Þjóðviljinn - 30.11.1975, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 30.11.1975, Blaðsíða 7
Sunnudagur 30. nóvember 1975. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 7 ar sé fullkomlega hægt aö verja landhelgina. Þaö er broslegt aö heyra for- sætisráöherra og aðra framá- menn i Sjálfstæöisflokknum sem mest hafa gumaö af útfærslunni i 200 milur halda þvi fram aö við getum ekki variö landhelgina og þvi sé best aö semja. Hvers vegna völdu þeir ekki strax samningaleiöina eins og bretar og þjóöverjar hafa alltaf prédikaö — fyrst þeir vissu aö einhliða útfærsla okkar var gagnslausog geta okkar til vörslu engin? Meintu þeir kannski aldrei neitt meö öllu 200 milna talinu? Svo viröist sannarlega af mál- flutningi þeirra og framkvæmd- um þvi nú semja þeir viö þjóö- verja um frjálsar veiöar á öllu svæöinu á milli 50 og 200 milna, á öllu þvi hafsvæöi sem þjóöverjar hafa veitt á áöur og óskuöu eftir aö semja um. Þorskurinn Þá er þvi nú mjög haldiö á lofti til aö réttlæta samninginn viö vestur-þjóðverja að þeir lofi að veiða ekki nema 5 þúsund tonn af þorski. En samkvæmt skýrslum veiddu þjóöverjar aöeins 5,5 þús- und tonn af þorski árið 1974 og sennilega mun minna á þessu ári. Þaö þurfti ekki aö semja um 60 þásund tonna aflamagn i 2 ár til aö ná þvi sem áöur var náð. Erfiðari stjórnun Ein afsökunin fyrir samninga- geröinni er aö með samningum sé betra að ná stjórn á fiskveiöunum við landiö. — t samningnum viö þjóöverja segir að tilkynna veröi til sambandsstjórnarinnar i Bonn um allar friöunarráöstafanir og friöunarsvæöi sem islendingar á- kveöa. Þetta þýöir aö allar skyndifriöanir, t.d. til aö koma i veg fyrir smáfiskadráp, geta ekki náð til þjóðverja. Enn fremur er reynslan sú aö mjög er erfitt aö koma viö nokk- urri sterkri stjórn á veiöunum á meöan fjöldi útlendra skipa er hér á fiskimiðunum. Allt tal um að semja hafi þurft til þess aö ná stjórn á veiöunum er þvi út I hött. Ryður bretum braut Þá er nýjasta röksemdin fyrir nauösyn samninga viö þjóöverja sú aö eftir aö slikir samningar séu geröir, geti landhelgisgæ.slan snúið sér af fullum krafti að bresku togurunum og þá geti Is- lendingar einbeitt sér i átökunum viö breta. Hér er um augljós falsrök að ræða þvi eitt atr. i samningnum viö þjóöverja er aö hann eigi aö falla úr framkvæmd eftir 5 mán- uöi ef bókun 6 hafi þá ekki komi til framkvæmda. Viðurkennt er af utanrikisráöherra að vitanlega veröi aö nota þessa 5 mánuöi til aö ná samningum viö breta — annars sé þýski samningurinn til- gangslaus. Samningurinn viö þjóöverja veröur þvi ekki til þess aö tekin veröi upp haröari afstaða gagn- vart bretum, heldur þvert á möti til að ryðja brautina fyrir samn- ingagerð við breta. Villandi samanburður við fortíðina Það er gersamlega þýöingar- laust fyrir talsmenn rikisstjórn- arinnar i landhelgismálinu aö reyna að drepa á dreif meginatr,- um hins alvarlega máls hvernig staöið er aö samningum við aörar þjóöir um veiöiheimildir innan landhelginnar. Bæði Geir