Þjóðviljinn - 23.11.1975, Side 22
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. nóvember 1975.
Ballet um ívan grimma
Sovéska tónskáldið Sergei Prkoféf gerði á sinum tíma tónlist við hina þekktu
kvikmynd Eisensteins um ívan grimma. Nú hefur þessi tónlist verið notuð til að
byggja utan um ballett um ívan þennan. Natalja Béssmertnova dansar eitt af
helstu kvenhlutverkunum og sést hún hér í hlutverki sínu í Stóra leikhúsinu í
Moskvu.
Starf fyrri
hluta dags
Verðlagsstjóri óskar að ráða nú þegar
nokkra menn eða konur til verðlagseftir-
lits fyrri hluta dags, i einn tii tvo mánuði.
Æskilegt er, að umsækjendur hafi versl-
unarpróf eða sambærilega þekkingu.
Upplýsingar veitir skrifstofustjóri.
Verðlagsstjórinn,
Borgartúni 7, Reykjavik.
Tilkynning
í framhaldi af tilmælum viðskiptaráðu-
neytisins þann 19. nóvember s.l. um herta
framkvæmd verðstöðvunarlaga, mælir
verðlagsstjóri svo fyrir:
Samanber 9. og 10. grein laga nr. 54 um
verðlagsmál frá 1960, skulu eigendur iðn-
fyrirtækja, þjónustufyrirtækja, smásölu-
og heildverslana hafa i fyrirtækjum sinum
gögn yfir verðlagningu vöru, svo að eftir-
litsmenn Verðlagsstjóra geti fyrirvara-
laust sannreynt réttmæti verðlagningar.
Reykjavik, 20. nóvember 1975.
Verðiagsstjórinn.
OFNAR
Húsbyggjendur, getum nú afgreitt ofna
með mjög stuttum fyrirvara. Sérstaklega
ódýrt efni fyrir verkstæðishús og bilskúra.
Lang lægsta verð.
Ofnar, Ármúla 28, simi 37033.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir október
mánuð 1975, hafi hann ekki verið greiddur
i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft-
ir eindaga uns þau eru orðin 10% en siðan
eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með
16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
20. nóvember 1975.
Hiö íslenska
náttúrufræöifélag
Fyrirlestur i stofu 201 Árnagarði, mánu-
daginn 24. nóvember, kl. 20.30. Ólafur
Karvel Pálsson fiskifræðingur talar um
lifnaðarhætti þorskfiskaungviðis i ísa-
fjarðardjúpi.
Öpera
Framhald a{ .3. sI6u.
þegar allt kemur til alls. A henni
grundvallast öll afkoma þjóðar.
Efnahagslegt sjálfstæði jafngildir
menningarlegu sjálfstæði.
Menning er harpa með mörgum
strengjum. íslendingar hafa
iöngum leikið á aðeins einn streng
bókmenningar. Aðrir strengir
hafa verið litt hrærðir, einnig
strengir tónmenningar. Grunn-
strengur hennar er söngvalöngun
þjóðar meðal allra landsins
barna. Sé grunntónn sá vakinn til
lifs, hljóma með allir aðrir yfir-
tónar, en án grunntóns verða
þöglir allir yfirtónar. Traust tón-
mennt stendur á föstum grunni.
Þegará þessaraðstæður er litið
verður augljóst, að útgjaldafrek
viðbótaryfirbygging án viðhlit-
andi undirstöðu er hreint glap-
ræði. Við það sem að framan er
talið mætti bæta þeirri fásinnu að
efna hér annaðhvert ár til alþjóð-
legrar tónlistarhátiðar, sem kost-
ar skattborgara firnafúlgur i út-
gjöldum. Slik sýndarmennsku-
látalæti eru viðs fjarri allri nauð-
syn fyrir isienskt tónmenntalif og
langt utan við fjárhagslega
möguleika. Sú staðreynd skýrist
best þegar vitað er að ekki fæst
fjárveiting til að byggja hús
handa tónmenntakennara á
Laugarvatni. Afleiðingin er sú að
á þeim stað, þar sem allt skóla-
kerfið er virkt, frá barnaskóla og
upp að háskóla, með alls fimm
skólum, þar er engin tilsögn veitt
i neinu þvi er að söng, músik og
tónmennt lýtur.
begar slik hroðaleg auðn blasir
við sjónum, þá er viturlegra að
stilla i hóf frekari yfirbyggingar-
óskum. Fyrst er að leiða söng og
tónmennt inn i skóla landsins.
Siðan að stunda grundvallarrann-
sóknir á háskólastigi — og þá
fyrst getur risið upp eðlileg yfir-
bygging.
