Þjóðviljinn - 07.09.1975, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 07.09.1975, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINNSunnudagur 7. september 1975. Kristni, marxismL Róðukross frá indjánum I Perú A.B.: Þetta er gömul og ný kristin röksemd, menn skuli ekki ofmetnast, beygðu þig stolti maður, sagði Dostoéfski. I annan stað mætti bera hér upp þá spurn- ingu, hvort þessi sérkennilega spenna með ástarhaturstil- burðum á stundum sem getur risið milli kristinna og marxista, hvort hún gæti ekki verið tengd þvi, að tvö allsherjarkerfi eru að mætast. Þvi kristni er, eins og önnur, trúarbrögð, allsherjar- kerfi. Og hafi menn faðmað kenningu sem telur sig spanna allt, þá er náttúrlega ekki mikið aflögu fyrir aðra. Annað mál er, hvort það sé i raun og veru rétt að lita á marxisma sem allsherjar- kenningu þött það sé oft iðkað af áhangendum og andstæðingum. Friedrich karlinn Engels sagði á þá leið, að marxisminn væri ekki kennisetning heldur leiðsögn til athafnar. Innsýn marxista En i samtalinu sagði ég sem svo: er það rétt skilið, að ef þér telduð marxismann ekki gera til- kall til að vera allsherjar- kenningu, heldur „bara” út- skýringu á sögu og stéttabaráttu, formúlu fyrir æskilegu þjöð- félagskerfi og baráttu fyrir þvi. t ágúst var haldið i Reykjavik fjölmennt kristilegt samnorrænt stúdentamót. Að sjálfsögðu var frá þessu móti sagt i blöðum, dag- skrá þess rakin í stórum dráttum. En þótt skrifaðir væru leiðarar, sem lofuðu slikt mót, var i raun harla litið fjallað um það, sem þar gerðist (fyrir utan þá roku- frétt sem matareitrunin mikla hleypti af stað). Hér i Þjóðviljan- um var þessu móti einn dag likt við herferðir bandariska prédikarans Billy Garahams. Ég held að það hafi verið hæpinn samanburður, það er alllangur vegur frá Billy þessum að þeim varfærnu og spéhræddu þjóð- kirkjum Norðurlanda, sem eru bakhjarl mótsins i Laugardals- höll. Finnskur umræðustjóri En það er i reynd fróðlegt að hnusa nokkuð af þvi', hvernig um ýmisleg veigamikil mál er fjallað á sliku móti. Hvernig t.d. reynt er að svara þeirri spurningu, hvern hlut ætla ungir kristnir menn á okkar slóðum trú sinni i nútima samfélagi? Þaðkom á daginn, að ungur stúdentaprestur frá Finn- landi Raimo Makelö var með námshóp um efnið „Menningar- skilgreining, hugmyndafræði og áhrifavald Bibliunnar”. Og i drögum að umræðu sagði, að það yrði einmitt marxisminn sem tekinn yrði sem dæmi um hug- myndafræði, vegna þýðingar hans nú og hér. Ég skal strax taka það fram, að Raimo Makala taldi alla „hugmyndafræði” neikvæða — það þýðir þá meðal annars, að hann telur kristindóminn eitthvað annað en hugmyndafræði. Þarna er strax komið eitt atriði sem ég bið menn að hafa i huga ef þeir nenna að lesa þessa frásögn: menn nota hugtök á svo ólikan hátt .leggja i þau svo mismunandi merkingu, að það er næsta auð- velt að villast i þessum merking- armun einum saman. Það fór svo að ég átti samtal við Raimo Makela einmitt morgun- inn eftir eitrunina miklu, en ekki hefur fyrr unnist timi til að setja frásögn af henni á blað. Þetta var ekki beinli'nis viötal, ekki kapp- ræða heldur. Ég vona að viðhorf þessa ágæta finna komi hér fram óbrengluð, þótt endursögn þeirra verði kannski full ágripskennd. Spurningar blaðamanns til Makalas eru merktar sem slikar, en þær athugasemdir sem mér dettur i hug að gera meðan þeta er skrifað eru merktar AB. Efnið og andinn F'yrst var spurt að skoöunum gestsins á hliðstæðum og and- stæðum kristinnar og marxiskrar þjóðfélagsrýni. Makela : Marxisminn litur á sig sem eina heild, heilstætt kerfi. En það er réttast að kristnir menn geri i afstöðu sinni til marxisma greinarmun á meðferð hans á sannindum, á tilverufræðum annarsvegar og á samfélagi hins- vegar. Marxisminn er einþættur monistiskur. Hann heldur sig við efnið eitt, andinn er honum aðeins birtingarform efnis. Það er lika til ýmisleg fleirþætt, plúralisk hugmyndafræði, sem ekki verðúr farið út i hér. En kristindómur er sérstætt fyrirbæri sem fellur undir hvorugt þessara hugtaka. Hann er ekki mónistiskur af þvi að við trúum á þrfeinan guð, sem grundvöll alls sem er. Þetta þýð- ir, að skilningur á guði sem slik- um er forsenda fyrir þvi að við skiljum bæði efni oganda. Guð er eining og margbreytileiki i sam- ræmi, þar með er fenginn grund- völlur fyrir þeim skilningi okkar að við getum ekki tæmt heiminn með mónisma. Með tilvisun að- eins til efnis eða aðeins til anda. Það hafa verið til andlegheita- hreyfingar ( spiritúaliskar) kristnar hreyfingar sem segja: allt er andi. Þetta er ekki réttur kristindómur, við megum ekki vanmeta það efnislega sem guð hefurskapað. Allt er jafnrétthátt. Einstaklingar og samfélag En þessi tilveruskilningur marxista (efnishyggjan) sem áður getur, hefur margar af- leiðingar. Marxistar hneigjast til að vera ekki ateistar, guðsafneit- arar, heldur nonteistarar guðlausir — m.