Hallgrimsson og Einar Agústs- son, aö ógleymdum Gunnari Thoroddsen, hafa reynt aö beita útúrsnúningum og blekkingum um liðinn tima i umræöu um mál- ið á alþ.undanfarna daga. Af þvi tagi hefur verið aö bera saman aflamagn sem nú er .verið aö semja um og það aflamagn sem til greina kom aö semja um fyrir 2—3 árum. Hvers vegna skyldi rikisstjórnin nú bjóða bretum 65 þúsund tonna afla I staö 130 þúsund tonna afla fyrir tveim árum? Auövitað vegna þess aö i fyrra skiptiö var OLAFUR HAUKUR SÍMONARSON SKRIFAR_______ FRELSIÐ Á HJÓLUM Undir flaggi einstaklings- frelsis leyfist mönnum beint og óbeint aö stýra lifstilnum I þjóö- félaginu, sérstaklega hluta- sókninni. Fólki sést alltof oft yfir þá hættu sem i þvi er fólgin fyrir frelsi heildarinnar þegar einstaklíngar fá óáreittir og at- hugasemdalaust aö mynda goö- sagnir um einhvem hlut, hefja hann útúr raunverulegu sam- hengi notagildis og gera úr honum trúarlegt eöa hugsjóna- legt tákn. Og þvi miður er goö- sögusmiöunum gefinn alltof laus taumurinn, þolendurnir átta sig venjulega ekki fyrren goösagan hrynur i hausinn á þeim i formi kaupskeröingar, umhverfisspjalla, ónýtra lik- amshluta, o.s.frv. Af einum heilaböggli Bifreiöin er á vesturlöndum , dæmi um aö hlutur hefur öðlast táknrænt gildi sem kemur i veg . fyrir raunsætt mat á notagildi gripsins. Bifreiöin er fyrir innri sjónum fjöldans málmgerfð mynd einstaklingsfrelsis og kynorku. Þessi málmdós nýtur hrikalegrar virðlngar i tali manna, og það er langt i land með almenna viöurkenningu á þvi að bifreiöin er vandræöa- gripur sem ætti fyrir löngu aö vera gengin fyrir ætternisstapa tækninnar. Og vitum við þó vel ef viö hrærum uppi heilanum augnablik að bifreiöin er einn þeirra samvirkandi þátta sem eru að gera þéttbýlissamfélagiö að óskapnaði. Það er ekki ófróðlegt að rifja aggalitiö upp söguna um bilinn. Muna menn stóru öfundaraugun sem alþýöan leit þessi leikföng auöstéttarinnar, þegar þau fyrst hjökkuöu meö freti um götur? t framhaldi af þeirri minningu, hversvegna skildi al- þýöan ávallt öfunda auðmenn- ina af hégómanum, I staö þess að koma sér upp sjálfstæðu gildismati, vera á undan en ekki á eftir. Jú, alla dreymdi um aö eignast bifreiö til aö monta sig á, ekki til aö sækja vinnu eöa geysa i ofurverslanir, einsog siöar geröist, heldur tilað aka montaralega uppi sveit meö kaldan svinsbóg og rauðvin á flösku. Og þá voru sveitavegirn- ir mjóir og nettir, enginn hasar á hraöbrautum meö keöju-slys- um, engir sportvagnar vaföir utan um tré ! eöa kilómetra- steina. Landiö var fritt eins og meyjarrass. Svo setti Herra Ford sinn svarta fingur I spiliö og hóf aö fjöldaframleiöa bifreiöar. Þar meö neyddust veslings auð- mennirnir tilaö hleypa milli- stéttunum i bilagamniö. Aöuren menn gátu deplaö augum var blllinn orðin nauö- syn. Borgirnar voru aðlagaöar bilum og uröu bilaborgir. Og færiböndin snerust hraöar ár frá ári. Loks rak að þvi aö jafn- vel verkalýðnum stóð til boða aö deyja fyrir þessa dásemd. Vel aö merkja