Þjóðviljinn - 23.11.1975, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 23.11.1975, Qupperneq 17
Sunnudagur 23. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17 Kviölingur til Vöku 64-36 í bláu túni þjóðsögunnar nagar sigðin viðhorfin i rót. Hamarinn syngur um sólina vatnið vindinn Mjallhvít kastar krúnunni og snýr aftur í skóginn ilmandi án tillits til reynslu Solzhenitsyns, auglýsingar Laxness eftir þjóðfélagi sem tapaðist á leiðinni úr túninu heima að járningaskúr undir jökli. EYVINDUR: Gættu aö I Morgunblaðið er eitur! Rétt er að hafa eftirfarandi meginatriði í huga: 1. í morgunblaðinu er mjög áhrif amikið eitur, sem heitir fasismi. Við lestur fer hann um sjóntaugarnar til heil- ans og berst þar út til allra heilastöðva. Sá, sem les morgunblaðið að staðaldri, hef ur eitrið stöðugt í hugs- anakerfi sínu. 2. Þegar áróður morgunblaðsins er meðtekinn myndast efni, sem getur valdið ofstæki. Stórhættuleg fáfræði og magnað pólitískt ofstæki er ellefu sinnum algeng- ara meðal morgunblaðslesenda en þeirra, sem ekki lesa morgunblaðið. Útbreiðsla morgunblaðsins hefur stöðugt farið í vöxt á undanförnum áratugum, og póli- tísk heimska og ofstæki fer stöðugt í vöxt. Þröngsýni, tiliitsleysi og fyrirlitning á lýðræði er líka algengara meðal lesenda morgunblaðsins en annarra. 3. Morgunblaðslestur leiðir smám saman til skilnings- skorts, ósanngirni, skertrar tilfinninganæmi, lélegs smekks, lágkúru, dindilmennsku og skriðdýrsháttar. Miklu f leiri morgunblaðslesendur verða að bráð styrj- aldardýrkun, kynþáttahatri og föðurlandssvikum en menn sem ekki lesa morgunblaðið. 4. Morgunblaðslestur er hættulegastur börnum og ung- lingum. Ýmislegt þykir benda til þess, að börn og ung- lingar, sem lesa morgunblaðið, þroskist seinna bæði andlega og siðferðilega. 5. Morgunblaðslestur er mikill sóðaskapur. Allur þessi pappír mengar, og lesturinn sjálfur spillir gjörvöllu þjóðlíf inu og andíegri líðan bæði lesendanna sjálf ra og annarra. Skemmtiferö á vígvöllinn Eftir Birgi Svan Umboðsmenn sólarinnar eru með fullbókað i næstu hópferðir þeir vita sem er að fólk lokar eyrunum fyrir þvi sem það vill ekki sjá Umboðsmenn sólarinnar eru með fullbókað í næstu hópferðir þeir vita sem er að dauðadæmd angistaróp munu ekki heyrast á baðströndunum að skothvellir munu ekki halda vöku fyrir hótelgestunum. (Birgir Svan) Anton Helgi Jónsson: Einn borgaralegur sameiningarsálmur (Fyrir bandvanan meirihluta) Allir út að ýta allir út að ýta stétt með stétt Allir út að ýta nema Geiri hann stýrir Allir út að ýta nema Ragga hún er pilsklædd Allir út að ýta nema Berti hann á pening Allir út að ýta nama Páll hann ýtti síðast Pétur út að ýta Pétur út að ýta stétt með stétt. (Anton Helgi Jónsson) Nýtt hús- dýr — blending- ur af kú og vísundi VOLOGDA (APN) Kvikfjár- ræktarsérfræðingar i Vologda i norðanverðu Rússneska sam- bandslýðveldinu, sem er miðstöð stórs héraðs sem er þekkt fyrir mjólkurkúakyn sitt, vinna nú að athy glisverðum tilraunum. Reyna þeir að rækta kynblend- inga undan venjulegri kú og vis- undi, sem eiga að erfa bestu eiginleika þeirra beggja: Mjólkurhæfni kúakynsins og hóp- hyggju, og hörku, þolni, skjótan og mikinn vöxt hins vilta visund- ar. Þegar hefur fengist nokkur reynsla af þessum fyrstu tilraun- um. Kynblendingurinn Fevronia er t.d. i senn bæði lik og ólik venjulegri kú. Hún er stærri, með blásvartog dúnmjúkt þel. Herða- kryppan sést varla, fæturnir eru hvitir og hún hefur bein, hvöss horn. En tilrauninni er ekki lokið. Fevronia, sem er fyrsti kynblend- ingurinn, og fleiri sem á eftir komu, eiga að bera i haust, og menn vona að það takist að rækta heilan