Þjóðviljinn - 21.08.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 21.08.1975, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 21. ágúgt »75 ÞJ6ÐVILJINN — StÐA 9 Aslaug á 15. ágúst 1920 — ágúst 1975 Einn mikilvægasti þátturinn i umhverfi hvers manns og sá sem hvah mestu veldur um Hfsánægju hans eru vinirnir sem honum veljast. Þegar skarð brestur skyndilega i þann hóp, er ekki einasta að allt umhverfið verði fátæklegra i dráttunum,heldur er oftlega um svo sárt að binda, að aldrei fullgrær. Þvilikur söknuð- ur er nú að okkur kveðinn sem áttum Aslaugu á Heygum að nán- um vini. Þar sem hún var, kemur ekki maður i manns stað. Og þó er söknuður okkar sem skuggi hjá þeim ofurmissi sem eiginmaður hennar, einkasonur og öldruð móðir hafa orðiö fyrir við dauöa Aslaugar. Sjálf var hún einka- barn móður sinnar, og sonur þeirra Magnúsar einkabarn þeirra, svo þetta var lltil fjöl- skylda og fasttengd i samheldnl sinni. Varla gat heitið aö þau hjónin viki nokkurn tima hvort frá annars hlið. Þvi er þetta sorgarslag svo yfirtakanlegt, sé þá sliku nokkurntima við annað að jafna. Þótt viö Aslaug ælumst upp i sömu götunni i Vestmannaeyjum, stafa kynni okkar ekki þaðan. Varla var til meiri fjarlægð milli tveggja punkta en frá hornhúsinu neðsl i götunni, þar sem ég átti heima, á þröskuldi sjálfra vertiðarumsvifanna, og upp i Baðhúsið ofar i Bárugötunni, þar sem frú Emma, móö- ir Aslaugar, og Kati systir hennar héldu öllu hvitu og skin- andi undir höndum sinum. Það sunnudagur — smáauglýsingar: lægsta verð Sérkennarar óskast til starfa I haust viö Nesjaskóla í Austur-Skaftafellssýslu og I Tjaldanesi I Mosfellssveit. Menntamálaráðuneytið 20. ágúst 1975. um yár allt önnur veröld, útlend/og framandi, enda mest finar og siö- írrénntaðar dömur og aðkomnir eihbættismenn i frökkum sem þóngað gerðu sér erindi. Auk þess var Aslaug ekki viöföst i Eyjum á unglingsárum sinum, heldur i skóla i Danmörku eða i föðurtúni sinu i Vestmanna á Færeyjum, sem hún kenndi sig viö. Aslaug fæddist i Danmörku þann 15. ágúst 1920, dóttir Emmu og Ólafs á Heygum. Kornung fluttist hún með foreldrum sinum til Færeyja, en er hún missti ‘ föður sinn, brá frú Emma á það ráð að flytjast meö hana til Vestm.eyja, þangað sem syst- ir hennar var komin og hafði stofnað baðhús. Báðar voru þær lærðar frá Skodsborg i greinum baöa, nudds og likamsræktar. Siðan ráku þær saman þessa hvitu og merkilegu stofnun, mitt i athafnasamasta sjávarplássi landsins. í Eyjum kynntust þau Aslaug og Magnús Magnússon, sem nú hefur um áraskeiö verið skóla- stjóri Höföaskólans i Reykjavlk, og festu brátt ráð sitt. Allan hjú- skap sinn hafa þau veriö búsett i Reykjavik og alið þar upp einka- son sinn, Orra Ólaf, sem nú stundar listsögunám við háskól- ann I Kaupmannahöfn. Djúpstæð listhneigð Aslaugar beindi henni i Handiöaskólann skömmu eftir að hann var stofn- aður, og þar bundust þær Ásgerður kona min og hún vin- áttuböndum. Þeirrar vináttu, KROI S| VERÐ: Hámarks- KRON- verð VERÐ Kaffi 118.00 110.00 Strásykur l.kg. 7 396.00 Molasykur 1. kg. ? 235.00 Hveiti 5 Ibs 241.00 218.00 Hveiti 10 Ibs 482.00 436.00 Vex þvottalögur 511.00 460.00 3,8 1 KRON MATVÖRUBÚÐIR sem og Magnúsar, hef ég siöan notið á þriöja áratug. Siöar meir stundaði Aslaug framhaldsnám i myndlistum i Zurich og Miinchen, en hneigðist jafnframt að ljóöa- skáldskap. Upp úr þvi hvoru- tveggju spratt fögur bók meö ijóðum hennar og teikningum, Við hvitan sand, . sem Heims- kringla gaf út áriö 1970. Af ljóðum og myndum þeirrar bókar má glöggt sjá, i hve fingerðan vef sálarlif hennar var slegiö. Ljóöin eru eins og hún, innhverf og ihug- uí, fáguð og nákvæm. 