aöeins i sóunarheim- inum, þvi I þróunarheiminum gengu menn auðvitaö á tveimur eftir sem áöur og dóu úr húngri. En hinir vesturheimsku menn höfðu létta þánka. Fullir bjart- sýniboöuðu þeir aö allir gætu nú eignast bil. Allir vildu eignast bfl, og þeir sem ekki vildu eign- ast bil voru bara einfaldlega neyddir til þess. Bifreiöin heltók menn, ættfræði bifreiöarinnar, læknisfræöi bifreiöarinnar, æxl- un bifreiöarinnar — þetta var uppistaöa i brennandi umræðu. Og i bjartsýnishitasótt óku menn snarlega framhjá öllum hugsanlegum afleiðingum bil- væðingarinnar. Eöa kannski réttara sagt: það var stúngiö uppi túlann á fugl- um sem vildu af hreinskilni ræöa afleiöingarnar af öllum þessum milljónum járndósa á hjólum. Sá sem leyföi sér aö tala niðrandi um bifreið- ar var talinn 1) ekki með öllum mjalla 2) óvinur framsækinnar tækni og vlsinda 3) andskoti verkalýösins að vilja ekki sjá hann frjálsan á hjólum. Hópar talsmanna, leiötoga, forystu- manna, málpipa, málsvara, formanna og brauöryðjendá stukku fram og sögöu: Bifreiðin er óvéfengjanleg staðreynd i lifi nútimamannsins, það er réttur almennlngs aö fá að deyja i umferöaslysi. Og verk- lýösleiötogarnir hrukku upp úr móki sinu og tóku undir þaö aö verkalýðurinn biöi spenntur þeirra timamóta þegar hann fengi aö þeysa á 120 kilómetra hraða i álverið sitt. Er leikfang auðmanns- ins heppilegt sam- göngutæki? Það var dýrt spaug að mis- gripa sig á bilnum. Þaö er aö renna upp fyrir mönnum smátt og smátt i gegnum mistur goö- sagnarinnar. Bifreiöin er oröin einn af skæðustu fjéndum mannkindarinnar, uppspretta stórpólitiskra vandamála. Lúxusdósin sem var upp- runalega smiðuð handa lúxus- fólki er orðin hræðileg mara. Auðvitað hlaut bifreiðin að fæðast, en hún hefði lika átt að þróast. Það hefur hún þvi miður ekki gert. Þessi tækni- lega eftirlegukind er nú um það bil að gera borgirnar ó- byggilegar, hún þekur óhemju- leg landsvæöi og gerir ennú stærri svæöi hættuleg. Sálrænar og hagrænar afleiöingar bila- menningarinnar eru ómældar, hún hefur hneppt hluta verk- lýösstéttarinnar i óþarfan þræl- dóm, og stuggaö fólki oni fúla gánga neöanjaröarlestanna. Eigindi þessarar dósar hafa orsakaö stórkostlegar breyting- ar á lifsmynstri manna — eðli- legt borgarlif er úr sögunni þvi borgir eru nú hannaðar fyrir bifreiðarnar fyrst og fremst, ekki fyrir fólk. Eldri borgar- hverfi eru miskunnarlaust rifin niöur tilað rýma fyrir bilnum. Hvarvetna rugla menn saman þörfum bilsins og bilstjórans. Dvalarstaðir manna eru nú óra- vegu frá vinnustöðum. í mestu bilalöndunum geturðu átt á hættu húngurdauða ef bifreiö þin klikkar, þú kemst ekki i ofurmarkaöinn og heldur ekki til vinnu. I sumum borgum hefur einkabifreiöin hreinlega þurrkað út almenningssam- göngutækin. Eiginleikar bif- reiöarinnar eru orsök þess að hraðbrautirnar svokölluðu um- lykja og kæfa engi, mýrar, skóga, graslendi og vötn. Þaö hlálegasta viö bifreiða- dýrkunina, en kannski þaö dæmigerðasta fyrir mann- skepnuna: tækiö sem hún