Þjóðviljinn - 04.11.1975, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 04.11.1975, Qupperneq 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 25. október 1975. Til umhugsunar Mig hefur lengi langað að skrifa um eða koma fyrir almennings- isjónir hugmyndum, sem ég geng með i kollinum, er varða mengun ‘sem fólk veldur yfirleitt i algjöru hugsunarleysi. Það hefur oft angrað mig hvað reykingafólk er tillitslaust við þá er ekki reykja, reykingamanni dettur sjaldan i hug að spyrja um vilja húsráðenda þar sem hann er gestkomandi, hvort þeim sé það á móti skapi að reykt sé i húsa- kynnum þeirra, heldur brælir hann svo vart sér mili veggja i ibúðinni, verður svo undrandi yfir þvi að gestgjöfum skuli súrna i augum. Hvað getum við gert sem ekki gleðjumst yfir slikum heimsókn- um, en viljum samt gjarna þekkja þetta fólk án þess að særa það. Við þurfum á aðstoð að halda, þvi hver sá sem tekur upp hjá sjálfum sér að útbúa skilti og setja upp á vegg heima hjá sér, þar sem beðið er um að ekki sé reykt i húsinu, er talinn stór- skrýtinn, ef ekki fífl. Fyrir nokkru siðan var sett á fót nefnd sem nefnist samstarfs- nefnd um reykingavarnir. Væri ekki verðugt verkefni fyrir þessa nefnd að útbúa snoturt veggskjal til notkunar i ibúðarhúsum, með góðfúslegumum tilmælum til hinna reykjandi manna að spilla nú ekki friðhelgi heimilanna með ólofti þvi er þeir framleiða. Legg ég svo til, að til dæmis þau tryggingafélögsem tryggja innbú og hús, taki að sér dreifingu á þessum veggskjöldum, nú og fleiri ef fyrirfyndust sem hefðu á- huga svo sem stúkur og önnur bindindissamtök. önnur megnuo særir fegurðar- skyn mitt enn meir, en það er glerið sem sumt ferðafólk gerir sér gaman af að brjóta, meðfram vegum og hvar sem er, nefni til dæmis Húsafellsskóg, Þingvelli og jafnvel Hellisgerði i Hafnar- firði. Það er nær hvergi orðið hægt að setjast niður i gras án þess að eiga á hættu að slasa sig á gler- brotum. Ég dvaldist tvo daga á þessu sumri i Húsafelli og gekk talsvert um staðinn, allt það gler sem bú- ið er að brjóta þar niður i þann fagra stað er með ólikindum, skiptir ábyggilega tonnum, og er með ólikindum hvar fólk hefur getað brotið gler, manni liggur stundum við að álykta að þetta fólk hafi haft hamar við hendina til að geta fullnægt þessari þörf sinni. Ég byrjaði að tina upp glerbrot er á leið minni urðu, en komst fljótt að þeirri staðreynd að ætl- aði ég að sjá staðinn yrði ég að horfa yfir glerið og fara i vel sól- aða skó. Ef þú, ferðamaður, gerðir þér að skyldu að tina upp sem svarar tveim flöskum af glerbrotum i hvert sinn er þú kemur i Húsafell og kæmir þeim i sorpilát, sem nóg 'er af þar, legðir niður þann leiða vana að brjóta gler, mættum við búast við að landið yrði orðið nokkuð hreint að 10 árum liðnum. Þetta er svona á mörgum fleiri stöðum þar sem mannamót eru haldin eða hafa verið haldin, og þvi ekki ástæða til að nefna Húsa- fell sérstaklega, en náttúrufegurð er svo rikuleg þar að mann sviður enn sárar þar en annarsstaðar. Ekki þýðir að banna fólki, þvi það æsir það bara upp svo það leggur enn meira kapp á það for- boðna. En hvað skal þá. Min hugmynd er sú, hvað glerið varðar, að gera það einhvers virði, svo fólk hafi ekki efni á að brjóta það eins og gert hefur ver- ið. Mætti ekki láta öl og vinflösk- ur, glerið á ég við, kosta svona 100 kr. og skylda alla sem selja þess- ar vörur til að kaupa glerið aftur, ég held að rikið okkar græði það mikið á áfengissölunni að það geti veleyttþessu gleri. Til að neitend- ur greiði sinn hlut af þessum kostnaði mætti taka upp sama fyrirkomulag og er hjá ölsölunum að skipta gierinu eða selja það fyrstog kaúpa siðan á sama verði aftur, ég veit að þetta tiðkast viða erlendis og gefur góða raun. Væri þetta ekki verðugt verk- efni fyrir þingmennina okkar, að semja um þetta einhver lög, svona sem viðbót við þjóðargjöf- ina frá i fyrra, nú eða landvernd: það væri gaman að heyra frá þeim. Eitt vil ég nefna enn sem meng- að hefur ferðamannaslóðir mjög i sumar, það eru litlu fernurnar ut- anaf kókómjólkinni. > Þingvöllum er bókstaflega a1lt svæðið undirlagt, sama er að segja um Hellisgerði, samkomu- svæðið i Vatnsfirði, meðfram öll- um vegum og viðar og viðar. Er nú ekki hér kjörið tækifæri til að koma boðskap á framfæri til yngstu kynslóðarinnar á þessum litlu fernum, og orða hann þannig að hann höfði til barnanna og festist vel i mynni. Ég held að börn hendi ekki rusli hvar sem þau eru stödd, ef þeim er gert skiljanlegt hvilikur sóða- skapur það er. Gamalt máltæki segir ,,Hvað ungur nemur, gamall temur”. Ég vona að það sé i fullu gildi enn. Vona ég svo að þessi orð min veki umhugsun um þessi mál og megi koma okkar fagra landi til góða. Gert i Búðardal 7/9 1975 Aðalsteinn Valdimarsson. O.L. auglýsir vetrarfatnað Uanskir kuldajakkar á drengi. (Jlpur bæði i mitti og siðar. Frá Noregi: Rúllukragapeysur bæði úr ull og krepi. Ullarnærför bómullarnærföt (siðar buxur) frá Devold. Buxur i úrvali. Þýskar jerseyskyrtur Ameriskir sokkar stuttir og háir. Allt úrvalsvara á góðu verði. Ó. L. Laugavegi 71. Simi 20141 Vélaviðgerðir Tek að mér vélaviðgerðir, bifreiðavið- gerðir og nýsmiði. Upplýsingar i sima 99-5609 og 99-5638. Sigursveinn Magnússon skrifar um tónlist Elisabeth Söderström Tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar Islands 30, októher Karsten Andersen Stjórnandi: Karsten Andersen Einsöngvari: Elisabcth Söder- ström. Efnisskrá: Wagner: Meistarasöngvararnir i NUrnberg. Forleikur Jónas Tómasson: 1,41 J. Haydn: Scena di Berenice. Ur óperunni Antigónu Malcoim Williamsson: Portraitof Dag Hammarskjöld J. Brahms: Tilbrigöi um stef eftir Haydn Stiórnandinn Karsten Ander- sen fór mjúkum höndum um fyrsta verkið á efnisskránni. Meðferðin var öll i ljóðræna átt, e.t.v. heldur um of, svo þunga- miðja verksins og hápunktar náðu ekki fullri reisn fyrr en undir lok forleiksins að sú sam- staða náðist sem hélst það sem eftir var tónleikanna. Tónsmiðin 1,41 eftir Jónas Tómasson samanstendur af þrem þáttum sem hverjum er gefið það hlutverk að túlka augnablik, mynd, atburð eða eins og höfundur segir 1 efnis- skrá, áheyrandanum er frjálst að finna aðrar skýringar. Höf. teflir fram hvit-svörtum and- stæðum i hljóðfæra- og tónavali ásamt frisklegum rytmlskum á- tökum, sem skapa sterkar svip- breytingar. Athyglisverðast finnst mér hvað stefna og still Jónasar virðast skýr. Allir þætt- irnir bera nokkuð heilsteyptan svip, mun alvarlegri en hin gamansömu heiti gefa til kynna. Það hefur óneitanlega góð áhrif á hlustanda að nýju verki þegar imyndunaraflið er sett á stað með skýringum eins og þeim sem höfundur setur fram i efnisskrá; það að nefna þátt „Komið til Islands með þotu að vetrarlagi” er nokkuð sem ef- laust hefur fengið marga til að leggja við hlustirnar. Það vekur athyglihvað verk islenskra tón- skálda eru tið á tónleikum S.í. i byrjun þessa starfsárs, vonandi verður framhaldið jafn efnilegt og upphafiö. Það leyndi sér ekki þegar fyrstu tónarnir úr „Scena di Berenice” ómuðu að hér var sérstakur viðburður i aðsigi. Það sem einkenndi flutninginn var djúpstæð tjáning, sett fram af frábæru hugviti og tækni. Haydn vildi með þessari aríu gefa söngkonunni möguleika til að sýna flestar hliðar getu sinn- ar, og Elisabeth Söderström not færði sér þessa möguleika svo sannarlega út I ystu æsar. Spenna, mikil styrkleikabreidd ásamt dramatiskri litadýrð og ljóðrænni mýkt, hjálpaðist allt aö til að undirstrika það örlaga- rika augnablik sem arian fjall- aði um. Það var einmitt þessi ljóð- ræna mýkt og fljótandi gæði raddarinnar sem á reyndi i næsta verki „Portrait of Dag Hammarskjöld” eftir Malcolm Williamsson. 