Þjóðviljinn - 04.11.1975, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 04.11.1975, Qupperneq 7
Þriðjudagur 4. nóvember .1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Persónuleynd og tölvutækni • • ••• • • • ••• • •••• • •••• •• •••• •• ••••••• •• • ••• ••••• • ••• •• • •• • • ••• •• • • ••• •• ••• •• •• •• •• •• •• ••••• •• ••• • ••• • • •• ••• • ••• ••• »••••• • •• • • • •• • • ••• ••• * • • •• • •••• 1 Prófessorar í Reykjavík og prófessorar í París V' -■ - Um jónsmessuleytið 1974 söfnuðust fulltrúar frá löndum Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku, svo og frá Japan, Ástralíu og Nýja-Sjálandi, saman á ráðstefnu í París til að ræða einn mesta vanda iðnvæddra þjóða: persónu- leynd gagnvart tölvu- vinnslu upplýsinga. Einmitt þá sömu daga stef ndu ,,aðstandendur vl" á íslandi fjölda manns fyrir rétt og ákærðu þá fyrir að hafa greint hlut- lægum orðum frá tölvu- vinnslu þeirra félaga á einkaskoðunum fólks. í París ræða menn hvernig fundin verður lagavernd er girði fyrir vl-tölvuvinnslu, í Reykjavík biðja menn um lagavernd gegn upp- Ijóstrun á vl-tölvuvinnslu! í hópi ráðstefnugesta í Paris dagana 24.-26. júni 1974 voru fjöl- margir lagaprófessorar, starfs- bræður þeirra Þórs Heimis Vilhjálmssonar og Jónatans Þór- mundssonar forystumanna meðal aðstandenda „Varins lands”. En ólikt höfðust þeir að prófessor- arnir. I Paris hneyksluðust þeir á dæmum um tölvuvinnslu á einka- skoðunum fólks og fordæmdu þau hörðum orðum. En prófess- orarnir i Reykjavik höföu aðra afstöðu til hlutverks lögfræðinnar og sjálfra sin sem fræðimanna. Ekki reynsu þeir afl anda sins með rökræðum við erlenda starfsbfæður sina. Nei, athöfn er orðum framar. Fyrst tölvutóku þeir upplýsingar sem Parisarráð- stefnan er einhuga um að alls ekki megi tölvuvinna. Slðan beita þeir lagaþekkingu sinni til að reyna að kveða niður umræður um hina hneykslanlegu athöfn. Var einhver að tala um siðgæði og fræðimannsheiður? ísland átti enga fulltrúa Umrædd ráðstefna I Paris var haldin á vegum OECD, samtaka 2.4ra rikja um samvinnu og þróun I efnahagsmálum. lslendingar áttu engan fulltrúa á ráðstefn- unni, — sem betur fer fyrir æru- kæra vl-prófessora. En hér er viðhorfum skipt og hinir sem er umhugað um að islendingar læri að skipuleggja þjóðfélag sitt i samræmi við tækniþróun hljóta að andvarpa og segja: þvimiður: Þvi miður hefur sú hugmynd að hér á Islandi þurfi einnig að gera varúðarráðstafanir til verndar persónuréttindum einstaklinga gegn möguleikum tölvunnar ekki enn náð áheyrn hjá þeim er stýra tækni- eða löggjafarmálefnum. Má reynar segja að andvara- leysið hafi verið afsakanlegt áður en vl-málið kom upp. En eftir að upp kemur hrikalegra dæmi um misnotkun tölvuvinnslu en menn þekkja til i nálægum löndum, má ekki sýna þessum málum tómlæti lengur. Og hverjum væri tómlæt- ið í hag? Vl-prófessorum tvi- mælalaust (að þvi tilskildu að þeir hafi endanlega gefið fræði- mannsheiður sinn upp á bátinn), og svo hinum tæknifróðu f hópi „aðstandandanna” (eðlis-, verk- og stjarnfróðir menn hafa grund- völl tölvutækninnar vitanlega á valdi sinu). Getur verið að þessir menn njóti sambanda sinna á sviði löggjafar og tækni? Tölum ögn skýrar: Eru þeir Jónatanog Þór Heimirorðnir að gangasetumönnum (lobbyistum) niðri i dómsmálaráðuneyti eða alþingi, kippandi i ermar fram- hjásvifandi stórmenna, biðjandi þá i öllum bænum að undirbúa nú enga löggjöf um persónuvernd? Getur verið að Ragnar Ingi- marsson sé sfnauðandi i forystu- Jónatan Þórmundsson prófessor. Þór Heimir prófessor. Vilhjálmsson Sagt frá tölvutækniráðstefnu á vegum OECD sem haldin var í þann mund sem vl-ákærurnar dundu yfir hér heima mönnum tölvutækninnar hér á landi að setja nú allar áminningar erlendra fagtimarita um upplýsingaleynd til hliðar, horfa fram hjá þessari þunga- miðju i þróun persónuskráa og tengingar þeirra? Spyr sá sem ekki veit. Sjónarmið vinnuhópsins hjá OECD Vinnuhópur um hagnýtingu tölvutækni á Samræmingarskrif- stofu visinda, tækni og iðnaðar hjá OECD telur að samfélagsl. eftirlit