skóp tilað auka á hreyfanleika sinn er nú orðið fángelsi hennar. Menn sitja þrútnir af árásarhvötinni I bilum sinum fastir i umferðar- stöppu. Og fleiri menn eru drepnir árlega i umferöaslysum en styrjaldir og pestir lögöu að velli á þeim timum sem bláeyg- ir menntaskólakennarar lýsa með hryllingi sem „hinum myrku miðöldum”. Þróunarstig bifreiöarinnar er ennþá hið sama og þegar Ford gamli setti fyrsta færibandið af staö. I félagslegu samhengi hefur bifreiðin breyst úr lúxus i nauðsyn og þá i möru. Helsieða frelsi? Þaö er heimskulegt og hættu- legt fyrir alþýöumenr. aö éta upp lifstil og hugsjónir auð- manna. í besta falli þýöir þaö lifstiðar afborgunargaleiðu fyrir alþýðuna. Frelsi al- mennings i þröngri og svelt- andi veröld getur ekki grund- vallast á hugtakinu einstak- lingsfrelsi, þarsem túlkun hugtaksins rekst á frelsi og heill heildarinnar. Bilamar- trööin er bara eitt af mörgum dæmum um þaö, að almenning- ur gin alltof auðveldlega við á- róöri braskaranna. Hvað þýðir þaö fyrir afstöðu vinnandi fólks til sinna félaga og til annarra fé- lagslegra valkosta, að það lætur ánetjast gildismati neyslusam- félagsins? Hvaö þýöir það fyrir alþýöufólk að draumur þess er Arnarnessvilla og Mestmegnis- bens? Það þýöir andlegt ekki siöur en likamlegt þrælahald. Þaö er ekki bara slælegur rekstur stéttarfélaganna sem hefur rofið samstöðu launa- fólks, heldur eru þaö lika hinar gylltu gulrætur sem braskar- arnir halda fyrir augum fólks á meöan þeir flengriöa þvi. Þegar lénskipulagið hrundi fengu bændur jarðnæði. Þeir hófust I flokk frjálsra manna af byltingum sem höfðu á oddinum einstaklingsbundna frelsis- hugsjón risandi borgarastéttar. Á þvi stigi framleiöslutækninn- ar hentaði hið taumlausa ein- staklingsfrelsi ágætlega. 1 dag er öldin önnur, rikisvaldið hefur fengið annað inntak. Engum dettur heldur i hug að hver og einn verkamaður geti eignast sina verksmiðju og með þeim hætti orðið frjáls og óháður. Einstaklingsbundið eignarhald og einstaklingsbundið frelsi til- aö festa fé sem yfirleitt er dreg- iö beint úr opinberum hirslum, er mjög á undanhaldi. Það frelsi sem aö vinnandi fólk hlýtur að taka sér hvaö úr hverju er sam- eignarfrelsið, þ.e. frelsi til handa þeim sem vinna að fram- leiöslunni i hverri einingu henn- ar tilað stýra fjármagninu með þarfir heildarinnár i huga. A sama hátt og framleiðslan, skipulag hennar og stjórnun hlýtur aö eiga aö grundvallast á sameiginlegum þörfum manna, en ekki á sérþörfum eða dutt- lúngum þeirra sem hafa aðstöðu tilaö útvega sér fjármagn, þá hljóta samgöngutækin I heimin- um aö vera til þess smiðuð, keypt og starfrækt og fullnægja raunverulegum þörfum fyrir flutninga á fólki og varningi. A Islandi munu nú vera um 70.000 bifreiöar. Það gefur auga leiö aö þessi tala er i engu sam- ræmi viö mannfjöldann i land- inu. Bilaflotinn er illa nýttur, einsog sést best á þvi að þótt is- lendingar settust ailir inni vagnana samstundis, þá yrðu tvö sæti laus i hverjum vagni. Þjóöin hefur