ö.o. þeir setja ekki einu sinni fram spurninguna um guð. Hér á eftir fylgir afstaða flestra marxista til trúarbragða: það yfirnáttúrulega i persónu Jesú er þeim blátt áfram „ómögulegt”, óhugsandi. 1 félagslegu tilliti held ég, að þessi skilningur hafi þær afleiðingar aþ einstaklingurinn glati mikilvægi sinu, sjálfstæði. Kristindómur veit að visu, að maðurinn er ekki óháður (guði), en hann leggur áherslu t.d. á persónulegt sam- band einstaklingsins við guð. En hjá marxistum verður sam- félagið, kollektifið, ráðandi yfir einstaklingnum — t.d. i undir- gefni undir vilja flokks, hreyfing- ar osfrv. Stopp: hér var samtalið á leið niður á jörðina og verður nú nokkurt orðaskak. Ég geröi þá at- hugasemd við ræðu Makelas, að undirgefni undir vilja kollektifs, hóps, væri mjög sterkur þáttur i kristinni hefð: austurkirkjan tel- ur sig hafa lög að mæla þegar hún er „saman komin” (sobornost), Viðmælandi minn fór út i þá sálma, að reyndar væri einstak- lingshyggja eins og við þekktum tiltölulega nýtt fyrirbæri, en for- ræði samfélagsins hópsins, kollektifismi, afar sterkur i eldri og frumstæðári samfélögum. ranglæti Giacometti: Maöur á göngu. Aldo Simoncini: Teikning. Flutraðist þetta ágæta umræðu- efni einhvernvegin niður. Allsherjarkenning og nú komað merku atriði: Makela: Kristnir menn geta aldrei viðurkennt að nokkur hugmyndafræði og þá ekki marxismi hafi rétt til að gera til- kall til að vera allsherjarkerfi sem felur i sér alla hluti og út- skyrir ailt. Þar með fer manneskjan yfir sin takmörk. Það er ómögulegt að þekkja upp- haf hluta og framtiðina, og þekking okkar á tiltölulega nálægri sögu er lika takmörkuð. þá væri afstaða yðar til marx- isma jákvæðari? Jú, nú vék Makela aftur að þvi, að það þyrfti að gera greinarmun á marxiskum skilningi á hinum æðstu sannindum (tilverufræði) og skilningi marxista á sam- félagi. Það er, ef ég man rétt, nokkur hliðstæða i þessari sundurgreiningu við boöskap Jó- hannesar páfa um sama efni i páfabréfinu Pacem in terris. Makela: Ég hefi oft dáðst að innsýn marxista i samfélags- gerðina, djúpstæðri þekkingu þeirra á þeim hlutum. Það er reynsla min sem súdentaprests, að fáir úr minum hópi hafi sett sig jafn rækilega og þeir inn i þessi mál. Tökum Finnland sem dæmi. Verklýðshreyfingin þar, sem er i heild sinni ekki sama og marx- ismi en að sjálfsögðu mjög undir hans merkjum, hefur i reynd verið það afl sem framkvæmdi þýðin garmestu félagslegar nýjungar á þessari öld. Vinnu- vernd, stytting vinnutfma, al- mannatryggingar, barnahjálp og margt fleira. Áhrif þessa hafa orðið til góðs nauðstöddum og allir kristnir menn verða að meta þetta að verðleikum. Sambúð verklýðshreyfingar- innar og kirkjunnar (sem R.M. reyndar sagði að væri ekki það sama og kristnin) hefur verið misgóð. Sósialdemókratar voru t.d. um alllangt skeið ekki i mikl- um árekstrum við kirkjuna. En nú hefur afstaða þeirra harðnað, eins og fram kemur til dæmis i nýrri stefnuskrá þeirra, sem er neikvæð gagnvart trúarbragða- kennslu i skólum og fleiri málum sem að kirkjunni snúa. Spurning: Var ekki sú andúð sem i'stærri eða minni mæli hefur gætt hjá verklýðshreyfingunni og flokkum hennar blátt áfram tengd þvi, að kirkjan var I augum þessa fólks stoð og stytta valdhaf- anna, hins óbreytta ástands? Makcla: Ef ég tala um liðna tið I mínu landi, þá voru innan kirkj- unnar alltaf til réttlátir og góð- viljaðir menn, sem hjálpuðu ein- staklingum. Einkum sóknarprestar sem stóðu fólkinu næst og gerðu margt þarflegt i þess þágu. Gleymum þvi heldur ekki, að það var reyndar stétta- skipting innan kirkjunnar lika, mikill munur á háklerkum og lág- klerkum. Ég held persónulega, að samfélagið hafi i reynd verið gagnrýnt af kristindómi og staða kristninnar i heild i þessum rétt- lætismálum hafi verið heldur já- kvæð. En það er liklega rétt, sem i spurningunni fólst, að kristnir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.