Þjóðviljinn - 07.09.1975, Qupperneq 5
NIXON
Sunnudagur 7. september 1975. ÞJÖÐVILJINN — StDA 5
Leysir frá skjóöunni
fyrir hæstbjóöanda
,,Tékkheftablaðamennska”
(checkbook journalism) er það
kallað i Bandarikjunum þegar
einhverjum áberandi persónum
er borgað morð fjár fyrir að
koma fram og leysa frá skjóð-
unni i fjölmiðlum. Þetta orð
mun hafa komist inn i enskuna
þegar Watergate-málaferli voru
á döfinni, en þá bauð sjónvarps-
fyrirtækið CBS H.Rl Haldeman,
einum goskalla Nixons, mikla
fúlgu fyrir að koma fram i sjón-
varpi. James Reston, frægur
greinahöfundur i New York
Times, spurði út frá þessu:
,,Munu þá ekki aðrir stórlaxar
og alræmdir karakterar reyna
að græða á þessu?” Nú hefur
einmitt alræmdasti stórlaxinn
af þeim öllum úr Watergate-
málum farið út á þá braut. Fyr-
ir skömmu tilkynnti David
Frost, einn kunnasti sjónvarps-
maður breta, að hann hefði
keypt réttinn til að sjónvarpa
fréttaviðtölum við Richard M.
Nixon, fyrrum forseta Banda-
rikjanna. Sætir þetta nokkrum
tiðindum, þar eð Nixon hefur að
öðru leyti ekkert viljað við fjöl-
miðlamenn tala siðan hann yfir-
gaf Washington fyrir ári. Fyrir
þetta fær fyrrverandi forseti og
voldugasti maður heimsins eitt-
hvað á milli 650.000 og 750.000
dollara.
Umboðsmaður hans, Irving
Lazar, segir að visu að hann
hafi valið að skipta við David
Frost „vegna einstakrar og við-
tækrar reynslu hans”, en engu
að siður þykir ljóst (samkvæmt
fréttatimaritinu Time) að Nixon
hafi einfaldlega tekið boði
Frosts vegna þess að hann bauð
hæst. Sýnir þetta að Nixon hefur
ekki misst áhuga sinn á þeim
gæðum er peningar geta veitt,
þrátt fyrir alla sina niðurlæg-
ingu og vesöld.
Frost byrjaði með þvi að
bjóða hálfa miljón dollara, en
var fljótur að hækka boðið þeg-
ar Lazar fór fram á meira. Þeir
Frost, Nixon og lögmenn þeirra
lokuðu sig siðan af á San Cle-
mente, bústað Nixons i Kali-
forniu, i hálfa sjöttu klukku-
stund og gengu frá samningun-
um. Samkvæmt þeim mun
Frost ræða við Nixon i fjórum
sjónvarpsþáttum að likindum,
sem hver verður að sögn um
niutiu minútna langur. Fimmti
þátturinn kemur til greina.
Byrjað verður að taka viðtölin i
april næstkomandi, en þau
verða ekki send út fyrr en 1977,
svo að útilokað sé að þau hafi á-
hrif á næstu forsetakosningar i
Bandarikjunum, sem verða á
komandi ári. Frost lagði á-
herslu á að Watergate yrði tekið
fyrir i að minnsta kosti einum
þáttanna, og Nixon fær ekki að
vita spurningarnar fyrirfram og
ekki að fara yfir viðtölin.
Hver leggur fram fjármagn-
ið? Frost vill ekkert um það
segja i bráðina nema að þar
leggi saman alþjóðleg sam-
steypa útvarpsfyrirtækja. Um-
mæli af hálfú þriggja helstu
sjónvarpshringa Bandarikj-
anna benda ekki til að þau eigi
hlut að máli, en útilokað er það
þó ekki.
Samningur þeirra F'rosts og
Nixons er sá stærsti á sviði
„tékkheftablaðamennsku” til
þessa. Frost færir hinsvegar
fram sér til málsbóta að þar eð
Nixon sé ekki lengur forseti,
geti efni viðtalanna ekki talist
fréttir, heldur aðeins endur-
minningar. „Það er engin á-
stæða til þess að Nixon fái ekki
að hafa peninga upp úr sinum
endurminningum eins og aðrir
Bandarikjaforsetar hafa gert,”
segir Frost.
Einhver vafi getur leikiö á þvi
að Frost, sem er ekki beinlinis
fréttamaður, sé maður fyrir
þessu hlutverki. Aðvisu vantar
ekki að hann sé vanur að ræða
við frægar manneskjur, og má
af þeim nefna Indiru Gandhi og
keisarann af Iran. En hann hef-
ur ekki fyrir sið að fá viðmæl-
endur sina til að leysa frá skjóð-
unni með hrið af spurningum,
sem koma þeim úr jafnvægi,
heldur reynir að fara varlega að
þeim i þeim tilgangi að raun-
verulegur persónuleiki þeirra
komi upp á yfirborðið. „Til-
gangur minn með viðtölum,”
segir Frost, ,,er að fá menn til
að koma fram eins og þeir raun-
verulega eru.”
Frost, kaldurog rólegur breti,
virðist sjálfur álita það.
„Richard Nixon er breyttur
maður, meira að segja frá þvi
sem hann var fyrir fáum vik-
um,” segir Frost. „Eftir þvi
sem timinn hefur liðið og hann
komist til heilsu, hefur hann
farið að skilgreina hið liðna.”
Frost er sannfærður um að öll
sjónvarpsfyrirtæki, lika þau
bandarisku, muni kaupa viðtöl-
in, verði þau nógu mergjuð.
„Min reynsla er sú, að sjón-
varpsfyrirtæki liti á það sem
hlutverk sitt að dreifa upplýs-
ingum fremur en að þagga þær
niður,” segir hann. En jafnvel
þótt bandarisku sjónvörpin fúlsi
við viðtölunum, er talið vist að
hann hafi nógan markað fyrir
þau utan Bandarikjanna.
Á bandariskum blöðum er að
heyra að þar i landi sé mönnum
ekkert um þessa framtakssemi
Frosts. 011 hneyksiaskriðan
kringum Watergate var hroða-
legt siðferðilegt áfall fyrir
Bandarikin og þau eru hvergi i
nærri búin að ná jafnvægi eftir (
það. Mörgum þykir sem Nixon :
bæti nú gráu ofan á svart með ;
þvi að fara að taka stórfé fyrir j
það sem hann skyldunni sam-
kvæmt hefði átt að vera búinn
að segja fyrir löngu.
Sértþúað
huasa um sólarfrí í
skammdeginu,
ÞásniiðuÞér
til okkar
í vetur veröa farnar a.m.k. 18 sólarferöir til Þúsundir íslendinga, sem fariö hafa í vetrar-
Kanaríeyja. Sú fyrsta 30. október, hin síðasta ferðum okkar til Kanaríeyja undanfarin ár,
13. maí. æh bera vinsældum ferða okkar vitni.
LOFTLEIDIR
ISLANDS
Fyrstir með skipulagðar sólarferðir i skammdeginu