Þjóðviljinn - 16.01.1976, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 16.01.1976, Qupperneq 3
Föstudagur 16. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 314 stýrimannaskólanemar bjóða sig fram á varðskip Skólafélag Stýri- mannaskólans i Reykja- vik og Skólafélag Vél- skóla islands í Reykjavik hafa sent forsætis- og dómsmálaráðherra eftir- farandi bréf: Vegna aðgerðaleysis stjórnvalda við verndun 200 mílna f iskveíði lög- sögu islands, hafa Skóla- félög Stýrimannaskóians i Reykjavík og Vélskóla islands safnað undir- skriftum nemenda þess efnis að þeir bjóði fram aðstoð sína til verndunar 200 mílna fiskveiðilög- sögunnar gegn yfirgangi breta. Fram kom að 314 nem- endur eru þegar reiðu- búnir að manna gæslu- skip í mánaðar tima ef stjórnvöld sjá sér fært að útvega skip til slfkra starfa. Loðnan komin í leitirnar Loðnan er komin í leit- irnar all miklu seinna en vant er og á allt öðru haf- svæði en hún hefur verið á um þetta leyti árs. Rann- sóknarmenn á rs. Árna Friðrikssyni fundu loðn- una 45-60 milur norður af Rauðanúp í fyrrinótt og var hana að finna þar á töluvert stóru svæði. Hjálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur, sem er leiðangurs- 48 breskir togarar að veiðuvn í gœrdag Herskipin slógu skjaldborg um þá og fylgdu varðskipunum eftir hvert sem þau fóru i gærdag reyndust 48 breskir landheigisbrjótar vera að veiðum á islandsmiðum. Þeir héldu sig i hnapp út af Hvaibak, verndaöir af herskipaflota NATO, dráttarbát- um og aöstoðarskipum. Tvö varðskip voru þarna nærri, en bresku herskipin eltu þau hvert sem þau fóru, en án þess þó að reyna ásiglingar að þessu sinni. Að sögn Halfdáns Henrýs- sonar hjá landhelgisgæslunni var útilokað fyrir varðskipin að kom- ast að togurunum til klippinga. Margir hafa látið i ljós kviða um hvað gerist þegar loðnuveið- arnar hefjast og islenski loðnu- skipaflotinn kemur á miðin, en sem kunnugt er tryllast bretarnir um leið og dimmir ef eitthvert skip nálgast eins og sást bæði þegar Fjallfoss fór um veiðisvæði bresku togaranna og eins þegar rannsóknarskipið Arni Friðriks- son varð fyrir áreitni bresku her- skipanna. Og nú eftir að loðnu- gangan er komin af stað austur og suður með landi gæti allt gerst á miðunum. —S.dór stjóri á Arna Friðrikssyni, sagði Þjóðv. i gær, að tekið hefði verið sýni af þeirri loðnu, sem þeir fengu i flottroll i fyrrinótt. Um er að ræða kynþroska loðnu af venjulegri stærð, en ekkert var um smáloðnu i sýninu. Hjálmar taldi óliklegtað loðnan væri komin austar en á móts við Rauðanúp á Melrakkasléttu, en hingað til hefur loðnan verið kom- in amk. austur fyrir Langanes á þessum árstima. Taldi Hjálmar að þetta benti til þess, að loðnan hefði haft það eitthvað lélegra i sumar en venjulega og þvi væri ekki óliklegt að hún yrði eitthvað horaðri en venjulegt væri á þess- um árstima. Hjálmar sagði að loðnutorfurn- ar, sem þeir fundu i nótt, hefðu verið allra fallegustu torfur, yfir- leitt á um það bil 50 faðma dýpi. Þó fundust amk. tvær torfur á 20 metra dýpi. Hjálmar sagði, að