Þjóðviljinn - 30.11.1975, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 39. nóvember 1975.
ÁRNI BERGMANN
SKRIFAR
Stundum eru höfð viðtöl við rit-
höfunda þegar þeir eru að gefa út
nýjar bækur. Oftar eru skrifaðar
umsagnir. I þessu tilviki verður
reynt að gera hvorutveggja.
Klippa saman viðtal við höfund
og vangaveltur um bókhans. Höf-
undurinn er Thór Vilhjálmsson.
Bókin heitir Fuglaskottis og var
að koma út hjá ísafold. Svo að
ekkert fari milli mála eru spurn-
ingar og svör innan gæsalappa.
Annar texti á að heita einskonar
umsögn.
Leikir og
framhjáhald
Sp.: „Af hverju heitir bókin
Fuglaskottis?”
Thór: „Mér fannst þetta skond-
ið nafn þegar mér allt i einu kom
það I hug, einhver leikur i þvi.
Það er kannski ekki dansaður
skottis lengur nema i öldunga-
deild góðtemplara. En það er svo-
litil lyfting i orðinu, mér fannst
það eiga vel við ýmsa leiki sem
framdir eru i bókinni”.
JU,vister brugðið á leiki i þess-
ari bók: þar ræður ekki ferðinni
venjulegur söguþráður, heldur
myndþyrst auga sem kemur viða
við og leyfir sér ýmiss konar hlið-
arstökk og krákustiga. Við vitum
öll að Thór á sér mjög persónu-
legan stil, hefur smiðað sér að-
ferð sem aðrir gera litt tilkall til
hér um slóðir. Og þessi aðferð
þessi still, er hans styrkur og
veikleiki i senn. Styrkurinn felst i
ýmislegum galdri hins óvænta, i
miklu frelsi sem veitir svigrúm á-
gengu hugarflugi. Veikleikinn
felst siðan i þeirri þverstæðu, að
þessum frjálslega margbreyti-
leika i efniviði og myndbreyting-
um hans fylgir ákveðin einhæfni,
eins og hringekju...
Sp: „Varstu að segja að þessi
bók væri einskonar hliðarstökk?”
Thor: „Ég tók framhjá bók sem
ég var með I smiðum, hún var
öðruvlsi en þessi, likari Fuglinum
og Ópi bjöllunnar. En ég var allt i
einu lentur i þessu efni og hafði
svo gaman af þvi að ég mátti til
með að sinna þvi og gefa mér þá
minni tima i hina bókina.”
Sp: „Getum við ekki slegið þvi
föstu, að þessi bók sé náskyld
Foldu? Hún heldur uppi gamni
um islendinga erlendis..”
Thor: „Allt gott gaman á sina
alvöru, gaman þarf ekki að vera
léttúð.”
QODDQ [e)®B
Marienbad þegar þeir lásu
„Fljótt fljótt sagði fuglinn”, og
mér dettur i hug farsi, þöglar
gamanmyndar, þegar ég blaða- i
Fuglaskottis.”
(N.B. Thorbýðuribókinni oftar
en ekki upp á atvikakeðju sem á
vel heima i slapstick: mælskasta
persóna bókarinnar, Armann,
rekur með sinum fyrirgangi
höndina i blikkkönnu, sem hrapar
á gólfið hjá stúlkunni Alfeu
Magnhildi, kötturinn hrekkur við
i gluggakistunni og stekkur Ut og
fellir um leið kaktus, potturinn
utan af honum brotnar á leiðinni,
en kaktusinn lendir i heilu lagi
niður i stráhatt lirukassaleikara
fyrir neðan, apinn á öxl hans
Nei, en i gamla daga var ég
alltaf skotinn i kvikmyndinni sem
listtæki, átti mér æskudrauma i
þá átt. En það er svo erfitt að fá
að hreyfa sig eins og manni þókn-
ast á þvi sviði. Sé maður hinsveg-
ar rithöfundur, þá getur enginn
sagt manni fyrir hvað á að skrifa,
þá er maður orðinn það sem
frakkar kalla „meistari á eftir
guði”.
Landar á randi
Spr.: „Þú hefur hvað eftir ann-
að skemmt þér við að sýna islend-
inga á fjarlægum slóðum.”
Thor: Já, eða uppi á öræfum
eins og i Foldu. Ég hefi reyndar
Vangaveltur um Fuglaskottís
Að loknum
sólarhring
fyrir sunnan
Thor Vilhjálmsson
Slapstick
Sp.: „Mörgum verður hugsað
til kvikmynda þegar þeir lesa eft-
ir þig texta, jafnvel til ákveðinna
mynda. Menn hugsuðu til þess
sem gerðist eða gerðist ekki i
verður hræddur og kippir hús-
bónda sinum um koll, nunna kem-
ur á hjóli og rekst á strekkta
keðju sem tengir apa og mann og
„féll ofan á lirukassaleikarann á
mjög ósiðlegan hátt”. Armann
horfir á og segir: „Já það er heitt
iþeim blóðið hérna...Hafa þeir
engan hemil á lostanum”).