með upplýsingatækni sé höfuðnauðsyn. Eðlilegt sé að stjórnarskrá, lög og reglugerðir tryggi að ekki sé gengið á rétt einstaklingsins með snuðri um athafnir hans, sambönd og hugsanir, en i þssum efnum opnar tölvutæknin óhugnanlega mögu- leika á skerðingu. Hver maður á rétt tii þess að vera látinn i friði, en það leysir engan veginn vandann vegna flókinna þjóðfélagslegra tengsla sem tölvutækninni verður ekki skotaskuld úr að varpa ljósi á. (Dæmi: 1 einhverjum tilteknum hópi hafa 50% ákveðið einkenni en hinir ekki. Þá nægir að til- greina aðeins þá sem einkennið hafa, — upplýsingarnar eiga þá einnig við hina samkvæmt úti- lokunaraðferð. Væntanl. var það á þessum grundvelli sem vl-ingar og vinir þeirra töldu skrána um undirskrifendur „Varins lands” svo verðmæta að þeir stungu tveim tölvuspólum undan að lokinni vinnslu á upplýsinga- stofninum). Þess vegna verður — segir vinnuhópur OECD — að leggja áherslu á eftirlit með hvaða upplýsingar eru teknar og hvernig ráðstafað. Þetta viðhorf felst i skilgreiningu þeirra skil- yrða sem sett eru fyrir innihaldi upplýsinga sem tölvusettar eru um einstaklinga (þe. stjórnmála- skoðanir og persónulega afstöðu i skyldum málefnum mætti ekki tölvusetja!) og einnig felst þetta i skilgreiningu á dreifingu tölvu- settra upplýsinga (td. mætti ekki veita öðrum en opinberum aðilum vissar upplýsingar sem eru nær- göngular við einkahagi fólks). Fjórar leiðir samtímis Aðalniðurstöðir Parisar- ráðstefnu OECD um tölvuvinnslu og persónuleynd voru þessar: Nauðsynlegt er að móta fasta stefnu hvað varðar þjóðfélagslegt eftirlit með upplysingatækni, i þvi skyni að einkahagir einstaklings séu i engu skertir frá þvi sem áður hefur verið. 1 þessu sam- bandi koma fjórar leiðir einkum til álita: 1. Eins konar sjálfvirkt eftirlit þannig að fólk hafi sjálft aðgang að upplýsingum sem safnað er um það og geti haft áhrif á varðveislu þeirra og hagnýtingu. 2. Skrárhaldarar sjálfir komi i veg fyrir misnotkun með þvi að setja strangar siðgæðisreglur og byggi þær að einhverju leyti inn i tæknibúnaðinn. 3. Komið sé upp á vegum stjórn- valda eftirlitsstofnunum með rekstri tölvuunninna persónu- skráa. 4. Sett séu lög um tölvurekstur og persónuskrár, og varði brot viðurlögum að mati dómstóla. Ráðstefnan leit svo á að engin þessara leiða dugi ein, heldur þurfi samhæfðar aðgerðir. Virtist sem fjórða atriðið, löggjöf, væri forsenda hinna þriggja. Og þegar komið er að iöggjöf sem felur i sér það laga-tækniiega atriði að þróa lagaregiur til sam- ræmis við breytingar á innbvrðis tengslum þegnanna og þeirra tækja sem þeir hafa til skrán- ingar á þeim tengslum, þá er einnig komið að hlutverki sér- fræðinga ilögum, semsé lagapró- lessora. Og þá riður á aö vl-pró- fessorar einoki ekki ráðgjöf við löggjafarstarf. hj— Halldór Ólafsson látinn Síðastliðinn sunnudag andaðist á sjúkrahúsi í Reykjavík Halldór Ólafs- son, ísafirði. Halldór var 73 ára gam- ail er hann lést. Hann var fæddur á Kaldrananesi I Strandasýslu, ólst upp á Gjögri i sömu sýslu, en fluttist ungur maður tii isaf jarðar. Halldór Ólafsson var i marga áratugi og allt til dauðadags i for- ystusveit sósialista á tsafirði, lengi bæjarfulltrúi og ritstjóri að blöðum sósialista þar, fyrst Bald- urs og siðar Vestfirðings. Rit- stjóri Vestfirðings var Halldór til dauðadags og einnig formaður kjördæmisráðs Alþýðubanda- lagsmannaá Vestfjörðum, en þvi trúnaðarstarfi hafði hann gegnt um allmörg undanfarin ár. Hann var einnig umboðsmaður Þjóð- viljans á ísafirði. Fram yfir fimmtugsaldur stundaði Halldór ólafsson verka- mannavinnu á Isafirði og viðar, en siðari árin var hann bókavörð- ur við Bókasafn ísafjarðar, uns hann lét af þvi starfi fyrir aldurs- sakir fyrir fáum árum. Þjóðviljinn mun siðar minnast þessa ágæta félaga og þrautseiga baráttumanns, og vottar blaðið ættingjum Halldórs innilega sam- úð nú við fráfall hans. Halldór ólafsson LJOSKASTARAR í miklu úrvali Lágt verö — Góö vara //“V . i\ ',-r* Hverfisgötu 64 Sími22800

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.