hóp. Árangurinn til þessa gefur góðar vonir. Sem dæmi má nefna, að kynblendingar, sem ekki eru teknir frá móður sinni tiu fyrstu dagana, þroskast betur en aðrir kálfar, og siðar dafna þeir betur á venjulegu gróffóðri heldur en dýr sem hafa mun betra fóður. Kynblendiskálfarnir virðast ekki næmir fyrir kulda. Nálega strax eftir fæðingu geta þeir drukkið isvatn, en það myndi drepa venjulega kálfa. Enn er of snemmt að segja að nokkuð um mjólkurhæfni kyn- blendinganna. Það hefur nefni- lega enginn þeirra enn mjólkað, en af nokkrum mjólkurdropum, sem fengist hafa. má ráða, að fituinnihald mjólkurinnar sé um 6 prósent. En að loknum burðinum i haust verður hægt að segja til um það, hve gott mjólkurkyn þetta verður. Ný bók eftir Ólaf Tryggvason Á jörðu hér nefnist bók eftir Ólal' Tryggvason, sem komin er út hjá Skuggsjá. Þetta er sjöunda og siðasta bók ólafs Tryggvason- ar. Hann lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 27. febrúar 1975. Kristján Frá Djúpalæk minnist vinar sins i formála bókarinnar. Ólafur fjallar eins og i fyrri bókum sinum um dulræna reynslu sina og huglækningar. auk þess sem hann reifar lifs- skoðanir sinarog minnist atburða á lifsleiðinni. Bókin er 216 siður. prentuð hjá Skuggsjá og bundin af Bókbindaranum. AFERLENDUM |BÓKAMARKADÍ Prospero's Cell A guide to the landscape and manners of the island of Corcyra. Lawrence Durrell. New Edition. Faber and Faber 1975. Corcyra er Corfu og Prosperos Cell var fyrsta bók Durrells um eyjar i Miðjarðarhafi, sem nú er hér endurprentuð. Höfundurinn skrifaði þessa bók i Alexandriu eftir fall Grikklands, þá virtist allt vera tapað, þjóðverjar óðu yfir Evrópu og svo virtist sem ekkert gæti stöðvað þá hvað þá að nokkur von væri um að okinu létti i næstu framtið. Durrell tók þá að skrifa um eyna, um veru sina þar og minningar sinar og sögu eyjar- innar samtvinnaðar. Þetta er ein- kennileg bók, full af skáldskap og mettuð andrúmslofti fornra tiða. Orlando Furioso A Roinantic Epic by Ludovico Ariosto. Part One. Translated with an introduction by Barbara Reynolds. Penguin Classics. Pen- guin Books 1975. Ariosto setti saman þetta langa, skemmtilega og fræga kvæði eða bálk um það leyti sem tyrkir ógnuðu Evropu hvað mest. Hér greinir frá ævintýrum Ro- land þ.e. Orlando baráttu hans við serki og karlamagnúsi. Þetta erákaflega langur bálkur, i þessu fyrra bindi er bálkurinn sjálfur rúmar 600 blaðsiður. Þetta er eitt frægasta verk endurreisnarlima- bilsins og var geysivinsælt. Bar- bara Reynolds hefur þýtt þennan fyrri hluta og vinnur að þýðingu siðari hlutans. Eduard Mörike: Sömtliche Gedichte Ubersetzungcn, ilcrausgegehen von Ilerbert G. Göpfert. Nacli- wort von Georg Britting. Deutscher Taschenbuch Yerlag 1975. Mörike hafði aldrei hátt. styrkur hans er hrynjandin og fingerð lyrik og birta ljósaskipt- anna. Þessi látlausa og smekk- lega útgála minnir á Insel útgáf- urnar gömlu, en þar reis þýzk bókagerðarlist hæst á þessari öld. dtv forlagið gefur nú út heildarút- gáfur margra þýskra skálda og eru bestu útgáfurnar valdar til endurútgáfu. Luther. Sein Leben und seine Zeit. Richard Fricdenthal. Deutscher Tasehenbuch Verlag 1974. Höfundurinn hefur skrifað ævi- sögu Goethes. sem hiaut góða dóma. Bók hans um Luther er ekki siðri. Frásögnin lifandi og hröð. þekking höfundar á timabil- inu er af skemmtilegu tagi, hann kryddar frásögnina marg- vislegum samtima anektótum. Teiknimyndir eru i texta. Höfundurinn skrifar hér fyrst og fremst persónusögu. fjöldi manna kemur hér við sögu og ekki sparað að lýsa þeim. ef tækifæri veitist til að segja sögu um leiö.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.