1 verki þessu sem er samið fyrir sópranrödd og strengjasveit við ljóð eftir Hammarskjöld er málað dökk- um litum, likt og til að túlka hugrenningar þess manns sem vildi svo vel, en fékk litlu áorkað og fórst við störf sin á sviplegan hátt. Hafi Elisabeth Söderström töfrað gesti óperuhúsanna, er ljóst að ekki njóta hin lýrisku einkenni raddar hennar sin siður, og aldrei var rödd hennar ferskari en einmitt undir lok verksins. Siðast á efnisskránni voru tilbrigði eftir Brahms um stef eftir Haydn við sálm heilags Antóniusar. Eftir ofurlitið hik- andi inngangsstef einkenndist spilamennskan af festu og ein- hug, dálitið bar á veikleika strengjanna, sem skorti bol- magn til að veita blásarasveit- inni nægilegt mótvægi I hinum þykkri sinfóniskari köflum, en þegar litið er á tónleikana i heild er Utkoman góð, stjórnandi og hljómsveit skiluðu sinum hlut- verkum með ágætum. Ekki skal hér látið hjá liða að minnast ofurlitið á gerð efnisskrár, sem mér finnst einkennast af nokk- urri ósamsvörun. Það ber við eins og þetta kvöld að hingað kemur heimsfræg söngkona sem stóran þátt tekur i prógrammiþessara tónleika. Ef litið er i tónleikaskrá kemur i ljós að ekki er þar staf að finna um það efni sem hún ætlar að flytja. Mér finnst það vægast sagt vanmat á þeim sem sækja tónleika ab imynda sér að þeim standi á sama um meiningu þess skáldskapar sem tónlistin er sett við. Nú má enginn skilja orð min svo að ég sé með þessu að hallmæla þeim útskýringum og yfirliti, sem listakonan gerði sjálf áður en flutningur hófst, öðru nær, en þeir eru eflaust margir sem vegna ónógrar málakunnáttu hafa ekki fengið út Ur þeim mjög heilsteypta mynd og ékki notið sem skyldi fyrir vikið. Auk þessa virðist rikja nokkurt ósamræmi i þýð ingu titla og kaflaheita. Að þessu sinni var aðeins einn titill þýddur, en allir hinir skildir eftir á frummálinu. Á siðustu tónleikum voru yfirskriftir þátta i sinfdniu Schumanns þýddir af þýsku yfir á islensku, en önnur kaflaheiti itölsk látin óhreyfð. Skyldu islendingar vera álitnir læsari á itölsku en þýsku? Þetta mætti lagfæra mikið t.d. með þvi að birta öll erlend heiti með þýðingu eða útskýringu á isl. Mér finnst, að ef stefnt er að þvi að brúa frekar bilið á milli hins svokallaðs æðri tón- listarflutnings hér á landi og hins almenna hlustanda, þá væri það að minnsta kosti spor i rétta átt. Reykjavik2. 11.75 Sigursveinn Magnússon Iðnnemar á Austurlandi: Efla þarf virðingu fyrir verkmenntun Eftirfarandi ályktun var ein- róma samþykkt á fundi nemenda og kennara Iðnskóla Austurlands I Neskaupsstað: Nemendur og kennarar Iðn- skóla Austurlands I Neskaupsstað lýsa fullri samstöðu með Iðn- nemasambandi tslands í mót- mælum þeirra gegn öllum niður- skurði á fjárveitingum til iðn- fræðslumála sem og til annarrar verkmenntunar á sama tima og yfirvöld menntamála tala um þjóðarnauðsyn á eflingu verk- men ntunar. Þá viljum við benda á það óréttlæti, sem felst i fjármagns- legri uppbyggingu bóklegs fram- haldsnáms annars vegar og verk- menntunarkerfisins hins vegar, þar sem rikið byggir sjálft og rek- ur skóla fyrir þá, sem fara i bók- legt framhaldsnám, en sveitar- félögum er ætlað að byggja og reka að hálfu verkmenntunar- skóla eins og til dæmis iðn- fræðsluskólana. Við tökum heilshugar undir orð hæstvirts menntamálaráðherra um að auka þurfi virðingu fyrir öllu verklegu námi, en leggjum áherslu á, að til þess að þjóðin sjálf meti verkmenntun til jafns við þá bóklegu þarf fram- kvæmdavaldið og löggjafinn að ganga á undan.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.