Þjóðviljinn - 16.01.1976, Side 1

Þjóðviljinn - 16.01.1976, Side 1
Föstudagur 16. janúar 1976 —41. árg. —12. tbl. Miklir jarðskjálftar og stanslaus titringur í gær r Ottast gos á Kröflusvæðinu Milli klukkan 11 og 12 i gærdag varð vart við stanslausan jarðtitring við Kröflu og slikur titringur er talinn vera undanfari eldgoss. Þess vegna var starfsfólki við Kröflu- virkjun gert að vera í við- bragðsstöðu til að yfirgefa staðinn f yrirvara laust. Síðan gerðist það svo að mikil jarðskjá Iftahrina kom um miðjan dag og var harðasti kippurinn allt að 5 stig á richterkvarða. Að lokinni þessari hrinu hélt svo titringurinn áfram. — Ég var staddur inni stöðvar- húsinu þegar stóri kippurinn kom og þótt maður sé orðinn öllu van- ur i sambandi við þessa jarð- skjálfta, þá skal ég játa það, að ég hljóp útúr húsinu, það hreinlega lék á reiðiskjálfi, sagði Þorgils Axelsson byggingastjóri við Kröflu er við ræddum við hann i gær. — Það urðu samt engar skemmdir á húsinu, en það hrikti all verulega i þvi. Borholurnar gjósa af feiknar krafti en ég fæ þó ekki séð að þær hafi neitt breytt sér við þessa hrinu. Hinsvegar töldu kunnugir menn sem fóru uppað Leirhnjúkssvæðinu að það hefði verið heldur meiri gufa úr gigunum nú en undanfarna daga, það er þó ekki öruggt, þar sem undanfarið hefur verið logn en nú var sunnan átt og reykurinn berst viðar og getur sýnst meiri fyrir bragðið. — Menn hafa haldið áfram vinnu sinni hér i dag eins og ekk- ert hafi i skorist, en eru viðbúnir að yfirgefa staðinn fyrirvara- laust. Við erum hér 43 og það er nægur bilakostur til að komast burtu i og vegir allir greiðfærir. Þessi titringur sem verið hefur hér kemur aðeins fram á mælum, við finnum hann ekki, en jarð- skjálftakippirnir þarna um miðj- an daginn voru bæði margir og snarpir sumir hverjir. Þeir voru flestir frá 3 og uppi 4,5 stig utan þessi snarpasti sem var um 5 stig, sagði Þorgils. —S.dór Luns á fundi með fréttamönnum: Engir úrslitakostir frá isl. stjórninni ,,Ég hef það álit að islenska rikisstjórnin inuni gaumgæfa viðbrögð breta við þvi niati á á- standinu, sem ég mun leggja fyrir þá að lokinni heimsókn minni hingað. Ég mun ekki hafa meðferðis frá islandi ncina úr- slitakosti frá islensku rlkis- stjórninni, og ég held að það sé mjög skynsamleg afstaða af hennar hálfu eins og á stendur.” Þetta sagði Joseph Luns á fundi með fréttamönnum á Hót- el Sögu í gær. Fréttamenn voru ekki á eitt sáttir um það hvernig bæri að túlka þessi ummæli, en sú spurning hlýtur að vakna hvort með þessum orðum hafi framkvæmdastjóri NATO verið að gefa i skyn, að islenska stjórnin hafi fallist á að lýsa ekki yfir stjórnmálaslitum við breta að svo stöddu og ekki sett Luns og bretum neinn frest til þess að koma bresku herskipun- um út úr fiskveiðilögsögunni. ,,Ég er ekki eiginlegur samn- ingamaður i þessari deilu, held- ur miklu frekar milligöngumað- ur. Mér hefur verið falið af NATÓ-ráðinu að ganga i þessa deilu, enda er ráð fyrir þvi gert samkvæmt Ottawa-samkomu- laginu, að samráð sé milli NATÓ-rikja um öll þeirra mál, sem á einhvern hátt geta haft á- hrif á samstarfið innan Atlants- hafsbandalagsins. Ég hef ekki gert isl. rikisstjórninni nein til- boð, né heldur fer ég héðan með tilboð frá isl. stjórninni til breta. Ég mun leggja sjálfstætt mat á ástandið og moguleika til samn- inga. Ég tel mig hafa góða vit- neskju um afstöðu isl. stjórnar- innar og almenningsálitið á.ls- landi. Þetta er ekki i fyrsta sinn, sem ég hef afskipti af fiskveiði- deilum breta og islendinga og ég hef rætt hér við rikisstjórnina alla, forystumenn stjórnarand- stöðuflokka svo og fulltrúa sjó- manna og ASI.” Það var greinilegt af máli Luns, að hans hlutverk er annað og meira en aðeins að ná sam- komulagi um að þresku freigát- urnar verði á brott úr isl. land- helginni. Luns lagði áherslu á það að mjög litill timi væri til stefnu til þess að koma þvi hættulega og eldfima ástandi sem nú rikti á Islandsmiðum i eðlilegt iiorf, þannig að aðilar gætu ræðst við. A fundinum sagðist Luns vera vongóður um að milliganga hans myndi hafa einhver áhrif. Fyrsta vanda- málið sem þyrfti að leysa væri að fá aðila aftur að samninga- borðinu, næsta skrefið að finna Framhald á 10. siðu. Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra: Stj ómmálasambandi slitið næstu daga Þjóðviljinn sneri sér til Ólafs Jóha nnessonar dómsmálaráð- herra i gær og spurði hann hvort islcnska rikiss tjórnin hefði vegna áhrifa frá I.uns ákveðið að fresta slitum stjórnmála- sambands við breta eins og ut- anrikismálanefnd alþingis hafði samþykkt að leggja til. — Nei, það verður ekki gcrt. Jósep Luns hefur ekkert sátta sem jarahlutverk i landhelgis- deilunni. Hann kom hingað til þess eins að heyra hversu alvar- legt ástand hcfði skapast hér á landi vcgna framkomu bresku herskipanna. Og hann fer ekki héðan með neinar orðscndingar frá okkur til breta, sagði Ólafur Jóhannesson. Ólafur sagði að hann myndi i dag, föstudag, fara á fund utan- rikismálanefndar alþingis til þess að fara yfir álit sérfróðra á niðurstöðum sjódómsins. Hann sagðist hafa skilið utanrikis- málanefnd svo að hún vildi hafa Lögreglan réðist á íslenskan blaðamann — sjá 7. síðu blaðsins Mótmælendur gerðu grin að handapati lögrcglunnar og spurðu hvort hreinsunardeild borgarstjóra hefði verið send á vettvang til þess að hreinsa ærlega til. Mynd gsp. Hús tekið á Nató-Manga — Þetta var eiginlega orðið „maður á mann” þarna uppi á skrifstofunni þegar við ákváðum að yfirgefa staðinn án slagsmála við lögregluna, sagði Garðar Mýrdal i samtali við Þjóðviljann en hann var einn þeirra, sem I gær sóttu Magnús Þórðarson, starfsmann NATO, heim á skrif- stofu hans. Þrjátiu manns lokuðu skrifstof- unni og hindruðu lögreglu i að komast inn i húsið og siðan aftur við að komast inn á skrifstofuna. Hurðum var læst og braut lög- reglan þær báðar upp. Hinir óboðnu gestir á skrifstof- unni, einkum eða eingöngu ungt fólk, dreifði út um glugga flugriti og sögðust vera baráttuhópur verkafólks og námsmanna. Væru þau með þessum aðgerðum að mótmæla innrás breska NATO- flotans, siendurtekinni ihlutun NATO i islensk málefni, aðild Is- lands að NATO, herstöð NATO á Miðnesheiði og ekki sist þvi að NATO skuli reka hérlendis áróð- ursmiðstöð, til hús að Garða- stræti 42. Magnús Þórðarson tók heim- sókninni, sem átti sér stað klukk- an hálfellefu i gærmorgun, af stillingu en hringdi tafarlaust á lögregluna. Er hún kom að læst- um útidyrum var Hafsteinn Bald- vinsson, lögmaður, sem aðsetur hefur innan sömu útidyra, hindr- aður er hann hugðist opna. Lögreglan reyndi einnig að brjóta upp dyrnar að skrifstofu NATO án þess þó að biðja fólk innan dyra um að opna. Er fólkið sá að hverju stefndi opnaði það ó- beðið og hleypti lögreglunni inn. Þau tóku það fram að engum væri þar haldið föngnum, Magnúsi starfsmanni væri heim- ilt að yfirgefa herbergið hvenær sem væri. Þau hygðust hins vegar hindra hann i starfi fram til klukkan fjögur. Eftir rúmlega klukkustundar langt þref og hótanir lögrglunnar um að fjarlægja fólkið með of- beldi, var húsið yfirgefið án þess að til átaka kæmi. Var það upp úr hádeginu. Fjölmennt lögreglulið var þá komið á staðinn, trúlega um eða yfir tuttugu manns. Aðgerðirnar fóru friðsamlega fram af hálfu unga fólksins og frá einu átökun- um sem áttu sér stað af þessu til- efni er sagt á 7. siðu blaðsins. —gsp Blaðamannafundur Luns. þau gögn i höndunum áður en hún kvæði endanlega upp úr- skurð sinn og gerði tillögu til rikisstjórnarinnar um slit stjórnmálasambands. Ólafur sagðist gera ráð fyrir þvi að stjórnmálasambandi við breta vrði slitið næstu daga en hann neitaði að timasetja slitin nánar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.