Þjóðviljinn - 04.11.1975, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. nóvember 1975
Tveggja marka
Haukasigur
aldrei í hættu
Hafnfiröingarnir voru áberandi betri allan leikinn
gegn frömmurum og sigruðu 20:18
Haukarnir úr Hafnarfirði standa fyllilega undir því
orði sem þeir hafa öllum á óvart skapað sér í byrjun
þessa Islandsmóts handknattleiksins. Liðið leikur af
jafnri en mikilli getu í hverjum leik, siglir af öryggi til
sigurs og uppsker oftast eins og til er ætlast. Núna um
helgina voru það Framarar sem urðu að lúta í lægra
haldi fyrir hafnfirðingunum í skemmtilegum leik, þar
sem hraði var mikill og góður handbolti sást á köflum.
Engum dylst, að Gunnar Einarsson, hefur jafn-
vel öðrum f remur lagt grunninn að velgengninni í haust.
Hann hefur verið í miklu stuði, varið stórkostlega í
hverj um leiknum á fætur öðrum og aldrei brugðist þegar
á hefur reynt. Því kom það nokkuð á óvart að í siðari
hálfleik þessa spennandi leiks tefldu Haukar fram
nýjum markverði, sem lítið sem ekkert hefur sést til
þessa. Þar var á ferðinni Ólaf ur nokkur Torfason, kor'ri-
ungur strákur sem stóð vel fyrir sinu allan síðari hálT-
leikinn. Hygg ég að þetta sé raunar nokkuð dæmigert
fyrir lið Hauka um þessar mundir, öllum er treyst fyrir
sínu, og ungir strákar og litt reyndir fá að spreyta sig
eins og hinir.
Hafnfirðingarnir tóku 1—0
forystu með marki Þorgeirs
Haraldssonar á 4. min, en með
tveimur vitaköstum kom Arnar
Guðlaugsson frömurum yfir 2—1.
Var það i eina skiptið sem þeir
höfðu forystuna, staðan breyttist i
6-2 á skömmum tima, og þessi
fimm mörk hafnfirðinga i röð
gerðu i rauninni út um leikinn. 1
leikhléi var staðan 9-7 fyrir
Hauka eftir fjögur mörk Eliasar
Jónssonar i röð áður en flautað
var til leikhlés.
1 siðari hálfleik var það Hörður
Sigmarsson sem tók að sér
Eftir hnifjafnan fyrri hálfieik,
staöan 8:8, hrundi Vals-liðið i siö-
ari hálfleik gegn FH og bikar-
meistararnir unnu störsigur 21:16
i leik þessara aðila sem fram fór i
Laugardalshöllinni sl. laugardag.
Leikurinn var upp á lif og dauða
fyrir FH; hefði liðið tapað hefði
það misstaf lestinni i toppbaráttu
1. deildar. Og ieikur iiðsins ein-
kenndist af þessari vissu. Leik-
menn FH léku af miklum krafti
og grimmd, og Valsmenn áttu
ekkert svar við þessu og hrein-
lega brotnuðu niður þegar mest á
reyndi. Svo lélegan leik hefur
Vals-liöið ekki átt tii þessa i
haust. Ofan á allt saman bættist,
að Ólafur Benediktsson, sem
varði markið af snilld i fyrri hálf-
leik meiddist á fæti og kom ekki
inná I þeim siðari,og Jón Breiö-
fjörð átti slæman dag, varði
aðeins eitt skot aiian hálfieikinn.
Eins og áður segir var fyrri
hálfleikur jafn. Staðan i leikhléi
8:8eftir að liðin höfðu skipst á um
að hafa forystuna.
markaskorunina til að byrja með,
enda Elias kominn i stranga
gæslu. Hörður sallaði inn hvorki
meira né minna en fimm mörkum
áður en félagar hans komust á
blað eftir hlé, og var það þá Elias
sem þar var að verki. Þá var
staðan orðin 15-11 og siðari hálf-
leikur u.þ.b. hálfnaður. Ljóst var
hvar stigin úr þessari viðureign
myndu lenda, framarar gátu
aldrei jafnað metin á móti svo
jafnri og góðri vörn sem
Haukarnir áttu. Það fór enda svo
að lokatölur urðu 20-18 sigur
heimamanna, en leikurinn fór
En strax i byrjun siðari hálf-
leiks tók FH af skarið, komst i
10:8, og eftir það náði Valur
aldrei að jafna metin, þótt nokkr-
um sinnum munaði ekki nema
einu marki. Undir lokin var ekki
heil brú i neinu sem Vals-liðið
gerði.og FH breikkaði bilið jafnt
og þétt uns staðan var 21:16 þegar
flautan gall til merkis um leiks-
lok.
Þeir Viðar, Geir, Guðmundur
Sveinsson og Þórarinn voru menn
dagsins hjá FH, auk þess sem
Birgir Finnbogason varði mjög
vel þegar mest á reyndi. Hjá Val
var það helst Stefán Gunnarsson
sem lék við getu, svo og Gunn-
steinn Skúlason; aðrir voru langt
frá sinu besta.
Mörk FH: Geir 5, Guðmundur
Sveinsson 5, Viðar 4, Sæmundur 3,
Þórarinn 2, örn og Gils 1 mark
hvor.
