegar heimili Stephans G. Stephans- sonar i Markerville verður frið- lýst, og að hann komi fram við það tækifæri. Annars verður fyrsta sýningin á Gimli á aðal- hátiðahöldunum og verður þá dagskráin flutt tvisvar. Siðan verða sýningar i Winiard i Vatna- byggðum Saskatshewan, i Red Deer i Alberta-fylki, i Vancouver og Seattle. Hópurinn er væntan- legur aftur að morgni 22. ágúst. Framhald af 1 siðu kvæmt úrskurði skaðabótanefnd- ar. Þar sem telja má mjög liklegt að kapallinn við Eldey sé hluti af hlustunarkeðju NATÓ-hersins, sem gengur i sjó fram á Stafnesi, virðist eigendur Þorkels Arna- sonar, ekki vonlausir um að fá tjón sitt bætt, enda hafa þeir góð vitni af atburðinum, þar sem eru skipverjar á Bjarna Sæmunds- syni, en þeir reyndu árangurs- laust að aðstoða við að losa trollið frá kaplinum. —ekh. Þórunn Framhald af bls 8. Þórunn Alfreðsdóttir 828 stig fyrir 200 m flugsund. Guðmundur Ólafsson 786 stig fyrir 100 m bringusund. Þórunn Alfreðsdóttir 782stig fyrir 800 m skriðsund Guðmundur ólafsson 773 stig fyrir 200 m bringusund Þórunn Alfreðsdóttir 758stig fyrir 400 m skriðsund. —gsp Tilboð óskast i framkvæmdir við byggingu heilsugæslu- stöðvar á Dalvik. Innifalið I útboði er að skila byggingunni fokheldri auk mýrhúðunar að utan. Otboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavik, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 21. ágúst kl. 11.30. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BOPGARTUNI 7 Sl.V.I 26344 Rjómabúið á Baugsstöðum Stanslaus straumur gesta í sumar Þann 21. júni töldust 70 ár liðin siðan Rjómabúið á Baugsstöðum tók til starfa. 1 dag er það eina rjómabúið, sem stendur eftir með öllum búnaði, og nýlokið er gagn- gerðri viðgerð á búinu, sem hófst árið 1971. Eru það Búnaðarsam- band Suðurlands, Byggðasafn Ar- nessýslu og búnaðarfélög Stokks- eyrar-, Villingaholts- og Gaul- verjabæjarhreppa, sem að endur- gerð búsins standa, og yfir þessa þrjá hreppa náði einmitt starfs- svæði búsins. Rjómabúið Baugsstaðir eins og það hét upphaflega var stofnað 1904, og var stofnfundurinn hald- inn á Baugsstöðum 8. október það ár. Voru 48 félagar i búinu fyrsta árið, og hófust þeir handa um að grafa 1400 metra langan vatns- veituskurð ofan úr Hólavatni, en rjómaskálanum var valinn staður hjá Þórðarkeri við Baugsstaðaá spölkorn fyrir vestan Baugsstaði. Hagleikssmiðurinn Jón Gestsson i Villingaholti sá um smiði húss- ins, og þann 21. júni 1905 tók búið tilstarfa. Var það siðan starfrækt óslitið til 1952 að undanskildum árunum 1925 og 1927. Rjómaskálinn við Baugsstaði er bárujárnsklætt timburhús að grunnfleti 6x7 m. Er skálinn graf- inn nokkuð i jörð, og eru veggirnir að neðan úr steinsteypu um 1 m háir. Gólfið er einnig úr stein- steypu. Skálanum er skipt i þrennt, vinnuherbergi, þar sem sjá má strokk, hnoðunarvél og ostapressu. Strokkur og hnoðun- arborð voru knúin af vatnsafli, og austast á húsinu utanverðu er stórt yfirfallshjól, og var vatni veitt úr skurðinum á hjólið. Yfir- fallshjólið, liklega hið eina sinnar tegundar á Islandi nú á dögum, hefur verið endursmiðað af Ólafi Gunnarssyni á Baugsstöðum og Magnúsi Hannessyni i Hólum. Það er nú