Þjóðviljinn - 23.11.1975, Side 20

Þjóðviljinn - 23.11.1975, Side 20
20 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 23. nóvember 1975. „Ég er heili ykkar” Bandarikin hafa ávallt verið mikil gróðrarstia allrahanda trú- arbragða og afbrigða af þeim, og aldrei fremur en i dag. Meðan Vietnamstriðið stóð sem hæst, upphófst gegn þvi mikil pólitisk og róttæk baráttualda, sem námsmenn báru einkum uppi. Valdatöku Nixons fylgdi hægri- sveifla, sem hafði smám saman i för með sér að mjög dró úr póli- tiskum baráttumóði ungs fólks og róttæks, sem margt var úr efn- aðri og skólaðri stéttunum. í stað- inn gætti i vaxandi mæli uppgjaf- ar- og vonbrigðatilfinningar, sem hefur meðal annars lcitt til þess að þetta unga fólk leitar í striðum straumum hælis hjá allra handa trúar- og dultrúarsamtökum, sem lofa fullkominni frelsun frá vandamálum þessa heims og annars. Þetta er á margan hátt skiljanlegur flótti frá að þvi er mörgum virðist óviðráðanlegum vandamálum samfélags, sem þrúgað er af ihaldssömu stjórn- málakerfi, auðvaldi, kreppu, mengun, glæpum og taugaveikl- un. Einn sá mannkynsfrelsari, sem hvað mest ber á i Bandarikjunum um þessar mundirer kóreumaður að nafni Sun Myung Mooon. Hann telur trúflokk sinn, sem nefnist Unification Church, kristinn, en inn í kenninguna er blandað dul- trú ýmisskonar og tvihyggju. Sjálfur er Moon, sem er hálfsex- tugur að aldri, ekkert að fara i launkofa með þá verðleika, sem hann telur sig hafa. „Ég mun sigra heiminn og leggja hann undir mig,” segir hann. „Ég er heili ykkar.” Og allmargir ungir bandarikjamenn eru þegar farnir að trúa honum fyrir þvi að hugsa fyrir sig. Þeir telja hann Krist endurborinn, enda hefur leiðtog- inn margsinnis látið liggja að þvi, þótt enn sem komið er hafi hann ekki tekið það fram skýrum orð- um opinberlega. Þeir selja sæl- gæti og blóm til að afla fjár fyrir hreyfinguna og neyta sér sjálfir um allt nema brýnustu lifsnauð- synjar. Moon er hinsvegar ekki svo hógvær, þvi að hann býr i tuttugu og fimm herbergja stór- hýsi i Westchester-sýslu i New York-riki. Guölega meginreglan Sagt er að þeir sem trúa á Moon i Bandarikjunum séu nú um 30.000 talsins, og af þeim lifa um 7000 i sérstökum samfélögum trú- flokksins. Allir trúa þeir þvi að Drottinn annarrar komunnar, eins og þeir kalla lausnara sinn, muni frelsa mannkynið frá dauða og djöfli meö þvi að geta af sér fullkomna niðja. Þeir vitna af kappi i bibliu Moons, sem hefur titilinn Guðlega meginreglan (The Divine Principle). En þótt tilbiðjendur Moons séu ánægðir með að hafa hann fyrir heila sinn, eru allir aðrir ekki jafnsannfærðir um ágæti hans. Trúflokkurinn er kominn i þvarg við skattayfirvöldin út af miklum fasteignakaupum og á i basli við að fá kristnar kirkjur landsins til að viðurkenna hann sem grein á sinum meiði. Aðalandstaðan gegn Moon kemur þó til af þvi, að mörgum þykir sem kenning hans hafi miður góð áhrif á ungmenni þau, sem flykkjast undir merki hans. Albert Rosenblatt, opinber lögmaður i Duchess-sýslu i New York-riki, hefur nú til athugunar kvartanir foreldra, sem halda þvi fram að Moon-sinnar hafi heila- þvegið börn þeirra i æfingastöð sinni i Barrytown. Við rannsóknir þessar hefur komið i ljós að furðu margir ungir Moon-sinnar lenda á gjörgæsludeildum sjúkrahús- anna. Foreldrar hræddir Hundruð foreldra hingað og þangað um landið eru dauðskefld út af undarlegri hegðun barna sinna, sem tekið hafa trúna á Moon. Foreldrarnir eru farnir að höfða mál gegn Moonsinnum fyr- irheilaþvott og hafa stofnað sam- tök gegn þeim. Maður að nafni Ted Patrick hefur meira að segja tekið að sér að gagnheilaþvo