ekkert að gera við allan þennan bilaflota. Hann er til bölvunar og miska, hann eyðileggur þéttbýlismyndunina, hann er botnlaus eyösluhit. Þaö þarf aö finna nýjar leiðir til lausnar á þeim vanda sem einkabilafarganiö er orðið. Það er bæöi erfitt og erfitt ekki — hér er fyrst og siðast um að ræöa hugarfarsleg atriöi, af- stööu manna til sameignar og félagslegrar notkunar. Skipu- lagslega væri hreint ekki erfitt aö búa til ódýrara, hættuminna og hentugra flutningakerfi, sem grundvallaöist á samvinnu og sameign á þessum tækjum. Grundvallarforsendan er i hausnum á fólki: menn verða aö gera sér ljósa þá staðreynd að um er aö ræöa aö komast á við- unandi tima og með öruggum hætti milli staða, en ekki spurn- Inguna um frelsi — frelsi til aö eiga einn og sér ákveöið magn af málmi, gleri og gúmii. Ég mun i siðari grein taka til umræðu nokkrar hugmyndir sem aö gagni mættu koma hér i Reykjavik viö að aflétta bíla- mörunni og gera samgöngur, ó- dýrari, auöveldari og umfram aílt skemmtilegri. inn umþóttunaitlma að ræða.Sá umþóttunartimi er nú liöinn. Og tilboöið nú er þvi til viðbótar sem veita átti. Fyrri tilboð til þjóð- verja voru auk þess háö margvis- legum aukaskllyröum um lokun veiöisvæöa og mjög takmarkaöan tima — enda neituöu þjóöverjar þeim þá.Nú eru öll skilyröi gjör- breytt. 200 mílur voru vinstri stjórnar mál Gunnar Thoroddsen hefur á al- þingi fjasaö um það að Sjálf- stæöisflokkurinn hafi fundiö upp 200 milurnar og einn barist fyrir þeim gegn mér og ýmsum öðrum mönnum. Slikar fullyrðingar breyta ekki þeirri staðreynd að vinstri stjórnin hafði lýst yfir stuðningi viö 200 milna auðlinda- lögsögu áður en Sjálfstæðisflokk- urinn fór að kvaka um þaö mál hérheima. Og það breytir heldur ekki þeirri staöreynd að ég flutti á vegum vinstri stjórnarinnar þaö frumvarp um heimild til 200 milna útfærslu sem samþykkt var á alþingi i mai 1974 og sem 200 milna útfærslan siöan var byggö á. Allir vita aö viö alþýðubanda- lagsinenn vorum efnisiega á móti samningunum viö breta 13. nóvember 1973. en við stóðum frammi fyrir þvi. að við gátum ekki komið i veg fyrir þá vegna þess að Sjálfstæöisflokkurinn bauö Framsókn aö tryggja fram- gang þeirra samninga á alþingi. Marklausar 200 mílur? Kjarni þeirra mála sem nú eru i sviösljósinu er þessi: Samkvæmt fyrirliggjandi samningi eiga þýskir togarar að fá að veiða allt árið um kring upp að 23 sjómilum frá landi á viðkvæmustu fiskimiö- um austfiröinga viö Suð-Austur- land. Það er sú staðreynd aö á fiski- miðunum út af Reykjanesi fá þýskir togarar leyfi til að veiða á öllum þeim miðum sem þeir hafa sótt fastast eftir, allt áriö, i næstu tvö ár. Þar eiga þeir að veiða inn- anum islenska báta og islenska togara. Það er sú staðreynd að þýsku togararnir eiga aö fá að veiða i sérstöku hólfi út af Breiðafirði allt árið og hálft árib á miðum Vestfjarðabáta og bestu togara- miöum islendinga. Og þaö er sú há-alvarlega stað- Framhald af bls. 2 2.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.