komið, tryggilega fest, á sinn stað, og vatnsrennan getur flutt að þvi vatn og knúið það, eins og við upphaf búsins. Inorðurhluta rjómaskálans var móttökustofa með suðupotti og ýmsum öðru áhöldum, tunnu, vigt og fl., en þar til hliðar er ibúðar- herbergi fyrir bústýruna og að- stoðarstúlku. Félagatala i Baugsstaðabúinu var óstöðug, en jöfn aukning i fyrstu. Flestir urðu þeir 94 árið 1913, en laust eftir stofnun Mjólk- urbús Flóamanna fer þeim að fækka, uns aðeins þrir eru eftir seinasta starfsárið. Er kom fram á sjöunda tug þessarar aldar, myndaðist nokk- ur áhugahópur um varðveislu búsins. Voru þar forgöngumenn þeir Baldur Teitsson fyrrv. sim- stjóri á Stokkseyri og Jóhann Briem listmálari. Þjóðminja- verðirnir dr. Kristján Eldjárn og Þór Magnússon skoðuðu búið i aprilmánuði 1968, og hvöttu mjög til viðhalds þess i óbreyttu formi á staðnum, enda er þarna afar- fallegt og skemmtilegt, og er heldur ekki að sjá, að hrófla þurfi við þessum stað i náinni framtið. Ahugamenn komu saman á Sel- fossi þann 18. april 1970, og voru þar á meðal formenn búnaðarfé- laga hreppanna þriggja, er starf- semin náði til, og fulltrúar Bún- aðarsambands Suðurlands. Um haustið varð Byggðasafn Árnes- sýslu aðili að endurreisninni, og 5. ágúst 1971 var formlega stofnað Varðveislufélag Rjómabús Baugsstaða með aðild allra fyrr- greindra félaga. Rikisstyrkur fékkst fljótlega til verksins. 50 þúsund krónur á ári nú i 5 ár, og hrepparnir, Búnaðarsamband Suðurlands og Árnessýsla hafa einnig styrkt þetta verkefni, hver eftir sinni getu. Eitt stærsta til- lag, sem borist hefur frá öðrum aðilum er vinna við legur og öxul vatnsaflshjólsins, sem Velsmiðj- an Héðinn gaf I minningu Markúsar heitins tvarssonar, sem upphaflega vann það verk. Þá barst félaginu einnig mjög óvænt kærkomin peningagjöf frá Búnaðarfélagi Hrunamanna. Erfingjar Margrétar heitinnar Júniusdóttur, sem lengi veitti bú- inu forstöðu, Jón Adolf Guðjóns- son, sr. Guðjón Guðjónsson og Kristin Guðjónsdóttir, gáfu félag- inu til eignar búið allt með mun- um, og ennfremur var gerður samningur við landeigendur á Baugsstöðum um endurgjalds- laus lóðarréttindi fyrir Rjómabú- ið. Miðaði framkvæmdum siðan áfram eftir þvi sem fjárframlög dugðu hverju sinni, og kom fjöldi hagleiksmanna að verki. Nefna má Baugsstaðabændur, Ólaf Gunnarsson og Sigurð Pálsson, sem sáu um mestalla smiði. Er ekki ofmælt, að mestan skerf til endurbótanna hafi Sigurður Páls- son lagt fram, og hann hefur einn- ig verið nk. húsvörður búsins þessi siðustu ár. — Sigurður Sig- urðsson i Götuhúsum á Stokks- eyri tók að sér að endursmiða öll gluggafög. Sigurjón Kristjánsson i Forsæti endursmíðaði reimar- hjól úr tré, hnoðunarborð og marga fleiri hluti. Hinrik A. Þórðarson i Otverkum smiðaði ostadalla næst þvi I upprunalegri mynd. Herbert GrSns málara- meistari sá um alla málningu sem næst upprunalegum litum og Einar Sigurðsson trésmiðameist- ari Selfossi færði margt til betri vegar innan húss. Frá þvi endurbætur hófust fyrir alvöru hefur stjórnað þeim- þriggja manna nefnd frá áður- nefndum félögum, þeir Helgi ívarsson i Hólum, fulltrúi búnað- arfélaganna þriggja, Stefán Jasonarson i Vorsabæ fyrir Búnaðarsamband Suðurlands og Páll Lýðsson i Litlu-Sandvik fyrir hönd Byggðasafns Árnessýslu. Rjómabúið verður opið al- menningi til sýnis til loka ágúst- mánaðar, laugardaga og sunnu- daga frá kl. 2—6 siðdegis. Að- gangur er kr. 100 fyrir fullorðna. Börn innan við fermingu fá ó- keypis aðgang. Þá gefur gæslu- maður, Skúli Jónsson, stærri hóp- um kost á að sjá safnið á öðrum timum en almennt er opið ef haft er samband við hann með nokkr- um fyrirvara. Frá þvi að safnið var opnað hef- ur veriðstanslaus straumur gesta að skoða það. (Frá forstöðu- mönnum búsins.) VL-menn Framhald af bls. 2. hafi gerst sekir um einhverja þá háttsemi, er þvi ætti að valda, að höfðun meiðyrðamála af þeirra hálfu væri gjörsamlega fráleit. Telja stefnendur ummæli þessi fela I sér móðgun og aðdróttun og vera refsiverð samkvæmt 234. gr. og 235. gr. laga nr. 19 frá 1940. Um B. 6. Stefnendur telja orðin gikkshátt og heigulshátt fela i sér móðgun og varða við 234. gr. laga nr. 19/1940.1 orðunum valdbeitingar- trú nýstéttarmanna felst aðdrótt- un um það, að stefnendur aðhyll- ist valdbeitingu fyrir þá sök eina að þeir leita æruverndar fyrir dómstólum lögum samkvæmt. Telja stefnendur þessi ummæli refsiverð samkvæmt 235. gr., en til vara 234. gr., laga nr. 19/1940. Stefnendur krefjast þess, að frumsök og framhaldssök verði sameinaðar og gera þær dóm- kröfur að öðru leyti i frumsök og framhaldssök eftir sameiningu þeirra: Að öll framangreind ummæli veri dæmd dauð og ómerk samkvæmt 1. mgr. 241. gr. laga nr. 19/1940. Aðstefndi verði dæmdur til refsingar að mati dómara fyrir brot á 234, 235. og 236. gr. laga nr. 19/1940 vegna framangreindra ærumeiðandi ummæla. Aðstefndi verði dæmdur til að greiða hverjum stefnanda fyrir sig kr. 50.000,00 i miska- bætur skv. 1. mgr. 264. gr. laga nr. 19/1940 með 9% ársvöxtum frá 25. júni 1974 til 15. júli s.á., en 13% ársvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. Aðstefndi verði dæmdur til að greiða stefnendum sameigin- lega kr. 30.000.00 i kostnað skv. 2. mgr. 241. gr. laga nr. 19/1940 til að kosta birtingu forsendna og dómsorðs væntanlegs dóms i máli þessu i opinberum blöð- um. Aðstefndi verði dæmdur skv. 22. gr. laga nr. 57/1956 til að sjá um, að birt verði forsendur og dómsorð væntanlegs dóms i máli þessu i fyrsta eða öðru tölublaði dagblaðsins „Þjóð- viljinn”, er út kemur eftir birt- ingu dómsins. Aðstefndi verði dæmdur til að greiða stefnendum sameigin- lega hæfilegan kostnað (málskostnað) I frumsök og framhaldssök að mati dómara. I.S.I. LANDSLEIKURINN ÍSLAND - RÚSSLAND fer fram á Laugardalsvellinum i kvöld miðvikudag 30. júlí kl. 20,00 e.h. Knattspyrnusamband íslands Verð aðgöngumiða: Stúkusæti KR. 800,00 Stæði Kr. 500,00 Barnamiðar Kr. 200,00 Aðgöngumiðar eru seldir við tJtvegsbank- ann til kl. 18.00 og I Laugardal frá kl. 13.00 e.h. DÓMARI: Mr. J.R.P. Gordon frá Skotlandi. LÍNUVERÐIR: Mr. Burns & Toms frá Skot- landi. Rússnesku knattspyrnumennirnir eru meðal bestu knattspyrnumanna heims. Fjölmennið á völlinn og hvetjið islenska lands- liðið til sigurs. Forðist þrengsli og kaupið miða timanlega.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.