Þjóðviljinn - 04.11.1975, Qupperneq 4
4 StOA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. nóvember 1975
DJOÐVIUINN
MALGAGN SÓSlALISMA
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Otgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: EJinar Karl Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólavöröust. 19. Slmi 17500 (5 llnur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
STJÓRNARBLÖÐUNUM ÞÓTTI PLAGGIÐ
EKKI FRÁSAGNARVERT!!!
í siðustu viku lagði Ragnar Arnalds,
formaður Alþýðubandalagsins fram á
alþingi tillögu um að fela rikisstjórninni
að undirbúa nú þegar lagafrumvarp um
breytingu á tekjuskattslögum með eftir-
talin markmið i huga:
1. Hin svokallaða flýtifyrning fyrirtækja
og fyrning samkvæmt verðhækkunar-
stuðli verði afmunin, en fyrningarhlutfall
miðað við eðlilegan endingartima eigna.
2. Að þvi verði takmörk sett, hve mikla
vexti megi draga drá tekjum, þannig að
hámark vaxtafrádráttar sé ákveðið ár-
lega mið hliðsjón af meðalvöxtum,
ibúðarverði og fjölskyldustærð.
3. Að einstaklingum, sem hafa tekjur
sinar af eigin rekstri verði franvegis
áætlaðar ákveðnar lágmarkstekjur, hvort
sem reksturinn skilar bókhaldslegum
hagnaði eða ekki.
Með þingsályktunartillögu Ragnars
Arnalds fylgdi listi yfir 432 fyrirtæki i
Reykjavik, sem veltu samtals yfir 20
þúsund miljónum króna á siðasta ári, en
borga samt ekki eina einustu krónu i
tekjuskatt á þessu ári, samkvæmt skatta-
skrá Reykjavikur, vegna þeirra furðulegu
friðinda, sem fyrirtæki njóta samkvæmt
lögbundnum afskriftareglum.
Þessi mjög svo athyglisverði listi hefur
verið birtur i heild hér i Þjóðviljanum.
En hvað hefur verið sagt um málið i öðr-
um blöðum? Litil klausa i Alþýðublaðinu,
en i öllum stjórnarblöðunum fjórum ekki
eitt orð.
i Morgunbiaðinu, Timanum, Visi og
Dagblaiiinu þykir það ekki fréttnæmt,
ekki frásagnarvert, þótt 4-500 fyrirtæki í
Reykjavik, sem velta samtals yfir 20
miljörðum á ári, borgi alls ekki neitt i
tekjuskatt. Málgögn rikisstjórnarinnar
vilja ekkert vera að raska ró lesenda
sinna með svona upplýsingum um stað-
reyndir. Stjórnarherrarnir ætla al-
menningi að trúa þvi, að hvergi hafi verið
um nokkurn minnsta gróða að ræða hjá
öllum þessum fyrirtækjum, og það þótt
eignir fyrirtækjahópsins og eigenda
fyrirtækjanna þenjist út ár frá ári fyrir
allra augum.
Stóreignamyndun fyrirtækjahópsins
verður ekki vegna gróða að skilningi
skattalaganna, sem rikisstjórnin ber
ábyrgð á, heldur þenjast eignirnar sifellt
út á bullandi tap!! — og þvi engar tekjur
að skattleggja.
Það gegnir furðu, að almenningur á ís-
landi skuli láta bjóða sér upp á slikan
skripaleik.
Hvernig halda menn, að fólkinu i
Borgarnesi, Bolungarvik og Hveragerði,
sem bar fram alvarlegar kvartanir i
sumar yfir skattaálagningunni, litist á
listann yfir þessi 4-500 skattfrjálsu fyrir-
tæki i Reykjavik með yfir 20 miljarða i
ársveltu?
Dettur mönnum i hug að þetta fólk
bara loki augunum og neiti að lita á slikt
blað, eins og rikisstjórnin og málgögn
hennar f jögur gera, — láti eins og listinn
sé ekki til, né sá lögverndaði fjármagns-
flutningur frá almenningi til gróðamanna,
sem plaggið er til marks um?
— Nei þessi listi yfir fyrirtækin 432 birt-
ist i Þjóðviljanum á föstudaginn var, þann
31. október og þar getur öll alþýða virt
hann fyrir sér og dregið sinar eigin álykt-
anir, þótt Morgunblaðinu, Timanum,
Dagblaðinu og Visi hafi ekki þótt taka þvi
að nefna slikt plagg.