Löggiltur
dómtúlkur
og skjalaþýðandi
4- Enska
+ Rússneska
+ Þýska
Renata
Erlendsson,
Espigerði 2, Rvík.
; Simar 36717 og 28133.
Ragnar
Framhald af bls. 7.
þýðuflokksins ræðir um stjórn-
málaviðhorfin, er honum yfirleitt
efst i huga að koma höggi á
vinstri stjórnina og þá flokka,
sem að henni stóðu. Þvi miður
virðist flest benda til þess, að enn
hafi forystumenn Alþýðuflokks-
ins það takmark helst fyrir aug-
um að endurnýja mátt sinn til að
geta orðið aftur gjaldgengir i
nýrri viðreisnarstjórn. En þar
skilja leiðir með Alþýðuflokknum
og Alþýðubandalaginu.
Hægri sveifla forystumanna
Framsóknarflokksins kom fáum
á óvart, sem til þekktu. Núver-
andi forystumenn telja sig miðju
menn cg ætla sér það hlutverk,
að stjórna til skiptis með hægri
eða vinstri öflum, eftir þvi sem
vindar blása hverju sinni. Hins
vegar er það staðreynd, að veru-
legur hluti flokksmanna og stuðn-
ingsmanna Framsóknarflokksins
er vinstri sinnaður, og meðan
flokkurinn er i hægri stjórn, er
hann i mikilli hættu að missa fylgi
til vinstri. Framsóknarfólk litur
yfirleitt i besta falli á núverandi
stjórn sem illa nauðsyn, vegna
þess að ekki hafi verið þingmeiri-
hluti til myndunar vinstri stjórn-
ar. Það er pólitisk staðreynd, sem
ekki verður sniðgengin, að innan
Framsóknarflokksins er stærri
hópur hugsanlegra bandamanna
Alþýðubandalagsins en i nokkr-
um öðrum flokki.
Okkur alþýðubandalagsmönn-
um er að sjálfsögðu fullljóst, að
baráttan innan sala Alþingis er
aðeins cinn þátturinn af mörgum
i starfi okkar. Viðleitni okkar til
að virkja fjöldann til þátttöku i
baráttu okkar er það meginatriði,
sem allt veltur á. En islenskir
sósialistar hafa alla tið verið
ófeimnir að taka á sig ábyrgð i
borgaralegu þjóðféiagi. Þeir hafa
lýst þvi markmiði sinu að koina á
islenskum sósialisma, þcgar
meiri liluti þjóðarinnar skynjar
timans kall. En jafnframt telja
þeir sér skylt að vera fullgildir
þátttakendur i átökum um
ákvarðanir morgundagsins og
hafa forystu um vinstri stefnu i
þeim málum, sem hæst ber
hvcrj'u sinni. Það cr verkefni
þeirra að skilgreina valkosti
vinstri manna i þjóðfélagi, sem
cnn er borgaralegt og verður það
áfram um nokkurt skeið. Þeir
ieita þvi bandamanna, og sam-
fylkja vinstrimönnum um brýn-
ustu viðfangsefni sin.
<Cr setningarræðu Kagnars Arn-
alds á flokksráðsfundi Alþýðu-
bandal. 14. nóv. 1975)
SKIPA U Tfi £ R 9 RIKISINS
m/s Hekla
fer frá Reykjavik laugardaginn
29. þ.m. vestur um land i hring-
ferð. Vörumóttaka: briðjudaga,
miðvikudag og fimmtudag til
vestfjarðahafna, Norðurfjarð-
ar, Siglufjarðar, ólafsfjarðar,
Akureyrar, Húsavikur, Raufar-
hafnar, bórshafnar, Bakka-
fjarðar, Vopnafjarðar og Borg-
arfjarðar eystra.
Eruð þér ábyrgur húsráðandi, hafið þér varið heimili yðar
með reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnarteppi — ef
ekki hafið samband við
Eiö Pálmason h/f
Vesturgötu 3
simi 22235.
Við leysum allra vanda i öryggistækjum.
..... .........................
Björn E. Jónsson
verkstjóri, Bogahlíð 15
sem lést 13. þ.m., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
mánudaginn 24. nóvember kl. 13.30.
Vilborg ivarsdóttir,
Leifur Björnsson,
Sigrún Björnsdóttir
Hreinn Björnsson.
Basar og kökusala
Komið að Freyjugötu 14, kl. 2 i dag og
gerið góð kaup.
Geysimikið úrval af fallegum vörum og
kökum.
Kvenfélag Karlakórs Reykjavikur.