Þjóðviljinn - 11.12.1975, Page 12
Fimmtudagur 11. desember 1975.
Skorað á
stjórn
Hollands
AMSTERDAM 10/12 — Forseti
útlagastjórnar Suður-Mólukka-
eyja, Jóhannes Manusama,
hvatti i dag landa sina, sem halda
54 mönnum I gislingu á tveimur
stöðum I Hollandi til að sleppa ,
glsiunum og gefa sig lögreglunni
á vald. Manusama sendi út þessa
áskorun I Mordrecht, skammt frá
Rotterdam, og sagði að skæru-
liðarnir, þrettán að tölu. hefðu
þegar náð þeim tiigangi að vekja
athygli á sjálf stæðisbaráttu
Suður-Mólúkkaeyja. Hann sagði
einnig að hollenska stjórnin gæti
lagt sitt af mörkum með því að
gefa skæruliðunum „lágmarks-
tryggingu” fyrir þvf aö ekki væri
með öllu voniaust að Suður-
Mólúkkaeyjar yrðu sjálfstæðar.
Skæruliðarnir halda 29 gislum I
járnbrautarlest i Beilen i
Hollandi norðanverðu og 25 i
konsúlati Indónesiu I Amster-
dam. Þeir kefjast þess meðal
annars að Suharto Indónesiufor-
seti hitti Manusama i Genf og
ræði við hann sjálfstæðiskröfur
suðurmólúkka, en Suður-
Mólúkkaeyjar voru innlimaðar I
Indónesiu skömmu eftir að hún
varð sjálfstæð 1949. Manusama
hefur tekið undir þessa kröfu
skæruliðanna og sömuleiðis um
200 landar hans i Hollandi.
Stjórnir bæði Hollands og
Indónesiu hafa neitað að taka
kröfur skæruliðanna til greina.
Mikill afli hers og lögreglu, þar
á meðal sérþjálfaðar sveitir sitja
nú bæði um konsúlatið og lestina.
Áað
leggja
hluta
flotans?
óskar Vigfússon
Birgir Vaidimarsson
Ólafur Björnsson Jóhann K. Sigurðsson
Skiptar skoðanir
Skiptar skoðanir eru um þá
uppástungu formanns LÍÚ,
Kristjáns Ragnarssonar, sem
hann varpaði fram á aðalfundi
Ltú, sem nú stendur yfir hér i
Rvlk, að leggja beri allt að
þriðjungi fiskiskipaflotans
vegna ástands þorskstofnsins.
Þjóðviljinn ræddi við þrjá
fulltrúa á LÍÚ-þingi um þessa
hugmynd.
Jóhanji K. Sigurðsson, út-
gerðarstjóri i Neskaupstað,
sagði, að ljóst væri, að einhvern
veginn yrði að bregðast við
minnkandi afla, ef menn vildu
trúa þvi, að fiskstofnarnir væru
i svo mikilli hættu, sem fiski-
fræðingar segðu. Sagði hann að
við yrðum að skipuleggja veið-
arnar með einhverjum hætti, en
hvernig, sagðist hann ekki tilbú-
inn að svara nú. Að lokum sagði
Jóhann: ,,Ef áframhald verður
á samningum við útlendinga
verðum við að skammta okkur
afla, nema að við ætlum að
drepa meira en til er.”
Birgir Valdemarsson frá tsa-
Rœtt við
útgerðarmenn
°g sjómann
um tillögu
formanns LIU
firði sagði: „Mér finnst það ekki
raunhæft enn þá að binda fiot-
ann, svo svartsýnn er ég ekki.
Þótt dragi úr þorskveiðum i bili,
erekki þar með sagt, að við get-
um ekki leitað nýrra verkefna
og dregið þannig úr sókninni i
þorskstofninn.”
ólafur Björnsson, Keflavik,
sagði: „Mér finnst alveg sjálf-
sagt, og reyndar óumflýjaniegt,
að binda hluta fiotans.Við erum
með ailt of mörg fiskiskip við að
elta þá fáu fiska sem við eigum
kost á að fá.
Fiskifræðingar eru siðan 1970
margoft búnir að benda á að
aukning fiskiskipaflotans muni
ekki skila auknum afla. Þar
gæti ég talið upp greinar eftir þá
Ingvar Hallgrimsson, Sigfús
Schopka og Jakob Jakobsson i
Þjóðviljanum, svo og leiðara i
sama blaði frá 1972.