1 augum hennar var athöfnin hiö ytra aö- eins hluti raunverunnar; þaö sem undir bjó var henni löngum stærri veröld og margslungnari. 1 þeim efnum haföi hún og gengiö i langan skóla. Engan veit ég i vinahópi minum né kunningja sem las eins mikið af góðum bók- menntum og Aslaug. Klassisku höfundarnir rússnesku, nýju stefnurnar i þýskum bókmennt- um, spænsk og frönsk heimspeki- rit og bækur um listir, það var hennar kjörlestur. Og sama var hvort það voru norðurlandamál- in, enska, þýska eöa franska sem hún bar sér fyrir augu. Um langt árabil gekk Aslaug ekki heil til skógar. Þó hefði engan grunað þaö sem ekki þekkti nánar til, svo fallega sem hún var á sig komin, smágerö, hýr, mjúkrómuö, hláturmild og skapprúð meö eindæmum. Ég minnist sunnudagsmorgna þegar þau Magnús litu við hjá okkur hjónum, og þá búin aö ganga Alftanesfjörur eöa annaö með heiöi eöa strönd. Þá var ekki 1 annaö að sjá en lifskrafturinn ljómaöi af henni, en undir niðri ágerðist sjúkleiki hennar og sam- eiginleg andspyrna gegn honum batt þau Magnús enn traustari böndum, ef orðið gat. Hún varð fjöregg hans og lif, og þeirra feðga beggja. Þegar hún var lögð inn á sjúkrahús til rannsóknar i lok júli, uggöi okkur engrar bráörar hættu, og sist helfregnar. A fimmtiu og fimm ára afmælis- daginn sinn var hún kistulögð, og i dag klukkan hálf tvö verður hún borin til grafar frá Fossvogs- kapellunni. Það er undarlega táknlegt um hiö örmjóa bil og.þá ægividd sem aðskilur lifiö og cíauöann, áö ann- arsvegar viö Reykjanesbrautina verður hún lögö i gröf, en hins- ■ vegar viö veginn er risinn skólinn nýi, sem Magnús Magnússon á nú að taka viö og ganga þar áfram brautina til liknar lifendum. Þar sem ég veit hversu mikill mann- skapar- og kjarkmaöur Magnús Magnússon er, þá trúi ég þvi, að i hinu merka starfi sinu, aö leiða vangefin börn á veg sjálfsbjargar, finni hann og sjálfum ser þá leiö til lifs, sem nú er svo dimmum skugga hulin. Hann er þar maður til kallaöur, hversu sem klukkan glymur. Sonur þeirra, Orri Ólaf- ur, er á framtiðarvegi i námi sinu, og honum má þar ævinlega vera til styktar sá bakhjarl sem móðir hans var. Móöur Aslaugar, Emmu á Heygum, á ég engin orð að segja til harmabóta nema þau, að i hjarta hvers einasta okkar sem Aslaugu þekktum bærist og sorg hennar, en samslungin ljúf- um minningum um yndislegan vin. Björn Th. Björnsson. Eina sælgætiö úr innlendu hráefni BITAFISKUR FRAMLEIÐANDi B.E. ESKIFIRÐI SÍMI6139 Fæst um allt land Dreifingaraöili í Reykjavík: Heildverslun Eiríks Ketilssonar Greiðsla olíustyrks í Reykjavík Samkv. 2. gr. 1. nr. 6/1975 og rgj. frá 30.5. 1974 verður styrkur til þeirra, sem nota oliukyndingu fyrir timabilið marz — mai 1975 greiddur hjá borgargjaldkera, Austurstræti 16. Greiðsla hefst fimmtudaginn 21. ágúst. Afgreiðslutimi er frá 9.00 — 15.00 virka daga. Styrkurinn greiðist framteljendum og ber að framvisa persónuskilrikjum við móttöku. 19. ágúst 1975. Skrifstofa borgarstjóra Otför Aslaug á Heygum Granaskjóli 19 verður gerö frá Fossvogskapellu I dag kl. 13.30. Emma á Heygum Orri Ólafur Magnússon Magnús Magnússon Utför mannsins mins Sigurjóns Pálssonar frá Hjörtsbæ Keflavlk fer fram á morgun föstudaginn 22. ágtlst kl. 3 frá Foss- vogskirkju. Heiga Finnsdóttir

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.