Og það má vissulega vera öllum ljóst, að
þeir miljarðar, sem „tapfyrirtækjum” i
Reykjavik, og vitt um land, er sleppt við
að greiða i skatta með fyrningareglum,
sem kalla það tap, þegar gróðinn á ári er
nær 30% af stofnkostnaði, — þessir
milljarðar eru i staðinn teknir af almenn-
ingi i landinu með margvislegri skatt-
heimtu i beinu og óbeinu formi.
Á sama tima og rikisstjórn Geirs
Hallgrimssonar og Ólafs Jóhannessonar
býður almenningi upp á skattakerfi, sem
skilar auðstéttinni i skattfrjálsri
eignamyndun miljarði á miljarð ofan, þá
er kveinað og kvartað yfir slæmri stöðu
rikissjóðs, — verulegar framkvæmdir úti
um allt land skornar niður um a.m.k.
fjórðung samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
og miljarðar króna klipnir af f járveiting-
um til aldraðs fólks og öryrkja og af
námsmönnum.
Slik er sú stefna i hnotskurn, sem tengir
saman Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn-
arflokkinn. k.
KLIPPT..
Opið Ijóð
Reykjavíkurbréf Morgun-
blaösins að undanförnu eru
einskonar opin ljóð; ekki miklu
verri en önnur ljóð sem þá eink-
unn hafa fengið. t Reykjavikur-
bréfi sl. sunnudags er enn kveð-
ið i sama stil, sama stemman,
en vissulega eru sefasýkisein-
kennin alvarlegri og ömurlegri
en oftast áður. Þetta bréf fjallar
einkum um Þjóðviljann og bók-
menntaskrifara hans, Arna
Bergmann. Hér eru nokkur
sýnishorn úr þessu opna ljóði:
„Þjóöviljinn er málpipa
svartasta afturhalds og
mesta kúgunarvaids okkar
tima...”
...þetta skinhelga og
hræsnisfulla málgagn mann-
úöarinnar.”
„Abyrgöina bera aö sjálf-
sögöu skráöir ritstjórar og
andlegir kommissarar blaös-
ins....”
„Og — ekki slst — Arni Berg-
mann, sérfræöingur i meöal-
mennsku. Hann ritar aö jafn-
aöi I þetta siöferöisslappa
málgagn, þvaðrar og veöur
forheimskunarelginn sýknt
og heilagt...”
„Eru hinir bergmálalausu
múrar Kremlar máttarstoö
þessa endemis blaös úti á ts-
íandi og kennir sig viö alþýö-
una, þegar mikið liggur viö.”
„Við getum sagt: bergmanns-
lausir múrar(l ) Það kemur I
einn stað niður.”
„Nei, ekki eitt orð frá hinum
bergmannslausu múrum(l)"
„Nei, Þjóðviljinn er bæði
bergmálslaus og bergmanns-
laus.”
Fjaðrafok
En hver er ástæðan fyrir
þessum einstöku árásum
Matthiasar Johannessens á
Matthias Jóhannessen
Þjóöviljann? Er ástæðan sú að
honum sé fremur en öörum
mönnum mikilvægt að mann-
réttindi fái lif i Sovétrikjunum?
Er ástæðan sú aö Matthias Jö-
hannessen sé réttsýnni mann-
úðarkempa en allir aörir? Þvi
fer fjarri að þvi er reynslan seg-
ir okkur. Moröin i Vietnam og
Chile lætur Matthias Johannes-
sen sér i léttu rúmi liggja, en
samkvæmt stefnuskrá Sjálf-
stæðisflokksins mega ihalds-
menn hafa skoðanir á mann-
úðarmálum i Sovétrikjunum.
Ekki á Spáni, um morðin I
Madrid eru ekki skrifaðir leið-
arar i Morgunblaðiö, bréf né
stakir steinar. öðru máli gegnir
um Sovétrikin.
Nei, ástæðan fyrir sefasýkis-
kasti ritstjóra Morgunblaðsin's
gagnvart Þjóðviljanum og Arna
Bergmann er sú að Arni skrifaði
fyrir nokkru ritdóm um leikrit
eftir Matthias Johannessen.
Þessi ritdómur var hógvær og
málefnalegur eins og önnur
skrif Arna Bergmanns; þar var
ekkert ofsagt um þessi leikrit og
hvergi farið eins stórum orðum
um þau og kannski veröast væri
vegna þess að Arni Bergmann
kærir sig ekki um að bók-
menntaskrif hans séu pólitisk
einkunnagjöf eins og skrifin eru
um bókmenntir i sjálfshóls-
klúbbi Morgunblaðsins. En
vegna þessara skrifa Arna um
leikrit Matthiasar tryllist Matt-
hias — hluta af tryllingsvið-
brögðunum sjá menn hér á und-
an.