Thór: „Ég nýt augna minna svo
mikið til að skynja veröldina, að
það er mér eðlilegt að skrifa
svona, eins og ég væri að filma.
Mér finnst þetta ekki skylt nein-
um tilteknum kvikmyndum. En
kannski gæti einhver tekið sig til
og kvikmyndað þetta. Kannski
gæti ég gert nokkuð góða kvik-
mynd ef ég fengi svosem 20 mil-
jónir króna.
dálitið gaman af að fylgja þessu
fólki suður á bóginn. t fyrri hluta
Fuglaskottiss er mikið um það
fjallað hvernig þetta fólk orkar
hvað á annað, en i seinni hlutan-
um er meira um kynni þess af er-
lendu fólki og þá langar mig til að
vita, hvað getur komið upp i þeim
kynnum.”
— Fuglaskottís gerist reyndar á
ítaliu á einum sólarhring, aðal-
persónur eru fjórir islendingar.
Það er Armann, sem hefur orðið,
a.m.k. framan af, athafnamað-
ur á heimspólitiskri kynnisferð.
Annar er Bernódus listamaður
sem lóðsar hann um um stórborg-
ina og tvær stúlkur, Alfeu Magn-
hildi og Þjóöbjörgu — Armann er
m.a. sendur til að hafa barn
Upp rís í veikleika
Graham Greene: Mátturinn og
dýröin, Sigurður Hjartarson is-
lenskaði. A.B. 1975.
T.S. Eliot segir i kvæði sinu um
flóðhestinn, að okkur sýnist hann
traustlegur vel, en i reynd sé
hann bara hold og blóð. Og holdið
er veikt og verður fyrir tauga-
sjokkum segir skáldið — hinsveg-
ar getur Sönn Kirkja aldrei
brugðist, „þvi hún er byggð á
kletti”. Graham Greene fer aðra
leið i þessari frægu skáldsögu
sinni um prestinn sem árum sam-
an fór huldu höfði með sakra-
menti sin um hérað eitt i Mexikó
þar sem prestahatarar að hug-
sjón höfðu ákveðið að útrýma
kaþólskri kirkju. Kannski stendur
kirkjan fyrst og fremst á þeim
sem eiga sér ærna veikleika og
viðurkenna þá. Presturinn sem er
aðalhetja bókarinnar er maður
bersyndugur. Hann er drykk-
felldur og hefur gert konu barn.
Vonbrigði og efasemdir eru fasta-
gestir hjá honum. En á erfiðum
timum reynist hann öðrum stað-
fastari. Kannski verður hans
minnst sem dýrlings. Að minnsta
kosti hikaði hann ekki við að
halda út i svo gott sem opinn
Graham Greene.
dauða þegar deyjandi glæpamað-
ur bað hann koma að veita sér af-
lausn.
Það er alltaf góð skemmtun að
fylgjast með sérkennilegum og
kaþólskum áhuga Grahams
Greene á þverstæðum mannlifs.
Bæði vegna þess hve góður sögu-
maður hann er, og einnig vegna
þess að hann er óralangt frá
sjálfsánægðum rétttrúnaði.
Greene er kaþólskur og vinstri-
sinni, og villumaður á báðum vig-
stöðvum. Viskipresturinn i
„Mátturinn og dýrðin” er einn af
drjúgum hópi breyskra og sjálfs-
gagnrýninna manna, sem af hálf-
gerðri tilviljun er kastað út i
hringiðu stórtiðinda, þar sem þeir
eru neyddir til mikilla ákvarðana
eða hetjuskapar. Þessar persón-
ur, þesssar aðstæður, hefur Gra-
ham Greene ræktað með ýmsum
tilbrigðum allt fram á Heiðurs-
konsúlinn sem kom út i hitteð-
fyrra. Og lyklar þeir sem ganga
að viskiprestinum i „Mátturinn
og dýrðin” ganga og að mörgum
þeirra.
Sigurður Hjartarson hefur þýtt
bókina og hefur það að mörgu
leyti tekist ágætlega — þótt við
skjótan samanburð sýnist sem
samtöl séu einum bóklegri en
frumtextinn gefur ástæðu til.
A.B.