Ef stöðvaður yrði þriðji hver
bátur i öllum verstöðvum, og
slik stöðvun stæði i þrjú ár, þá
hefði hvert fiskiskip stöðvast i
eitt ár. En þetta þarf að sjálf-
sögðu með einhverjum hætti að
gera fjárhagslega kleift. Auk
þessa þurfum við að beita þeim
hluta fiskiskipaflotans, sem að
veiðum væru á hverjum tima,
eftir þvi sem mögulegt er, i ann-
an fisk en þorsk og ýsu.
Ég er löngu orðinn sann-
færður um, að framtið fiskveiða
hér við land byggist á þvi, að
okkur takist að vernda árgang-
inn frá 1973 þar til honum hefur
lukkast klak a.m.k. einu sinni.”
Þá hafði blaðið samband við
óskar Vigfússon, form. Sjó-
mannafélags Hafnarfjarðar og
spurði hann álits á þeirri skoðun
að binda þyrfti bátana.
Óskar sagði: „Ef sjóðakerf-
inu yrði breytt, sem ég er nú
ekki of bjartsýnn á, hættu út
gerðarmenn að geta gert út á
sjóðina, og þá mundi sjálfkrafa
faila úr sá hluti flotans, sem
rekinn er af mönnum, sem ættu
að stunda aðra atvinnu en út-
gérð, og þá þyrfti ekki að binda
neinn þann bát, sem gerður er
út af fyrirhyggju.
Þrátt fyrir það, að ekki
næðust fram breytingar á sjóða-
kerfinu teldi ég mjög óæskilegt,
að hluti fiskiskipaflotans yrði
bundinn.Ég tel það litinn ávinn-
ing fyrir sjómenn ef hluti flotans
yrði stöðvaður, og láta þá, sem
gert geta út njóta góðs af þvi,
sem fer i sjóðina, án þess sjó-
menn fái þar nokkurn hlut af,
sem þeim þó ber.” —úþ
„Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?”
Kommúnisti borgar
stjóri í borg Krists
NASARET 10/12. — Kommúnisti
var í dag kosinn borgarstjóri i
Nasaret i Israel, borg þeirri er af
kristnum mönnum er talin ætt-
borg Krists. Hinn nýi borgarstjóri
er arabi, Tofik Sajjed að nafni og
á sæti á þingi israels. Hann fékk
65% atkvæða i kosningunum. í
kosningabaráttunni lofaði hann
að stjórnmálaflokkur hans, Lýð-
ræðisfylkingin, myndi binda endi
á opinbera spillingu i borginni, ef
hann kæmist til valda, og greiða
einungis laun þeim opinberum
starfsmönnum, sem eitthvað
ynnu.
Úrslit kosninganna I Nasaret
sem er stærsta arabiska bæjar-
félagið i Israel, komu israelskum
yfirvöldum ónotalega á óvart og
óttast þau að úrslitin kunni að
hafa viðtæk pólitisk áhrif íbúar i
Nasaret eru um 40.000. Fyrir
kosningarnar höfðu israelskir
ráðherrar i hótunum um að
stöðva éfnahagslega hjálp frá þvi
opinbera til Nasaret ef Lýðræðis-
fylkingin ynni kosningarnar, en
Sajjed benti fyrir sitt leyti á að
þessháttar væri ólöglegt.
Lýðræðisbandalaginu er i Reuter-
frétt lýst sem samtökum
kommúnista, menntamanna og
kaupsýslumanna
1 kosningabaráttunni lagði
Sajjed áherslu á að Nasaret heföi
verið sett hjá um framlög til
fræðslu-og félagsmála, miðað við
sveitarfélög i nágrenninu, þar
sem gyðingar búa. ísraelsk yfir
völd hafa illan bifur á Sajjed
vegna þess að margir stuðnings-
manna hafa látið i ljós samúð
með PLO, baráttusamtökum
palestinumanna, og vegna þess
að hann sjálfur er sagður vin-
samlegur Sovétrikjunum, sem
hann hefur heimsótt nokkrum
sinnum. Þá orti Sajjed á sinum
tima kvæði til lofs egypska hern-
um eftir að honum tókst að kom-
ast yfir Súesskurð i október-
striðinu 1973.