ung- menni, sem foreldrarnir hafa náð aftur úr klóm hins kóreanska lausnara — að sjálfsögðu gegn greiðslu. Tryggingamaður i New Jersey, James Sheeran að nafni, er einn þeirra sem verst þykist hafa orð- iðúti af völdum Moonsinna. Þrjár dætur hans á aldrinum 21—25 ára hafa tekið Moon-trú, og Sheeran varð alvarlega skelkaður i ágúst siðastliðnum þegar yngsta dóttir- in, Josette, sem áður var einstak- lega góðhjörtuð og viðkvæm stúlka, sýndi enga samúð þegar hún frétti að amma hennar væri á sjúkrahúsi. Shéeran krefst laga til þess að vernda fólk frá þvi að „likamir þeirra, sálir og hugir séu veiddir i grimmúðlegar og framandlegar gildrur.” Hann, kona hans og sonur óku til Moon- skóla þar i nágrenninu i leit að Jo- sette. Fimmtán Moon-sinnar komu til móts við þau við skólann. Úr þvi urðu ryskingar, og sakar hvor aðilinn um sig hinn um að hafa átt upptökin. Uppgefnir sálar- og tilfinningalega Hörðustu andstæðingar Moons eru þeir, sem fallið hafa frá trúnni á hann. Þrir þeirra hafa nýlega stofnað samtök, sem heita þvi ábúðarmikla nafni Alþjóðleg stofnun einstakiingsfrelsis (International Foundation for Individual Freedom). Þessi stofnun ræðst ekki einungis gegn Moonsinnum, heldur og fleiri ný- tilkomnum trúflokkum eins og Guðsbörnum, Trúboði guðlegs ljóss (Divine Light Mission) og Hare Krishna. Einn stofnend- anna, tvitug stúlka að nafni Denise Peskin, var i hálfa ni- undu viku i þjálfun hjá Moon og lenti siðan til Teds Patrick, sem gagnheilaþvoði hana. Hún segir svo frá að hún hafi upphaflega gengið Moon á hönd i þeirri trú að hreyfing hans væri veraldleg og berðist fyrir félagslegum umbót- um. Hún komst ekki að þvi að hún væri komin inn i trúflokk fyrr en hún var send á æfingastöð trú- flokksins, New Ideal City Ranch, Sun Myung Moon talar til tilbiðj- enda sinna. norður af San Fransiskó. Þar var trúarkenning um Moon-sinna troðið i hana, i bókstaflegri merk- ingu þess orðs. Nemarnir máttu þola af hálfu uppfræðaranna óp og öskur og jafnvel likamlegt of- beldi, og fengu nauman tima til svefns. Sérstaklega hart var gengið að þeim, sem vildu hætta við allt saman. John Clark jr„ geðlæknir við Harvard-háskóla, sem rannsakað hefur nokkra fyrrverandi Moon-sinna, segir að þeir séu uppgefnir á sál og tilfinn- ingum. Vöntun á víljastyrk? Moon sjálfur hefur ekki svarað árásunum á trúflokkinn, en einn af þjálfurum hans, Joe Tully, seg- ir hinsvegar að þeir, sem hætta i trúílokknum, þjáist af vöntun á viljastyrk og reyni að réttlæta sig með þvi að fordæma hreyfinguna. Hann viðurkennir að þeir, sem gerast Moon-sinnar, verði að gegnumganga gagngerða breyt- ingu á sjálfum sér, en neitar þvi að notaðar séu i þeim tilgangi nokkrar fúlmennskulegar aðferð- ir. Þeir, sem laðast að Moon- hreyfingunni, eru einkum ungt fólk af efnuðu foreldri. Flest af þessu fólki hafði áður litinn áhuga á trúarbrögðum, og sumir halda þvi fram að það sé að leita að ein- hverjum traustum, andlegum grundvelli, þegar það gengur til liðs við Moon-flokkinn. Ógeð á ‘vaxandi siðferðislegri upplausn virðist valda þvi að sumir leita á vit trúflokks, sem lýtur ströngum siðferðisreglum. Hvað sem þvi liður, telja andstæðingar hreyf- ingarinnar hana „stórhættulega” og halda þvi fram að hún geti haft skelfilegar afleiðingar i för með sér, ef hún heldur áfram að magnast. IGNIS frystikistur BflHÐJflH sími: 19294 RflUDBG sími: 26GB0 Og þegar búið er að pakka flöskunum inn, skuluð þ'ð tvö með þær i búðirnar.... en þaðrr getur orðið mikið þras! Nú vantar bara stóran og sterkan búrðárkarl! ‘ ''ovésen: ijáiý*** 1

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.