Þjóðviljinn - 18.12.1975, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 18.12.1975, Blaðsíða 16
B WÐVIUINN Miðvikudagur 17. desember 1975. Kúba Fyrsta flokks- þingið hafið Havana 17/12 reuter prensa latina — í dag hefst í Havana 1. þing Kommúnistaf lokks Kúbu. Meginverkef ni þingfulltrúa sem eru 3.136 talsins verður að setja landinu nýja stjórnarskrá sem lög- festir þann árangur sem þjóðin hefur náð á 17. byltingarárum. Stjórnarskrárdrög þau sem þingið fær til umfjöllunar hafa verið rædd á fundinum sem meirihluti þjóðarinnar hefur tekið þátt i undanfarna mánuði. Þeir voru haldnir á vegum Varnarnefnda byltingarinnar (CDR), kvennasamtakanna, verkalýðshreyfingarinnar og flokksdeildanna. Þar hefur landsmönnum gefist kostur að ræða drögin ofan i kjölinn og gera athugasemdir við þau. önnur verkefni þingsins eru ma. að gera úttekt á þeirri til- raun sem gerð var með almenn- ar kosningar til héraðs- og byggðastjórna i Matanzas hér- aði i júli 1974. Er ætlunin að koma slikum kosningum á á öll- um stjórnstigum landsins smám saman. Einnig kýs þingið fulltrúa i æðstaráðið sem verður nokkurs konar fastaþing og lög- gjafastofnun i framtiðinni. Loks mun þingið móta stefnuna i efnahags- og félagsmálum næstu ára. Alls eru félagar i flokknum um 200 þúsund tals- ins. Þótt hanna sé formlega valdamesta stofnun landsins ber ekki að draga úr hlutverki CDR, kvennasamtakanna og verkalýðshreyfingarinnar i stjórnmálum landsins en i þeim fyrstnefndu munu vera um 80% allra fullvaxta kúbumanna. Undanfarnar vikur hafa félagar CDR unnið mikið sjálf- boðaliðsstarf við að skreyta alla eyna. Húsgaflar hafa verið mál- aðir, plaköt sett upp og blóm gróðursett út um allt land. Helstu umferðargötur Havana Framhald á 14. siðu BLAÐ- BURÐUR Þjóðviljinn óskar eftir blaðberum i eftirtalin hverfi Brúnir Langagerði Fossvog Safamýri Sólheima Skúlagötu Höfðahverfi Kaplaskjól Mela Tómasarhaga Kvisthaga Vinsamlega hafið sam- band við afgreiðsluna simi 17500. Rikisstjórnin leggur til Ríkið hætti þátttöku í byggingu dvalarheimila aldraðra og rekstri dagvistunarheimila ,,A ég ekki að fá að vera á dag- heimilinu lengur?”... gæti þetta barn verið að segja. Sannleikur- inn er sá að þau heimili sem nú eru rekin á vegum foreldra eða einstaklinga i leiguhúsnæði munu verða að leggja upp laupana ef rekstrarstyrkurinn frá rikinu verður af þeim tekinn samkv. frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Litlu jólin Litlu jólin eru i skólunum þessa dagana. Myndina tók Ari af börn- um á Litlu Jólunum i Fossvogs- skóla, þar sem þau dönsuðu kringum jólatréð með Kára skólastjóra og Aslaugu aðstoðar- skólastjóra. Tollamál íslensks framleiðslu- iðnaðar eru I miklum ólestri eins og frá hefur veriö sagt i blaðinu. Sem dæmi um það má nefna, að járniðnaðurinn getur þurft að greiða 35% toll af efni til framleiðslu tækja, sem engan toll þarf að greiða af cf keypt eru fullbúin erlendis. Þetta kom ma. fram á blaða- mannafundi, sem stjórn Sambands málm- og skipasmiðja hélt i gær. Lagt hefur verið fram á alþingi stjórnarfrumvarp um breytta verkaskiptingu rikis og sveitarfé- laga. Gert er ráð fyrir, að Jöfn- unarsjóður s veitarfélaga fái auknar tekjur af söluskatti er nemi 520 miljónum króna á ári. A móti er sveitarfélögunum ætlað að taka á sig ný verkefni, sem hafa verið á hendi rikisins að meira eða minna leyti. Þrír stærstu liðirnir, sem þarna er um að ræða og rikið hættir að veita fé til samkvæmt frumvarpinu eru: 1. Viðhald skólamannvirkja, 2. Rekstur dagvistunarheimila, 3. Bygging dvalarheimila aldraðra. Gunnar Thoroddsen, félags- málaráðherra mælti fyrir frum- varpinu á fundi efri deildar i gær. Ragnar Arnalds og Helgi Seljan andmæltu frumvarpinu, en siðan var umræðu um málið frestað. Ragnar Arnalds sagði, að rikið greiddi nú einn þriðja af bygg- ingu dvalarheimila fyrir aldraða, samkvæmt lögum frá valdatima vinstri stjórnarinnar. Nú ætti að afnema þetta, og væri hætt við, aö Sem dæmi um þennan tollamis- mun var nefnt á fundinum að aðflutningsgjöld af hráefni og hlutum til framleiðslu á 5 tonna háþrýstitogvindu nam 10,1% af söluverði togvindunnar (fram leiddri innanlands), á sama tima og innflutt togvinda bar 3% toll og 0% ef hún er sett um borð I skipið erlendis. Einnig má nefna að fyrirtæki framleiddi vökvaknúna plötupressu til nota i fyrirtæki sinu, og flutti inn til smiöanna vökvabúnaðinn og þurfti að slik breyting dragi verulega úr á- kaflega brýnum framkvæmdum á þessu sviði. Sama væri að segja um rekstur