BHM samningar samþykktir með 21 atkvœði gegn 16!
Hnefahögg í andlit
annars launafólks
— segir einn launamálaráðsmanna,
Franz Gíslason, um samningana
„Ég greiddi atkvæði á móti
samþykkt þessa samnings af
þvi að ég tel hana ver hnefa-
högg i andlit annarra launþega,
scm eiga eftir að gera sina kjara-
samninga með þvi að þessir
samningar hljóta að einhverju
leyti að vera stefnumótandi viö
væntanlega samningagerð. Þetta
er mjög lélegur samningur.”
Þannig fórust einum þeirra
manna, sem sæti áttu i launa-
málaráði Bandalags háskóla-
manna, Franz Glslasyni.orð um
nýgerða samninga BHM við fjár-
málaráðuneytið.
Á fundi sem boðað var til i
nokkurri skyndingu innan launa-
málaráðs um samningana voru
þeir samþykktir með 21 atkvæði
en 16 greiddu atkvæði gegn þeim.
Voru þar á meðal fulltrúar
kennarafélaga, fulltrúi náttúru-
fræðinga fulltrúi lyfjafræðinga og
fulltrúi Fél. isl. fræða.
Aðalsamningur sá, sem nú
hefur verið gerður er til tveggja
ára. Samkvæmt honum eiga
félagsmenn i BHM að fá 3%
launahækkun þann 1. júii 1976,
5% hækkun 1. des ’76 5% hækkun
1. febrúar 1977 og siðan 4%
hækkun 1. júli 1977.
Eftir er að gera sérsamninga,
sem ljúka skal fyrir 1. júli 1976.
Búist er við miklu launaflokka-
skriöi, þeas., að menn færist
verulega til á milli launaflokka til
hækkunar þegar kemur að sér-
samningagerðinni, vegna hinna
lélegu samninga. —úþ.
Carlos Arias.
Spœnskir
vinstri-
menn
herða
baráttuna
MADRIP 10/12—Vinstriöflin á
Spáni stóðu fyrir verkföllum i dag
til að fylgja eftir kröfum sinum
um umbætur I lýðræðisátt.
Byggingaverkamenn I Madrid
voru fyrstir til að leggja niður
vinnu og búist er við að félagar
þeirra I Baskalandi og Barcelona
muni gera sllkt hið sama á
morgun. Allmargir iðnverka-
menn I Madrid lögðu einnig niður
vinnu I dag og stúdentar mættu
ekki i timum. Viða komu fram
áskoranir um að herða á kröfun-
um á hendur Juan Carlos konungi
um að koma á lýðræði.
Að verkföllunum standa hópar,
sem eru i tengslum við Junta
Democratica, flokkasamsteypu
sem Kommúnistaflokkur Spánar
á aðild að. Lögreglan handtók
nokkra unga vinstrimenn, sem
stóðu verkfallsvörð hjá ýmsum
vinnustöðum. Carlos Arias, for-
sætisráðherra, heldur áfram
tilraunum til að mynda nýja
rikisstjórn.
Reynt að
umkringja
Fretelin
DJAKARTA 10/12 — Lið Fretelin
hefur hörfað undan til fjallanna i
grennd við Diii, höfuðborg Aust-
ur-Timor, samkvæmt fréttum frá
Djakarta, höfuðborg Indónesiu.
Indónesiskar hersveitir, sem gert
hafa innrás i Austur-Timor og
tekið Dili, reyna nú að umkringja
Fretelin-menn með aðstoð liðs frá
tveimur öðrum stjórnmálahreyf-
ingum þarlendum, sem vilja
sameiningu eyjarhelmingsins við
Indónesiu.
I Darwin i Ástraliu heyrðist i
útvarpsstöð Fretelin o^ var þar
sagt að hreyíingin hefði enn tvo
þriðju hluta Austur-Timor á slnu
valdi, en flugher og herskip Indó-
nesiu gerðu stöðugar árásir á
stöðvar hennar.
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóöviljinn óskar eftir
blaöberum i eftirtalin
hverfi
Fossvog
Laufásveg
Skúlagötu
Höfðahverfi
Raplaskjól
Tómasarhaga
Kvisthaga
Vinsamlega hafið sam-
band viö afgreiðsluna
sími 17500.