Mörk Vals: Jón K. 7 (2) Jón P.
4, Guðjón 2, Stefán, Gunnsteinn
og Steindór 1 mark hver. —S.dór
fram i Hafnarfirði.
En þótt Haukar hafi komið
skemmtilega frá þessum leik sem
öðrum er þvi ekki að neita að
margt gott má einnig segja um lið
Fram. Þar var á stundum góður
hreyfanleiki hjá mönnum, þótt oft
gengi miður að fá sóknirnar til
þess að ganga upp. Að visu fannst
manni einhvern veginn, að sigur
Hauka væri aldrei i hættu, en á
það ber þó að lita, að heldur
högnuðust Haukar á dómurunum
á köflum. Kjartan Gislason kom
vel frá þessum leik fyrir hönd
framara, skoraði drjúgt af
mörkum og var frár á fæti.
Elias Jónsson var yfirburða-
maðurinn hjá Haukum að þessu
sinni. Hann skoraði fimm mörk,
þar af fjögur þau siðustu i fyrri
hálfleik og siðan eitt í þeim siðari,
en þá var hann i gæslu. Hörð-
ur Sigmarsson var að venju
traustur, skoraði úr öllum fimm
vitaköstum sinum og þrjú önnur
að auki.
Mörk Hauka skoruðu: Hörður
Sigmarsson 8. Elias Jónsson 5,
Sigurgeir Marteinsson 2,
Ingimar Haraldsson 2, Jón
Hauksson 2 og Þorgeir
Haraldsson 1.
Hjá Fram skoruðu þessir:
Kjartan Gislason 6, Arnar
Guðlaugsson 4 (öll viti), Pálmi
Pálmason 3 (1 viti), Hannes
Leifsson 2, Gústaf Björnsson 1,
Pétur Jóhannsson 1 og Arni
Sverrisson 1.
Dómarar voru þeir Geir
Thorsteinsson og Georg Arnason.
Mun þetta hafa verið þeirra
frumraun i 1. deild, og sluppu þeir
þokkalega frá sinu, þótt mörgum
fyndist e.t.v. að heldur hafi hafn-
firðingar hagnast á dómum
þeirra á köflum. Þrir fengu
tveggja minútna hvild, þeir
Ingimar og Arnór Guðmundsson
hjá Haukum og Gústaf Björnsson
hjá Fram. —gsp
Tony
Knapp
boðin
landsliðs-
þjálfara-
staðan
Eitt ensku blaðanna hefur
það eftir Tony Knapp, að
Knattspyrnusamband tslands
hefði boðið sér að koma til
islands næsta sumar og taka
við iandsliðsþjálfun eingöngu
og ætti hann að sjá um þjáifun
ungiingalandsiiðsins auk A-
landsliðsins. Auk þess segist
Knapp vera með tilboð frá
Þrándheimi I Noregi um
þjálfarastöðu næsta sumar.
Hann segir ekkert um það
hvort hann ætli að þiggja
landsliðsþjálfarastöðuna á
islandi; segist ætla að skoða
bæði þessi tilboð gaumgæfi-
lega. —S.dór
Valsmenn
ánúlli og
FH vann
< iM
Haraldur Korneliusson i viðureigninni viö Poul Michelsen, þar
sem hann sigraði 15:6 og 15:9 (Ljósm. S.dór)
Landskeppnin í badminton:
Færeyingarnir
lakari en búist
hafði verið við
og íslendingar unnu alla leikina
islendingar sigruöu
færeyinga 5:0 í lands-
keppninni í badminton
sem fram fór sl. föstu-
dag. Það verður að segj-
ast eins og er að færey-
ingarnir voru lakari en
menn bjuggust við
fyrirfram, og enginn
þeirra megnaði að veita
islensku keppendunum
nokkra verulega keppni.
Sá eini þeirra sem hafði
kunnáttu til þess, Poul
Michelsen, skorti út-
hald, en hann er býsna
slyngur badmintonleik-
maður.
I einliðaleik sigraði öskar
Guðmundsson hinn unga og
efnilega leikmann Petur
Hansen 15:11 og 15:6. Petur
skortir aðeins meiri reynslu til
þess að vera snjall badmin-
tonleikmaður. Friðleifur
Stefánsson sigraði Hans J.
Steenberg 15:5 og 15:4 og Har-
aldur Korneliusson sigraði
Poul Michelsen 15:6 og 15:9.
t tviliöaleik sigruðu Sigfús
Ægir og Otto Guðjónsson þá
Egil Lyngsöe og Svend Stens-
borg 15:9 og 15:11 og þeir Har-
aldur og Steinar Petersen
sigruðu Poul Michelsen og
Petur Hansen 15:12 og 15:5.
Það sem mest háði færey-
ingunum var hversu úthalds-
litlir þeir voru, og eins skortir
nokkuð á tækni hjá sumum
þeirra.
Keppnin var eigi að siöur
nokkuð skemmtileg á að horfa
fyrir islendinga sem þarna
unnu sinn fyrsta landsleik i
badminton, en auk þess er það
nú einu sinni svo, að hingað til
lands koma ekkj meiri aufúsu-
gestir en færeyingar hvort
sem er á iþrótta- eða öðrum
sviðum. —S.dór