Þjóðviljinn - 23.11.1975, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 23.11.1975, Qupperneq 9
Sunnudagur 23. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 ’MW 'h ''mMi$ Obrazlslol', sein nú er á átlræóisald. i. meft eina af hinum frægu l.rúftum S IIIII 111 . Iiin IræLía klukka utan a n\ rri livggingu bruöuleikhússins i Muskvu. \ti*ioi ur ..ovunjulugir tonluikar” soin lielur veriö svnt i þjóölöndum. Sergei Obraztsof er ein- hver helsti brúðumeistari heims og forstjóri Brúðu- leikhússins í Moskvu. Hér fer á eftir viðtal frétta- manns APN við þennan heimskunna listamann. — Við höfum um þessar mundir 15 leikrit fyrir börn á dagskrá og átta fyrir fullorðna. Mér fannst vænt um allar þessar sýningar þegar unnið var að þeim, en siðar sér maður yfir- sjónir hér og þar. Við breytum þá sumu, en kannski horfum við gegnum fingur við annað; ef að sýningin er tiltölulega góð og áhorfendur hrifnir þá er létt að flytja hana. Mér þykir af barna- leikritum vænst um ,,Eins og geddan sagði” er við höfum sýnt i 35 ár, og ætium ekki að hætta við, enda er þetta skemmtilegt verk og gagnort. Af fullorðins- verkum þykir mér mest gaman að „Ovenjulegir tónleikar”. Við höfum ekki frið fyrir óskum um að koma með þessa sýningu — enda höfum við farið með hana um allt land og til 25 landa. Mér þykir lika vænt um ,,Hinn guðdómíega gleðileik”. Það er ekki Dante sem þar er á ferð heldur Isidor Stok, sem bjó til sjálfstætt leikrit um sex daga sköpunarverksins og studdist við stórspaugilegar hugmyndir franska teiknarans Jean Eiffels. Ég kann lika vel við nýja sýningu sem heitir „Brúðuleikhúsið sýn- ir”. Þar erum við að skopstæla klisjur sem menn nota i sjón- varpi. Klisjur i listum eru stund- um eins og hettusótt, stundum eins og kýli. Það þarf að stinga á þeim. - Er nokkur munur á leikara i brúðuleikhúsi og venjulegum leikara? — Mér finnst ab það sé frekar eiginleiki en starf að vera leikari, sama hvar menn leika. Spurt er hvort eiginleikinn verður að at- vinnumennsku eða ekki. — Um leikhúsykkarersagt, að það búi sjálft til leikrit en ekki öfugt. — Það er alveg rétt, þetta á að minnsta kosti við um okkur. — Þið eruð að stækka við ykk- ur, sé ég? — Við höfum samið við borgar- ráð um að fá til umræaða þriggja hæða hús litillar verksmiðju hin- um megin við húsagarðinn. Nú hefur verksmiðjan verið flutt og við erum að koma upp sumar- garði, sem við vonum að verði bæði skrýtinn og skemmtilegur. Rétt væri að setja þar upp mynd barnabókahöfundarins ágæta Korneis Tsjúkovskis og svo af persónum hans. í verksmiðjuhús- inu ætlum við að hafa bókasafn okkar og tilraunasvið. Við erum reyndar með elstu brúðuleikhúsum i landinu og hið stærsta i heimi. Hjá okkur vinna 350 manns. Við höfum starfað i 45 ár. Við eigum prýðilegt brúðu- safn, sem við höfum safnað i frá öllum mögulegum löndum. Við eigum til dæmis frábært safn af kinverskum brúðum. Svo erum við að nokkru leyti fræðileg miðstöð fyrir brúðuleikhús. Við fáum allskonar fyrirspúrnir frá sovésk- um borgum og erlendis frá, þar sem við erum spurðir ráða um það, hvernig eigi aö fara að þessu eða hinu. Við fáum heimsóknir jafnt leikhússtjóra sem áhuga- leikflokka barna. Máski tekst okkur að koma á fót útgáfu á kennslugögnum og árbók yfir tiðindi úr brúðuheiminum. — Nú eruð þér einnig frægur sem kvikmyndastjóri. Hvernig vildi það til að þér fóruð að fást við kvikmyndir? — 6g byrjaði á þvi af tilviljun. rétt eins og ég bvrjaði aö fást við leikbrúður. Tilviljanir skipta rniklu máli i lifi hvers manns. Til dæmis býst ég ekki við að neinn lesenda gifti sig eftir áætlun. Sama má segja um skapandi starf. Það getur verið að Newton hefði ekki uppgötvað þyngdarlögmálið, ef hann hefði ekki séð eplið detta. En hann var þegar viðbúinn þvi að eplið dytti. Ég hefi liklega verið viðbúinn þvi að byrja á kvik- myndum. Þetta æxlaðist svo til, að ég hafði skrifað bók um séð og heyrt i London en þangað hef ég nokkrum sinnum farið. Þegar svo kvikmyndatökumenn sovéskir voru þar eitt sinn á ferð. þá studd- ust þeir mikið við þessa bók. Ég var svo beðinn að skrifa texta við mynd þeirra, en ég bauðst þá til þess að setja heldur saman mynd úr þvi efni sem þeir höfðu tekið. Og um leið og ég setti hana saman gerði ég minar athuga- semdir ,,af fingrum fram” og úr þvi varð texti myndarinnar. Ég hal'ði firnalega ánægju af þessu. Ég gerði lika handrit að mynd- inni ,, Það furðulega er skammt undan”. Ég held að viðfangsefni þessarar myndar sé bæði þýðingarmikið og nauðsynlegt. Maður verður að kunna að undrast. Gáfa er það að kunna að undrast — og þá ekki yfir þvi sem furðulegt er. Hvaða belja sem er getur undrast þegar tunglmyrkvi skellur á. En þegar einhver kann að undrast yfir þvi, hvernig fluga þvær sér, þá er hinn sami hæfi- leikamaður. Um þetta efni var önnur mynd min. Ég gerði mynd- ina ..Ósennilegur sannleikur” um allegóriska list. Og siðan ..Kvik- myndavélin ákærir". Ég hefi heimsótt mörg lönd. einnig mjög snauð lönd. Ég hefi lesið. að um miljarður manna svelti. Þannig getum við ekki lifað. Ég setti þessa mynd saman úr heimildar mvndum frá mörgum löndum - til þess eins að sýna hve skelfilegt lif miljóna manna ennþá er. Og óréttlátt. En myndin ..Hver vill þennan Vaska?" er um það. að það þarf að ala upp góðvild frá blautu barnsbeini. ala hana upp með ást til alls þess heims sem umlykur barnið. til náttúru. til dýra... Til alls sem lifir... (Stytt i þvðingu) OG BRÚÐU- HEIMUR HANS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.