suðaustan strekkingur væri kominn þar á miðunum og bjóst ekki við þvi að veiðiveður yrði um kvöldið. Einn bátur var kominn á miðin um miðjan dag i gær. Var það Jón Finnsson GK.Loðnan stóð djúpt i gærdag, og ekki til neins að kasta á hana. Nokkrir bátar voru á leið norður fyrir land, en þeir höfðu beðið lags og frétta af loðnunni á Austfjarðahöfnum. Margir bátar hér syðra eru tilbúnir til veiða. Búist er við að fleiri bátar verði á loðnu i vetur en nokkru sinni fyrr. —úþ Fiskvinnsluskólinn án skólastjórnar í átta mánuði! Fiskvinnsluskólinn hefur ver- iö án skólastjórnar siðan i mai i vor eða I 8 mán. Þessa dag- ana er verið að skipa i skóla- nefndina, en fyrir handvömm ráðuneytismanna og mennta- málaráðherra gleymdist það á sinum tima, og haföi ráðherr- ann m.a. það á munni er skóla- nemar ræddu þetta við hann, að hann minnti að skólastjórnin skyldi ekki skipuð fyrr en i janú- ar, þannig að sú skólanefnd, sem sat til 15. mai i vor hefði verið skipuð til fjögurra ára og átta mánaða. Svo var þó ekki þvi nefndin var skipuð til fjög- urra ára og hefur þvi engin skólanefnd verið starfandi við skólann siðan i vor. —úþ Ekki konur! Um nokkur ár hefur þaö veriö siður, aö nemendur Fisk- vinnsluskólans tækju aö sér aö efnagreina loönumjöl i Sildar- verksmiðjum Ríkisins. Nú hafa Rikisverksmiðjurnar enn óskað eftir þvi við skóla- stjóra Fiskvinnsluskólans að fá nemendur skólans til þessa starfa, en taka jafnframt fram,. að alls ekki megi senda kvenfólk það, sem i skólanum stundar nám, burt séð frá getu þess og kunnáttu i efna- og eðlisfræði, en ljóst er þó að nokkur fylgni ætti að vera milli efnafræði- kunnáttu manna og hæfni til efnagreiningar. Og þó svo besti efnafræðingur skólans væri kvenmaður skyldi hún alls ekki fá starf hjá Rikisverksmiðjun- um. —úþ Sérfræðingaálitið lá fyrir í gær Að beiðni dóms- og kirkju- málaráöuneytisins skipaði Guö- mundur Jónsson, borgardóm- ari, þrja' menn til þess aö segja álit sitt á niðurstöðum sjópróf- anna i máli þvi er breska frei- gátan Leander sigldi á varð- skipið Þór. Þeir sem til þessa voru skipaðir voru Jónas Sig- urðsson, skipstjóri, skólastjóri Stýrimannaskólans, Andrés Guðjónsson, vélstjóri, skóla- stjóri Vélskóla Islands og Arni Guðjónsson, hrl. I gærdag unnu þeir þremenn- ingar að verkefni þessu og gerðu gott betur, en fara yfir dómskjöl, þvi þeir fóru inn i sjónvarpssal til þess að lita á bresku fréttamyndina af ásigl- ingunni. Ætlun þeirra þremenninga var að skila af sér áliti sinu i gær. — úþ Hagkvæm innkaup Vilt þú spara? KJÖT & FISKUR býöur kostaboö á kjarapöllum, og sértilboð 1. SÉRTILBOÐ Ritzkex 115.— 4. SÉRTILBOÐ 1 pk. kaffi 119 kr. 5. SÉRTILBOÐ Púðursykur 108 kr. pk. Flórsykur 102. kr. pk. 2. SÉRTILBOÐ Grænar baunir l/l dós 145 kr. Rauðkál l/l dós 275 kr. 3. SÉRTILBOÐ Hveiti Pillsbury’s Best 25 kg. 2900.— 5 Ibs. 278.— AUKINN VELTUHRAÐI LÁGT VÖRUVERÐ' Hvað getur 5 manna fjölskylda sparað á mánuði eða ári? KJÖT& FISKUR H/F SELJABRAUT 54 SÍMI 74200 - 74201

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.