Þjóðviljinn - 04.11.1975, Blaðsíða 1
Þriðiudagur 4. nóvember 1975 — 40. árg. 250. tbl.
Fundur í landhelgisnefnd
Fundur var haldinn i landhelgisnefndinni i gær eftir langt
hlé. A fundinum voru lagðar fram skýrslur af gangi mála i
viðræðunum við breta og vestur-þjóðverja og ákveðið að
halda annan fund i nefndinni mjög fijótlega.
Ekki lengur í þingpallaskapi — Engar
verðbœtur á þjóðargjöfina Sjá síðu 10
Áhrif stöðvunar hraðfrystihúsanna í Keflavík
78 þegar atvinnulausir
Dregur fólk
frá þessari
atvinnugrein
segir Guð-
mundur J.
70-80 manns hafa látið
skrá sig atvinnulausa í
Keflavik vegna stöðvunar
frystihúsanna þar. Eru
þetta að sögn aðallega kon-
ur. Frystihús annars stað-
ar á Suðurnesjum munu
vera í fullum gangi.
Að sögn Karls Steinars Guðna-
sonar, form. Veralýðs- og sjó-
mannafélags Kelfavikur eru fjög-
ur hraðfrystihús i Keflavik og
Njarðvik þegar lokuð. Eru það
Hraðfrystihús Sjöstjörnunnar,
Ólafs Lárussonar, Jökuls H/f og
Framhald á 14. siðu.
Óveðrið i
fyrrinótt, olli
hundruð
miljóna tjóni
á Eyrabakka
Allir sem vettlingi gátu valdið i þorpinu hjálpuðust að i gær við að styrkja undirstöður frystihússins
(Ljósm. S.dór)
Stóráfall fyrir þorpið
Tveir bátar sukku, einn rak á land, frystihúsið skemmt
— Ég þori ekki að spá neinu um
það hve mikið tjón hefur orðið hér
á Eyrarbakka I nótt, en bara það
sem að okkur snýrnemur á annað
hundrað miljónum, sagði Einar
Guðmundsson framkvæmdastjóri
frystihússins á Eyrarbakka, sem
er eigandi Sólborgar AR 15, 80
tonna stálbáts, sem rak á land á
Eyrarbakka I óveðrinu i fyrrinótt
og er talinn ónýtur. Auk þess stór-
skemmdist frystihúsið sjálft
þcgar sjórinn gróf undan grunni
þess og veggur og þak salthúss
þess hrundi.
Auk þessa sukku tveir bátar í
höfninni, Skúli fógeti, 27 tonna
bátur, og Sleipnir, sem var 11
tonn að stærð. Er talið liklegt að
Sólborgin hafi sökkt þeim er hana
rak á land, i það minnsta liggur
hún ofan á þeim báðum i hafnar-
króknum.
Elstu menn segjast vart muna
annan eins sjógang og var við
Eyrarbakkaifyrrinótt. Þarna fór
saman mikið rok, stórstreymi og
sérl. djúp lægð, 950 millibör en
hver tiu millibör niður á við frá
meðaltali sem er i kringum 1000
þýðir 10 sm hækkun á yfirborði
sjávar. Þegar þetta fer svo allt
saman eins og i fyrri nótt er ekki
að undra þótt mikið gangi á.
Einar Guðmundson sagðist
ekki vita hvernig frystihúsið, sem
er aðal vinnuveitandinn á Eyrar-
bakka, þar munu vinna um 60%
af vinnufæru fólki þorpsins, færi
að þvi að bæta þetta tjón. — Það
er að minnsta kosti útilokað, að
við getum bætt þaðá eigin spýtur,
hér hlýtur viðlagasjóður eða eitt-
hvað svipað að verða að koma til,
sagði hann.
Grindavík:
— Annars erum við ekki búnir
að sjá fyrir endann á þessu, það
má búast við öðru eins i kvöld
(mánudagskvöld) þar sem veðrið
gengur litið niður og enn er stór-
streymt.
í gær unnu sjálfboðaliðar viða
að, m.a. úr gagnfræðaskólanum á
Eyrarbakka við að hlaða sand-
pokum likt og i hernaði við undir-
stöðu frystihússins, til þess að
reyna að treysta þær fyrir
kvöldið. S.dór
RÆKJAN:
Róið
með
semingi
við Djúp
Sjá síðu 14
Sólborg AR gerónýt að talið er uppi grjótgarðinum
Veðrið setti bát á land
Vogum og Vatnsleysuströnd
Miklar skemmdir í
llrafn GK, fyrrum Héðinn ÞH i
eigu Þorbjarnarins h/f i Grinda-
vík slitnaði frá bryggju i Grinda-
vik i óveðrinu i fyrrinótt og rak
upp i fjöru innan hafnarinnar.
Hrafn er 530 lesta stálskip.
Gera átti tilraun til þess að ná
Hrafni út á flóðinu i gær. Ekki er
vitað um skemmdir á honum, en
liklegt er talið að þær séu ekki
miklar.
Stórir steinar úr brimgarðinum
gengu inn i höfnina að sögn lög-
reglunnar i Grindavik, en aldan
kom svo til óbrotin yfir garðana.
A brimgarðinum átti Hafna- og
vitamál tvo bora. Fóru þeir báð-
ir með sjónum inn i höfnina.
Nokkuð var um að plötur fykju af
húsum.
Mikið tjón i Vogum
Sjór gekk á land i Vogum á
Vatnsleysuströnd. Sópaði hann á
burt grjótgarði, sem átti að vera
sjónum til varnar. Bar sjórinn
stórgrýti viða um lendur i Vogum
og á Vatnsleysuströnd. Þá fuku
og mannvirki nokkur þar.
Fok
Ekki urðu aðrar skemmdir i
Keflavik en þær, að þar fauk
uppskipunarskúr og lystisnekkja
losnaði frá i höfninni og rak á land
og er nokkuð skemmd. — úþ