dagvistunarheimila. Ný lög frá tið vinstri stjórnarinn- ar um þátttöku rikisins i þessum rekstri hafi orðið mjög virk hvatning til úrbóta á þessu sviði, sem mtjög hafi kallað að. Nú eigi að fella þetta niður. Bót sé þó i máli, að rikisstjórnin hafi heykst á að fella lika niður rikisframlag- ið til byggingar slikra heimila, en það hafi upphaflega verið ætlun stjórnarinnar. Nú eru sveitarfélögin skuld- bundin til að leggja fram jafn háa upphæð og rikið i þvi skyni að halda niðri dagvistunargjöldum. Verði frumvarpið samþykkt, fell- ur þessi skuldbinding niður, og er þá hætt við, að dagvistunargjöld- in muni hækka verulega. Um viðhaldskostnað skólanna sagði Ragnar, að það gæti komið til greina, að færa hann á hendur sveitarfélaganna, en þá yrði a.m.k. að taka sérstakt tillit til hins mikla aukakostnaðar við heimavistarskólana, og gera sér- greiða af honum 35% i aðflutn- ingsgjöld, en innflutt samskonar vökvapressa ber engin aðflutn- ingsgjöld. Þess skal þó getið, að ein grein járniðnaðar, nýsmiði fiskiskipa, nýtur þarna nokkuð annarra kjara, þvi verulegur hluti tolla af efnivið til nýsmiðinnar er endur- greiddur, þó svo það eigi ekki við um fyrirtæki innan iðngreinar- innar, sem framleiða einstaka hluti og vélar i fiskiskipin. —úþ stakar ráðstafanir i þvi sam- bandi. Mjög ósanngjarnt væri að ætla að leggja allan þann kostnað á einstaka sveitahreppa, eins og frumvarp þetta gerir ráð fyrir. Ragnar Arnalds lagði einnig nokkrar spurningar fyrir félags- málaráðherra, sem hafði ekki svarað þegar fundi var frestað. Helgi Seljantók undir málflutn- ing Ragnars, og lagði einnig nokkrar spurningar fyrir ráð- herrann, sérstaklega i sambandi við afstöðu samtaka sveitarfélag- anna varðandi þessi mál. Hann kvaðst undrast afstöðu Fram- sóknarflokksins, sem tæki nú þátt i þvi, að eyðileggja mikilvæg um- bótalög, sem flokkurinn tók þó þátt i að setja á árum vinstri stjórnarinnar, bæði um dagvist- unarheimili og dvalarheimili aldraðra. Barist í Vestur- Sahara Madrid 17/12 reuter — Hermenn frá Máretaniu hafa barist und- anfarna tvo daga við sveitir sjálfstæðishreyfingar Vestur- Sahara, Polisario, i syðsta hluta Vestur-Sahara. Gerðu máretan- ar áhlaup á hafnarborgina La Gucra en mönnum Polisario hefur hingað til tekist að verjast árásunum. La Guera er á skaga sem gengur út i Levrier flóa en við þann flóa er ein helsta hafnar- borg Máretaniu, Port Etienne. Polisario tók borgina á sitt vald þegar spænski herinn yfirgaf svæðið i siðasta mánuði. Maretanar óttast að yfirráð Polisario yfir borginni geti stefnt útflutningi þeirra i hættu sem og sjávarútvegi. Eftir „gönguna miklu” komust spánverjar, marokkan- ar og máretanar að þvi sam- komulagi að sett yrði á laggirn- ar bráðabirgðastjórn i Vestur- Sahara með þátttöku rikjanna þriggja og á hún að vera við völd þar til brottflutningi spænska hersins lýkur i febrúar á.næsta ári. Polisario sem nýtur stuðnings Alsir viðurkennir ekki þetta samkomulag og hún hefur náð suðurhluta landsins á sitt vald. Marokkó sendi herlið til höfuð- borgarinnar, E1 Aiiun, en sunn- ar hefur það ekki farið. Fréttum af bardögunum ber ekki saman. Samkvæmt frétt- um spænskra blaða varð meira mannfall i liði máretana en máretönsk yfirvöld neita þvi að hafa orðið fyrir miklu manntjóni. KRFFIÐ [rá Brasiliu Sex samtök standa að útifundi á laugardaginn: Oska eftir stuðningi við kröfur sínar Sex stjórnmálasamtök ungs fólks og/eöa róttæks hafa boðað til útifundar á Lækjartorgi á laugardaginn kl. 15. Kjörorð fundarins eru: Gegn rányrkju á I s la nds tn iðu m , Tafarlaus stjórnm álaslit við Stóra- Bretland, Endurskoðun á aðild . íslands að NATÓ Fyrr i vikunni báru samtökin upp þessar kröfur við forsætis- ráðherra og hafa nú hvatt félagasamtök um land allt, og sérstaklega verkalýðsfélögin, að taka undir kröfurnar og senda samtökunum stuðnings- yfirlýsingar i BOX-1026 i Reykjavik. Að loknum útifundinum á laugardaginn verða stuðnings- yfirlýsingarnar og samþykktir fundarins afhentar stjórnvöld- um. Samtökin sem að þessum að- gerðum standa eru: Félag ungra framsóknar- manna, Reykjavik, FUF, Félag ungra jafnaðarmanna, Reykja- vik, FUJ, Reykjavikurdeild Einingarsamtaka kommúnista, EIK (m.l.) Reykjavikurdeild Kommúnistasamtakanna, marxistanna, leninistanna, KSML, Æ s k u 1 ý ð s n e f n d Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, ÆNSFV, 'Æskulýðs- nefnd Alþýðubandalagsins, Reykjavik, ÆNABR. Tollamál járniðnaðarins í mikhim ólestri

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.