Magnhildar heim með sér, en sá
erindrekstur skiptir vist ekki
neinu höfuðmáli. Textinn er svo
með sinum hliðarstökkum og
sjónrænum duttlungum smiðaður
inn þennan tima, utan um þetta
fólk, einkum Armann og Bernód-
us.
Thor: „Mér er heldur vel til Ár-
manns, hann er vel meinandi, at-
hafnasamur mjög, en áttar sig
ekki alltaf á þvi, hvað er að ger-
ast. Það er stundum dálítið ó-
heppilegt sem leiðir af hans góð-
um meiningum og athafnasemi,
en kannski engin stórslys. Stund-
um finnur hann á sér réttu mein-
inguna.”
íslandsbersi
Manni finnst Armann einskon-
ar islandsbersi, hann er kátur og
mælskur og bernskur i miklu
sjálfsöryggi sem hann dembir ó-
spart yfir umhverfið. Hann fer
með allrahanda klisjur um einka-
framtak og sósialisma sem hann
á hægt með að spyrða saman,
um þá auðskiljanlegu gleði og
bjartsýni sem hann vill hafa i list-
um, um þá nægjusömu gleði sem
hann heldur að einkenni suður-
landabúa og ofan á þetta hellir
hann fornsögum og kappahjali.
Hann er týpa sem látin er safna
til sin ýmsu dóti sem er á sveimi i
borgaraskapnum. En þaöerfarið
heldur vel með hann, það er rétt.
Spaugið um hann er góöviljað.
Syndir hans eru fyrirgefnar.
Sp.: „En Bernódus? Hvað um
sambúð þeirra Ármanns? Og
hvað um ræðuna sem þú leyfir
honum að flytja undir lokin?”
(Bernódus segir á þá leið, að
kannski ættu menn að tala minna
og hugsa meira, ekki eyða tima i
að daðra við úrkynjunina, enda
þótt menn verði að vita hver hún
er, menn ættu að tala um það
hvernig hægt sé að láta sósial-
isma þjóna fólki. „Við ættum að
kanna vélar andskotans, og
kvömina sem malar og malar og
malar okkur til helvitis. En þetta
er bara einn dagur... Og það
koma aðrir dagar”)
Thor: „Bernódus hefur undir
niðri dálitið gaman af Armanni
og er allt gott um samskipti
þeirra i bókinni að segja. Hann
lætur stundum uppi meiningu
sina með fáum orðum, einhverju
stuttu tilsvari, segir stundum
móralskar dæmisögur. Hann hef-
ur lengi setið á sér, og ég var feg-
inn að gefa honum orðið i lok-
in”....
Menningarþreyta
Bernódus hefur reyndar smám
saman verið að taka orðið. Hann
hefur margt á hornum sér sem
vonlegt er: ádrepa sú sem er i
bókinni að finna er mest við hann
tengd. Það er til dæmis hægt að
visa til sögu hans af morgunverk-
um yfirsféttarkerlingar sem sýn-
ist náskyld Jackie Onassis og
fleiri eitruð dæmi. En vandi
Bernódusar er að ýmsu leyti
skyldur þvi, sem fram kemur i
frásögn griskrar konu, sem hann
hittir á þvi' mikla vertshúsi sem
er vettvangur seinni hluta bókar-
innar. Hún talar um menntaða og
efnaða landa sina sem fyrirlitu
hershöfðingjana sem rændu völd-
um og töluðu um réttlæti og jöfn-
uð en gerðu ekki neitt „Það var
alið upp við þessa gömlu yfir-
þyrmandi menningu sem siast
inn i blóðið svo maður veit of
margt og skilur svo margt og fær
allt án fyrirhafnar, og hugurinn
er saddur og skortir kraft”.
Manni finnst að það sé eitthvað
hliðstætt þessari menningar-
þreytu sem háir Bernódusi, þótt
hann eigi ekki sjálfur I grlskum
vanda. Hann hefur lýst þvi yfir,
sem fyrr segir, að hann vilji
gjarna taka til hendi eftir þennan
dag langra samtala — en það er
ekki vfst að við tökum hann trú-
anlegan. Okkur grunar, að hann
hafi svo gaman af þvi að „kanna
vélar andskotans”, að það verði
heldur betur bið á þvi, að hann
snúi sér að þvi að mölva þær....
Aðrir sálmar
. Aður en settur er punktur aftan
við þessa samklippingu samtals
og umsagnar skal þess getið, að
Thor vildi ekki viðurkenna, að
þetta væri erfið bók. Hann taldi
aö það væri sæmilega greiðfært
yfir hana ef menn gæfu sér tima.
En það er, sagði hann, svo mis-
jafnt hvernig menn lesa. Sumir
vilja helst losna við bækurnar