Hlutlœgur
dómur
Sá sem hefur skrifað einna
sannoröasta lýsingu á þessum
leikritum Matthiasar Johannes-
sens er Þorvaröur Helgason
sem nú skrifar um bókmenntir I
VIsi. Hann segir ( ritdómi sinum
sl. föstudag:
„Eins og þér sáiö. Hugmyndin
er kannski ágæt en úrvinnslan
ris aldrei upp af leiöinlegu and-
lausu þrasplani.”
„Fjaörafok. Hér hefur höfund-
ur ætlað að takast á við stórt
verkefni en átakið dreifist
meira en góðu hófi gegnir og
gildi sem ætti að vera umgjörð,
jarðvegur, verða alltof stór og
valda kollsteypu niður i hyldýpi
leiðinda langdreginna aukaat-
riða og á ég hér við hlandteppu-
ofmengaðan heimilisbraginn,
sem á ugglaust aö vera forsenda
fyrir hegðun stúlkunnar...”
„Húskveöja. Skop, sem ég
kann ekki að meta, á líku plani
og Eins og þér sáið.”
„Sókrates. Spennulitil sam-
ræða, ekki nærri nógu brjáluð til
að hef ja sig upp af hallærisplani
Húskveðjunnar og Eins og þér
sáið.”
Þorvarður gefur öðrum þátt-
um leikritanna eins og Sól-
borgu, Jóni gamla, Lungnaæf-
ingu og Sókratesi góðar
einkunnir, þannig að dómur
hans er vafalaust svo hlutlægur
sem verða má.
I ógöngum
Og þá vitum við um hvað
næsta Reykjavikurbréf fjallar.
Það fjallar um menn sem ekki
kunna að meta skáldskap né
leikrit Matthiasar Johannes-
sens. Það fjallar um það hversu
slikt vanmat getur verið háska-
legt i baráttunni gegn sósial-
imperialismanum. Það fjallar
um Þorvarð Helgason.
Þjóðviljinn tekur ekki nærri
sér sjúklegan skæting Matthias-
ar Johannessens; þvert á móti
ber að lita á hann sem hól um
Þjóðviljann og blaðamenn hans.
En áreiöanlega eru þeir menn
til sem taka nærri sér skrif
Matthiasar Johannessens; það
eru flokksfélagar hans og sam-
starfsmenn. Vonandi reyna þeir
aö leiða Matthiasi fyrir sjónir i
hverjar ógöngur hann er kom-
inn sem skáld, sem ritstjóri,
sem maður.
Reykjavikurbréf Morgun-
blaðsins voru i upphafi pólitisk-
Þorvaröur Helgason
ar sunnudagsgreinar. Þar var
fjallað um vandamál liðandi
stundar og margir töldu að i
þessu bréfi mætti lesa pólitiska
stefnu forustumanna Sjálf-
stæðisflokksins á hverjum tima.
Nú er af sú tið. Reykjavikur-
bréf Morgunblaðsins eru aðeins
til vitnis um persónuleg sálræn
vandamál höfundanna; þar
kemur engin pólitik, engin
stjórnmálastefna við sögu. Ekki
er þetta skrifað hér til þess að
harma þá breytingu sem oröið
hefur. Þvert á móti eru Reykja-
vikurbréfin stundum blátt
áfram stórskemmtileg og fynd-
in. En bréfið á sunnudaginn var
hvorki fyndið né skemmtilegt.
Það var dapurlegt; ömurleg
heimild um það hversu langt
menn geta gengið þegar þeir
eru slitnir úr tengslum við allt
og alla, þegar sjálfsdýrkunin
er komin á háskalegt stig.
„Osmekkleg
rangfœrsla99
Þessi sjálfsdýrkun er nú kom-
in á það stig að Matthias Jo-
hannessen hefur gerst eigin
pislarvottur með þvi að hann
hefur talið sjálfum sér trú um
að þær stofnanir sem flytja leik-
húsverk á Islandi vilji ekki
flytja eftir hann leikrit. Þetta
kallar Þorvarður Helgason i
áðurnefndri ritsmið „ósmekk-
lega rangfærslu”. Þorvarður
segir orðrétt um eftirmála leik-
ritabókar Matthiasar:
„I þessari ritsmið er meira en
tæpt á þvi að höf. hafi orðið
mjög illa úti i viðskiptum sinum
við þá aðila, sem flytja leikverk
á Islandi. Miðað við aðstæður er
þaö ósmekkleg rangfærsla.”
— s.
. ÖG SKORIÐ